Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 23 Fréttir Stór stund þegar snjóvarnargaröar voru teknir í notkun: Bolarnir verja Siglufjörð DV, Siglufirði: Snjóflóðavarnargarðarnir sem hafa verið í byggingu siðustu tvö sumur í hlíðinni ofan við Siglu- fjarðarkaupstað voru formlega teknir í notkun þann 24. septem- ber. Fjöldi bæjarbúa og annarra gesta var viðstaddur athöfn sem haldin var við endann á stærri garðinum syðst í bænum. Meðal gesta var Siv Friðleifsdóttir um- hverfisráðherra sem flutti ræðu við þetta tilefni. Einnig flutti ræðu Skarphéðinn Guðmunds- son, forseti bæjarstjórnar. Guð- mundur Guðlaugsson bæjarstjóri lýsti framkvæmdinni og séra Bragi J. Ingibergsson flutti bless- unarorð. Siv Friðleifsdóttir ávarpar Siglfirðinga. Hornafjörður. Vistvænn garður verðlaunaður DVHötn Umhverfisnefnd Hornafjarðar hefur nýlega veitt sinar árlegu viðurkenningar fyrir besta um- hirðu húsa og lóða í Hornafirði. Þeir sem hlutu viðurkenningar í ár eru eigendur tvibýlisins Ár- túns í Nesjum, þau Ásdís Mart- einsdóttir, Gísli Hermannsson, Þorbjörg Gunnarsdóttir og Mart- einn Gíslason. Viðurkenninguna hljóta þau fyrir hversu vel öllum húsum, bæði íbúðar-og gripahús- um er við haldið og fyrir snyrti- legt umhverfi. Eigendur Farfuglaheimilisins Nýjabæjar Vigdís Vigfúsdóttir og Ásbjörn Þórarinsson fyrir snyrti- lega lóð og uppbyggingu hússins sem er bæjarprýði. Einnig var veitt viðurkenning fyrir vistvæn- an garð, sem Guðrún Hálfdánar- dóttir Miðtúni 8 hlaut. Umhverfis- nefnd úthlutaði einnig styrkjum til þriggja aðila í sýslunni en það eru Skógræktarfélagið sem fékk 300 þúsund krónur, Landgræðsl- an í Öræfum fékk 150 þúsund og Félag fuglaáhugamanna 50 þús- und krónur. -Júlía Imsland. Ók á hross: Hrossið slapp en bíllinn ekki Okumaður á Blönduósi varð fyrir því óhappi að keyra á hross síðastliðna helgi. Hrossið, sem vegur milli 300 og 400 kg, stór- skemmdi bílinn en meiddist lítið. Skuldir á Skuldir ríkissjóðs hafa lækkað nokkuð á undanfornum árum. í árslok 1989 námu skuldirnar 238 milljörðum króna og áætlað er að þær verði 229 milljarðar í árslok þessa árs og 211 milljarðar í lok ársins 2000. Sem hlutfall af vergri lands- Lögreglan á Blönduósi sagði að það væri nær daglegur atburöur að ekið væri á kindur en fátiðara væri að ekið væri á hross á þess- um slóðum. -hól niðurleið framleiðslu voru skuldir ríkis- sjóðs um 40% I árslok 1998 en verða um 35% í lok þessa árs og áætlað er að skuldimar nemi 30% af landsframleiðslunni I lok árs- ins 2000. -GAR Fjöldi manns var viðstaddur athöfn í tilefni þess að lokið hefur verið við gerð snjóflóðavarnargarða á Siglufirði. Meðal gesta var umhverfisráðherra, Siv Friðleifsdóttir. DV-myndir Örn Þórarinsson. Framkvæmdin hófst í byrjun júní 1998 og var þá unnið fram í september. Aftur var hafist handa í júní í ár og lauk framkvæmdum um 10. september - eða tuttugu dögum fyrr en verkgögn kváðu á um. Mest voru um 30 manns að störfum í fjallinu og fjöldi tækja. Verktaki var Héraðsverk ehf. á Egilsstöðum. Lýsti bæjarstjórinn sérstakri ánægju með öll sam- skipti heimamanna við verktak- ann meðan á framkvæmdum stóð og færði honum gjöf frá bæjarbú- um við þetta tækifæri. Heildarkostnaður við gerð garð- anna varð um 270 milljónir króna en greiðslur til verktaka námu 224,4 milljónum. Eftir er hins veg- ar vinna við uppgræðslu garð- anna og verður hún unnin á næstu tveimur sumrum. Verktaki við þann þátt er Vélaleigan Bás á Siglufirði og hönnuður Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt. Garðarnir eru tveir eins og áður segir. Þeim stærri, Stóra-Bola, er ætlað að bægja frá byggðinni flóð- um úr svokölluðu Strengsgili. Þeim minni, Litla-Bola, sem er nokkru sunnar í fjallinu, er ætlað að verja byggðina fyrir flóðum úr Jörundarskál. -ÖÞ Elsku S O ffí CL vertu tilbúin kl. 17, lauvardavinn 9. október Þú ert að fara að gifta þig. Nú er síðasta heima hjd ] 'JQf tækifærið að skemmta sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.