Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1999, Blaðsíða 26
34
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999
Fólk í fréttum___________
Gunnar Svavarsson
Gunnar Svavarsson viðskipta-
fræðingur, Fjarðarseli 26, Reykja-
vík, hefur verið ráðinn forstjóri
Sölumiðstöðar hraðfrystihúsanna.
Starfsferill
Gunnar fæddist í Reykjavík 6.11.
1951. Hann lauk stúdentsprófi frá
MR 1971, stundaði nám í viðskipta-
fræði við HÍ og lauk þaðan prófum
1975.
Gunnar var viðskiptafræðingur
hjá Hampiðjunni hf. 1975-79, fjár-
málastjóri fyrirtækisins 1979-84 og
forstjóri Hampiðjunnar 1984-99 er
hann tók við forstjórastarfi hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna.
Gunnar sat i stjórn Lífeyrissjóðs
verkstjóra 1984-96, í stjórn Félags ís-
lenskra iðnrekenda frá 1984 og for-
maður 1991-93, var varaformaður
Samtaka iðnaðarins frá 1993, í
stjóm Granda hf. frá 1988, í stjórn
Icecon hf. 1991-93, í framkvæmda-
stjórn VSÍ frá 1991, í stjórn Verð-
bréfasjóðs VÍB frá 1993, í stjóm Rík-
iskaupa frá 1993, í stjóm Þormóðs
, ramma frá 1994 og í ráðgjafanefnd
Iðnþróunarsjóðs 1995-96.
Fjölskylda
Gunnar kvæntist 3.12. 1976 Ólöfu
Björk Þorleifsdóttur, f.
22.8. 1953, deildarstjóra
hjá Fiskveiðasjóði fs-
lands. Hún er dóttir Þor-
leifs Þorsteinssonar, f.
25.6. 1929, járnsmiðs í
Kópavogi, og k.h., Ragn-
heiðar Jónasdóttur, f. 8.1.
1931, húsmóður.
Börn Gunnars og
Ólafar Bjarkar eru Valur
Þór, f. 5.6. 1973, nemi í
Danmörku; Berglind, f.
16.9. 1980, menntaskóla-
nemi.
Systkini Gunnars: Edda, f. 27.10.
1941, markaðsstjóri, búsett í Reykja-
vík; Jóhannes Óttar, f. 24.6.1943, sjó-
maður, búsettur í Reykjavík; Bragi,
f. 23.10.1958, bílamálari og prentari,
búsettur í Kópavogi.
Foreldrar Gunnars: Svavar Jó-
hannsson, f. 13.10.1919, fyrrv. skipu-
lagsstjóri hjá Búnaðarbanka fs-
lands, og k.h., Helga Jóhannesdótt-
ir, f. 5.7. 1920, húsmóðir.
Ætt
Svavar er sonur Jóhanns Frið-
riks, byggingameistara og arkitekts
í Reykjavík Kristjánssonar, b. á
Litlu-Hámundarstöðum Jónssonar,
b. þar, bróður Hallgríms, langafa
Guðjóns B. Ólafssonar,
forstjóra SÍS, og langa-
langafa fréttamannanna
Atla Rúnars og Jóns Bald-
vins Halldórssona. Annar
bróðir Jóns var Þorlákur,
langafi Björns Th. Bjöms-
sonar listfræðings. Jón
var sonur Hallgríms, b. á
Stóru-Hámundarstöðum
Þorlákssonar, dbrm. á
Skriðu Hallgrímssonar,
bróður Gunnars, afa
Tryggva Gunnarssonar
bankastjóra og langafa Hannesar
Hafstein. Annar bróðir Þorláks var
Jón í Lóni, langafi Pálínu, móður
Hermanns Jónassonar forsætisráð-
herra, fóður Steingríms, fyrrv. for-
sætisráðherra. Móðir Kristjáns var
Þuríður Helga Stefánsdóttir, b. í
Hraukbæ Jónssonar. Móðir Jó-
hanns var Guðrún Vigfúsdóttir, út-
vegsb. á Hellu, bróður Þorvalds, afa
Jóhanns Sigurjónssonar skálds og
Snjólaugar, ömmu Magnúsar Magn-
ússonar, fyrrv. rektors Edinbogar-
háskóla. Vigfús var sonur Gunn-
laugs, b. á Hellu Þorvaldssonar.
