Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1999, Page 21
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1999 21
DV Fréttir
Fundarhöld hjá verkamannasambandi íslands:
Undirbúningur kjarasamninga hafinn
DV, Akureyri:
Verkamannasamband íslands
hefur staðið fyrir fundarherferð að
undanförnu. Björn Grétar Sveins-
son, formaður VMSÍ, og formenn
deilda sambandsins sem eru fjórar
talsins hafa haldið fundi með stjórn-
um og trúnaðarráðum víðs vegar
um land, á Hellu, Breiðdalsvík, Eg-
ilsstöðum, Húsavík, Varmahlíð,
Borgarnesi, Reykjavík, Hafnarfirði
og í Vestmannaeyjum, en eftir er að
halda fund á ísafirði fyrir Vestfirði.
Aðalsteinn Baldursson, sem er
formaður .flskvinnsludeildar VMSÍ,
segir að á fundunum hafi m.a. verið
rætt um að nauðsynlegt væri að að-
ildarfélög VMSÍ færu saman í
næstu kjarasamningaviðræður. „Ég
vona að svo verði því það hefur
aldrei verið eins nauðsynlegt og nú
að sýna samstöðu og það hefur ver-
ið ríkjandi viðhorf á þessum fund-
um að svo verði,“ segir Aðalsteinn.
Hann .segir að vissulega megi líta
svo á að með þessari fundaherferð
sé undirbúningur næstu kjarasamn-
inga hafinn. í lok maí verður boðað
til fundar formanna og sambands-
stjórnar þar sem
kjaramálin munu
verða til umræðu
en Aðalsteinn seg-
ir vinnu við kröfu-
gerðina sjálfa
muni hefjast í
haust þegar fyrir
liggur um sam-
stöðu félaga VMSÍ.
„Það er mikil
undiralda ríkj-
andi, m.a. vegna
aukinna launa-
hækkana ýmissa
Aðalsteinn
Baldursson:
„Mikil þörf á
samstöðu."
Glæsilegt nótaskip í flotann
Nótaveiðiskipið Sveinn Benediktsson landar kolmunafarmi hjá SR-mjöli á
Seyðisfirði 27. apríl eftir fyrstu veiðiferð skipsins fyrir SR-mjöl.
DV-mynd Jóhann
DV, Seyðisfirði:
Nýkeypt nótaveiðiskip, Sveinn
Benediktsson, lagðist um hádegisbil-
ið 27. apríl að löndunarbryggju SR-
mjöls á Seyðisfirði með kolmunna-
afla úr sinni fyrstu veiðiferð hjá fyr-
irtækinu. Skipið er keypt i Noregi og
hefur verið gert út frá Bergen til
veiða á uppsjávarfiski. Það er byggt
1990 og er með 3300 ha. aðalvél.
Ganghraði er 12-13 sjómílur.
Heimahöfn verður á Reyðarfirði
enda skipstjórinn þaðan - Halldór
Jónasson sem fyrr á tíð var yfir-
maður á Snæfugli SU en síðustu
árin hjá Samherja-útgerðinni.
Skipið landaði á Seyðisfirði 1000
tonna afla sem veiddur var á Roc-
kall-svæðinu. Ekki tókst að fylla
lestar vegna þess að veður spilltist
mjög og gerði raunar hið versta veð-
ur. Allt reyndist samt vel. Bæði skip
og búnaður.
Enn þá hefur ekki verið sett veiði-
heimildaskylda á kolmunnaveiðar
og eru því margir að huga að því að
afla sér veiðireynslu og nægilega öfl-
ugra skipa með vélbúnaði sem dugar
til þessara veiða. Þær verða vafa-
laust stundaðar í auknum mæli af ís-
lenskum skipum á næstunni.
Halldór skipstjóri segir að verðið
sé að vísu mjög lágt á öllum fiski til
mjölvinnslu. Næstum því helmingi
lægra en þegar það var hæst fyrir
um tveimur árum. Vitanlega búast
menn við að botninum sé nú náð og
verðið muni brátt stíga.
