Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1999, Qupperneq 28
®gurð
tí'
LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999 DV DV LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999
fégurð: k
Fullt nafn: Hildigunnur Guðmundsdóttir.
Fæðingardagur og -ár: 21. ágúst 1979.
Nám/vinna: Ég starfa við fiskþurrkun í
saltfiskverkun og stunda jafnframt nám í
Kvöldskóla Suðurnesja.
Áhugamál: Ljósmyndun, skíði og ferða-
lög. Líka kærastinn minn, Einar Lars
Jónsson.
Foreldrar: Gunnhildur Gunnarsdóttir og
Guðmundur Sigurbergsson, búsett í
Keflavík.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Mér þykir gaman að reyna
eitthvað nýtt, auk þess sem það eykur
sjálfstraustið að þurfa að koma fram fyr-
ir fullum sal af fólki. Maður kynnist líka
fullt af stelpum sem koma alls staðar að.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Ég stefni á að klára stúdentinn
og læra Ijósmyndun. Ef eitthvað breytist
þá er ég opin fyrir ýmsu öðru.
Fullt nafn: Halla Rós Arnarsdóttir.
Fæðingardagur og -ár: 14. maí 1978.
Nám/vinna: Ég stunda nám við Mennta-
skólann að Laugarvatni.
Áhugamál: Hestar, íþróttir, útivist og að
vera með vinum.
Foreldrar: Björg Ingvarsdóttir og fóstur-
faðir Snæbjörn Sigurðsson, búsett í
Laugardalshreppi. Arnar Jónsson og
fósturmóðir Margrét Árnadóttir, búsett í
Garðabæ.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Ég var beðin að taka þátt
og ákvað að slá til. Ég sé ekki eftir því,
þetta hefur verið mjög skemmtilegt og
lærdómsríkt.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Ég stefni á Þroskaþjálfaskólann
og táknmálsfræði í Háskólanum.
Fullt nafn: Ásbjörg Kristinsdóttir.
Fæðingardagur og -ár: 26. júlí 1979.
Nám/vinna: Ég útskrifast af stærðfræði-
braut Verzlunarskóla íslands í vor, en hef
einnig unnið í framköllunarfyrirtæki fjöl-
skyldunnar og hjá Landsvirkjun.
Áhugamál: Ég hef mikinn áhuga á því að
ferðast innanlands og á ýmiss konar úti-
veru, svo sem skíðaiðkun og fjallgöng-
um.
Foreldrar: Kristinn Kárason og Ingibjörg
Leósdóttir, búsett í Reykjavík.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Upp á framtíðina að gera
fannst mér mjög sniðugt að hafa lært að
koma fram ófeimin.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? I haust hef ég verkfræðinám við
Háskóla fslands. í framtíðinni mun ég
starfa við eitthvað tengt náminu.
Fullt nafn: Lajla Beekman.
Fæðingardagur og -ár: 2. október
1980.
Nám/vinna: Ég vinn í líkamsræktarstöð-
inni Táp og fjör á Egilsstöðum.
Áhugamál: Hestar, ferðalög og líkams-
rækt.
Foreldrar: Björk Helle Lassen og Krist-
ján Beekman, búsett í Breiðdalnum.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Þetta er þroskandi og jafn-
framt skemmtileg reynsla sem eykur
sjálfstraustið, auk þess sem maður
kynnist nýju fólki.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Ég ætla að klára stúdentinn og
svo stefni ég á háskólanám í sálfræði.
Fullt nafn: Jóhanna Katrín Guðnadóttir.
Fæðingardagur og -ár: 4.júlí 1980.
Nám/vinna: Verkamaður í Síldarvinnsl-
unni í Neskaupstað.
Áhugamál: Vera með vinum, útivist og
fara að veiða með Þóru frænku.
Foreldrar: Guðni Haukur Sigurðsson og
Ástríður Ingibjörg Þorgeirsdóttir, búsett á
Neskaupstað.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Til þess að prófa eitthvað
nýtt og hafa gaman af. Kynnast fullt af
fólki og öölast reynslu á ýmsum sviðum.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Ég stefni á stúdent og að læra
eitthvað sem tengist snyrtifræði. Ég hef
líka áhuga á því að læra nudd síðar meir.
Fullt nafn: Guðmunda Áslaug Geirsdótt-
ir.
Fæðingardagur og -ár: 3. desember
1980.
Nám/vinna: Starfa á Hard Rock Café og
Heilsuhælinu Hveragerði.
Áhugamál: Útivera, ferðalög, tungumál
og að vera í góðra vina hópi.