Móðir Guðrúnar var Anna Rósa
Þorsteinsdóttir, b. á Skáldalæk
Jónssonar, og Rósu Jónsdóttur,
systur Sigríðar, langömmu Rósu,
móður Baldvins Tryggvasonar,
fyrrv. sparisjóðsstjóra.
Móðir Svavars var Mathilde Vikt-
oria Kristjánsson, dóttir Olavs Foss,
ljósmyndara í Osló, og Marie Grön-
dahl.
Helga er systir Ólafs, fyrrv. fram-
kvæmdastjóra hjá SÍBS. Helga er
dóttir Jóhannesar, iðnverkamanns í
Reykjavík Jónssonar, b. í Huppa-
hlíð Jónssonar. Móðir Jóhannesar
var Ólöf Helgadóttir.
Móðir Helgu var Soffía Jónsdóttir
landpósts, bróður Elínborgar, móð-
ur Sigsteins á Blikastöðum og Jóns
dýralæknis Pálssona. Jón var sonur
Stefáns, b. á Þóreyjarnúpi, bróður
Guðrúnar, ömmu Sveins Bjömsson-
ar forseta. Önnur systir Stefáns var
Sigurbjörg, amma Jóns Þorláksson-
ar forsætisráðherra. Þriðja systir
Stefáns var Þórunn, langamma Jó-
hanns Hafstein forsætisráðherra,
fóður Péturs, forseta Hæstaréttar.
Stefán var sonur Jóns, pr. á Hösk-
uldsstöðum Péturssonar, og Elísa-
betar, systur Kristínar, langömmu
Finnboga Rúts, föður Vigdísar Finn-
bogadóttur. Elisabet var dóttir'
Björns, ættföður Bólstaðarhlíðar-
ættar Jónssonar. Móðir Jóns land-
pósts var Margrét Pétursdóttir frá
Miðhópi. Móðir Soffiu var Amdís
Helga Bjarnadóttir.
Gunnar Svavarsson.
Afmæli
Svanhildur G. Jónsdóttir
Svanhildur Guðbjörg Jónsdóttir
húsmóðir, Þangbakka 8, Reykjavík,
er sextug í dag.
Starfsferill
Svanhildur fæddist í Reykjavik
og ólst þar upp í vesturbænum. Hún
lauk skólaskyldu í Laugarnesskóla.
Svanhildur hefur stundað ýmis
störf. Hún var m.a. starfskona á
Elli- og hjúkmnarheimilinu Grand
í fímmtán ár og starfaði við ræsting-
ar í Vogaskóla. Lengst af hefur hún
þó verið heimavinnandi.
Fjölskylda
Svanhildur giftist 19.10. 1957
Kristni Marinó Gunnarssyni, f. 23.8.
1934, d. 17.6. 1979, bifvélavirkja í
Reykjavík. Hann var sonur Gunn-
ars Ferdinards Guðmundssonar, f.
12.6. 1912, d. 28.5. 1987, bifvélavirkja,
búsettur í Kópavogi, og f.k.h., Sigur-
jónu Kristinsdóttur, f. 28.10. 1905,
húsmóður.
Böm Svanhildar og Kristins Mar-
inós eru Jón Gunnar Kristinsson, f.
12.11. 1958, verslunarmaður í
Reykjavík en kona hans er Stein-
unn Skúladóttir, f. 21.10. 1954 og
eiga þau fjögur böm; Þuríður Ósk
Kristinsdóttir, f. 10.10.1959, talsíma-
vörður í Reykjavík og á hún íjögur
börn; Sigurjóna Kristinsdóttir, f.
