Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1999, Side 4
4
LAUGARDAGUR 15. MAI 1999
tétt/r
Rolling Stones koma ekki:
dMlMhi
Hrottalega óvænt
- segir Ragnheiður Hanson tónleikahaldari gráti nær
„Þetta var alveg hrottaiega
óvænt. Við höfðum verið að vinna
hörðum höndum aö undirbúningi
tónleikanna," segir Ragnheiður
Hanson sem unnið hefur að því
undanfarin þrjú ár að fá bresku
hljómsveitina Rolling Stones til að
spila á íslandi.
Ætlunin var að gefa út fréttatil-
kynningu á miðvikudag um komu
hljómsveitarinnar þegar reiðarslag-
ið dundi yfir og hljómleikamir voru
blásnir af á þriðjudag. Hljómleika-
för Stones, Bridges to Babylon, var
stytt um viku vegna persónulegra
ástæðna Charlie Watts trommuleik-
ara og þar með fuku íslandstónleik-
arnir út í veður og vind. Jake
Berry, sviðsstjóri Stones, hefur ver-
ið á íslandi undanfarna 10 daga við
undirbúning og bókanir á ferðum
og honum var ekki síður brugðið.
„Þetta er gífurlegt sjokk fyrir
okkur öll og ég er alveg hundfúll,"
sagði Berry við DV i gær þar sem
hann var að undirbúa brottför sína.
Hann sagði að meðlimir Stones
hefðu hlakkað til íslandsferðar enda
væru þeir mjög hrifnir af því að
spila á nýjum og spennandi stöðum.
„Það góða viö þetta allt er að ég
fékk tækifæri til að dvelja þessa
daga í fallegu landi og góðu veðri,“
sagði Berry.
Ragnheiður Hanson segist verða
mánuði að jafna sig á þessu áfalli.
Hún segist ekki tapa háum fjárhæð-
um á ævintýrinu þar sem Rolling
Stones endurgreiði það sem hún
hafi greitt fyrir fram. Hún segist
Jake Berry sviðsstjóri, Guðrún Kristjánsdóttir og Ragnheiður Hanson eru
nú að ganga frá máium eftir tónleikana sem aldrei voru haldnir. DV-mynd S
engu vilja spá um það hvort seinna
verði af komu Stones.
„Ég berst við að halda aftur af tár-
unum og vO engu spá um það hvort
þeir koma einhvern tímann. Það er
vilji þeirra að koma á næsta ári en ég
er búin að fá nóg í bili og vil fá tíma
til að jafna mig á þessum tíðindum.
Það er verst að bregðast fólkinu sem
hlakkaði til að mæta á tónleikana,"
segir Ragnheiður Hanson.
„Ég er leiður og dapur,“ segir Ólaf-
ur Helgi Kjartansson, sýslumaður ís-
firðinga og Rolling Stones aðdáandi
númer 1 á íslandi, um það að ekkert
verður af hljómleikum Jaggers og fé-
laga í Sundahöfn. Þetta er annað árið
sem Ragnheiður Hanson hljómleika-
haldari verður að afboða hljómsveit-
OPIÐ
LAUGARDAG 10-18
SUNNUDAG 12-18
TILBOÐ í MÍRU
Indversk harðviðarborð
SÓFABORÐ
110-60-40 12.900
120-75-40 13.900
135-75-40 15.900
145-90-46 21.000
160-90-46 19.900
100-100-40 15.900
HORNBORÐ
60-60-40 8.900
80-80-40 12.900
Ný sending
SÓFABORÐ
110-75-40 25.000
120-75-40 27.000
135-75-40 29.000
100-100-40 27.000
Rolling Stones koma ekki.
Erfiðleikar KÞ:
Menn fullir ótta
á Húsavík
„Auðvitað eru menn fullir ótta.
Kaupfélagið hefur á annað hundrað
manns í vinnu og atvinnulífið á
staðnum stendur og fellur með
þessu félagi," sagði Aðalsteinn Bald-
ursson, formaður Verkalýðsfélags
Húsavíkur, aðspurður um andrúms-
loftið á Húsavík í kjölfar válegra tíð-
inda um fjárhagsstöðu Kaupfélags
Þingeyinga.
Það er ekki einungis erfið staða
kaupfélagsins sem veldur mönnum
áhyggjum heldur horfa menn einnig
til dótturfyrirtækja þess. Meðal
þeirra er hin tveggja ára harðviðar-
verksmiðja Aldin hf. en taprekstur
hennar hefur einnig bitnað hart á
KÞ. Framkvæmdastjóri Aldins átti í
gær fund með formanni Verkalýðs-
félags Húsavíkur og þar á bæ eru
menn einnig áhyggjufullir.
