Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999
Viðskipti____________________________________________________________________________ov
Þetta helst:... Viðskipti á Verðbréfaþingi námu alls 445 mkr. ... Með hlutabréf fyrir 308 mkr. ... Með húsbréf fyrir 137
mkr. ... Mest hlutabréfaviðskipti með bréf Flugleiða, fyrir 61 mkr., SÍF 59 mkr. og íslandsbanka fyrir 43 mkr. ... Verð hlutabréfa Mar-
els hækkaði um 7,0% ... Fiskiðjusamlags Húsavíkur um 6,3%, SÍF og ÍS um 5,3%. ... Úrvalsvísitala Aðallista hækkaði um 1%.
Frekari samvinna
SAS og Flugleiða
Sigurður Helgason, forstjóri Flug-
leiða, segir í viðtali við Viðskipta-
blaðið i gær að gera megi ráð fyrir
að Flugleiðir muni fara í frekari
samvinnu við önnur flugfélög og
þar sé SAS efst á blaði, enda sé sam-
starf félaganna komið lengst á veg.
Eins og fram kom í DV í gær hafa
Flugleiðir og SAS gert samning um
að taka upp samstarf I flugi milli
Skandinavíu og Bandaríkjanna.
Jafnframt verður flug SAS frá
Kaupmannahöfn, Ósló og Stokk-
hólmi til sjö borga í Evrópu flogið í
nafni SAS og Flugleiða. Sigurður
Helgason, forstjóri Flugleiða, segir í
viðtalinu við Viðskiptablaðið að
þessi samningur geti skilað mögu-
leikum á auknum tekjum. Það að
fljúga jafnframt í nafni SAS gefi
aukna möguleika á farþegum sem
ferðist á viðskiptafargjöldum og
hafl þannig í fór með sér auknar
- möguleikar á auknum tekjum
þar sé SAS efst
á blaði, enda sé
samstarf félag-
anna komið
lengst á veg.
Ráða verð-
lagningu
Einar Sig-
urðsson, fram-
kvæmdastjóri
stefnumótunar-
og stjómunar-
sviðs, segir í
Viðskiptablað-
inu að samningurinn feli í sér að
SAS muni annast sölu á þeim leið-
um sem samningurinn nái til gegn
þóknun en tekjumar komi að öðru
leyti í hlut Flugleiða. Akkurinn af
samningnum fyrir SAS sé hins veg-
ar sá að félaginu sé unnt að bjóða
Einar Siqurðsson.
aukna þjónustu án þess að þurfa
leggja út í tilheyrandi kostnað.
Einar segir, spurður hvort Flug-
leiðir muni missa forræði sitt á
verðlagningu á þjónustu sinni, að
unnt sé að skipta verðlagningu á
fargjöldum í tvennt. Annars vegar
sé um að ræða skráð gjöld milli
Skandinavíu og Bandaríkjanna sem
Flugleiðir ákveði ekki heldur setji
flugfélög í Bandaríkjunum og
Skandinavíu ákveðin mörk sem
Flugleiðum beri að taka mið af.
Hins vegar segir Einar að Flugleið-
ir muni áfram bjóða tilboðsfargjöld
til að tryggja sætanýtingu en áhersl-
ur á markaðnum séu að breytast.
Með aukinni ferðatíðni og fjölgun á
áfangastöðum hafi Flugleiðir
þannig verið að flytja sig yfir í þann
hluta markaðarins sem gefi meira
af sér.
tekjur fyrir
Flugleiðir. Þá
komist Flug-
leiðir inn í alla
fyrirtækja-
samninga og
markaðs- og
sölukerfi SAS.
Sigurður segir
að líta megi á
samninginn nú
sem framhald
cii þvi saiii-
starfi sem hófst Sigurður Helga-
1993. Samstarf son-
flugfélaga er að
aukast í heiminum, að sögn Sigurð-
ar, en yfirleitt sé ekki um samein-
ingu að ræða sökum laga sem komi
í veg fyrir eignatengsl flugfélaga á
mUli landa. Það megi því gera ráð
fyrir að Flugleiðir muni fara í frek-
ari samvinnu við önnur flugfélög og
Delta hf. og
Lyfjaverslun
Islands hf.
undirrita
stórsamning
Delta hf. og Lyfjaverslun ís-
lands hf. hafa undirritað
fimm ára samning um að
Lyfjaverslun íslands hf. dreifi
öllum framleiðsluvörum Delta
hf. hér á landi frá næstu ára-
mótum. Velta Delta hf. á inn-
lendum markaði á árinu 2000
er áætluð 650 milljónir króna.
Gert er ráð fyrir að Delta hf.
lækki rekstrarkostnað um 45
milljónir króna á ári með
þessum samningi, miðað við
núverandi dreifingarfyrir-
komulag. Lyfjaverslun íslands
hf. hefur einnig verulegan hag
af samningnum við Delta hf.
og getur nýtt dreifingarkerfi
sitt mun betur en áður.
