Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 7. OKTÖBER 1999 5 Fréttir Atlantic Radio í Færeyjum í upplausn: Útvarpsstöðinni Matthildi bjargað frá Færeyjarugli „Málefni Atlantic Radio í Fær- eyjum koma okkur ekki lengur við. Matthiidur hefur skipt rnn eig- endur og færeysku tengslin þar með verið rofin,“ sagði Hjörtur Hjartarson, framkvæmdastjóri út- varpsstöðvarinnar Matthildar, sem til skamms tíma var systur- fyrirtæki færeysku stöðvarinnar Atlantic Radio sem enn og aftur er orðin eitt helsta fréttaefni í fær- eyskum fjölmiðlum sem greina frá því að starfsfólk fái ekki laun, sé í verkfalli og ein tölva sé látin standa fyrir öllum útsendingum. Þá fylgir það fréttunum að íslend- ingurinn Lárus Arason, útvarps- stjóri Atlantic Radio, sé horfinn af sjónarsviðinu og kominn í felur. Lárus var einmitt sá aðili sem kom fram fyrir hönd Atlantic Radio þegar hún keypti útvarp- stöðina Matthildi fyrir skemmstu. í viðtali við DV lýsti Lárus því yfir að hann væri að fá „nervesjokk" af því að reyna að reka útvarps- stöð í Færeyjum. „Núverandi eigandi Matthildar er Hans Konrad Kristjánsson raf- magnsverkfræðingur sem reyndar átti upphaflega allan tækjabúnað stöðvarinnar og leigði þáverandi eigendum. Hér erum við að endur- skipuleggja allt og verðum vel sýnilegir og ferskir í loftinu áður en langt um líður,“ sagði Hjörhu' Hjartarson, framkvæmdastjóri Matthildar. „Færeysku tengslin hafa verið rofin.“ -EIR Vinstri hreyfingin - grænt framboð: Ofbeldi ríkis- stjórnarinnar Ögmundur Jónasson og Þuríður Backman, alþingismenn Vinstri hreyfingar- innar - græns framboðs, kynntu í gær ásamt félögum sínum ýmis mál sem þau hafa lagt fyrir Alþingi. „Því verður vart trúað að slíku of- beldi verði beitt fyrir opnum tjöld- um,“ sagði Steinrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs (VG), þegar flokk- urinn kynnti nokkur þingmál sem hann hefur lagt fram. Steingrimur sagði það söguleg tíðindi í samskipt- um framkvæmdavalds og löggjafar- valds hvernig ríkisstjómin hygðist með „sýndartillögu" Finns Ingólfs- sonar, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, sneiða hjá því að umhverfis- nefnd Alþingis taki afstöðu til um- hverfismats fyrir Fljótsdalsvirkjun. Hann sagði að eins gott væri að for- seti íslands hefði ekki vitað af þess- ari tillögu Finns þegar hann flutti ágæta þingsetningarræðu sína og minntist þar á yfirgang fram- kvæmdavalds gegn löggjafarvald- inu. Ögmundur Jónasson sagði hug- mynd Finns um að leggja framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun í dóm Alþingis eftir að Landsvirkjun hafi sjálf látið fara fram umhverfis- mat vera sprengju inn í þjóðfélagið. „Það á að keyra málið áfram og valta yfir vilja almennings,“ sagði Ögmundur. Milljarðar út á land Þingmenn VG sögðust leggja aðal- áherslu á umhverfismál nú og hafa m.a. endurflutt tillögu um að Fljóts- dalsvirkjun fari í mat á umhverfis- áhrifum og lagt fram tillögu um stofnun Snæfellsþjóðgarðs. Þing- mennirnir telja að Alþingi eigi að gefa sér betra tóm til að skoða virkj- ana- og stóriðjuáform. „Við viljum framkvæmdabann á hálendið á meðan við ráðum ráðum okkar,“ sagði Kolbrún Halldórsdótt- ir. VG hefur lagt fram þingsályktun- artillögu um sérstakar aðgerðir í byggðamálum og eiga þær að kosta tæpa fimm milljarða króna á ári. Þá hefur VG lagt fram tillögu um að skoðuð verði verkaskipting opin- berra aðila og einkaaðila og vill að áformum um einkavæðingu og einkaframkvæmd verði slegið á frest. VG hefur enn fremur lagt fram frumvarp til laga um breytta skipun Vísindasiðanefndar sem talsmenn flokksins sögðu ekki