Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1999, Síða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999
Viðskipti
DV
Þetta helst: .. „ Viðskipti á VÞÍ í gær 694 m.kr. . .. Hlutabréfaviðskipti 95 m.kr. . „. Úrvalsvísitalan lækkar
lítillega „. . Jökull frestar aðalfundi til 17. maí „... Baugur skráður á Aðallista Verðbréfaþings á morgun . . . Evran veik
gagnvart dollar . Airbus smíðar 107 sæta þotu í samkeppni við Boeing 737 . . . Samlíf á yfir 10% í Þróunarfélaginu . ..
Erlendar lántökur aukast
- ekki slæmt í sjálfu sér
Efnahagsmál hafa verið töluvert í
kosningaumræðunni undanfarið.
Fyrst var það viðskiptahallinn, en
sú umræða var snarlega kveðin nið-
Heimsvið-
skipti
aukast
- að mati WTO
Heimsviðskiptastofnunin,
WTO, spáði því í gær að umfang
heimsviðskipta myndi aukast um
3,5% á árinu. Þrátt fyrir þessa
spá eru menn varir um sig og
segja að töluverðir óvissuþættir
séu fólgnir í þessari spá. Sem
dæmi má nefna að síðasta spá
WTO, sem gefln var út í desem-
ber síðstliðnum, reyndist vera
4-5% of há. Það sem gæti skekkt
þessa nýju spá er til dæmis hæg-
ari uppgangur í Asíu en gert hef-
ur verið ráð fyrir. Enn fremur
getur hraðari niðursveifla í
bandaríska hagkerfinu breytt
nokkru um þessa spá. Á síðasta
ári minnkuðu heimsviðskipti um
2% eða um 6.500 milljarða doll-
ara. Samkvæmt því ættu við-
skipti á þessu ári að aukast um
11.300 milljarða dollara.
Sparisjóður
Mýrasýslu
Hagnaður Sparisjóðs Mýrasýslu
var aðeins 10,3 milljónir króna árið
1998 samanborið við 32,3 milljóna
króna hagnað árið 1997.
FBA spáir
bensínhækkun
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins
telur liklegt að bensínverð hækki
um 2-4% strax í næsta mánuði.
Ástæðan er samdráttur OPEC-ríkj-
anna á olíuframleiðslu auk þess að
verulega hefur dregið í sundur með
verðþróun erlendis og innanlands.
Hrein lánsfjárþörf opinberra
aðila 1997-1999
- tölur í milljörðum króna
1997 áætlun 1998 sná 1999
Hrein lánsijárþörf, alls 17,6 -1,3 -3,5
-Ríkissjóður A-hluti 0,4 -16,3 -21,2
-Húsnæðiskerfið 11,2 7,7 10,4
-Aðrír opinberír aðilar 6,0 7,3 7,3
Hrein lánsfjárþörf % af VFL 3,3 -0,3 -0,6
15X3
ur eftir að hagfræðingar innan Há-
skólans leiddu sannleikann í ljós.
Núna snýst umræðan um erlendar
lántökur og meintar blekkingar for-
sætisráðherra. Össur Skarphéðins-
son þingmaður sagði í kappræðum
við Pétur Blöndal í síðustu viku að
forsætisráðherra beitti blekkingum
þegar hann segði að ríkið væri að
greiða niður erlendar skuldir. Öss-
ur vildi meina að erlendar skuldir
væru að aukast. Pétur sagði þetta
rangt og þetta væri ekki ríkið held-
ur einkaaðilar sem væru að taka er-
lend lán og þess vegna væru erlend-
ar lántökur þjóðarinnar að aukast.
Báðir höfðu þeir af þessu miklar
áhyggjur og sögðu það stefnu flokka
sinna að minnka þessar lántökur.
Misskilnings gætir
Það er vissulega rétt hjá þeim
báðum að erlend lán eru að aukast,
en af hverju? i fyrsta lagi þarf að
Nýtt skip hjá
Eimskip
Eimskip hefur tekið á leigu gáma-
skipið Hanne Sif næstu tvö árin. Að
þeim tíma liðnum hefur fyrirtækið
rétt til að kaupa skipið. Skipinu hef-
ur verið gefið nafnið Selfoss og
verður skipstjóri Finnbogi Finn-
bogason. Skipið mun verða í Amer-
íkusiglingum félagsins og kemur í
stað Goðafoss sem fer í önnur verk-
efni.
gera skýran greinarmun á ríkinu og
sveitarfélögunum. Hið opinbera
samanstendur af ríki og sveitarfé-
lögum, en rekstur er aðskilinn. Við
sjáum í töflunni að ríkissjóður
greiðir niður 21,2 milljarða á árinu,
en samt minnka opinberar skuldir
aðeins um 3,5 milljarða. Ástæðan er
sú að halli sveitarfélaga á árinu er
áætlaður 3,1 milljarður og aðrir op-
inberir aðilar þurfa mikið af lánum.
Þar vegur þyngst húsnæðiskerflð
sem þarf á 10,4 milljörðum að halda.
Samkvæmt þessu eru það ekki opin-
berir aðilar sem valda þessum
Samkvæmt heimildum Viðskipta-
blaðsins er líklegast að Jón Guð-
mann Pétursson, núverandi fjár-
málastjóri Hampiðjunnar, taki við
auknu lán-
tökum heldur
einkaaðilar.
Að mati
margra
stjórnmála-
manna er það
hið versta
mál.
