Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1999, Page 18
Undirbúningur stendur nú yfir
við gerð Mission: Impossible 2.
Sem fyrr er það njósnarinn Ethan
Hunt, sem Tom Cruise leikur, sem
er aðalpersónan. Til sögunnar kem-
ur faðir hans og þykir mörgum eldri
leikurum það freistandi hlutverk.
Um tíma hefur því verið haldið fram
að Ian McKellan muni leika fóður-
inn en nú er talið líklegast að það
verði Anthony Hopkins sem fái þetta
eftirsótta hlutverk. Auk þeirra
tveggja leika í myndinni, sem hinn
ágæti Hong Kong leikstjóri John
Woo leikstýrir, Ving Rhamses (var í
fyrri myndinni), Thandie Newton og
Dougray Scott. Hopkins, sem fyrir
stuttu sagðist vera hættur að leika í
kvikmyndum, stendur ekki við orð
sín því nýlega lauk hann við að leika
í Titus, sem gerð er eftir leikriti
Williams Shakespeares, Titus
Andronicus, og nú þegar framhaldið
af Silence of the Lambs er komið út
í skáldsöguformi hefur hann verið
sagður jákvæður á að bregða sér aft-
ur i gervi Hannibal the Cannibal.
Hver annar ætti svo sem að leika
hann?
Sharon Stone hefur ekki náð sér
almennilega á strik í síðustu kvik-
myndum sínum, ef frá er tekinn leik-
ur hennar í Casino þá hefur hún
ekkert gert af viti síðan Basic In-
stinct. Næsta kvikmynd hennar heit-
ir Simpatico og nú er bara að sjá
hvemig henni tekst til þar. Ekki get-
ur hún kvartað yfir mótleikurum
sínum sem eru Nick Nolte, Jeff
Bridges og Albert Finney, sem eru
þekktir fyrir annað en að skila
slæmum leik. Fjallar myndin um
elskendur (Nolte og Stone), sem lifa
á veðmálum. Þeim tekst ásamt vini
þeirra (Bridges) að komast yfir
mikla peninga með ólöglegum hætti
í veðmáli. Þegar peningamir em í
höfn stingur Bridges af með Stone og
alla peninga og skilur Nolte eftir í
súpunni. 20 ámm seinna er kominn
tími til að gera upp málin. Leikstjóri
er Matthew Warhaus.
Cameron Diaz hefur vakið athygli
margra fyrir mikinn dugnað og
þrek. Segja má að hún hafi ekki tek-
ið sér frí síðan hún lék á móti Jim
Carrey i The Mask. Þessa dagana er
hún að leika undir stjórn Olivers
Stones í Any Given Sunday. MiOi
atriða samþykkti hún að fara beint í
The Invisible Circus en tökur byrja
á henni í maí og eru tökustaðir í
Frakklandi, Portúgal og San
Francisco. The Invisible Circus ger-
ist á sjöunda áratugnum og segir af
ferðum tánings (Jordana Brewster
úr The Faculty) sem reynir upp á
eigin spýtur að finna orsökina fyrir
dauða eldri systur sinnar (Diaz) sem
fannst látin á ferðalagi í Evrópu.
Auk stúlknanna leikur Christopher
Eccleston stórt hlutverk í myndinni.
Leikstjóri er Adam Brooks.
Háskólabíó frumsýnir i dag
spennumyndina Arlington Road,
sem er sálfræðitryllir er sækir efni-
viðinn í klassískt efni úr kvik-
myndasögunni, efni sem leikstjórar
á borð við Alfred Hitchcock skil-
uðu frá sér um miðbik aldarinnar í
eftirminnUegum kvikmyndum. Jeff
Jeff Bridges er sonur leikarans Lloyd Bridges
og yngri bróöir Beau Bridges. Hann var aðeins
fjögurra mánaða gamall þegar hann kom fyrst
fram í kvikmynd, The Company She Keeps hét
hún. Átta ára gamall var hann farinn að leika
af og til í sjðnvarpsseríu föður síns, Sea Hunt,
og var tíður gestur á unglingsárum sinum í
The Lloyd Bridges Show sem var vinsæll dag-
þáttur. Tuttugu og tveggja ára gamall fékk
hann sína fyrstu óskarstilnefningu fyrir leik
sinn I The Last Picture Show. Eins og sumir
aðrir kollegar hans sem hafa verið á miklum
hraöa á framabrautinni lenti hann um skeiö í
eiturlyfjum og var eitt sinn hætt kominn undir
LSD áhrifum. Tuttugu og átta ára gamall hætti
hann allri vitleysunni, giftist Susan Geston og
hefur lifað fjölskyldulífi síðan.
