Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1999, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
Fréttir
Hafrannsóknastofnun mælir mesta seiðamagn frá upphafi:
50 milljarðar í pottinum
- óvíst að lífríkið þoli svo stóran þorskstofn, segir forseti Farmannasambandsins
Fagleg
afstaða
ræður
- segir Valur Valsson
„Við stöndum frammi fyrir því ef
seiðin komast af að veiðistofninn,
sem nú er um milljón tonn, stækkar
í rúmar þrjár milljónir tonna. Það
kallar á að menn skoði mjög vand-
lega hvort lífríkið þoli svo stóran
þorskstofn," segir Guðjón A. Krist-
jánsson, forseti Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, um þau
gleðitíðindi sem Hafrannsókna-
stofnun færði með niðurstöðum um
einstaklega vel heppnað klak
þorsksins. í seiðaleiðangri Hafró
kom i ljós að seiðavísitalan í ár er
rúmlega þrefalt hærri en í fyrra,
eða 9408 á móti 2752. Þetta þýðir að
komist þessi seiði af stækkar þorsk-
stofninn eftir 3-4 ár úr því að vera
um milljón tonn i um 3,5 milljónir
tonna. í dag er kvóti á íslandsmiö-
um sem nemur 250 þúsund tonnum.
Kvótinn ræðst af stærð veiðistofns
„Ég visa þessum dylgjum Sig-
urðar G. Guðjónssonar á bug,“
sagði Valur Valsson, bankastjóri
íslandsbanka, þegar DV bar undir
hann staðhæf-
ingu Sigurðar
í Degi í gær að
íslandsbanki
hefði afturkall-
að 300 milljóna
króna lánsflár-
loforð til ís-
lenska út-
varpsfélagsins
Valur Valsson, sumarið 1994
bankastjóri ís- strax eftir að
landsbanka. mágur Vals,
Ingimundur
Sveinsson í Heklu, nú sendiherra
i Bonn, hafði misst sæti sitt í
stjórn ÍÚ eftir kaup Jóns Ólafsson-
ar, Sigurðar og fleiri á fölum
hlutabréfum í félaginu.
„íslandsbanki kappkostar að
taka faglega aftsöðu til lánveit-
inga og svo var einnig í því tilviki
sem um ræðir,“ bætti Valur við.
Hann sagðist ekki vilja syara til
um hvort rétt væri að íslands-
banki hefði í raun afturkallað 300
milljóna króna lánsfjárloforö til
ÍÚ, burtséð frá ástæðum þess.
„Þetta má ég ekki ræða opinber-
lega,“ sagði Valur aðeins. -GAR
Eyjólfur Sveinsson, stjórnarformaður Orca S.A., tekur hér við fundargögnum fyrir hluthafafund FBA í gær.
Markaðsverðmæti hluts Orca S.A. í FBA er yfir 5 milljarðar króna. DV-mynd ÞÖK
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins:
Tveir fulltrúar Orca
S.A. kjörnir í stjórn
Hluthafafundur Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins var haldinn í
gær að kröfu eigenda Orca S.A.
Höfðu fulltrúar ríkisins lagt fram
tillögu um fimm manns í stjórn en
fulltrúar Orca S.A. lögðu fram til-
lögu um að Kristján Þór Júlíusson,
bæjarstjóri á Akureyri, og Jón Ingv-
arsson, fyrrverandi stjórnarformað-
ur SH, færu í stjórn fyrir þá og voru
þeir kjömir í kosningum. Þrír full-
trúar ríkisvaldsins, þeir Þorsteinn
Ólafsson stjórnarformaður, Örn
Gústafsson og Magnús Gunnarsson,
voru endurkjörnir. -EIS
og fer eftir svokallaðri 25
prósenta reglu. Verði nið-
urstaðan þessi gífurlega
stækkun þorskstofnsins
má gera ráð fyrir aflaaukn-
ingu á íslandsmiðum sem
samsvarar 500 þúsund
tonnum.Verðgildi þess afla
upp úr sjó er ekkert smá-
ræði, eða sem nemur 50
milljörðum króna á ári.
Guðjón segist vara við
því að hleypa stofninum upp í þá
stærð án þess að það mál verði
hugsað mjög vandlega áður. Margt
sé breytt frá því veiðistofninn
komst í þess stærð, annars vegar
árið 1928 og hins vegar árið 1955,
þegar stofninn mældist 2,5 milljónir
tonna.