Samningur Delta hf. og
Lyfjaverslunar íslands hf.
stuðlar að því að bæta veru-
lega þjónustuna við lyfjakaup-
endur. Þannig berast allar töl-
ur um sölu og birgðir sam-
stundis með rafrænum hætti
á milli fyrirtækjanna sem ger-
ir sölustarfsemi og birgðastýr-
ingu Delta hf. enn markviss-
ari og hagkvæmari en áður.
Lyfjaverslun íslands hf. á
16,54% hlut í Delta hf. Sá eign-
arhlutur er yfir 500 milljóna
króna virði samkvæmt núver-
andi gengi hlutabréfa. Fyrir-
tækin hafa því bæði ótvíræð-
an hag af nýja samningnum.
Fyrirsjáanlegt er að hag-
kvæmni eykst í rekstri Lyfja-
verslunar íslands hf. og um
leið eykst arðsemi í rekstri
Delta hf.
4,6% verðbólga samkvæmt
spá íslandsbanka F&M
Islandsbanki F&M spáir nú 4,6%
verðbólgu frá byrjun til loka þessa
árs og 3,1% miÚi ársmeðaltala 1998
og 1999. Þetta er eitthvað minni verð-
bólga en nýútkomin þjóðhagsáætlun
gerir ráð fyrir. Þar er þvi spáð að
vísitala neysluverðs hækki um 5,0%
yfir árið 1999 og um 3,2% á milli árs-
meðaltala 1998 og 1999. Munurinn
felst í sérstökum áhrifum vegna árs-
tíðabundinna þátta.
Næsta mánuð spáir íslandsbanki
F&M 0,4% hækkun neysluverðsvísi-
tölunnar. Búast má við einhverri
hækkun á grænmeti og áframhald-
andi hækkun húsnæðisverðs. Olíufé-
lögin hækkuðu verð á bensíni um 90
aura, eða 1%, um mánaðamótin og
leiðir sú hækkun til 0,04% hækkunar
vísitölunnar. Gjaldskrár leigubíla
hækkuðu um 5,5% í september en
áhrif þeirrar hækkunar eru hverf-
andi í vísitölunni. Á næsta ári gerir
íslandsbanki F&M ráð fyrir 2,9%
hækkun neysluverðsvísitölunnar
yfir árið og 4,0% hækkun milli árs-
meðaltala 1999 og 2000. Þjóðhags-
stofnun gerir í spá sinni ráð fyrir
2,5% hækkun vísitölunnar yflr árið
og 4,0% á milli ársmeðaltala.
Helstu forsendur
leiðniaukning er áætluð 2,5% á þessu
ári og 2,0% á þvi næsta, í samræmi
við spá Þjóðhagsstofnunar. I kjölfar
væntinga um hækkandi hrávöruverð
er nú gert er ráð fyrir að erlent verð-
lag hækki um 2,5% á þessu ári og því
næsta í stað 1,5% í fyrri spá. Sérstök-
um árstíðabundnum áhrifum er bætt
við. Seðlabankinn hækkaði stýri-
vexti sína um 60 punkta fyrr í þess-
um mánuði og staðfesti með því vilja
sinn til að halda gengi krónunnar
sterku. í nýútkominni þjóðhagsspá
kemur einnig fram sterkur vilji
stjórnvalda og Seðlabanka til að
halda gengi krónunnar sterku. Krón-
an hefur styrkst nokkuð í kjölfarið
og er útlit fyrir að hún haldist sterk
á komandi vikum. Styrking krónunn-
ar ætti, að öðru óbreyttu, að slá á
verðbólguþrýsting á næstu mánuð-
um. Samkvæmt spá Goldmans Sachs
má búast við almennri hækkun hrá-
vöruverðs næstu 12 mánuði. Hing-
að til hefur það einkum verið
olíuverð sem hefur verið
að hækka en nú er
spáð hækkun ann-
arra hrávara
einnig. Gangi þessi
spá eftir eykst
verðbólguhætta al-
mennt og þar með
þrýstingur til
hækkunar verðlags hér á
landi enn frekar.
í spánni er gert ráð fyrir óbreyttu
innflutningsgengi. Gert er ráð
Markaðsvirði Íslandssíma 780 milljónir
- umframeftirspurn í hlutafjárútboði félagsins
Hlutafjárútboði Íslandssíma hf.
lauk í fyrradag. Boðnar voru út 100
milljónir króna að nafnvirði á geng-
inu 3,0, eða 300 milljónir króna sam-
tals. Fyrir útboðið var heildarhluta-
fé Íslandssíma 160 milljónir króna
að nafnvirði. Miðað við útboðsgeng-
ið er markaðsvirði Íslandssíma því
780 milljónir króna. Þetta kom fram
í Viðskiptablaðinu í gær. Sam-
kvæmt upplýsingum frá íslands-
síma skráðu forkaupsréttarhafar sig
fyrir 50-66% hlut í útboðinu en eft-
irspurn eftir þeim hlut sem eftir
stóð var meiri en framboð. Hluta-
fjárútboðið fór fram í umsjá MP-
verðbréfa hf. sem festu kaup á um
5% hlut. Stærstu hluthafar íslands-
síma eru eftir sem áður Burðarás
hf. og Fjárfestingarfélagið Þor, sem
er í eigu Hagkaupsflölskyldunnar,
en bæði félögin eiga um 20% hlut.
