Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Blaðsíða 30
34 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 Afmæli______________________ Friðgeir Grímsson Friðgeir Grímsson, verk- fræðingur og fyrrv. örygg- ismálastjóri, Sundlauga- vegi 24, Reykjavík, er ni- ræður í dag. Starfsferill Friðgeir fæddist Reykjavík og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Iðnskólann í Reykjavík frá 1928 og lauk þaðan prófum 1931, lauk prófum frá Vél- skólanum í Reykjavík 1933, lauk sveinsprófi í vélvirkjun 1937 og prófi sem yfirvélstjóri 1937, stundaði nám við Ingenieurschule Mittweida í Sachsen í Þýskalandi og lauk þaðan vélfræðiprófi 1940, lauk tæknikenn- araprófi i Kaupmannahöfn 1949, öðl- aðist yfirvélstjóraskírteini fyrir mót- orskip af öllum stærðum 1951 og lauk prófi í vélaverkfræði frá TH í Aachen. Friðgeir var vélstjóri á ýmsum skipum 1933-38, kennari við Iðnskól- ann í Reykjavík 1940-57 og 1961-69, við Vélskólann i Reykjavík 1940-52, eftirlivsmaður verksmiðja og véla hjá Öryggiseftirliti rikisins 1940-69 og ör- yggismálastjóri 1970-80. Friðgeir var ritstjóri tíma- ritsins Tækni 1943-45 og skrifaði greinar í blöð og tímarit um tækni og ör- yggismál á vinnustöðum. Fjölskylda Friðgeir kvæntist 8.10. 1930, fyrri konu sinni, Eyrúnu Guðmundsdóttur, f. 12.10. 1908, d. 7.11. 1936, húsmóður. Hún var dóttir Guðmundar Sigurðssonar, sjómanns og matsveins í Hafnarfirði, og k.h., Þóru Egilsdóttur húsmóður. Dóttir Friðgeirs og Eyrúnar er Bergþóra Bachmann, f. 21.7. 1929, snyrtisérfræðingur í Reykjavík, gift Baldri Stefánssyni prentara. Friðgeir kvæntist 2.5.1943 Guðrúnu Soffiu Gísladóttur, f. 18.12.1912, hjúkr- unarkonu. Hún er dóttir Gísla Einars- sonar, bónda að Efra-Apavatni i Laug- ardal, og k.h., Sigríðar Magnúsdóttur húsfreyju. Börn Friðgeirs og Guðrúnar Soffíu eru Gisli Halldór, f. 13.11. 1943, eðlis- fræðingur búsettur i Reykjavík, kvæntur Lilju Sigurðardóttur hjúkr- unarfræðingi; Grímm- Rúnar, f. 8.3. 1948, rafeindatæknifræðingur í Reykjavík, kvæntur Halldóru Börns- dóttur, leikskólakennara og tækni- teiknara; Sigríður Sólveig, f. 3.1. 1952, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík, gift Leifi Þorsteinssyni líffræðingi. Systkini Friðgeirs: Magnea, nú lát- in, húsmóðir i Reykjavík; Ásgeir Har- aldur, nú látinn, búsettur í Reykjavík; Halldór, eðlisfræðingur og efnafræð- ingur, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Friðgeirs voru Grímur Ásgrímsson, f. 13.4. 1880, d. 29.8. 1973, steinhöggvari í Reykjavík, og k.h., Bryndís Jónsdóttir Bachmann, f. 15.8. 1886, d. 3.11. 1973, húsmóðir. Ætt Grímur var sonur Ásgríms, b. á Stærribæ í Grímsnesi Sigurðssonar, og Þuríðar Guðmundsdóttur. Bryndís var systir Hallgríms ljósameistara, fóður Helgu Bachmann leikkonu. Bryndís var dóttir Jóns Bachmann, b. í Steinsholti, bróður Borgþórs, föður leikkvennanna, Önnu, Þóru og Emelíu Borg. Jón var sonur Jósefs, b. í Skipanesi Magnús- sonar og Halldóru Guðlaugsdóttur, b. á Geitagerði Sveinbjörnssonar. Móðir Halldóru var Sigríður Bachmann, systir Ingileifar, móður Hallgríms landsbókavarðar. Hálfbróðir Sigríðar var Jón Borgfirðingur, afi Agnars Klemenzar Jónssonar ráðuneytis- stjóra. Sigríður var dóttir Jóns Bach- mann, pr. á Klausturhólum Hall- grímssonar, læknis í Bjarnarhöfn og ættfóður Bachmann-ættar. Móðir Jóns var Halldóra Skúladóttir landfó- geta Magnússonar. Móðir Sigríðar var Ragnhildur Björnsdóttir, systir Sig- urðar Thorgrímssonar landfógeta. Móðir