í nýja skipinu er verulegur hluti
lestarrýmis frystiklefar og frystiget-
an 50-80 tonn á sólarhring, sem gæti
komið í góðar þarfir þegar stundir
líða fram. -JJ
Kvótabaninn stefnir ráðherra á ný
- krefst þess aö fá afhentan kvóta frá Fiskistofu
Valdimar Jóhannesson, sem vann
kvótadóminn fræga fyrir Hæstarétti
rétt fyrir síðustu jól, stefndi sjávar-
útvegsráðherra að nýju fyrir helgi.
Hann gekk á fund ríkislögmanns og
afhenti honum stefnuna.
„Ég krefst þess að synjun Fiski-
stofu í mars síðastliðnum á að veita
mér veiðiheimildir eða kvóta verði
dæmd ólögmæt. Ég krefst þess að fá
veiðiheimildir rétt eins og aðrir sem
þær hafa fengið," sagði Valdimar.
Hann sagöi að hann hefði fengið flýti-
meðferð á málinu fyrii’ héraðsdómi.
„Þjóðinni ber að dæma í þessu
máli. Verði það ekki gert mun fram-
kvæmdavaldið sjá til þess að niður-
staða Hæstaréttar verði að engu
höfð,“ sagði Valdimar Jóhannesson.
-JBP
Valdimar Jóhannesson, kvótabaninn sem vann sigur í Hæstarétti í desem-
ber síðastliðinum, stefndi sjávarútvegsráðherra öðru sinni. Hér er hann hjá
Ríkislögmanni, þar sem hann afhenti Einari Hallvarðssyni stefnuna.
DV-mynd Hilmar Þór
hópa eftir að við gerðum okkar
samninga. í næstu kjarasamningum
á ég von á að skattamál verði allfyr-
irferðarmikil og það verður lögð
þung áhersla á tryggingar innihalds
þeirra samninga sem verða undir-
ritaðir. Þetta er því allt að fara í
gang, enda verða fyrstu samningar
lausir 15. febrúar á næsta ári,“ seg-
ir Aðalsteinn. -gk
INNKA Uf?A S TOFNUN
REYKJA VIKURBORGAR
F ríkirkjuveqi 3-101 Reykjavík-Sími 570 5800
Fax 562 2616 - Netfang: isr@rhus.rvk.is
UTBOÐ
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í gerð
malbikaðra gangstíga ásamt ræktun í Grafarvogshverfum.
Verkið nefnist: „Gangstígar 1999 - útboð -- Grafarvogshverfi".
Helstu magntölur eru:
Lengd stíga: u.þ.b. 3.400 m
Flatarmál gangstíga: u.þ.b. 9.200 m2
Ræktun: u.þ.b. 11.200 m2
Lokaskiladagur verksins er 1. október 1999.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 4. maí nk.
gegn 10.000 kr. skilatr.
Opnun tilboða: 12. maí 1999 kl. 11.00 á sama stað.
gat 57/9
F.h. Orkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í 36 kV rafbúnað
í aðveitustöð við Korpu. Um er að ræða gaseinangraðan (SF6)
hólfaðan búnað með 7 aflrofaeiningum.
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu okkar.
Onun tilboða: 26. júní 1999 kl. 14.00 á sama stað.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
ovr 58/9__________________________________________________________
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í
verkið: „Sundhöll Reykjavíkur, endurbygging á anddyri."
Helstu magntölur eru:
Steypubrot: 16 m3
Mótauppsláttur: 90 m2
Járnbending: 1450 kg
Steypa: 16 m3
Múrhúðun: 150 m2
Málun: 300 m2
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 27. ágúst 1999.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 4. maí nk.
gegn 10.000 kr. skilatr.
Opnun tilboða: 19. maí 1999 kl. 14.00 á sama stað.
bgd 59/9
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í
viðhald loftræstikerfa í nokkrum grunnskólum Reykjavíkurborgar.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar á kr. 1.000.
Opnun tilboða: 12. maí 1999 kl. 15.00 á sama stað.
bgd 60/9
Askrifendur fó
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
Smáougtýungor
SSQSOOö