Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1999, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Réttarhöld að hefjast ytra í máli þýska ákæruvaldsins gegn íslenskri konu:
Situr inni við illan
aðbúnað í Hamborg
- féll í yfirlið við handtöku - faðir konunnar segir aðstöðuna mannskemmandi
3 íslendingar í haldi í
Hamborg og Bremen
- 2 teknir í Lúxemborg - felustaður fíkniefna í Bremerhaven
Bremerhaven.
Holland
^ m Hamborg
Bremen Pólland
Belgía
Þýskaland
Lúxemborg
Réttarhöld hefjast á morgun í
máli 21 árs konu frá Reykjavík sem
hefur setið við afar illan aðbúnað í
gæsluvarðhaldsfangelsi í Hamborg
frá því rétt fyrir jólin. Þýska ákæru-
valdið gefur íslensku konunni að
sök að hafa haft á sér um eitt kíló af
amfetamini og 120 grömm af kóka-
íni þegar hún var á leiðinni upp í
flugvél Flugleiða í Hamborg í flug-
höfninni þar þann 22. desember.
Konan féll í yfirlið þegar verðir
stöðvuðu hana í öryggishliði flug-
hafnarinnar. Samkvæmt heimildum
DV liggur fyrir í málinu að íslensk-
ur karlmaður, 26 ára, hafði stuttu
áður fengið hana til að vera „burð-
ardýr“ fyrir sig til íslands. Hann sit-
ur inní í gæsluvarðhaldsfangelsi í
Bremen ásamt öðrum íslenskum
karlmanni á sama reki.
4ra mánaða martröð
Konan hefur nú setið rúma 4 mán-
uði í gæsluvarðhaldsfangelsinu í
Holsten Glacis i miðborg Hamborg-
ar. Allar tilraunir til að fá hana
borgaða út gegn tryggingu hafa ver-
Tveir íslendingar, 26 og 27 ára,
sitja í gæsluvarðhaldi í Bremen i
Þýskalandi eftir að lögreglan þar í
landi fékk þá framselda frá Lúxem-
borg þar sem þeir voru handteknir.
Þeir eru grunaðir um að vera upp-
hafsmenn að flutningi fikniefna sem
ung íslensk kona (sjá fréttina hér að
ofan) var tekin með á flugvellinum í
Hamborg rétt fyrir jól.
Mennirnir hafa enn ekki verið
ákærðir. Samkvæmt heimildum
DV var búið að gefa út handtöku-
skipun á hendur þeim áður en
konan var handtekin með fikniefn-
’ið árangurslausar - dómarinn i mál-
inu hefur hafnað öllum slíkum ósk-
in í Hamborg rétt fyrir jól.
Frú Deboir, einn af fulltrúum
ákæruvaldsins í Bremen, sagði í
samtali við DV að þýska lögreglan
hefði í þessu máli haft auga með
felustað fyrir amfetamín í eða við
Bremerhaven. „Þegar málið var svo
kannað þann 18. desember kom í
ljós að felustaðurinn var tómur,“
sagði frú Deboir. Aðspurð um
næstu skref í málinu sagði hún:
„Við bíðum eftir ákærum frá Ham-
borg.“
DV fékk ekki upplýst hvers vegna
lögreglan heimfærir felustaðinn og
um þrátt fyrir að sakbomingurinn
hafi strax gengist við broti sínu.
fíkniefnin á íslendingana. Á hinn
bóginn þykir ljóst að þýska lögregl-
an hafi haft það sterkar vísbending-
ar um íslendingana að hún fékk yf-
irvöld í Lúxemborg til að framselja
þá til Þýskalands þegar þeir hugð-
ust fljúga þaðan til fslands eftir að
hafa verið í Þýskalandi.
fslendingunum er haldið inni í
Bremen vegna gmns um aðild að
broti sem varðar meira en eins árs
fangelsi. Báðir mennirnir hafa setið
inni hér á landi fyrir fikniefnabrot -
annar þeirra tvisvar en hinn einu
sinni. -Ótt
Reyndar tók þýska lögregfan ekki
skýrslu af konunni fyrr en í febrúar.