Bryndísar var Hallfríður, ljósmóðir Einarsdóttir, útvegsb. í Nýjabæ á Akranesi Einarssonar, út- vegb. þar Þorvarðarsonar. Móðir Hall- fríðar var Ingibjörg, dóttir Ingjalds, b. á Bakka Ingjaldssonar, og Margrétar Bjarnadóttur, frá Brekku á Kjalar- nesi. Friðgeir dvelur með Oddfell- owbræðrum sínum í dag og er að heiman. Hann tekur á móti öðrum vinum sínum og vandamönnum í safnaðar- heimili Laugarneskirkju laugardag- inn 9.10. n.k. milli kl. 16.00 og 19.00. Friðgeir Grímsson. Valgerður Valgerður Pálsdóttir, húsfreyja að Kálfafelli í Fljótshverfi, Vestur- Skaftafellssýsla, er níræð í dag. Starfsferill Valgerður fæddist að Seljalandi í Fljótshverfi og ólst þar upp. Hún gekk í hinn stutta barnaskóla síns tíma og síðan tók við skóli lífsins. Valgerður var húsfreyja á Kálfafelli frá 1931 og fram á þetta ár. Þar var jafnan margt gesta því þar var enda- stöð Austurleiðarrútu, lengi vel, og mjólkurbíllinn fór ekki austar. Bjöm, eiginmaður Valgerðar, var austanpóstur og við það skapaðist aukinn gestagangur. Voru þá margir i fæði og húsnæði í viðbót við heimilis- fólk og sveitabörn, sem oft voru barnabörn Valgerðar eða systkina hennar. Fjölskylda Valgerður giftist 31.12. 1931 Birni Stefánssyni, f. 30.9. 1896, bónda og landspósti í Kálfafelli. Hann var sonur Stefáns Þorvaldssonar, bónda og land- pósts í Kálfafelli, og k.h., Guðnýjar Jónsdóttur húsfreyju. Börn Valgerðar og Björns eru Páll, f. 18.11. 1932, smiður í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Albertsdóttur; Stef- án, f. 13.5. 1934, bóndi á Kálfafelli; Sveinn, f. 24.5. 1936, rafvélavirki í Pálsdóttir Reykjavík; Guðný, f. 30.11. 1938, húsmóðir og starfs- maður dvalarheimilis aldr- aðra á Skagaströnd, gift Sveini Garðarssyni; Guð- jón, f. 13.4. 1942, ráðgjafi í Svíþjóð, kvæntur Valdísi Sæunni Kristinsdóttur; Snorri, f. 7.9. 1944, bóndi á Kálfafelli, kvæntur Ragn- heiði Runólfsdóttur; Mál- fríður, f. 16.8. 1948, hús- móðir og starfsmaður vist- heimilis i Reykjavík, gift Sigurði Kristni Óskarssyni. Systkini Valgerðar: Þórarinn, f. 1899; Jón, f. 1902; Kristín, f. 1903; Valgerður Pálsdóttir. Helgi, f. 1904; Bjarni, f. 1905; Valdimar, f. 1905; Helgi, f. 1907; Helga, f. 1908; Guðríður, f. 1911; Páll, f. 1912; Þórarinn, f. 1913; Sig- urður, f. 1915; Elías, f. 1916; Málfríður, f. 1918; Pálína, f. 1919. Foreldrar Valgerðar voru Páll Bjarnason, f. 29.1. 1875, d. 24.6. 1922, bóndi á Seljalandi í Fljótshverfi, og k.h., Málfríður Þórarins- dóttir, f. 6.11. 1877, d. 7.3. 1946, húsfreyja. Sævar Már Björnsson Sævar Már Björnsson flokksstjóri, Norðurgötu 51, Akureyri, er fertugur í dag. Starfsferill Sævar fæddist í Reykja- vík og ólst þar upp en flutti til Akureyrar með fjöl- skyldu sinni er hann var tíu ára. Sævar lauk gagnfræða- Sævar Már Björnsson. prófi frá Gagnfræðaskólan- um á Akureyri. Sævar starfaði m.a. við Vegagerð ríkisins á Akur- eyri á unglingsárunum. Hann heftu: starfað við Frystihús Útgerðarfélags Akureyringa frá 1976. Fjölskylda Sævar kvæntist 25.9.1998 Ingu Randversdóttur, f. 14.11. 1963, verslunarmanni. Hún er dóttir Randvers Karlssonar og Fjólu Egedíu Hjaltalín sem lést 1990. Dóttir Ingu er Fjóla Sif Ómarsdótt- ir, f. 1.7.1986. Dætur Sævars og Ingu eru Kolbrún Egedía Sævarsdóttir, f. 10.4. 1996; El- ísabet Ingibjörg Sævarsdóttir, f. 20.1. 1999. Systkini Sævars eru Sigurlaug Björnsdóttir, f. 20.3. 1964, skrifstofu- maður á Akureyri en maður hennar er Kristján Bjarnason og sonur Sigur- laugar er Björn Már Jakobsson; Jónas Björnsson, f. 9.10.1965, verkamaður á Akureyri; Sveinn Björnsson, f. 11.12. 