vera hlutlausa heldur aðeins ráðgjafar- nefnd fyrir ráðherra sem sjálfur skipar allar nefndarmenn. Að end- ingu hefur VG lagt fram þingsálykt- unartillögu um að skipuð verði nefnd allra flokka sem ræði þátt- töku íslendinga í uppbyggingu á Balkanskaganum. -GAR Lokun kúfiskverksmiðjunnar á Flateyri: Þetta er bara eitt enn í súpuna - segir Pétur Sigurðsson, forseti ASV Ákvörðun um að hætta rekstri Skelfisks á Flateyri og flytja starf- semina til Þórshafnar hefur vakið ugg manna fyrir vestan. „Þetta er bara eitt enn í súpuna," segir Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusam-. bands Vestfjarða. Eins og DV greindi frá hafa forsvarsmenn Skel- fisks tilkynnt starfsfólki að ákveðið sé að flytja starfsemina austur. For- svarsmenn Hraðfrystistöðvar Þórs- hafnar hafa sagt að málið hafi að- eins verið lauslega rætt. Pétur seg- Pétur Sigurðsson. ir viðhorf for- svarsmanna Skelfisks til flutningsins undarleg. „Fréttin var þannig að skipið færi austur en á því væru ein- tómir utanbæj- armenn. Ég veit ekki hvort það átti að afsaka það að það væri allt í lagi að skipið færi. Maður átti bara eftir að heyra að það væri allt í lagi að loka verksmiðjunni því þar ynnu „bara“ Pólverjar. Þetta er það viðhorf sem er ríkjandi í sambandi við allt það sem er að gerast hér í atvinnulifinu. Þetta á aldrei að skipta neinu máli vegna þess að það vinni eingöngu útlendingar og aðkomumenn í þessum fyrirtækj- um. Þetta sé því ekki eins alvarlegt og við séum alltaf að væla yfir. Það sem er aðalatriðið í þessu er að með hverju starfi sem lagt er niður er jafnframt verið að minnka tekjurnar í bænum og skerða tekjur allra hér á svæðinu, nema kannski helst opinberra starfsmanna. Það er verið rýra af- komumöguleika byggðarlagsins í heild. Þetta er það sem ég og fleiri höfum verið að býsnast yfir. Þegar við njótum ekki tekna þessa fólks hlýtur að fara að þrengjast um hag byggðarlagsins. Það hangir allt mögulegt á spýtunni, t.d. þjónust- an í kringum þetta, hverju nafni sem hún nefnist. Einar Oddur segir að það sé hins vegar nóg til af skel, en það vanti einhvem til að taka út skelfiskmið á svæðinu. Hann hlýtur þá að beita sér fyrir því, maðurinn, að sú út- tekt verði gerð svo verksmiðjan geti farið í gang að nýju,“ segir Pétur Sigurðsson. HKr. ilagötu 14 • Sími Hií Hallgríma ffðingabúð,: lás, Þorláksl Blönduósi. Sk drkinn, Selfosí » ^ \ ...-, - Blákaldar s rrTTirrm'i 3 ára ábyrgð Örugg þjónusta Vcsturland: Hljómsýn, Akranesi. Kf. Borgfirðinga, Borgarnesl. E Kf. Steingrímsfjarðai; Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. HúnveS Fáiskrúðsfirði. KASK, Höfn, KASK Djúpavogi. Suðurland: Mosfell, Hellu. Á Heiti Brútto Lítrar Hæö sm. Breidd sm. Dýpt sm. Körfur sem fyigja Læsing Einangrun þykkt i mm. Rafnotkun m/v 18°C umhv.hita kWh/24 klst. -s- HF 120 132 86 55 61 1 Nei 55 0,60 29.900 HFL230 221 86 79 65 1 Já 55 0,84 33.900 HFL290 294 86 100 65 1 Já 55 1,02 35.900 HFL 390 401 86 130 65 2 Já 55 1,31 39.900 EL 53 527 86 150 73 3 Já 60 1,39 46.900 EL 61 607 86 170 73 3 Já 60 1,62 53.900 Irði. Ásubúð, Búðardal. Vastfirðin Geirseyrarbúðin, Patreksfirðí. Rafverk, Bolungarvfk. Straumur, ísafirði. Pokahomiö, Tálknafirði. Norðurland: Radionaust, Akureyri. ;i. Urö, Raufartiöfn. Austuiiand: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Kf. Vopnafiröinga, Vopnafirði. Kf. Stöðfiröinga. Verslunin Vík, Neskaupstað. Kf. Fáskrúðsfiröinga, *"* “ " ■ " ‘ jin Keflavík. Rafborg, Grindavík. mes, Vestmannaeyjum. Klakkur, Vík. Reykjanes: Ljósbogin Keflavík. Rafborg, Grindavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.