Foreldrar: Guðmunda Hulda Jóhannes-
dóttir og Geir Þorsteinsson. Fósturfor-
eldrar Gunnar Sigtryggsson og Linda
Kristmannsdóttir.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Til að hafa gaman af. Það
er stór hópur af stelpum sem maður
kynnist, lærir að bera sig með glæsileika
og öðlast reynslu á sviði sem þessu.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Ég ætla að starfa eitthvað í sam-
bandi við tísku, tungumál og það sem
krefst þess að maður ferðist mikið á milli
landa.
Fullt nafn: Elín Gíslína Steindórsdóttir.
Fæðingardagur og -ár. 4. ágúst 1981.
Nám/vinna: Er á verslunarbraut í Fjöl-
brautarskólanum í Breiðholti. Vinn í
Mjólkurbúi Flóamanna í sumar.
Áhugamál: íþróttir, útivera og ferðalög.
Foreldrar: Erna Magnúsdóttir og Stein-
dór Kári Reynisson, búsett á Selfossi.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Það er lærdómsríkt og
skemmtilegt og svo finnst mér alltaf
gaman að prófa eitthvað nýtt í góðum fé-
lagsskap.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Ég hef áhuga á förðun, en ekki
er þó ráðið hvað tekur við eftir verslunar-
prófið.
Fullt nafn: Bjarney Þóra Hafþórsdóttir.
Fæðingardagur og -ár: 16. mars 1980.
Nám/vinna: Er á þriðja ári á náttúru-
fræðibraut í Menntaskólanum á Akureyri.
Áhugamál: íþróttir og þá aðallega fót-
bolti, skólinn, börn, að ferðast og hafa
það gott heima.
Foreldrar: Hafþór Róbertsson og Heið-
björt Antonsdóttir frá Vopnafirði.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Það er gaman að gera eitt-
hvað nýtt og æðislegt að kynnast fólki.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Ég ætla að fara í háskólanám
eftir stúdentspróf, annars er allt óráðið.
Fullt nafn: Elva Björk Barkardóttir.
Fæðingardagur og -ár: 26. febrúar
1981.
Nám/vinna: Nemi í FG og vinn í Kókó
með skólanum.
Áhugamál: Ferðalög, líkamsrækt,
kærastinn, vinirnir og fjölskyldan.
Foreldrar: Lisa Lotta Reynis Andersen
og Börkur Árnason, búsett í Garðabæ.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Til þess að læra að koma
fram og prófa eitthvað nýtt og skemmti-
legt.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Ég stefni á meira nám og
draumurinn er að opna mína eigin tísku-
vöruverslun, þá flottustu á Islandi.
Fullt nafn: Linda Björk Sigmundsdóttir.
Fæðingardagur og -ár: 12. apríl 1980.
Nám/vinna: Er að klára þriðja ár í Fjöl-
brautarskóla Suðurlands og vinn í versl-
uninni Horninu á Selfossi.
Áhugamál: Líkamsrækt og útivist. Fara
á skíði og vera með vinum.
Foreldrar: Sigmundur Stefánsson og
Ingileif Auðunsdóttir, búsett á Selfossi.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Til þess að kynnast nýju
fólki og reyna að hafa gaman af þessu.
Það er alltaf gaman að prófa eitthvað
nýtt.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Ég ætla að klára að læra og fara
síðan í snyrtifræði eða eitthvað þvílíkt.
Annars kemur það bara í Ijós.
Fullt nafn: Erla Jóna Einarsdóttir.
Fæðingardagur og -ár: 21. ágúst 1979.
Nám/vinna: Er á fjórða ári á félagsfræði-
braut við Menntaskólann á Akureyri.
Áhugamál: Að skemmta mér í góðra
vina hópi, lesa og teikna. Einnig að vinna
að félagsmálum innan skóla og utan.
Foreldrar: Einar Sighvatsson og Ása
Kristín Jónsdóttir, búsett á Húsavík.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Gera eitthvað nýtt,
skemmta mér og kynnast nýju fólki.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Ég ætla að fara í háskólann að
læra sálfræði árið 2000. Fer svo líklega til
Árósa í framhaldsnám í afbrotafræði.
Fullt nafn: Sigríður Ólafsdóttir.
Fæðingardagur og -ár: 21. mars 1980.
Nám/vinna: Nemi á hagfræðibraut í
Verzló og vinn í tölvuuvöruversluninni
Tæknibæ eftir skóla.