Fæðlngardagur og ár: 4. desember 1949.
Fæölngarstaður: Los Angeles, Kaliforníu.
Stjörnumerkl: Sól í bogamanninum, tungl í tví-
burum.
Foreldrar og systklnl: Lloyd Bridges, leikari
(látinn), Dorothy Bridges, Beau Bridges, leik-
ari.
Eiginkona og börn: Susan Geston, Isabelle,
Jessica, Hayley.
Helstu kvlkmyndlr: The Last Plcture Show
(1971), Fat Clty (1972), The lceman Cometh
(1973), Thunderbolt and Llghtfoot (1974),
The Last Amerlcan Hero (1974), Klng Kong
(1976), Wlnter Kllls (1979), Heaven’s Gate
(1980), Tron (1982), Agalnst all Odds
(1984), Starman (1984), Jagged Edge
(1985), The Mornlng after (1986), Tucker:
The Man and Hls Dreams (1988), See You In
the Mornlng (1989), The Faboulous Baker
Boys (1989), Texasvllle (1990), The Flsher
King (1991), The Vanishlng (1993), Fearless
(1993), Blown Away (1994), Wild Blll
(1995), The Mlrror Has Two Faces (1996),
White Squall (1996), The Blg Lebowskl
(1998), Arllngton Road (1998).
bíódómur
Stjörnubíó
Waking Ned ★ ★★
Sprækir gamlingjar
Lelkstjórn og handrit Kirk Jones.
Kvlkmyndataka Henry Braham.
Tónllst Shaun Davey.
Aðalhlutverk: lan Bannen, David Kelly,
Fionnula Flanagan, Susan Lynch, James Nes-
bitt.
í írska smáþorpinu Tullymore
bjuggu til skamms tíma 53 sálir en
hefur nú fækkað um einn. Ástæð-
an er sú að einum íbúanna, gaml-
ingjanum Ned Devine, varð svo
mikið um þegar hann hlaut lottó-
vinning upp á 6,8 milljónir punda
(um átta hundruð milljónir króna)
að hann geispaði golunni. Tveir
aldraðir heiðursmenn, Jackie og
Michael, geta ómögulega hugsað
sér að láta þetta fé renna aftur i
lotterípottinn og brugga því mikil
launráð með hjálp hinna þorpsbú-
anna. Hugmyndin er að telja
sendimanni lotterísins trú um að
Ned sé bara eldhress með því að
láta Michael þykjast vera Ned og
skipta fengnum jafnt milli allra í
þorpinu (um 15 milljónir króna á
haus).
Upphefst þá hinn ágætasti skop- •
leikur með fiölskrúðugu per-
sónugalieríi og kostulegum uppá-
komum. Waking Ned sver sig í
ættina við hina keltnesku kómed-
íuhefð (bíómyndir og sjónvarps-
þættir frá írlandi, Skotlandi og
Wales) þar sem ekki er þverfótað
fyrir sérvitringum og forgangsröð-
in kann að virðast einkennileg en
er þegar allt kemur til alls í raun
eðlileg sjálfsbjargarviðleitni. Af
myndum í þessari deildinni má
nefna The Englishman who Went
up a Hill but Caine down a
Mountain (þvílíkur titiU!), The
Snapper, Local Hero og sjónvarps-
þættina BaUykissangel.
