Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1999, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999
Fréttir
Rlkisfangelsið á Litla Hrauni:
Fangi sveik út 400 þús-
und af reikningi kokksins
- fékk númer á bankareikningi yfirmatsveins og færði fé hans á annan reikning
Fanga á Litla Hrauni tókst aö ná
400 þúsund krónum út af banka-
reikningi yfirmatsveins ríkisfang-
elsisins á dögunum. Norðmaðurinn
Andrés Terry Nilsen, sem annast
hefur veitingareksturinn í ríkis-
fangelsinu um 11 ára skeið, rekur
litla sjoppu þar sem menn fá úttekt-
ir skrifaöar. Fanginn sem hér um
ræðir var í skuld við sjoppuna og
hugðist borga inn á bankareikning
Andrésar Terrys. Eftir að fá reikn-
ingsnúmerið hringdi hann í bank-
ann og bað um að 400 þúsund krón-
ur yrðu fluttar af reikningi mat-
sveinsins yfir á annan reikning.
Þetta tókst með aðstoð kvenmanns
sem var utan fangelsins en á yfir
höfði sér dóm, meðsek um svik.
Fanginn hefur að eigin sögn leikið
þennan leik í nokkur skipti og haft
nokkrar milljónir króna upp úr
krafsinu.
Sumarstúlka vissi ekki betur
„Ég hef áður gefið upp þetta reikn-
ingsnúmer, númerið er í sjálfu sér
ekkert leyndarmál. En þarna átti sér
stað klúður í bankanum og ég hef
auðvitað engan skaða borið. Bankar
eiga að biðja um leyninúmer þegar
svona flutningar á peningum eiga sér
stað, sem ekki var gert. En það er
mikið um svona svik í þjóðfélaginu,
margir glæpamenn eru að reyna
þetta og stundum tekst það,“ sagði
Andrés Terry, í viðtali við DV í gær.
Hann sagðist ekki vilja kenna banka-
stúlkunni um hvernig fór. Fyrir
henni hefði ekki verið brýnt að ganga
eftir leyninúmeri eða kenniorði, sem
er skylda. Hann sagðist vona að hún
hefði ekki borið skaða af á sínum
vinnustað.
Starfsmenn Fangelsismálastofn-
unar hafa rætt þennan atburð en
niðurstaðan er sú að stofnunin get-
ur ekki hjálpað bönkunum. Þeir
verði að vinna eftir sínum reglum
en vonandi lærðu bankamenn á
þessum mistökum.
Fullt leyfi til að hringja
„Það er sama hvort menn eru á
Litla Hrauni eða annars staðar, ef
þeir geta komist í síma, þá geta þeir
svikið út fé eins og þama gerðist,
svo framarlega sem bankinn milli-
færir,“ sagði Erlendur Baldursson,
hjá Fangelsismálastofnun, i gær.
Hann sagði að ákveðnar reglur gildi
um notkun síma í fangelsum. Á
sumum deildum Litla Hrauns væri
kortasími og fangar notuðu símann
til að hafa samband við umheiminn,
vini, ættingja og þá nánustu. Menn
hringdu án þess að á þá væri hlust-
að en hins vegar væru öll símanúm-
er sem hringt er i skráð í tölvu. Ef
einhver misnotkun með síma ætti
sér stað innan múranna væri það
sjálfstætt brot og tekið á því sem
slíku. Erlendur sagði að fangar
hefðu ekki aðgang að Netinu nema i
skóla fangelsins og þá undir eftir-
liti.
Þorgrímur Óli Sigurðsson, hjá
rannsóknadeild lögreglunnar á Sel-
fossi, sagði í gær að rannsókn máls-
ins stæði enn yfir. Hann var ekki
tilbúinn að gefa nánari upplýsingar Andrés Terry, yfirmatsveinn á Litla Hrauni - fangi náði 400 þúsund krónum út af
á þessu stigi málsins. -JBP bankareikningi hans með einu símtali. En mikiu fleiri sitja í súpunni. DV-mynd KG
Selfoss:
Alvarlegt um-
ferðarslys
- sex fluttir á sjúkrahús
Alvarlegt umferðarslys varð á Þing-
vallavegi vestan við Kárastaði í
gærkvöld. Slysið varð með þeim hætti
að tveir bílar sem óku í gagnstæðar
áttir rákust saman. Var lögreglunni á
Selfossi tilkynnt um slysið um tíuleytið.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð
til og voru tveir alvarlega slasaðir flutt-
ir með henni á Sjúkrahús Reykjavíkur,
fór annar í aðgerð vegna mjaðmabrots
en hinn Iiggur á gjörgæslu með bijóst-
holsáverka en er þó ekki í lífshættu.
Fjórir aðrir voru fluttir með sjúkrabíl á
Sjúkrahús Reykjavíkur en meiðsli
þeirra voru ekki alvarleg. Tildrög slyss-
ins eru ókunn en ljóst að bílamir em
ónýtir. -EIS
Sex slösuðust í árekstrinum, þar af tveir alvarlega.
Fangi í símabanni í stórfelldri svikastarfsemi:
Eg er að hrópa á hjálp
- segir fanginn í samtali við DV
„Með þessum fjársvikum innan
fangelsisins er ég í rauninni að
hrópa á hjálp,“ sagöi fangi á Litla-
Hrauni, sem notaöi síma ríkisfang-
elsisins til að svíkja út stórfé, sem
hann fékk bankafólk til að millifæra
af reikningum fólks yfír á reikning,
sem vitorðsmanneskja utan múr-
anna sá um að tæma jafnóðum.