Til samanburðar var íslenskur
karlmaður fyrir nokkrum vikum
„borgaður út“ gegn tryggingu úr
gæsluvarðhaldsfangefsi í allt öðru
máfi í Kleve i Þýskalandi, eftir að
hafa verið handtekinn í byrjun
desember með 2 kíló af kókaíni í
lest á fandamærum Hollands og
Þýskalands. Hann þarf að tifkynna
sig reglulega til lögreglunnar ytra,
heldur sig í Þýskalandi og bíður
eftir dómi.
Faðirinn ósáttur
„Aðstæður dóttur minnar eru
vægast sagt slærnar," sagði faðir
konunnar í samtali við DV. „Hún
er búin að vera í einangrun i fang-
an tima við einhverjar erfiðustu
aðstæður sem hægt er að hugsa
sér. Ég er ekki að tala um að fólk
eigi ekki að fá sína refsingu en
þetta er það lakasta sem ég veit
um,“ sagði faðirinn. DV hefur rætt
við íslenskan íbúa í Hamborg sem
fullyrðir að aðbúnaður í umræddu
fangefsi sé afar nöturfegur. Þar
kallist fangarnir á við aðstandend-
ur sína og vini sem standa gjarnan
á götunni fyrir utan fangelsismúr-
ana. Eftir því sem næst verður
komist eru um 1000 fangar, þar af
um 100 konur, í fangelsinu.
Faðirinn segir aðbúnaðinn í
fangelsinu og ólætin hafa komið
mjög niður á velferð dóttur hans.
„Ef hún hefur átt peninga fyrir
sígarettum, sem við foreldrarnir
höfum komið til hennar, verður
hún fyrir áreiti. Síðast þegar ég
fékk að hitta hana var andlitshúð
hennar farin að láta á sjá.“
Sendiherra íslands í Bonn hefur
komið í fangelsið í Hamborg og
hitt ungu konuna - hann fylgist
með framvindu málsins. Héraðs-
dómari mun taka málið fyrir á
morgun. Skipaður verjandi sak-
borningsins sagði í samtali við DV
að hann mundi m.a. leggja áherslu
á að freista þess að fá dómarann til
að dæma íslensku konuna í skil-
orðsbundið fangelsi. -Ótt
Þýska lögreglan fann slóð tveggja íslendinga sem eru í haldi í Bremen:
Felustaður fíkniefna var
í Bremerhaven
Vorboðar í Hús-
dýragarðinum
Þessi fallegi kálfur kom í heiminn
í Húsdýragarðinum í Reykjavík í
gær. Hann er sannkallaður vor-
boði. Hið sama gildir um ýmis
önnur dýr í garðinum. Þessa dag-
ana er mikið að gerast þar og líf-
legt í betra lagi. Lömbin eru farin
að hoppa og skoppa þar um
grundir. Það er Gunnar ísdal sem
heldur um kálfinn nýborna. Enn
hefur sá dálitli ekki fengið nafn og
er því aðeins kallaður Kálfur. Það
stendur þó til bóta.
DV-mynd Hilmar Þór
Viðræður við forseta ASÍ í gær:
Pirringurinn á mis-
skilningi byggður
- segir Níels Sigurður Olgeirsson, formaður Matvís
„Fljótt á litið sýnist mér að þetta
hafi allt verið á misskilningi byggt,
og það reyndar af allra hálfu, þó ég
tali ekki fyrir aðra,“ sagði Níels Sig-
urður Olgeirsson, formaður Matvis,
matvæla- og veitingasamþands ís-
lands, þegar DV ræddi við hann í
gær, eftir fund með forsetum ASÍ.
Þar átti hann við þann óróa sem
gætir innan verkalýðshreyfingar-
innar. Matvís, með um það bil 1400
félaga, hefur staðið utan við Alþýðu-
samþandiö - hefur meðal annars
ekki verið talið uppfylla kröfur ASÍ
um samsetningu félaga, sem flestir
eru með iðnmenntun.
Níels Sigurður sagði að fundur-
inn í gær hefði staðið í klukkutíma
og verið hinn besti.
Níels Sigurður Olgeirsson.
„Það sem háir Alþýðusamband-
inu hvað mest er að aldrei hefur
tekist að skýra línurnar nægilega
vel. Þessi pirringur, leiðindi milli
iðnaðarmanna, verslunarmanna,
verkamanna og svo framvegis, held
ég að oftar en ekki sé á einhverjum
misskilningi byggður,“ sagði Níels
og sagðist sjá fram undan bjarta
framtíð.