„Það er grundvallarspurning
hvort lífríkið þolir svo stóran þorsk-
stofn. Þær breytingar hafa
orðið frá því fyrr á öldinni
að nú veiðum við rækju og
loðnu í samkeppni við
þorskinn. Þá eru hvalastofn-
ar í miklum uppgangi sem
var ekki fyrr á öldinni. Við
erum þvi í bullandi sam-
keppni í fæðukeðjunni og
álitamál hvort nægilegt lífs-
rými sé fyrir þorskinn," seg-
ir Guðjón.
Hann segir að sýni mælingar í
mars á næsta ári að þorskseiðin
hafi komist af sé ástæða til að
staldra við og huga að því hvort rétt
sé að halda sig við 25 prósenta regl-
una.
„Ef seiðin sýna sig sem eins árs
flskur í vetur og staðfesta þar með
þessi góðu tíðindi verðum við að
gera upp við okkur hvort ekki sé
Guðjón A.
Kristjánsson.
rétt að hafa stjórn á stofnstærðinni
með því að auka veiði strax á næsta
fiskveiðiári. Við verðum að gefa
uppvaxtarfiski lífsrými og í því ljósi
er rétt að auka veiðina strax á
næsta fiskveiðiári. Ég tel núverandi
stærð hrygningarstofnsins henta
ágætlega," segir hann.
Aðspurður um það hvort fisk-
veiðistjórnunarkerfið hafi ekki
sannað ágæti sitt með hinni frá-
bæru nýliðun segir Guðjón málið
ekki vera svo einfalt.
„Þetta sýnir að hita- og náttúru-
far hér við land er nú mjög hag-
stætt. Nú er hlýsjór við landið og
það skiptir sköpum með það hvern-
ig til tekst. Hin hlið málsins er sú að
verði hlýi sjórinn áfram við norðan-
vert landið geta menn gleymt því að
gera ráð fyrir miklum rækjuafla á
næstu árum,“ segir Guðjón. -rt
Hreindýraveiðar hálfnaðar:
Tarfurinn á 90 þúsund krónur
- Bandaríkjamenn vilja hornin í kynörvunarlyf
„Það er búið að fella um helm-
ing þeirra dýra sem leyfilegt er í
ár. Kvótinn er 404 fullorðin dýr og
þegar eru um 200 fallin. Veiðileyfi
á besta stað kosta 90 þúsund krón-
ur á tarfinn en það er hægt að fá
Breytt verð
Frá og með 1. september hækkar
áskriftarverð DV um 50 krónur, í 1.950
krónur. Jafnframt hækkar lausasölu-
verð á virkum dögum í 180 krónur og
Helgarblað DV í 250 krónur.
leyfi á 15 þúsund krónur á erfiðari
svæðum," sagði Aðalsteinn Aðal-
steinsson, fyrrum hreindýraskytta
og starfsmaður Hreindýraráðs á
Egilsstöðum. Hreindýraveiðin
hófst 1. ágúst og lýkur 15. septem-
ber.
„Bestu veiðisvæðin eru við Snæ-
fellið og þar eru veiðileyfin dýrust.
Skytturnar eiga dýrin sem þeir
fella og nýta þau að vild. Ætli þeir
fái ekki um það bil 80 kíló af kjöti
af meðaldýri og verð á veiðileyfum
miðast við kjötverðiö. Þá er skinn-
ið eftir en úr þeim er hægt að
sníða fallegustu föt á íslandi. Þá
höfum við fengið fyrirspurnir frá
Bandaríkjunum varðandi hornin
sem þeir vilja kaupa og mylja nið-
Gústaf Kristinsson við rætur Snæ-
fells með bráð sína, 130 kílóa tarf
sem skotinn var á 150 metra færi
beint í hjartastað.
ur í kynörvunarlyf. Við höfum nú
ekki þurft á því að halda hér fyrir
austan en ég veit ekki um þá fyrir
sunnan," sagði Aðalsteinn.
Talið er að hreindýrastofninn sé
nú um 3000 dýr. Arðurinn af sölu
veiðileyfa rennur til bænda á
svæðinu sem eiga landið þar sem
veiðarnar fara fram.