Fanginn sagði að hann væri háð-
ur fikniefnum og langaði til að
hætta í fikninni en alla aðstoö vant-
aði í fangelsinu. Hann lenti í kasti
við lögin þegar hann kom til heimil-
is manns að Kleppsvegi. Félagar
hans léku manninn illa, en sjálfur
Litla-Hraun á Eyrarbakka - fangi í símabanni
sveik út á þriðju milljón króna.
segist fanginn hafa farið af vett- ekki alveg
vangi, hann hafi aldrei
lagt hendur á nokkurn
mann, en samt hafi
hann fengið þyngstan
dóminn, 2 ára fangels-
isdóm.
„Ég lék á kerfið, náði
slatta, líklega 2-3 millj-
ónum með nokkrum
símtölum," sagði fang-
inn. „Ég fékk kennitöl-
ur hjá Hagstofunni og
þurfti engin leyninúm-
er eða neitt. Þetta eru
mistök bankans. Mér er
ljóst hvort ég fæ viðbót-
ardóm fyrir þetta. Ég gerði þetta í
refsingu og var auk þess í síma-
banni og heimsóknabanni og er
enn. Ég var í símabanni þegar ég
framdi öll þessi brot,“ sagði fang-
inn. Hann segir refsinguna stafa af
því að nokkur grömm af hassi fund-
ust hjá honum í klefanum.
En var ekki ljótt að hlunnfara
vinsælan kokk fangelsisins?
„Hann er ágætur og var ekkert að
erfa þetta við mig, hann hafði gott
af þessu og fékk þetta allt borgað til
baka í hádeginu, enda voru þetta
mistök bankans," sagði fanginn.
-JBP
Stuttar fréttir i>v
Ráðherra til Vestfjarða
Heimsókn
Árna M.
Mathiesen
sjávarútvegs-
ráðherra til
Vestíjarða
hófst í gær. í
dag heimsækir
ráðherrann
fyrirtæki í sjávarútvegi á Þing-
eyri, Flateyri, Súgandafirði, ísa-
firði og Bolungarvík.
Samfylking tapar
Ný könnun sem Gallup gerði á
fylgi stjórnmálaflokkanna sýnir
að sjálfstæðismenn og vinstri-
grænir hafa aukið fylgi sitt en
fylgi Samfylkingarinnar hefur
minnkað. í könnuninni kom
einnig fram að 2/3 landsmanna
eru ánægðir með sitjandi ríkis-
stjórn. RÚV greindi frá.
Áskrift á Netinu
íslenska útvarpsfélagið stefnir
að því aö hægt verði að greiða
áskrift að sjónvarpsstöðvum fyr-
irtækisins á Netinu. Einnig
verður hægt að gera breytingar
á áskrift á Netinu. Morgunblaðið
greindi Trá.
ísland kynnt
Ríkisstjórnin ákvað á fundi
sínum í gær að verja 350 milljón-
um til að kynna ísland í Norður-
Ameríku. Skipaður verður sér-
stakur sjö manna stýrihópur til
að ákveða hvemig kynningunni
verður háttað. Samgöngu- og ut-
anríkisráðuneyti munu tilnefna
tvo fulltrúa í nefndina og Flug-
leiðir, Coldwater Seafood og
Icelandic Seafood einn fulltrúa
hver.
Útilokar ekki
Guðmundur
Árni Stefáns-
son, alþingis-
maöur og
fyrrv. ráð-
herra, útilokar
ekki for-
mennsku í
Samfylking-
unni. Hann hefur verið á ferða-
lagi um landið undanfarið og
rætt við kjósendur. Dagur
greindi frá.
Skattskrár 30. júlí
Búist er við því aö skattskrár
liggi frammi 30. júlí nk. Þá geta
skattgreiðendur séö hvort þeir
eiga von á endurgreiöslu frá
skattinum eða hvort þeir þurfa
að greiða til viðbótar.
Önnur geimferð
Geimfarinn Bjarni Tryggva-
son hefur undanfarið verið í þjálf-
un fyrir aðra geimferð sína. Hann
var síöast í geimferð í ágúst sl.
Morgunblaðið greindi frá.
Vígöur búddamunkur
Ásbjöm Leví Grétarsson, 23
ára Hafnfirðingur, hefur verið
vígður búddamunkur hér á
landi. Hann er fyrsti íslending-
urinn sem er vígður búdda-
munkur hér heima. Ásbjöm
stundar sk. therevada búddisma
sem er af elsta skóla hans. Hann
hefur verið virkur í starfi
Búddistafélagsins hérlendis en
hann gekk í félagið fyrir tveimur
áram.
Fréttatímar
Fyrir um
tveimur mán-
uðum var
fréttatímum
Ríkisútvarps
og -sjónvarps
breytt en skv.
Degi gerir
Gallup nú
könnun fyrir Stöð 2 um hvernig
breytingunum hefur verið tekiö
meðal sjónvarpsáhorfenda. Páll
Magnússon, fréttastjóri Stöðvar
2, segir í samtali við blaðið að
erfitt sé að hafa áreiðanlegar
mælingar á þessum árstima þeg-
ar lítið áhorf er á fréttimar.
-hb
rikisstöðva