Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1999, Síða 25
LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999
25
„Þaö þarf að gera stórátak í
efnahagsmálunum," lýsti Borís
Jeltsín Rússlandsforseti yfir þegar
hann síðastliöinn miðvikudag til-
kynnti að hann hefði tilnefnt Sergei
Stepasjín sem nýjan forsætisráð-
herra. Tilnefningin kom mörgum á
óvart, ekki síst vegna þess að Stepa-
sjín hefur aldrei á ævi sinni fengist
við efnahagsmál.
Það sem hinn nýi starfandi for-
sætisráðherra hefur hins vegar
starfað við eru lög og reglur. Hann
gerðist pólitískur liðsforingi á átt-
unda áratugnum í innanríkishem-
um. Þar með var hann orðinn einn
af þeim sem áttu að sjá um að vilji
Kommúnistaflokksins réði í hem-
um, í KGB-leyniþjónustunni og í
lögreglunni.
Slökkviliðsmaðurinn
Stepasjín vildi hins vegar verða
eitthvað annað og meira en undir-
maður. Áriö 1986
tók hann dokt-
orspróf í sögu
við Leningrad-
háskóla. Ritgerð
hans var i takt
við þá tíma sem
hún var skrifuð
á og fjallaöi um
stjórn Kommún-
istaflokksins á
slökkviliðinu í
Leningrad í
heimsstyrjöld-
inni síðari. Síð-
an hefur Stepa-
sjín verið þekktur undir viðumefn-
inu slökkviliðsmaðurinn.
Árið 1990 hækkaði Stepasjín í
tign. Hann var kjörinn á þing og
varð formaður varnar- og öryggis-
málanefndar. Stepasjín var á væng
umbótasinna en reyndi stöðugt að
finna pólitískar lausnir sem herinn
og leyniþjónustan sættu sig við.
Leynilegur her
Stepasjín varð yfirmaður
gagnnjósnaþjónustunnar FSB árið
1994. Það var sem yfirmaður hennar
sem hann kom á laggirnar leyniieg-
um her er steypa átti tsjetsjenska
leiðtoganum Dzjokhar Dudajev.
Árásin mistókst og Tsjetsjenar gátu
sigri hrósandi sýnt að þeir höfðu
tekið til fanga 58 Rússa. íkjölfar
annarra mistaka við gíslatöku í
bænum Budjonnovsk i júní 1995 var
Stepasjín rekinn. En Jeltsín mundi
eftir því hversu hollur hann hafði
verið og gerði hann að dómsmála-
ráðherra 1997. Íapríl í fyrra var
Stepasjín gerður að innanríkisráð-
herra sem er eitt mikilvægasta emb-
ættið innan rússnesku stjómarinn-
ar.
Valdabarátta
Fæstir trúa því að Jeltsín hafi
rekið Prímakov vegna þess að hon-
um hafi mistekist að ráða bót á
slæmum efnahag Rússlands. Það
þykir augljóst að Prímakov hafi ver-
ið síðasta fómarlambið í langri og
biturri valdabar-
áttu milli forset-
ans, stjórnarinnar
og þingsins. Það
hefur nefnilega
verið þjarmað að
Jeltsín úr tveimur
áttum.
Á þeim átta
mánuðum sem
Prímakov hefur
verið forsætisráð-
herra Rússlands
hefur honum tek-
ist að koma á stöð-
ugleika eftir efna-
hagshrunið síðastliðið haust.
Prímakov varð hinn raunverulegi
leiðtogi Rússlands á meðan andlegri
og líkamlegri heilsu Jeltsíns hrak-
aði. Stuðningsmenn Jeltsíns sáu
rautt vegna sívaxandi vinsælda
Prímakovs.
Málshöfðun
Neðri deild þingsins, Dúman, hef-
ur beitt sér fyrir því að mál verði
höföað á hendur forsetanum til
embættismissins. Samkvæmt
Dúmunni hefur Jeltsín gerst sekur
Erlent
fréttalj
I v\
■ r ~ jr.
Jevgení Prímakov og Sergei Stepasjín. Borís Jeltsín Rússlandsforseti
kvaðst hafa rekið Prímakov vegna þess að honum hefði ekki tekist að blása
nýju lífi í efnahag Rússlands. Stepasjín, sem Jeltsín tilnefndi í stað
Prímakovs, hefur aldrei fengist við efnahagsmál. Símamynd Reuter
Sergei Stepasjín, starfandi forsætisráðherra Rússlands, fékk viðurnefnið
slökkviliðsmaðurinn vegna ritgerðar sem hann skrifaði. Símamynd Reuter
um stjómarskrárbrot í fimm atrið-
um. Jeltsín er sakaður um glæpi í
tengslum við upplausn Sovétríkj-
anna, beitingu hervaids gegn þing-
inu 1993, að hafa komið af striði við
Tsjetsjeníu, eyðileggingu rússneska
hersins og þjóðarmorð á Rússum.
Bara atkvæðagreiðslan sjálf um til-
löguna um máishöfðun þykir mikill
pólitískur ósigur fyrir Rússlandsfor-
seta.
Látnir fjúka
Síðustu vikur hefur hann gripið
til ýmissa aðgerða sem bentu til
þess að hann hefði í raun í hyggju
að reka Prímakov. Jeltsín rak með-
al annars nýlega einn af aðstoðar-
forsætisráðherrunum í stjórn
Prímakovs, Vadím Gustov. Sergei
Stepasjín var látinn setjast í hans
stól og nú hefur Stepasjín verið til-
nefndur forsætisráðherra. En til
þess að hann geti formlega tekið við
embætti þarf Dúman að samþykkja
tilnefningu hans. Samkvæmt stjórn-
arskránni getur þingið hafnaö
kandídat forsetans þrisvar sinnum.
Þá verður þing rofið og efnt til kosn-
inga.
Brottvikning Prímakovs þykir
koma á versta tíma þar sem stjóm
hans hafði nýlega samið við Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn og Alþjóða-
bankann um lán upp á hundruð
miiljarða króna. Lánastofnanimar
höfðu sett það skilyrði að Dúman
samþykkti nýja skatta og breyting-
ar á skattalöggjöfinni. Fjármáiasér-
fræðingar segja að Jeltsín hafi tekið
pólitíska hagsmuni fram yfir efna-
hagslega þó svo að hann lýsi hinu
gagnstæða yfir.
Byggt á Aftenposten, DN og
Reuter
4p.; Aðeins í
skamman
‘ tíma.
Austurstræti 20
Suðurlandsbraut 56
McDonaid's