Áhugamál: Iþróttir og útivera. Hef æft
fótbolta með Stjörnunni í 10 ár.
Foreldrar: Ólafur Arason og Agnes Arth-
úrsdóttir, búsett í Garðabæ.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Það er gaman að prófa
eitthvað nýtt og gott að læra að koma
fram.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Ég stefni á framtíðarvinnu í fjöl-
skyldufyrirtækinu Tæknibæ.
Fullt nafn: Bjarnheiður Hannesdóttir.
Fæðingardagur og -ár: 13. september
1980.
Nám/vinna: Ég er á hagfræðibraut í Fjöl-
brautarskóla Suðurnesja og starfa jafn-
framt í verslun.
Áhugamál: Hestar, skíði og líkamsrækt.
Foreldrar: Hannes Arnar Ragnarsson og
Halldóra S. Lúðvíksdóttir frá Keflavík.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Mér hefur alltaf fundist
gaman að gera eitthvað nýtt. Maður
kynnist líka fullt af stúlkum alls staðar að
af landinu og ég tel að þetta geri okkur
öllum gott.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Ég ætla að verða innanhúss-
arkitekt á minni eigin stofu og líkams-
ræktarkennari.
Fullt nafn: Hrönn Sigvaldadóttir.
Fæðingardagur og -ár: 21. september
1979.
Nám/vinna: Vinn á leikskóla.
Áhugamál: Líkamsrækt, börn, fara út að
labba, og góður félagsskapur. Einnig
kærastinn minn Sigurður Jökull Kjart-
ansson.
Foreldrar: Sigvaldi Gunnarsson og Sig-
urlaug Garðarsdóttir, búsett á Akranesi.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Mér þykir gaman að vera
með. Það eykur líka sjálfstraustið og
maður kynnist nýju fólki.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Framtíðin er óráðin, en ég ætla
að klára framhaldsskólann og finna síð-
an eitthvað sniðugt.
Fullt nafn: Anna Þóra Þorgilsdóttir.
Fæðingardagur og -ár: 27. maí 1981.
Nám/vinna: Stunda nám á náttúrufræði-
braut við Fjölbrautarskóla Vesturlands.
Starfa á Hróa hetti og Byggðasafni Akra-
ness.
Áhugamál: Tónlist og að vera í góðum
félagsskap. Líka kærastinn minn, Andri
Lindberg Karvelsson.
Foreldrar: Þorgils Sigurþórsson og
Eygló Tómasdóttir búsett á Akranesi.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Það er gaman að prófa að
vera með.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Ég ætla að klára stúdentinn og
stefni að því að fara í Tækniskólann í
framhaldsnám.
Fullt nafn: Katrín Rós Baldursdóttir.
Fæðingardagur og -ár: 19. júní 1981.
Nám/vinna: Er á náttúrufræðibraut við
Fjölbrautarskóla Vesturlands.
Áhugamál: Námið, líkamsrækt og að
vera í góðum félagsskap.
Foreldrar: Baldur Árnason og Erna
Kristjánsdóttir, búsett á Akranesi.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Til þess að reyna eitthvað
nýtt og hafa gaman af.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Framtíðin er óráðin, en eftir
stúdentspróf ætla ég í framhaldsnám.
Næstkomandi föstudag verður haldin á
Broadway árleg keppni um titilinn Fegurð-
ardrottning íslands. Að þessu sinni eru
það 23 stúlkur sem keppa um hina eftir-
sóttu nafnbót. Hilmar Þór, Ijósmyndari DV,
myndaði stúlkurnar í vikunni og komst að
því að þær eru hver annarri fegurri.
Fullt nafn: Eva Stefánsdóttir.
Fæðingardagur og -ár: 26. febrúar
1980.
Nám/vinna: Hagfræðibraut í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja og vinn við þrif hjá Úr-
val-Útsýn í Keflavík.
Áhugamál: Útivist, að skemmta mér
með vinum og körfubolti (sem ég æfi
með meistaraflokki kvenna í Njarðvík).
Foreldrar: Stefán E. Bjarkason og Þor-
björg Garðarsdóttir, búsett í Njarðvík.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Til að kynnast nýju fólki,
auka við sjálfstraustið og prófa eitthvað
nýtt.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Ég stefni að því að klára fjöl-
braut og fara síðan í Háskólann að læra
viðskiptafræði.
Fullt nafn: Hlín Guðjónsdóttir.
Fæðingardagur og -ár: 5. ágúst 1978.
Nám/vinna: Starfa í snyrtivöruverslun
Hagkaups í Kringlunni.