28.10.1960, húsmóðir í Reykjavík og
á hún fimm böm; Kristinn Bragi
Kristinsson, f. 8.12. 1961, bifvéla-
virki í Kópavogi en kona hans er
Bryndís Olsen, f. 23.8. 1974 og eiga
þau þrjú börn; Brynjar Kristinsson,
f. 9.3. 1963, d. 24.3. 1996, hárgreiðslu-
meistari í Englandi; María Hafdís
Kristinsdóttir, f. 17.8. 1965, prent-
smiður í Reykjavík, en maður
hennar er Birkir Þór
Fossdal, f. 30.11. 1962 og
eiga þau tvö böm; Bryn-
dís Hugrún Kristinsdótt-
ir, f. 21.3.1972, húsmóðir í
Reykjavík en maður
hennar er Guðbjartur Óli
Kristjánsson, f. 10.9. 1973
og eiga þau þrjú böm.
Svanhildur giftist 31.12.
1993 seinni manni sínum,
Rafni Reyni Bjarnasyni, f.
16.10. 1936, verktaka í
Reykjavik. Rafn Reynir er
sonur Bjarna Guðmunds-
sonar, skipasmiðs í Reykjavík, og
k.h, Gestfriðar Ólafsdóttur húsmóð-
ur.
Hálfsystkini Svanhildar, sam-
feðra, era Svanhildur Jónsdóttir,
lést tíu ára; Svava Hansdóttir, f.
28.12. 1921, búsett á Suðureyri við
Súgandafjörð; Bragi Marteinn Jóns-
son, f. 29.1. 1927, d. 1960.
Foreldrar Svanhildar
vora Jón Kristján Ein-
arsson, f. 25.4. 1902, d.
25.2. 1972, sjómaður í
Reykjavík, og k.h., Ósk
Þuríður Guðbjartsdóttir,
f. 28.4. 1898, d. 31.10. 1951,
húsmóðir.
Ætt
Föðurforeldrar Svanhild-
ar voru Einar Guð-
mundsson, skósmiður á
isafirði, og k.h., Svanhildur Jóns-
dóttir húsmóðir.
Svanhildur verður heima á af-
mælisdaginn.
Svanhildur G.
Kristinsdóttir.
Sverrir Davíðsson
, Sverrir Davíðsson, fyrrv. sjómað-
ur, Bláhömrum 2, Reykjavik, er sjö-
tugur í dag.
Starfsferill
Sverris fæddist í Ólafsvík og ólst
þar upp til fíórtán ára aldurs. Þá
flutti hann tii Reykjavíkur þar sem
hann hefur átt heima síðan.
Sverrir var í millilandasiglingum
og á togurum á árunum 1947-77.
Hann stundaði síðan ýmis störf í
landi en síðustu tólf árin starfaði
hann hjá Tollvörugeymslunni í
^ Reykjavik.
Sverrir hefur starfað mikið í AA-
samtökunum. Þá er hann mikill KR-
aðdáandi.
Fjölskylda
Sverrir kvæntist 26.10. 1987 Hildi
Hafdísi Valdimarsdóttur, f. 15.4.
1937, d. 3.10. 1998, verslunarmanni.
Hún var dóttir Valdimars Valdi-
marssonar og Sigurbjargar Helga-
dóttur.
Sonur Sverris og Svövu Péturs-
dóttur var Pétur Sverrisson, f. 23.11.
1954, d. 25.9. 1977.
Hildur á fíögur börn frá fyrra
hjónabandi.
Systkini Sverris: Friðbjörg, f.
Hjálmarssyni sem lést 1983; Kristín,
f. 29.3. 1916, d. 1972, var gift Guð-
mundi P. Ólafssyni sem lést 1978;
Guðrún, f. 12.4. 1920, d. 1997, var
gift Héðni Jónssyni sem lést 1950;
Eyjólfur, f. 28.10. 1924, kvæntur
Bertu Guðrúnu Engilbertsdóttur.
Foreldrar Sverris voru Davíð
Kristján Einarsson, f. 1882, d. 1970,
verslunarmaður i Flatey og í Ólafs-
vík, og k.h., Sigríður Eyjólfsdóttir, f.
