Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999
27
Fréttir
/nppafjíMi o-
Fákiædd við
skrifstofu
forseta
Oíbetói 1 ATVR i Austurstræti:
_ . HlV-smitaöur StaKK XVO ug
ö,€ * vélstjóri rekinn lögreglukOHU
fnnei'lsi vegtut líkamsárás-t
Baldur Hjaltason hættur hjá Lýsi eftír að meðstjómendur voru reknirj
Yfirstjórn fari
Landgræðslustjóri i - að £era betur ' rekstrinum, segir stjómarformaður. Baksiða'
svekktur út í Oiís
ÍiMII
sesir Sæmundur I’álsson yflrJögregiu)ijénn
ugun a ntinknum
- j»ra í*kkí að lútji ungbam:ð sofa úti lengur
liungarokkarlnn og Hugkappinn Dickinson naudleiiti i Hcykjavik:
Fékk eldsviðvörun í
1 til Frak*í,anílc
Rottugangur á Hle
Rottugangur
i'motakunnd í farþegum i
‘i
akkaborg bitnar á börnunutn-
heim
lviUðið « ífcfevöíUrtlWí;
vtowkemtiag
%***■ ISðl. i ** x,
' Mhwl&Etííi
BwKS?: -iffiBSSSSSJSHpfc
^eyðarfcall frá ^
Austur-Tfmor
Skotið á glugga a
Háteigsveginum
DV*étt setur Eæreyjar á -,n,
; ■ | ■ * annai> endantt
“^"nwstiórim.
#WÍ ffiiervasjokl
wtw Í2S? ,Jn<* n
-fíH -ry
. innheimtu t’ikninf
Harka hitndrvtkkara
DV og lesendahópurinn vinna vel saman:
Tuttugu þúsund
hafa hringt
- hringingum í Fréttaskot DV hefur snarfjölgað í seinni tíð, á þriðja hundrað ábendingar komu í september
Síminn sem aldrei sefur, 550-5555,
tók við sínum 20 þúsundustu skila-
boðum undir lok ágúst síðastliðins.
Skilaboð til ritstjómar DV, ábend-
ingar um fréttir, greinaefni, sand-
kom, myndaefni og ótalmargt ann-
að sem gerir gott blað betra berst
okkur eftir ýmsum leiðum. Lesend-
ur hafa beint samband, koma á rit-
stjórn eða til fréttaritara úti á landi,
hringja, nota Intemetið, faxa eða
tala inn á talhólf. Samband DV við
lesendur er afar lifandi.
15 ára afmæliö
í mars vora liðin 15 ár síðan
fréttaskotið hófst. Ljóst er að skila-
boðum lesenda til blaðsins fjölgar
með árunum. Að meðaltali hafa
borist rúmlega 100 skilaboð í mán-
uði gegnum Fréttaskotið frá því
þjónustan hófst. En í september-
mánuði sem nú er liðinn voru skot-
in orðin vel á þriðja hundraðið sem
trúlega er met. Þetta gerist kannski
vegna þess að almenningur er far-
inn að sætta sig við að tala inn á tal-
hólf. Þeir sem leggja það ekki í vana
sinn að „tala við vélar“ geta hringt
í lifandi blaðamann, lifandi lína
Fréttaskotsins er 550-5822 á daginn
eða aðalsímanúmer DV, 550-5000.
Ýmsar leiðir að hjarta DV
DV hefur allar dyr opnar fyrir
áhugasama lesendur. Þeir sem vilja
nálgast hin vinsælu Sandkorn geta
sent tölvupóst á netfangið „sand-
korn@ff.is“. Þeir sem vilja koma á
framfæri lesendabréfi eða
kjallaragrein hringja í 550-5030, þar
era skilaboðin töluð inn á talhólf.
Umsjónarmaður lesendasíðu er til
taks við símann milli kl. 14 og 16
mánudaga til fóstudaga í síma 550-
5827. Láttu heyra í þér.
Frétta„skyttur“ DV er fólk af
báðum kynjum, af öllum stéttum, á
ýmsum aldri. Sumir hringja til að
láta vita af eldsvoðum, slysum og
öðrum atburðum sem verða í
hversdagslífmu. Aðrir hringja til að
láta vita um stærri viðburði og
ýmislegt merkilegt og óvenjulegt
sem hendir í þjóðlífinu. Fjölmargar
ábendingar í Fréttaskoti DV hafa
orðið að stórfréttum líðandi stundar
og hafa komið að góðu gagni. Fullur
trúnaður ríkir að sjálfsögðu í
samskiptum blaðs og lesenda.
Ótrúleg fjölbreytni frétta
Eins og sjá má á myndinni af fyr-
irsögnum og fréttaskotum sem hér
fylgir er fjölbreytni fréttanna mikil.
Það er lesendum að þakka að DV
hefur setið eitt að ýmsum góðum
fréttum sem aðrir fjöhniðlar hafa
orðið að lesa í blaðinu okkar.
Af rúmlega 200 ábendingum les-
enda í Fréttaskoti DV í þessum
mánuði ber hæst frétt um ógnaröld-
ina í hinum harða heimi fíkniefn-
anna. Ungur piltur var limlestur af
bófum í misgripum fyrir bróðurinn.
Lögreglan átti fullt í fangi með óðan
mann sem notaði slökkvitæki sem
vopn. 1 ljós kom að Alþingishúsið er
nú búið skotheldu gleri. Kona
hringdi með örstutt skilaboð: „Það
er 21,september og krakkar að
synda í Nauthólsvílkinni. Fínt
myndefni." Við á staðinn og fín bak-
síðumynd kom daginn eftir. Þannig
gengur þetta fyrir sig. Þannig má
lengi telja.
Eðlilega eru ekki nærri öll frétta-
skot nothæf. Stundum hefur fréttin
birst áður, stundum er fréttin þegar
í vinnslu hjá blaðinu, stundum er
erfitt að fá fréttaskot staðfest þannig
að hún verði að alvörufrétt sem geti
fengið inni í blaðinu. Stundum er
hreinlega ekki um frétt að ræða
heldur frekar lesendabréf eða Sand-
kom. En oft, mjög oft, koma frétta-
skot að gagni. Oftar en ekki verða
slíkar fréttir líílegar og óvenjulegar
- sterkar og bragðmiklar fréttir.
Góð fréttaskot fá verðlaun
Lesendur sem hringja eru greini-
lega ekki að hugsa um peninga sem
eru í boði fyrir fréttaskotin, 7000
krónur fyrir bestu frétt hverrar
viku og 3000 krónur fyrir önnur
skot sem leiða til fréttar i blaðinu.
Sumir taka fram að þeir vilji ekki
peninga, aðeins koma frétt á fram-
færi. Greinilegt er að fréttaskyttur
blaðsins sem ekki hafa náð árangri
í fyrstu gefast ekki upp og ná inn á
síður blaðsins í næstu tilraun.
Margir hafa gaman af að sjá „sina
frétt“ birtast á síðum DV eftir að
fagmenn hafa farið höndum um
ábendinguna og unnið hana eftir
kúnstarinnar reglum.
Hringdu! Við bíðum!
-JBP