Innan Matvís eru iönaðarmenn í
störfum, kjötiðnaðarmenn, bakarar,
matsveinar og þjónar. Fleiri stéttir
banka upp á og óska eftir inngöngu
í Matvís, stéttir sem ekki hafa lög-
gilta iðnmenntun. Fulltrúar ASÍ og
Matvís ræða málin áfram á morgun,
miðvikudag.
Framsókn fram
Framsóknarflokkur, Vinstri
grænir og Sjálfstæðisflokkur eru í
sókn samkvæmt skoðanakönnun
sem Félagsvisindastofnun vann og
birt er í Morgunblaðinu í morgun.
Undan Samfylkingunni ijarar hins
vegar. Niðurstöður eru svipaðar og í
nýlegri DV-könnun.
Deilt um skólaliða
Ræstingafólk í
skólum borgar-
innar efnir til
baráttufundar á
morgun, mið-
vikudag, vegna
deilunnar við
borgarstjóra um
skólaliða sem
tekið hafa við ræstingum í nokkrum
skólum.
40-60% lægri
Atlantsskip hafa ákveðið að bjóða
1600 Bandaríkjadali í sjófrakt frá
Bandarikjunum fyrir 20 feta gám og
1900 dali fyrir 40 feta gám. Stefán
Kæmested, framkvæmdastjóri Atl-
antsskipa, segir í samtali við DV að
þetta sé allt að 67% lægra verð en
samkeppnisaðilamir þjóði.
KR kaupir vertshús
KR-Sport hf. hefur fest kaup á
Vesturbæjarveitingum hf„ sem rek-
ur veitingastaðina Rauða ljónið,
Sexbaujuna og Konikasstofúna á
Eiðistorgi á Seltjamamesi.
Óhyggilegt
Staða bænda sem stunda lífræna
ræktun er óviss. Stuðningur og leið-
beiningar eru af skomum skammti
og andstaða í búgreinafélögum. Það
er því óhyggilegt fyrir bændur að
fara út í lífræna ræktun að mati for-
manns Félags framleiðenda í lifræn-
um búskap. Dagur sagði frá.
Jón Guðmann líklegur
Samkvæmt heimildum Viðskipta-
blaðsins eru mestar líkur á því að
Jón Guðmann Pétursson, núverandi
fjármálastjóri Hampiðjunnar, taki
við fyrirtækinu og verði forstjóri
þess. Fréttavefur Viðskiptablaðsins
sagði frá.
Flugfreyjur ókátar
Flugfreyjur
útiloka ekki inn-
göngu í Rafíðnað-
arsambandið sem
Guðmundur
Gunnarsson
veitir forystu.
Þær eru óánægð-
ar með stöðu sína
innan ASÍ og ósáttar við veru flug-
freyja Atlanta í VR. Formaður Flug-
freyjufélagsins segir í Degi að formað-
ur VR hafi engin viðhlítandi svör gef-
ið þeim heldur einungis skítkast.
Ný flugvél
Atlanta hefur tekið á leigu nýja
Boeing 737-300 flugvél frá Air New
Zealand. Henni hefur aðeins hefur
verið flogið í 400 klukkustundir frá
því hún kom úr verksmiðjunni.
Morgunblaðið sagði frá.
íslandsvika
260 NETTO-verslanir í Danmörku
taka þátt í íslandsviku 17.-24. maí.
Þar verða kynntar framleiðsluvörar
átta íslenskra matvælafyrirtækja.
Morgunblaðið sagði frá.
Gallað slátur
Sláturfélag Suðurlands hefur beð-
ið fólk að henda soðnu slátri frá fyr-
irtækinu þar sem það er gallað. RÚV
sagðifrá.
Verst sinubrunum
Garðyrkju-
stjórinn í Reykja-
vík, Jóhann Páls-
son er með sér-
stakan viðbúnað
til að reyna að
koma í veg fyrir
sinuelda í borg-
inni og tjón af
þeirra völdum að sögn Morgim-
blaðsins.
Timbur féll af vörubíl
Timburhlass féll af vörubíl á
gatnamótum Fjarðarhrauns og
Reykjanesbrautar á annatíma í um-
ferðinni síðdegis i gær. Loka varð
gatnamótunum um tíma og umferð
tafðist mjög.
-SÁ
-JBP