„Það er gaman að skjóta hrein-
dýr en það heyrir til algerra und-
antekninga að menn séu að skjóta
hver annan á veiðunum í misgrip-
um. Það er hins vegar mjög al-
gengt úti í heimi, sérstaklega á
Ítalíu,“ sagði Aðalsteinn Aðal-
steinsson hjá Hreindýraráði á Eg-
ilsstöðum.
-EIR
Stuttar fréttir r>v
Kennarar funda
Kennarar munu á næsta
stjórnarfundi
kennarasam-
bandsins ræða
ávarp forseta Is-
lands sem hann
hélt á degi sí-
menntunar. Þar
talaði forsetinn
um kjarabaráttu kennara og
sagði að of mikill umræða væru
um þau mál umfram önnur. Dag-
ur sagði frá.
Axworthy á heimleið
Lloyd Axworthy, utanríkisráð-
herra Kanada, var hér í opinberi
heimsökn en hélt af landi brott
síðdegis í gær. Hann sat ráð-
herrafundinn sem haldinn var á
Egilsstöðum og hitti auk þess ís-
lenska ráðamenn.
Helmingur íbúða á uppboð
Hátt í helmingur allra félags-
legra íbúða í Vesturbyggð hafa ver-
ið auglýstar á nauðungaruppboði
að kröfu íbúðalánasjóðs. Að sögn
bæjarstjóra Vesturbyggðar er
kaupskylda sveitarfélaga sem gerir
það að verkum að bæjaryflrvöld
hinna ýmsu sveitarfélaga geta ekki
ráðið við kaupin, sérstaklega ekki
þegar'um er að ræða margar íbúð-
ir. Dagur sagði frá.
600 manns mættu í tíma
Fjölmennasti kúrs sem kennd-
ur hefur verið
við Háskóla ís-
lands hófst í
gær. Er það
kúrs í rekstrar-
hagfræði sem
Ágúst Einarsson
prófessor kenn-
ir. 600 hundruð manns voru í tím-
anum í gær og er kennt í stóra
salnum í Háskólabíói. Ástæða
ijölgunarinnar eru margvíslegar.
Morgunblaðið sagði frá.
Gagnrýni Davíðs réttmæt
Talsverður stuðningur er við
gagnrýni Davíðs á Kaupþing. Þetta
kemur fram í könnun sem Vísir.is
lét Markhúsið gera fyrir sig. Þar
segja 35% aðspurða að gagnrýni
Davíðs hafi verið eðlileg og rétt-
mæt. 27% voru ósammála þeirri
fullyrðingu. 37% úrtaksins svör-
uðu ekki. Vísir.is sagði frá.
Puff Daddy til íslands.
Rapparinn heimsfrægi Puff
Daddy hefur lýst því yfir að í
tveggja ára tónleikahaldi sem
fram undan er muni hann fara til
íslands. Þetta sagði hann á yahoo
netspjalli fyrir nokkrum dögum.
Morgunblaðið sagði frá.
Mega vita hverjir kjósa
Tölvunefnd hefur úrskurðað
að þeir flokkar sem eiga aðild að
kosningum megi hafa umboðs-
menn sína til þess að fylgjast með
framkvæmd kosninganna. Tölvu-
nefnd tekur það þó fram að henni
þyki ekki eðlilegt að flokkar safni
upplýsingum um hverjir kjósa.
Morgunblaðið sagði frá
Sjávarútvegssýning
Islenska sjávarútvegssýningin
hefst í dag. Undirbúningi var að
ljúka í gær og er gert ráð fyrir
því að þetta verði stærsta sjávarr
útvegssýning sem haldin hefur
verið. Hingað til hefur hún verið
haldin í Laugardalshöllinni en í
ár verður hún í Kópavogi.
Hilmir Snær leikstýrir
Hilmir Snær
mun leikstýra
leikritinu
Gullna hliðinu
sem sýnt verður
í Þjóðleikhúsinu
í vetur. Dag-
skráin verður
mjög fjölbreytt í
vetur og verður meðal annars
nýtt barnaleikrit eftir þá Magnús
Scheving og Sigga Sigurjóns sýnt.
Morgunblaðið sagði frá. -EIS