Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1999, Síða 51
DV LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999
Steve Martin í hlutverki liðþjálfans kostulega í Sgt. Bilko.
Story (1991), Leap of Faith (1992) og
Sgt. Bilko (1996). Hann lék nýlega
aukahlutverk í Edtv, en von er á
honum í tveimur myndum á þessu
ári. Önnur þeirra er The Out-of-
Towners, þar sem hann leikur á
móti Goldie Hawn í endurgerð tæp-
lega þrjátíu ára gamallar myndar.
Hin myndin er enn einn snúningur-
inn á hugmyndinni sem The Trum-
an Show og Edtv ganga út á. Þar
leikur Steve Martin leikstjóra sem
er hafnað af einni Hollywoodstjöm-
unni, svo hann eltir hann og kvik-
myndar í leyni, býr til aðstæður til
að nota í myndinni sinni. Frank Oz
leikstýrir og Eddie Murphy leikur
stjörnuna.
í einkalífinu er Steve Martin
harla ólíkur þeim villta trúð sem
hann umbreytist í þegar hann er í
vinnunni. Sumir hafa m.a.s. viljað
segja að hann sé snobbaður og for-
pokaður leiðindapúki heima hjá sér,
en kannski væri réttara að segja að
hann væri herramaður með fágaðan
smekk og áhuga á menningu og list-
um, en hann á m.a. gott safn list-
muna. Það er kannski ekki furða að
hann þurfi að trappa sig aðeins nið-
ur þegar hann kemur þreyttur heim
úr vinnunni eftir ærslaganginn þar.
-PJ
Nokkrar af myndum Steves Martin
The Jerk
(1979) ★★★★
Frábær, næstum epísk grín-
mynd um lífshlaup hins ofur-
heimska Navins R. Johnsons.
Uppfull af úrvals slapstick, Steve
Martin fer á kostum og er ekki
sá eini.
The Man with Two
Brains (1983) ★★★★
Heilaskurðlæknir verður ást-
fanginn af líkamslausum heila
og ákveður að græða hann í lík-
ama óþolandi eiginkonu sinnar.
Þarf að segja meira?
All ofMe (1984)
Þrjár stjörnur
Síðasta myndin undir stjórn
Carls Reiners. Enn fer Steve
Martin á kostum í hlutverki
manns sem er andsetinn af konu
sem tekur stjóm á hálfum lík-
ama hans.
Three Amigos!
(1986)
Steve Martin, Chevy Chase og
Martin Short í hressri og drep-
fyndinni mynd sem gerir grín að
gömlu vestrahetjunum.
Steve Martin Live
(1986) ★★★★
Fangar gargandi snilld Steves
Martins á sviði. Inniheldur
einnig frábæra stuttmynd, The
Absent-Minded Waiter.
Roxanne (1987)
★★★
Byggð á sögunni um Cyrano
de Bergerac, sem nú er orðinn
slökkviliðsstjóri í bandarískum
smábæ. Steve Martin fer á kost-
um sem endranær.
Dirty Rotten
Scoundrels (1988)
★ ★★■i
Michael Caine og Steve Mart-
in eru svikahrappar í harðri
samkeppni um auðtrúa sakleys-
ingja. Nett kvikindisleg á köfl-
um.
Parenthood (1989)
★★★
Steve Martin á ljúfu nótunum
í gamandrama um vandrataðan
veg í uppeldishlutverkinu.
L.A. Story (1991)
★★★
Vinsæll sjónvarpsveðurfræð-
ingur lendir í persónuleikakrísu
á miðjum aldri og verður ást-
fanginn. Ágæt að mörgu leyti en
minna fjör í Steve Martin en oft
áður enda kominn á sama ald-
ursskeið og aðalsöguhetjan.
Sgt. Bilko (1996)
★★★
Steve Mai-tin leikur lausum
hala í bandarískri herstöð og fer
illa með siðapostula og gamlan
óvin sem hyggst klekkja á hon-
um.
-PJ
(myndbönd ®
Myndband vikunnar
Ronin
★★★
Vikan 4. - 10. maí.