1886, d. 1943, húsmóðir.
Ætt
Davíð var sonur Einars Kolvig,
farmanns í Bandarikjunum Guð-
bjartssonar, b. í Kollsvík Ólafsson-
ar, b. í Hænuvik Halldórssonar.
Móðir Guðbjarts var Guðbjörg
Brandsdóttir, b. á Hofsstöðum í
Þorskafirði Árnasonar. Móðir Ein-
ars var Guðrún Magdalena Hall-
dórsdóttir Kolvig, skipherra i
Stykkishólmi Einarssonar, ættfoður
Kollsvíkurættar Jónssonar. Móðir
Guðrúnar Magdalenu var Halldóra
Tómasdóttir, b. á Hrauni á Ingjalds-
sandi Eiríkssonar, og Þuríðar Páls-
dóttur, i Álfadal Hákonarsonar, af
ætt Mála-Snæbjarnar.
Móðir Davíðs var Guðrún Jóns-
dóttir, b. á Skeiði í Selárdal Guð-
mundssonar.
Sigríður var hálfsystir, sam-
mæðra, Guðmundar, kaupmanns og
útgerðarmanns í Flatey, afa Atla
Heimis Sveinssonar tónskálds. Sig-
ríður var dóttir Eyjólfs, frá Sviðn-
um við Breiðafíörð Ólafssonar, b. í
Sviðnum Teitssonar, b. á Kinnar-
stöðum Ólafssonar. Móðir Eyjólfs
var Björg Eyjólfsdóttir, eyjajarls,
alþm. og hreppstjóra í Svefneyjum
Einarssonar.
Móðir Sigríðar var Kristín, hálf-
systir, sammæðra, Jóns Sveinsson-
ar, Nonna. Kristín var dóttir Guð-
mundar, pr. á Grenjaðarstað og á
Borg á Mýrum Bjarnasonar, og Sig-
ríðar Jónsdóttur, frá Reykjahlíð í
Mývatnssveit.
31.10. 1913, d. 1993, var gift Karli
Beltin bjarga
www.umferd.is
Til hamingju með afmælið 27. apríl
85 ára
Haraldur Stígsson, Hraunbæ 38, Reykjavík. Ester Sveindóttir, hjúkranarheimilinu Eir, Reykjavík.
80 ára
Sæmundur Einarsson, Rauðalæk 35, Reykjavík.
75 ára
Sigurlaugur Þorkelsson, Hávallagötu 22, Reykjavík. Karl Sölvason, Álftamýri 42, Reykjavík. Páll Jóhannsson, Hraunbæ 118, Reykjavík.
70 ára
Inga Guðrún Ingimarsdóttir húsmóðir, Tunguseli 4, Reykjavík. Eiginmaður hennar er Skúli Einarsson, starfsmaður Matsveinafélags íslands.
60 ára
Halldór Guðjónsson, Fannafold 7, Reykjavík.
50 ára
Sigurður Jakobsson, Goðheimum 2, Reykjavík. Kristinn Páll Einarsson, Heiðarlundi 4 E, Akureyri. Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson, Sunnubraut 8, Dalvík. Halldóra Ásmundsdóttir, Hrafnsmýri 4, Neskaupstað.
40 ára
Kristín Friðriksdóttir, Njálsgötu 71, Reykjavík. Geir Sigurður Sigurjónsson, Kirkjuteigi 31, Reykjavík. Þorsteinn S. McKinstry, Veghúsum 31, Reykjavík. Þórarinn Ásmundsson, Frostafold 34, Reykjavík. María Friðrika Hermannsdóttir, Hamarsstíg 3, Akureyri. Björgvin Jónsson, Fögmsíðu 5 B, Akureyri. Hlöðver Steingrímsson, Laugartúni 25, Akureyri. Sigurður Joensen, Eskifirði, Eskifirði. Józef Daszkiewicz, Litlagerði 2 B, Hvolsvelli.