Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1999, Qupperneq 21
MIÐVKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
Sport
33^
Úrslit
í sveitakeppni unglinga
golfi
16-18 ára ára piitar, A-riöill:
1. Golfklúbburinn Leynir
2. Golfkl. Kópavogs og Garðabæjar
3. Golfklúbbur Akureyrar
4. Golfklúbburinn Keilir, A-sveit
5. Golfklúbbur Sauðárkróks
6. Golfklúbbur Reykjavíkur
B-riðill
1. Golfklúbburinn Keilir, B-sveit
2. Golfklúbbur Selfoss
3. Golfklúbburinn Kjölur
4. Golfklúbbur Suðurnesja
Riöill stúlkna:
1. Golfklúbburinn Kjölur
2. Golfklúbbur Reykjavíkur
3. Golfklúbbur Suðurnesja
15 ára og yngri, A-riðill:
1. Golfklúbbur Vestmannaeyja
2. Golfklúbbur Suðurnesja
3. Golfklúbbur Reykjavíkur, A-sveit
4. Golfklúbburinn Keilir, A-sveit
5. Golfkl. Kóp. og Garðab., A-sveit
6. Golfklúbburinn Kjölur
B-riðill:
1. Golfklúbbur Húsavíkur
2. Golfklúbbur Setbergs
3. Golfklúbburinn Leynir
4. Golfklúbbur Reykjavikur, B-sveit
5. Golfklúbburinn Keilir, B-sveit
C-riðm
1. Golfklúbbur Akureyrar
2. Golfklúbbur Sauðárkróks, A-sveit
3. Golfkl. Vestmannaeyja, B-sveit
4. Golfklúbbur Selfoss, A-sveit
D-riðUl
1. Golfkl. Kóp. og Garðab., B-sveit
2. Golfklúbbur Selfoss, B-sveit
3. Golfklúbbur Grindavíkur
4. Goifklúbbur Sauðárkróks, B-sveit
Stutta spiliö
var gott
Þær Helga Rut Svanbergsdótt-
ir og Snæfríður Magnúsdóttir úr
GolfMúbbnum Kili voru að sjálf-
sögðu ánægðar með sigurinn í
sveitakeppninni. „Þetta voru fá
lið en ég vann alla vega ekki létt.
Fyrri holurnar á þessum vefli
eru frekar erfiðar en síðari frek-
ar léttar fyrir utan skurðina. í
dag spilaði ég
alveg ágæt-
lega en í gær
frekar illa.
Stutta spilið
var aðeins
skárra,"
sagði Helga
Rut á sunnu-
daginn að
lokinni
keppni. Hún
sagði enn-
fremur að
keppinautar
þeirra væru
með mjög
ung lið og
ættu því
framtíðina
fyrir sér.
„Við erum
búnar að
vera þjálfara-
lausar alla
vega síðari hluta sumars. Ég
ætla bara að halda áfram í golfi,
það verður eiginlega bara að
koma í ljós hvað ég geri,“ bætti
Helga Rut við.
„Ég hvíldi í gær og þetta var
ágætt í dag en mér fannst völlur-
inn ekki neitt svakalega góður.
Ég púttaði alveg ágætlega. Við
svona hjálpuðumst að. Við erum
saman alla daga, erum bestu vin-
konur.Við þekkjum náttúrlega
hvor aðra svo vel og styðjum
hvor aðra. Þetta er síðasta árið
mitt í unglingaflokki svo fram-
tíðin kemur bara í ljós,“ sagði
Snæfríður.
„Við viljum bara þakka Stein-
unni, liðsstjóranum okkar. Hún
er búin að gera allt fyrir okkur,
er alveg frábær," sögðu stúlk-
urnar báðar, greinilega alveg
sammála.