SÆTI FYRRI VIKA ! VIKUR ! A LISTAi j j TITILL j ÚTGEF. J TEG. j j
1 1 J 5 J 3 j Theres Somthing About Maiy J Skrfan j | Gaman j
2 . 2 J * J 3 i 1 J The Truman Show j CIC Myndbönd J j Gaman J
3 3 J 1 4 i Snake Eyes SAM Myndbönd j : Háskólabíó ) Spenna
4 4 i 2 j J j „ J Taxi Thunderbolt J j Spenna i Spenna
i Skífan
5 9 j 2 j
6 6 1 8 í OutOfSight J CIC Myndbönd J Gaman
7 16 j J J 2 j DirtyWork J Wamer Myndir J J Gaman j
8 5 i 6 J Rush Hour Myndfoim j Gaman
9 NÝ i 1 í Divorcing Jack Stjömubíó Spenna J
10 7 j j 3 Cant Hardly Wait J Skrfan j Gaman j
11 8 J 0 J 3 J Spanish Prisoner Myndform Spenna
12 11 J J 5 ! KnockOff J Myndform J J j Spenna
13 13 Í 3 i | Real Blonde j j Háskólabíó 1 i Gaman 1
14 10 J 1 • ! Apt Pupil J j Skrfan J Spenna
15 14 J J i 2 i Last Days Of Disco J J Wamer Myndir J j J Gaman J
16 12 1 1 9 j Dr. Dolittle j Skffan 1 j Gaman
17 NÝ J 1 1 j 1 J MyGiant J j WamerMyndir j Gaman
18 17 J J J 7 J j j The Horse Whisperer J J SAM Myndbönd J J J Drama J
19 NÝ J i 1 j 1 J Mighty i Skrfan j Gaman
20 NÝ j J 1 1 i Letter From A Killer J ! Skrfan 1 Spenna
*
■í
Hraðskreiður bílahasar
Robert De Niro leikur bandarískan atvinnuhermann á hálli braut.
Sam (Robert De
Niro), Vincent (Jean
Reno), Deirdre
(Natascha McElhone),
Gregor (Stellan
Skarsgárd) og Spence
(Sean Bean) eru hæfi-
leikaríkir glæpamenn
sem selja hæstbjóð-
anda þjónustu sína. í
upphafi myndarinnar
eru þau ráðin til að
ræna dularfullri tösku
og heitið háum fjár-
hæðum fyrir greið-
ann. Verkefnið er
erfitt svo ekki bætir
úr skák tortryggni
þeirra í millum sem
reynist ekki ástæðu-
laus. Enn fremur eru
fleiri en óþekktur
vinnuveitandi þeirra á
eftir töskunni og þeir
svífast einskis til að
koma höndum yfir
hana.
John Franken-
heimer, leikstjóri myndarinnar, var
fyrir stuttu áberandi í umfjöllun
myndbandaopnunnar um samsæris-
myndir. Snemma á sjöunda ára-
tugnum gerði hann nefnilega tvo sí-
gilda samsærisþrillera, The
Manchurian Candidate og Seven
Days in May. Allar götur síðan hef-
ur hann átt í erfiðleikum með að
fylgja vinsældum þeirra eftir og er
Ronin reyndar með betri tilraunum
til þess. Þrátt fyrir að þrjátíu og sjö
ár séu síðan hann gerði The
Manchurian Candidate minnir Ron-
in furðu oft á hana. Það er þó kostu-
legt að tilburðir Ronins til vits-
munalegrar úrvinnslu (í stíl eldri
myndanna) draga myndina niður,
meðan hefðbundinn hasar er henn-
ar helsti kostur. Hryðjuverka-
dramaið og „ronin“-hugleiðingarn-
ar eru lítt áhugaverðar meðan bíla-
eltingaleikirnir eru hreinasta
snilld.
Svo virðist sem evrópskur blær
myndarinnar hafi átt að gefa henni
nokkra sérstöðu (eða þá að auka
hagnaðarvon handan Bandaríkj-
anna?). Hún gerist í Evrópu, býr
yfir fjölda evrópskra leikara og
klessukeyrir hátt í áttatíu evrópsk-
ar bifreiðar. Undir yfirborðinu er
þetta þó hefðbundinn bandarískur £
hasar og bestur meðan hann þykist
ekki vera annað og meira.
Útgefandi: Warner myndir. Leik-
stjóri: John Frankenheimer. Aðal-
hlutverk: Robert De Niro, Jean
Reno, Natascha McElhone, Stellan
Skarsgárd, Sean Bean og Jonath-
an Pryce. Bandarísk, 1998. Lengd:
117 mín. Bönnuð innan 16.
Björn Æ. Norðfjörð *