AUt er þetta nú frekar notalegt
Bridges leikur Michael Faraday,
söguprófessor sem er orðinn ekkju-
maður. Hann býr einn ásamt tíu ára
gömlum syni sínum, Grant, í út-
hverfi höfuðborgarinnar Wash-
ington. Tvö ár eru liðin frá því eig-
inkona Faraday var drepin, en hún
vann fyrir FBI, og leitar þessi at-
burður mikið á prófessorinn. Af til-
vUjun vingast hann við nágranna
sína sem nýflutt eru í hverfið, Oli-
ver og Chery Lang (Tim Robbins
og Joan Cusack). Faraday tekur
þessum vinskap með opnum hug,
enda búinn að einangra sig í langan
tína. Það renna þó fljótt á hann
tvær grímur þegar hann kemst að
því að ekki er allt satt sem þau segja
um líf sitt. Óróleiki Fardays verður
að sterkum grun um að Lang hjón-
in séu aUs ekki það sem þau líta út
fyrir að vera, þau hafi eitthvað á
prjónunum sem ekki þolir dagsins
ljós. Hann er einn um þessar skoð-
anir og meira að segja vinkona hans
Brooke (Hope Davis) telur þessar
grunsemdir stafa af afbrýðisemi
vegna þess hversu Lang hjónin eru
hamingjusöm. En Faraday er viss í
sinni sök, hver eru þau, hvað vUja
þau og hvað er að gerast í næsta
húsi?
Leikstjóri Arlington Road, Mark
PeUington, hóf feril sinn að loknu
námi 1984 hjá MTV sjónvarpsstöð-
inni, sem þá var að slíta bamsskón-
um. Hann vann sig fljótt upp í að
vera einn helsti hugmyndasmiður-
inn á bak við velgengi stöðvarinnar
um leið og hann leikstýrði eigin
tónlistarmyndböndum. Hefur Pell-
ington imnið með mörgum þekktum
tónlistarmönnum og unnið til
Grammy-verðlaunanna. Meðfram
starfi hjá MTV vann hann að gerð
stuttmynda og sú frægasta er
Father’s Daze, þar sem hann fiallaði
um föður sinn sem var langt leidd-
ur af Alzheimer sjúkdómnum. Fór
sú kvikmynd sigurför á kvikmynda-
hátíðum 1994. Fyrir þremur árum
leikstýrði Pellington Going AU the
Way, fyrstu leiknu kvikmynd sinni
í fullri lengd. Var hún frumsýnd á
Sundance kvikmyndahátíðinni árið
1997 og var vinsælasta kvikmyndin
á hátíðinni það árið. Milli þess sem
hann gerði Going Ail the Way og
Arlington Road gerði hann stutt-
myndina Destination Anywhere,
þar sem í hlutverkum voru Demi
Moore, Whoopi Goldberg, Kevin
Bacon og Jon Bon Jovi.
-HK
lan Bannen og David Kelly leika félagana tvo sem vilja komast yfir lottóvinning.
og skemmtUegt, í raun aUs ekki
fiarri íslenskri þjóðarsál, maður
gæti mjög auðveldlega ímyndað
sér íslenska þorpara bregðast ná-
kvæmlega eins við. Húmorinn er
mátulega galsafenginn en mest-
megnis lágstemmdur og vissulega
kemur hið siðferðislega spursmál
um réttmæti þessara gjörða upp á
yfirborðið og hangir yfir frásögn-
inni eins og vera ber. En samt er
engin spurning um hvar samúð
manns liggur, þetta fólk er bara
svo skrambi skemmtUegt að mað-
ur óskar því aUs hins besta.
Þetta er ómenguð veUíðunar
(feelgood) kómedía og ánægjan er
ekki hvað síst fólgin í að horfa á
hvern sniUdarleikarann á fætur
öðrum skapa skondnar persónur á
áreynslulausan hátt. Þú kannast
kannski ekki við nöfn leikaranna
en margir hverjir eru þeir kunn-
ugleg andlit af sjónvarpsskjánum
og úr aukahlutverkum í bíómynd-
um. Og það er afskaplega
hressandi að sjá bíómynd þar sem
gamalmenni fara með aðalhlut-
verkin - þessir tUteknu gamlingj-
ar eru sko langt í frá dauðir úr öU-
um æðum. Ásgrímur Sverrisson
f Ó k U S 30. apríl 1999
18