Kjölur vann í 16-18 ára
stúlknaflokki. Frá vinstri: Eva
Ómarsdóttir, Snæfríður
Magnúsdóttir, Katrín Dögg
Hilmarsdóttir, Helga Rut
Svanbergsdóttir, Nína Björk
Geirsdóttir og Steinunn
Björk Eggertsdóttir liðssjórj
-• - .'-WÍ*
,í
Sveitakeppni unglinga í golfi haldin um síðustu helgi:
Meiri breidd
fleiri klúbbar með öflugt unglingastarf
Sveitakeppni
unglinga í golfi
fór fram um
helgina. 15 ára
og yngri golf-
arar kepptu á
velli Leynis á
Akranesi en
16-18 ára á velli
i GKG i Kópa-
vogi. Breiddin
er að aukast
hjá unga fólk-
inu þar sem
fleiri klúbbar
leggja áherslu á
gott unglinga-
starf. Það starf
er strax farið
að skila sér í góðum golfurum á
unga aldri.
Hjá yngri hópnum tóku 19 lið þátt
í keppninni og leikinn var 18 holu
höggleikur á fyrsta keppnisdegi. Eft-
ir höggleikinn var raðað í riðla eft-
ir árangri sveita. Þar sem sveitir
urðu jafnar að stigum réð innbyrðis
viðureign þeirra hvor varð ofar.
Ungu golfararnir léku gott golf og
athygli vakti hversu jákvæðir og
kurteisir þeir voru hver við annan.
Ljóst er að þarna eru efnilegir
golfarar á ferðinni og vonandi stór-
stjörnur framtíðar.
GV í sérflokki
Veðrið lék svo sannarlega ekki
við keppendur. Nokkur rigning og
rok truflaði golfarana á tímabili en
þeir létu það ekki trufla sig heldur
sýndu góða takta.
Golfklúbbur Vestmannaeyja var í
nokkrum sérflokki hjá 15 ára og
yngri er þeir unnu með nokkrum yf-
irburðum og enduðu alls með 11
stig. í öðru sæti varð Golfklúbbur
Suðurnesjá með 8 stig og í þriðja
sæti varð A-sveit Golfklúbbs
Reykjavíkur.
Heimamenn í öðru sæti
Hjá 16-18 ára hópnum kepptu 10
sveitir í karlaflokki með sama
keppnisfyrirkomulagi og hjá yngri
hóp. Þar varð Golfklúbburinn Leyn-
ir atkvæðamestur. Leynispiltar
höfðu nokkra yfirburði enda spil-
uðu þeir úrvalsgolf og lentu sjaldan
í vandræðum. Heimamenn í GKG
höfnuðu í öðru sæti eftir spennandi
keppni við GA.
í kvennaflokki tóku þrjár sveitir
þátt og kepptu þvi innbyrðis um tit-
ilinn. Þar var Golfklúbburinn Kjöl-
ur atkvæðamestur. Stúlkurnar spil-
uðu gott golf af miklu öryggi. Golf-
klúbbur Reykjavíkur hafnaði í
þriðja sæti og Golfklúbbur Suður-
nesja varð í þriðja.
Golfararnir í eldri hópnum voru
margir hverjir að spila mjög gott
golf á ágætum velli Kópavogsbúa.
Nokkuð mikið rigndi á meðan á
sveitakeppninni stóð en krakkarnir
klæddu það af sér og léku af mikilli
ánægju og gleði.
Sigursveit Golfklúbbsins Leynis 16-18 ára. Frá vinstri: Hauk-
ur Dór Bragason, Hróðmar Halldórsson, Sveinbjörn Haf-
steinsson, Stefán Orri Óiafsson, Bjarni Þór Hannesson og '
Hjalti Nielsen liðsstjóri.
r jáÉifll f ; ? .**"* * _;/ '
CX
1
•j-íSS
Golfkylfa í
vöggugjöf
„Ég fékk fyrstu golfkylfuna í
vöggugjöf og fyrsta settið 2 ára.
Ég er búinn að keppa í golfi síð-
an ég var 8 ára,“ sagði Bjarni
Þór Hannesson úr sigurliði
Leynis sem bætti við að keppnin
hefði verið meðalerfið.
„Ég var að spila fint og það
eru kannski járnhöggin helst
sem eru góð hjá mér. Þetta er
svona holukeppnisvöllur. Þetta
var ekkert rosalega erfitt í fjór-
menningi en það var meiri
spenna hjá hinum. Þetta er sjötta
árið mitt og ég ætla bara að
reyna að stunda þetta af fullum
krafti og reyna að bæta mig,“
sagði Sveinbjöm Hafsteinsson,
ánægður með sigurinn.