Aðalsteinn
sagði að þrátt
fyrir að tvisýnt
væri um framtíð
kaupfélagsins
væri mikill hug-
ur í mönnum og
menn staðráðnir
að gera sitt
besta til að
halda starfsemi
Aðalsteinn Bald- þeirri sem kaup.
vinsson. félagið hefur
gengist fyrir lifandi. Hvað það varð-
ar binda menn helst vonir við
einkahlutafélög sem Landsbankinn
og KEA hafa stofnað um kjöt- og
mjólkurvinnslu KÞ og félög sem
áður hafa verið stofnuð um rekstur
matvöruverslana á félagssvæði
kaupfélagsins. -kbb
Dagpeningar Péturs Blöndal:
Fljótræðislegt
hjáforseta
Bæjarlind 6-Sími 554 6300-www.mira.is
„Mér finnst
það heldur
íljótræðislegt
hjá forseta Al-
þingis að bregð-
ast við með
fréttatilkynn-
ingu án þess að
hafa samband
við mig og fá
skýringar,"
sagði Pétur
Blöndal alþing-
ismaður um dagpeninga sína sem
hann hefur látið renna til Hjálpar-
stofnunnar kirkjunnar og greint var
frá í DV fyrr i vikunni. „Staðreynd-
ir málsins eru þær að á síðasta kjör-
Pétur Blöndal.
tímabili fór ég í tíu ferðir til útlanda
vegna starfa minna sem þingmaður
og eftir að hafa greitt allan kostnað
vegna ferðanna stóðu 550 þúsund
krónur eftir. Af þeim peningum hef
ég látiö Hjálparstofnun kirkjunnar
hafa 520 þúsund og á eftir að af-
henda þeim 30 þúsund. Ég er ekki
að þessu til að slá mig til riddara
heldur er ég í vandræðum með að
finna þessum fjármunum stað í bók-
haldinu. Þetta eru hvorki tekjur né
gjöld,“ sagði Pétur Blöndal.
Þess má geta að Ólafur G. Einars-
son forseti Alþingis er nýkjörinn
stjórnarformaður Hjálparstofnunn-
ar kirkjunnar.
-EIR
ina. Sýslumaður
er þrátt fyrir tíð-
indin bjartsýnn.
„Ég vonast þó
til aö enn geti
orðið af komu
þessara mestu
rokkara í heimi,“
segir Ólafur
Helgi, sem sjálfur
mun ekki fara á
mis við Rolling
Stones þrátt fyrir
að Sundahöfn
verði ekki vettvangur þeirra.
„Ég mun sjá þá í London 11. og 12.
júni þannig að tónleikaferðinni er alls
ekki lokið hjá mér. Reyndar eru þeir
enn í fullu fjöri og því engin ástæða til
að óttast að þeir séu hættir tónleika-
haldi. Það er því aldrei að vita nema
þeir komi seinna," segir hann. -rt
Karl á klakann
Á árum áður var nánast árvisst
að Karl Bretaprins kæmi til ís-
lands og veiddi í Hofsá. Eftir að
Díana prinsessa kom til sögunnar
hætti Kalli að koma í Hofsá, enda
væntanlega nóg að
gera við að halda
hjónabandinu sam-
an. Nú berast
Sandkornum þau
tíðindi að meira
en hugsnalegt sé
að Kalli taki sig
saman í andlit-
inu og komi.
Kunningi Karls
til margra ára er Orri Vigfússon,
formaður Norður-Atlantshafs-
sjóðsins, NASF, og faðir laxa-
stofhsins. Orri hefur undanfarin
ár ítrekað boðið Karli í Hofsá og
I nú er líklegt að hann þekkist boð-
í ið í sumar og komi með Harry
prins með sér. Óljóst er hvort
Kamilla kemur....
Reiður prestur
Borgfirðingar eru ævir vegna
þess að leggja á niður hefðbundna
jpóstþjónustu í uppsveitum og
loka pósthúsinu í Reykholti. Út-
sendarar íslandspósts héldu á
dögunum fund með
iBorgfirðingum og
fengu þar á bauk-
inn. Mættur var
Geir Waage,
sóknarprestui- og
■isjálfstæðismað-
ur, sem dregið
hefur sig að
■ mestu út úr
I landsmálaumræðu
: eftir að hafa verið sleginn af stóli
■ formanns Prestafélagsins. Geir
hélt, samkvæmt heimildum,
þrumandi ræöu yfir útsendurum
póstsins og dró hvergi af sér:
„Helvítis einkafrrmtakið," var
iméðal einkunna sem presturinn
gaf frammistöðu póstmanna.
Forystukreppa
Ef marka má fylgi Framsóknar
|í Reykjavík sýnist næsta víst að
Finnur Ingólfsson verði seint
formaður Framsóknarflokksins.
Hann hafi einfaldlega ekki fylgi
og því mimi koma
upp alvarleg
kreppa þegar Hall-
dór hættir sem
formaður. Það er
útbreidd skoðun
innan Framsókn-
ar að eftir á að
hyggja hafi hin
fagra Siv Frið-
leifsdóttir, sem
féll fyrir Finni í varaformanns-
kjöri, því trúlega verið betri kost-
ur fyrir flokkinn. Hitt er svo ann-
að mál hvort Halldór Ásgríms-
son sé á förum úr formannsstóli
þrátt fyrir ýmis þreytumerki...
Fylginu stolið!
Bjartsýnisverðlaun kosning-
anna ættu með réttu að falla kvóta-
skelfinum Valdimari Jóhann-
essyni í skaut. Hann lýsti þvi yfir
í kosningabaráttunni að stærð-
fræðingur nokkur
hefði reiknað út
leynifylgi hans
sem lofaði þing-
sætum á færi-
bandi. Valdimar
brást síðan
ókvæða við þeg-
ar kom í ljós að
þrátt fyrir að
annar maður á lista Valdi-
mars í Reykjanesi, Grétar Mar
Jónsson, heföi mokað inn atkvæð-
um dugði það ekki til þingsætis.
Hann skellti skuldinni á skoðana-
könnun DV sem sýnt heföi dræmt
fylgi við fijálslynda. DV stal leyni-
fýlginu, sagði hinn tárvoti fram-
bjóðandi...
Umsjón Reynir Traustason
s
Netfang: sandkorn @ff. is