Þetta er
ekki rétt. í
viðskiptalíf-
inu er það al-
mennt talið
merki um
mikinn upp-
gang og bjart-
sýni þegar stór lán eru tekin. Einka;
aðilar taka aðeins lán ef þeir sjá
fram á að lántakan skili arði sem er
meiri en sem nemur kostnaði við
lántökuna. Slíkar lántökur koma til
með að skila arði og viðskiptahalli
sem myndast af þessum sökum er
ekkert tiltökumál. Það eina sem er
slæmt við erlendar lántökur er þeg-
ar hið opinbera fjármagnar sam-
neyslu með þeim. Niðurstaðan er
því sú að þegar erlendum lánum er
ráðstafað til fjárfestinga hér á landi
sem skila arði þá eru þær af hinu
góða. -BMG
fyrirtækinu. Eins og fram kom í DV
í síðustu viku var Gunnar Svavars-
son, núverandi forstjóri, ráðinn for-
stjóri SH.
Jón Guðmann Hampiðjuforstjóri?
Töluverð aflaverð-
mætisaukning
Umtalsverð aukning varð á
heildarverðmæti fiskaflans í janú-
ar miðað við sama tíma í fyrra.
Þetta kemur fram í yfirliti Hag-
stofunnar. Heildarverðmæti fisk-
aflans í janúar var 3.655 milljónir
en í janúar 1998 var verðmæti
2.240 milljónir. Mest aukning varð
í botnfiskafla eða 62% en upp-
sjávarafli jókst einnig. Verðmæti
þorskafla jókst úr 1.065 milljónum
í 1.820. Verðmæti loðnuaflans jókst
úr 90 milljónum í 363. Hins vegur
hefur verðmæti skel- og
krabbaafla minnkað töluvert. Þar
munar mest um aflahrun á rækju.
-BMG
Verðmæti fiskaflans í janúar
- tölur í miilj. kr.
Botnfiskafti Uppsjávarafli Skel/krabba og
Heimild: Hagstofa íslands annar II »1l1,3
Stórkaup
I Básafelli
Útgerðarmaðurinn Guð-
mundur Kristjánsson keypti i
síðustu viku 7,6% hlut í Bása-
felli hf. Að nafnvirði er þetta
57,8 milljónir króna og miðað
við núverandi gengi bréfa
Básafells má ætla að kaupverð-
ið hafl verið um 86 milljónir.
Kreppunni lokið
Að mati forstjóra Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins, Michel
Camdessus, virðist þeirri efna-
hagslægð sem verið hefur í
heiminum undanfarin ár vera
lokið. Þrátt fyrir það eru fé-
lagslegar afleiðingar krepp-
unnar miklar.
Siemens og IBM
í viðræðum
Þýska stórfyrirtækið Siem-
ens og tölvurisinn IBM hafa
tilkynnt að þau eigi í viðræð-
um um frekari samvinnu. Fyr-
irtækin eru nú þegar í víðtæku
samstarfi en nú bendir margt
til að þau muni fara í enn nán-
ara samband en sameining er
ekki á dagskrá.
Sparisjóður Bol-
ungarvíkur með
hagnað
Árið 1998 var besta rekstrar-
ár Sparisjóðs Bolungarvíkur
frá upphafi. Hagnaður ársins
var 49 milljónir en hagnaður
árið 1997 var aðeins 9 milljón-
ir.
Kínverjar vilja
í WTO
Viðræður eru hafnar milli
Kínverja og embættismanna
Evrópusambandsins um aðild
Kínverja að Heimsviðskipta-
stofnuninni WTO. Kínverjar
eru stórir aðilar í heimsvið-
skiptum og líklegt er að aðild
þeirra muni styrkja stofnun-
ina.
Fyrirtækjalausnir Nýherja - Vorráðstefna
á Hótel Örk 7. og 8. maí
Nýherji blæstil ráðstefnunnar „Fyrirtækjalausnir Nýherja''
7. og 8. maí á Hótel Örk ( Hveragerði og er það í sjöunda
skipti sem Nýherji efnirtil slíkrar ráðstefnu sem ávallt
hafa verið feikivel sóttar. Á ráðstefnunni gefst tækifæri
til að kynnast flestum þeim lausnum og nýjungum sem
fyrirtækið hefur að bjóða íslenskum fyrirtækjum.
Ráðstefnunni lýkur á hádegi laugardaginn 8. maí.
Haldnir verða yfir 30 fyrirlestrar og margir þeirra af
erlendum fyrirlesurum. Umfjöllunarefni er mjög fjölbreytt,
s.s. IBM AS/400 nýjungar og lausnir, IBM RS/6000 og
IBM WebSphare, netverslun og SET staðalinn, System/390,
Lotus Notes lausnir, SAP fjárhagsupplýsingakerfið, nýjungar
og lausnir í netbúnaði, PC sparnaðarmöguleikar, Netfinity
netþjóna, nettölvu IBM,Tivoli netumsjónarbúnað,fjármögn-
unar- og rekstrarleigu, Canon nettengdar Ijósritunarvélar,
afgreiðslukerfi, ráðgjöf Nýherja og þjónustudeild Nýherja.
Þátttaka tilkynnist með rafrænni skráningu frá heimasíðu
Nýherja http://www.nyherji.is eigi síðar en föstudaginn 30.
apríl nk. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má einnig
finna á heimasíðu Nýherja.
* Sparaðu þínu fyrirtæki fé með lausnum Nýherja
* Hittu alla helstu tölvuumsjónarmenn landsins
* Eigðu Ijúfa daga í sveitasælunni í Hveragerði
* Bókaðu strax því þátttakendafjöldi er takmarkaður
NÝHERJI
Skaftahlíð 24 ■ S:569 7700
http://www.nyherji.is