Áhugamál: Förðun, líkamsrækt og
ferðalög.
Foreldrar:Guðjón Guðlaugsson og
Helga Katrín Sveinbjörnsdóttir frá Vest-
mannaeyjum.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Því það er þroskandi og
spennandi, auk þess sem það er alltaf
gaman að prófa eitthvað nýtt.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Ég ætla að læra meira í förðun
og verða förðunarfræðingur.
Fullt nafn: Freydís Helga Árnadóttir.
Fæðingardagur og -ár: 17. maí 1978.
Nám/vinna: Er á fjórða ári í Menntaskól-
anum á Akureyri. Starfa einnig sem
þolfimi- og Body Pump kennari í Vaxtar-
ræktinni og við afgreiðsiu í Hraðkaupi á
Akureyri.
Áhugamál: Líkamsrækt, félagslíf, vera
heima og hafa það notalegt með eitthvað
gott að borða, horfa á Friends, börn o.fl.
Foreldrar: Guðrún Freysteinsdóttir, bú-
sett á Akureyri, og Árni Ingólfsson, bú-
settur í Grafarvogi.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Félagsskapurinn, að kynn-
ast stelpum alls staðar að af landinu, til
þess að læra framkomu og læra að
skipuleggja mig. Syo er það líka gaman.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Leikskólakennari og halda
áfram þolfimikennslu. En fyrst ætla ég að
prófa flugfreyjustarfið.
Fullt nafn: Bryndís Björg Einarsdóttir.
Fæðingardagur og -ár: 17. janúar
1979.
Nám/vinna: Þjónustufulltrúi í fslands-
banka.
Áhugamál: Útivera, ferðalög og líkams-
rækt og hafa það gott með fjölskyldunni,
vinunum og kærastanum.
Foreldrar: Ingibjörg Harðardóttir og Ein-
ar Gunnarsson, búa í Seljahverfinu.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Það er rosalega lærdóms-
rík og skemmtileg upplifun. Ég hefði
aldrei viljað missa af þessu tækifæri.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Ég hef áhuga á því að læra
tungumál og nýta mér þá kunnáttu í
starfi. Til dæmis finnst mér flugfreyju-
starfið mjög spennandi.
Fullt nafn: Henný Sif Bjarnadóttir.
Fæðingardagur og -ár: 29. júlí 1980.
Nám/vinna: Stunda nám við Verzlunar-
skóla íslands og vinn í tískuversluninni
17.
Áhugamál: íþróttir og útivera, vinirnir og
fjölskyldan, tónlist.
Foreldrar: Bjarni Vilhjálmsson og Björg
E. Guðmundsdóttir, búsett í Reykjavík.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Það er svo gaman að prófa
eitthvað nýtt og spennandi.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Mig langar að læra auglýsinga-
hönnun.
Fullt nafn: íris Wigelund Pétursdóttir.
Fæðingardagur og -ár: 9. október
1980.
Nám/vinna: Ég er Kvennaskólapía og
vinn með skólanum í Sambíóunum.
Áhugamál: Líkamsrækt, ferðalög, fjöl-
skyldan, vinirnir og svo finnst mér voða-
lega gott að borða.
Foreldrar: Pétur W. Kristjánsson og
Anna Linda Skúladóttir, búsett í Reykja-
vík.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Þetta er mjög þroskandi
og ekki spiilir fyrir að það er líka
skemmtilegt.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Ég er mikil félagsvera, er á fé-
lagsfræðibraut og það er líklegast að ég
muni starfa á því sviði. Annars varast ég
að ákveða of mikið fyrirfram því þá á
maður á hættu að fara að lifa samkvæmt
því.
Fullt nafn: Katrín Haraldsdóttir.
Fæðingardagur og -ár. 31. júlí 1979.
Nám/vinna: Ég útskrifast 28. maí frá
Menntaskólanum við Sund.
Áhugamál: Að stunda líkamsrækt,
veiða, vera í góðra vina hópi og ferðast
innan lands og utan.
Foreldrar: Haraldur Tómasson og Inga
Guðmundsdóttir, sem fluttust frá
Hvammstanga til Reykjavíkur árið 1990.
Hvers vegna tekurðu þátt í fegurðar-
samkeppni? Þetta er góð reynsla sem
bætir sjálfstraustið, auk þess sem mað-
ur kynnist nýju fólki.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verð-
ur stór? Ég ætla að verða hjúkrunar-
fræðingur, giftast og eignast fullt af börn-
um. Umfram allt ætla ég þó að verða
hamingjusöm.
+