Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1999, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1999, Blaðsíða 19
JL>V LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1999 Helga Arnalds leikur fyrir börn, innan lands og utan: 19 Leiklistin hluti af uppeldinu Nýverið var haldin hátíð alþjóð- legu barna- og unglingaleikhússam- takanna Assitej í Tromsö í Norður- Noregi með þátttöku um þrjátíu þjóðlanda. Hér á íslandi starfar deild innan samtakanna sem velur eina sýningu á ári til þess að senda sem fulltrúa íslendinga á samnor- rænar hátíðir. Á þriggja ára fresti eru svo haldnar hátíðir sem eru al- þjóðlegar, eins og hátíðin í Tromsö. Helga Amalds hafði með sýningu sinni á Ketils sögu flatnefs notið töluverðra vinsælda hér á landi og sýnt hana í skólum, alls 70 sinnum. Verkið er samið af Helgu en byggt á Ketils sögu og inn í hana fléttað keltneskri þjóðsögu. Þórhallur Sig- urðsson leikstýrir og síðan lánaðist Helgu að næla í tékkneska leik- myndahönnuðinn Peter Matasek, sem er einn af þeim eftirsóttari i heiminum í dag. Þegar sýning Helgu var valin til þátttöku snaraði hún sögunni yfir á Helga Arnalds og Þórhallur Slgurðsson eru nýkomin frá Tromsö í Noregi þar sem þau sóttu hátíð leiklistar fyrir börn og unglinga. ina enda eiga þeir nóg af pening- um,“ segir Helga. „Þeir hafa líka þróað mjög elegant og fallegt leik- hús þó að það sé allt öðruvísi en okkar. Dönsku og sænsku sýning- arnar voru til dæmis fallegt dans- leikhús en einnig virðist vera bylgja í einfoldum eins manns sýningum." Hvað græðirðu á því að fara á slíkar hátíðir? „Við fengum til dæmis óformleg boð um að koma til Nýja-Sjálands, Sri Lanka og Kóreu. Við fengum líka mjög góðan hljómgrunn hjá Bandaríkjunum og Kanada, svo dæmi séu tekin. Þannig að ekki er til einskis farið af stað.“ Helga er að vinna að nýrri sýn- ingu sem verður ævintýri fyrir leik- skólaaldurinn. Þar heldur hún áfram með það sem hún kallar upp á ensku „storyteliing" eða að segja sögu og sýna hana. Þórhallur og Peter eru áhugasamir um að starfa með henni, þrátt fyrir miklar annir beggja. En til hvers leikhús fyrir höm og unglinga? „Mitt markmið er einfaldlega það að koma leiklist til þess hóps,“ seg- ir Helga. „Mér þykir það mikilvæg- ur partur af menningarsögulegu uppeldi barna og er fyllilega sam- mála konunni sem sagði að það ætti að setja leiklist inn á stundaskrá barna í skólum, rétt eins og þar er söngur og íþróttir. í leiklist læra börnin að tjá sig og að vera óhrædd við að koma fram. Leikurinn er líka svo stór hluti af lífl bama og þau era alltaf í einhvers konar hlut- verkaleikjum. Mitt verk er hvorki erfitt né flókið í uppsetningu heldur á þann veg að krakkarnir hugsa með sér að þau gætu nú líka gert leikhús. Hugsa: „Mig langar líka að gera svona,“ og þá er tilganginum náð,“ segir Helga Arnalds. -þhs Úr sýningu Helgu á Ketils sögu flatnefs sem notið hefur fádæma vinsælda. ensku og æfði sýning- una upp á nýtt. „Ég sýndi þrjár sýn- ingar í Tromsö og það var sneisafullt á þær allar,“ segir Helga og bætir því við að hún hafi líka verið dugleg að sjá sýningar ann- arra og rekið augun í margt frábærlega áhugavert. En hvað rís hæst? „Skandinavar eru mjög framarlega ef lit- ið er á tæknilegu hlið- v\ý e.YYl 30H- a\b $e.Yc\ ölll\WV SHMföll\V\L\lVV StV\L\l*A \>ó i\v sé eYY\ Ye\v\c\\ Með símtalsflutningi Símans er hægt að vísa öllum hringingum í þinn síma, í annað númer hvar sem er á landinu. Hægt er að vísa símtölunum í venjulegan síma, farsíma, talhólf, svarhólf eða boðtæki og sá sem hringir verður ekki var við flutninginn. Sækja þarf um símtalsflutning hjá Símanum. Símtal flutt: □ 21 □. Númerið sem á að flytja hringinguna í er valið og síðan ýtt á E3. Þjónusta gerð óvirk: ED 210. www.simi.is LEIÐBEININGAR UM NOTKUN SIMTALSFLUTNINGS Í:M»]7000 ÞU GETUR PANTAÐ SERÞJONUSTU A ÞJONUSTUMIÐSTOÐVUM SIMANS OG I GJALDFRJALSU NUMERI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.