Aðrir hluthafar eiga mun minni
hlut en þeir er á flórða tug.
Tilgangur útboðsins var að flár-
magna ljósleiðaranet sem Lína.Net,
dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykja-
víkur, er að leggja um höfuðborgar-
svæðið. Samkvæmt upplýsingum
frá Íslandssíma gengur lagning
netsins, sem verður í heild 140 kiló-
metrar, hraðar en áætlað var. Það
gerir Íslandssíma kleift að hleypa af
stokkunum víðtækri þjónustu sinni
við fyrirtæki og einstaklinga
nokkru fyrr en áformað var.
Bjarni seldi bréfin
Bjarni Ármanns-
son, forstjóri Fjár-
festingarbanka at-
vinnulífsins, sagði í
viðtali við Vísi.is í
gær að það væri
rétt að hann hefði
selt hlutabréf sem
hann átti í FBA í
ágúst sl. Hann hafnar þó alfarið
kenningu Óðins, huldupenna Við-
skiptablaðsins, sem lætur í veðri
vaka í dag að Bjami hafi selt bréf
sín vegna þess að hann sé að
missa trúna á framtíðarmöguleik-
um fyrirtækisins.
Breyting á bensíngjöldum
Á Alþingi var í gær flallað um
frumvarp flármálaráðherra um
vörugjald af ökutækjum og bens-
íni. Þar er lagt til að í stað hlut-
fallsskatta á bensín verði tekin
upp föst skattlagning. Þetta er
breyting sem margir hafa lagt til,
m.a.'til að tryggja tekjur af bens-
íni í flárlögum og að ekki verði
óvissa með tekjur ríkissjóðs.
Flugaðilum mismunað
Eftirlitsstofnun EFTA telur
það brjóta i bága við samninginn
um Evrópska efnahagssvæðið að
lægri skattur sé innheimtur af
innanlandsflugi og flugi til
Grænlands og Færeyja en milli-
landaflugi til annarra EES-landa.
Viðskiptavefurinn á Vísi.is
greindi frá. Að mati Eftirlits-
stofnunarinnar felst í því mis-
munun, erlendum flugaðilum í
óhag, að skatthlutfall sé hærra í
flugi til annarra landa EES.
Þessi mismunun felur, að mati
Eftirlitsstofnunarinnar, i sér
brot á almennum ákvæðum
samningsins um frjálsa þjón-
ustustarfsemi.
Gengi Advanta sveiflast
Hlutabréf í
bandaríska flár-
málafyrirtækinu
Advanta Cor-
poration, sem
Ólafur Jóhann
Ólafsson veitir
forstöðu, hafa
lækkað um 27% frá því þau náðu
hámarki í kjölfar afkomufréttar
frá fyrirtækinu í lok júlí. Við-
skiptavefurinn á Vísi greindi frá.
Markaðsvirði félagsins var í gær
184 milljónir dollara en þá var
verðmæti hvers hlutar 17,5 doll-
arar. Lægst fór verðmæti hvers
hlutar hins vegar í 15,0 í lok síð-
asta mánaðar. Hjá Advanta
starfa um 2.400 manns.
Eimskip hagnast um 300 millj-
ónir á hækkun Flugieiða
Þær gengishækkanir sem
urðu á hlutabréfum Flugleiða í
gær færðu Eimskip um 300 millj-
ónir í verðmætaaukningu en
Burðarás, flárfestingarfélag Eim-
skips, á um 31,4% hlut í Flugleið-
um. Á þetta bendir Morgunkorn
FBA í gær. I fyrradag hækkaði
gengi hlutabréfa Eimskips um
0,5% þannig að fréttin hafði, að
sögn FBA, ekki afgerandi áhrif.
Florinda flytur til Dan-
merkur
Portúgalska skipafélagið Port-
line, sem hefur haft flutningaskip-
ið Florindu í föstum ferðum milli
íslands, Noregs og Spánar síðan í
fyrra, hefur ákveðið að bæta við
viðkomu í Esbjerg í Danmörku.
í frétt frá félaginu kemur fram
að ákvörðunin sé tekin til að koma
til móts við ósk margra viðskipta-
vina. Florinda flytur alla hefð-
bundna vöru bæði í gámum og
pöllum, frosið sem ferskt. Fyrsta
viðkoma skipsins í Esbjerg verður
22. október næstkomandi. Umboðs-
maður Portline á Islandi er G.
Guðjónsson sf. skipamiðlun. -bmg