1968, verkamaður, kvæntur Leenu Kaisu Vittanen; Birgitta Linda Björns- dóttir, f. 9.1.1972, þjónn á Akureyri. Foreldrar Sævars era Björn Harald- ur Sveinsson, f. 6.7. 1940, húsagana- bólstrari á Akureyri, og Kolbrún Jón- asdóttir, f. 20.3.1940, ræstitæknir. I>V Tll hamingju með afinælið 7. október 90 ára_________________ Sigriður Þorsteinsdóttir, Kleppsvegi 64, Reykjavík. 80 ára Brynhildur Eydal, Hjallaseli 55, Reykjavík. Eiginmaður Brynhildar var Brynjar Eydal. Brynhildur verður á afmælisdaginn stödd hjá Guðfinnu, dóttur sinni, Garðastræti 25, Reykjavík. 70 ára Guðbjörg Guðmundsdóttir, Grettisgötu 26, Reykjavík. Gunnar Egilsson, Holtagötu 5, Reyðarfirði. 60 ára Álfur Ketilsson, Brennigerði, Sauðárkróki. Jón Sigurðsson, Ásbúð 45, Garðabæ. Jón Stefánsson, Greniteigi 51, Keflavík. Þorsteinn Sæmundsson, Hverfisgötu 42, Reykjavík. 50 ára Anna Júlíana Sveinsdóttir, Ásbúð 98, Garðabæ. Fjóla Leósdóttir, Marbakkabraut 32, Kópavogi. Grétar Jónatansson, Hilmisgötu 5, Vestmannaeyjum. Guðmundur Jónsson, Mávakletti 4, Borgarnesi. Hallgrímur Hallgrímsson, Suðurhólum 22, Reykjavík. Kristinn Guðmundsson, Suðurhúsum 3, Reykjavík. Margrét Jónsdóttir, Kirkjuteigi 15, Reykjavík. Ólafur Hreiðarsson, Flúðaseli 34, Reykjavik. Ragnar M. Óskarsson, Dvergaborgum 3, Reykjavik. Randver Þorláksson, Selbrekku 26, Kópavogi. 40 ára Berglind Hulda Hilmarsdóttir, Fagrahjalla 100, Kópavogi. Guðrún SteUa Gunnarsdóttir, Ljósheimum 14, Reykjavík. Kjartan Óskarsson, Hagalandi 1, Mosfellsbæ. OUver Edvardsson, Álftamýri 40, Reykjavík. Sigríður Björg Gunnarsdóttir, Búlandi 30, Reykjavík. Sigurður Olaf Bragason, Hjallavegi 16, Hvammstanga. Sigurþór Jónsson, Sogavegi 152, Reykjavík. 3 Sú var tíð að norsk herskip ógnuðu íslenskum fiskiskipum með fallbyssur að vopni. Nú ríkir friður á milli frænd- þjóða. Monika Haug er norsk yngismær sem taldi þó réttara að kynna sér varnir íslands. Myndin er frá Ánanaust- um við aflagða fallbyssu Landhelgisgæslunnar. DV-mynd Gólfi Karl Georg Magnússon í afmælisgrein um Karl Georg Magnússon, sem birtist 5.10. sl., féll niður kafli i upptalningu á systkinum hans. Kaflinn um fjölskyldu er þvi birt- ur hér aftur leiðréttur og Karl beðinn velvirðingar á mistökunum. Fjölskylda Karl kvæntist 11.3. 1972 Sigrúnu Sighvatsdóttur, f. 23.3. 1945, skrifstofumanni. Hún er dóttir Sighvats J. Gíslasonar af- greiðslumanns og Ingveldar Hafdís- ar Guðmundsdóttur, húsmóður og sjúkraliða. Börn Karls og Sigrúnar eru Hilm- ar Þór, f. 16.8.1973, nemi í viðskipta- fræði við HÍ, í sambúð með Hall- dóru Hálfdánardóttur, nema í hjúkrunarfræði; Ingveldur Hafdís, f. 25.3.1976, nemi í bókasafnsfræði við HÍ, í sambúð með Starra Frey Jóns- syni stjórnmálafræðingi; Guðlaug Karl G. Magnússon. Björk, f. 25.10.1977, nemi í viðskiptafræði við HÍ, í sambúð með Birgi Guð- finnssyni viðskiptafræð- ingi. Systkini Karls: Jón Hjaltalín, f. 2.4. 1948, verkfræðingur og fram- kvæmdastjóri; Hilmar Þór, f. 21.7. 1951, d. 10.8. 1966, háseti; Þórdís, f. 19.7. 1954, hjúkrunar- fræðingur; Stefán, f. 21.7. 1959, verkstjóri í Reykhólahreppi. Hálfsystir Karls, sammæðra, er Bergþóra Magnúsdóttir, f. 7.11.1944, skrifstofumaður. Foreldrar Karls eru Magnús Jónsson, f. 27.11. 1918, vélvirkja- meistari og vélstjóri, og Guðlaug Bergþórsdóttir, f. 16.11. 1927, hús- móðir og matreiðslukona.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.