Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Blaðsíða 2
Fréttir FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 Stuttar fréttir i>v Tillaga Ólafs F. Magnússonar um Fljótsdalsvirkjun fyrir borgarstjórn í dag: Frávísunar krafist - borgarstjóri gengisfellur ef hún greiðir ekki tillögu minni atkvæði, segir Ólafur „Það sem ég óttast er að fram- sóknarmenn hafi þegar upp er stað- ið tögl og hagldir í þessu mikil- væga þjóðarhagsmunamáli, bæði á Alþingi og í borgarstjórn Reykja- víkur,“ segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisílokksins, en tillaga hans um að skora á Al- þingi að senda Fljótsdalsvirkjun í lögformlegt umhverfismat verður tekin fyrir í borgarstjórn Reykja- víkur í dag. „En ég vona samt enn þá að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi eitthvað meint með orðum sín- um á Bessastaðaárbrú 23. ágúst síð- astliðinn en þar lýsti hún yfir ein- dreginni afstöðu með lögformlegu umhverfismati vegna fyrirhugaðr- ar Fijótsdalsvirkjunar. Ef hún greiðir ekki atkvæði með tillögu minni hefur hún sagt ósatt og geng- isfellt sjálfa sig sem stjómmála- mann.“ R-listi í bobba R-listamönnum er vandi á höndum vegna tillögu Ólafs og í raun sama hvort þeir fella til- löguna eða samþykkja, báðir kostir eru slæmir. Þar með er komin upp sú staða að innan borgar- stjórnarinnar hefur myndast nýr meirihluti með fyrirmynd í ríkis- stjórnarmynstrinu. Sam- þykki borgarstjórn til- lögu Ólafs hins vegar má segja að borgin hafi vond- an málstað að verja þar sem hún sjálf hefur reist Nesjavallavirkjun, sem enn þá er i uppbyggingu, án þess að til lögform- legs umhverfismats hafi komið. „Það eru mjög skiptar skoðanir um það, bæði í meirihluta og minnihluta í borgarstjóm, hvort tillaga Ólafs eigi R-listinn fundaði um málið f gær. DV-mynd E.OI. erindi inn í borgarstjórn, og á borgar- stjórnarfundinum í dag mun að öllum líkindum koma fram tillaga um að til- lögu Ólafs verði vísað frá,“ segir Al- freð Þorsteinsson, borgarfulltrúi R- listans, en þetta mun hafa verið niður- staða R-listafundar um málið í gær. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri er talin munu greiða frávísunar- tillögunni atkvæði þótt hún hafi á öðr- um vettvangi lýst þeirri skoðun sinni að Eyjabakkasvæðið eigi að fara í um- hverfismat, en hún mun raunar hafa sagt við það sama tækifæri að lausn þessa máls væri mál Alþingis. Ólafur segir að þó hann eigi e.t.v. ekki vísan stuðning meðal borgarfull- trúa Sjálfstæðisflokksins njóti sjónar- mið hans þó velvilja sumra innan borgarstjórnarflokksins og nefndi Ólafur sérstaklega þær Guðrúnu Pét- ursdóttur og Helgu Jóhannsdóttur. „En ég óttast að það sýni sig að Hall- dór Ásgrímsson hafi í raun kverkatak á Sjálfstæðisflokknum og geti þannig skákað þjóðarvfija. Mér finnst það sorglegt ef Halldór setur eigin metnað og kjördæmapot ofai- þjóðarhagsmun- um,“ segir Ólafur. -GAR/gk Hestamiðstöö: Ekki komið á lokapunkt - segir ráðherra Málið er ekki komið á loka- punkt, 2. og 3. umræða eru eftir. Ég á von á að vilji sé fyrir því að þetta fari inn í fjárlögin en það liggur ekkert fyr- ir eins og er,“ sagði Guðni Ágústsson land- búnaðarráðherra, aðspurður um hvers vegna ekki væri gert ráð fyrir framlögum til Miðstöðvar ís- lenska hestsins. í undirbúnings- drögum var gert ráð fyrir að fram- lag ríkisins yrði 30 milljónir króna á ári í fimm ár, samtals 150 millj- ónir króna. Guðni kvaðst þrýsta á um að framlag til miðstöðvarinnar færi inn í fjárlögin. Verið væri að vinna í málinu á öðrum stöðum og stæðu samningaviðræður við heildarsamtök hestamanna enn yfir. -JSS Guðni Agústs- son. Það er erfitt hjá reykingamönnum á þingi þessa dagana, þeir mega hvergi vera. Trúlega eru það þó ekki reykinga- málin sem eru efst á baugi hjá þessum þingmönnum enda eru þeir ekki þekktir af þeim ósið, i mesta lagi sáldra þeir neftóbaki í sig annað veifið. Hér gantast Össur Skarphéðinsson við Gunnar Birgisson og Jón Bjarnason fylgist með í forundran. DV-mynd Hilmar Þór Bréfberar undir álagi fokreiðir út í íslandspóst: Fengu auglýsingaspólu og bland í poka með heim - sorglegt ef þetta fer illa í þá, segir framleiðslustjórinn Mikillar óánægju gætir meðal bréf- bera vegna sendingar sem þeir hafa fengið frá íslandspósti. Er um að ræða auglýsingaspólu um starf fyrirtækis- ins og blandað sælgæti í poka. Allir starfsmenn fyrirtækisins fengu slíka sendingu. Bréfberar hafa borið sig illa að undanfóriíu vegna'útburðar á vax- andi magni af auglýsingapósti. Þeir hafa kvartað undan drápsklyfjum. Sendingar íslandspósts til þeirra, fyrst á fréttabréfi frá fyrirtækinu og síðan auglýsingaspólunni og sælgæt- inu hafa ekki orðið til að lægja þær öldur, þvert á móti. „Það er niðurlægjandi að fá sent bland i poka fyrir 60 krónur,“ sagði fokreiður bréfberi við DV í gær. „Og svo ætlast þeir til að maður fari að horfa á auglýsingar frá fyrirtækinu þegar maður kemur slituppgefinn heim á kvöldin." Óskar Örn Jóns- son, framleiðslu- stjóri hjá íslands- pósti, sagði að komið hefði í ljós í við- horfskönnun sem fyrirtækið gerði meðal starfsmanna að bréfberar væru út undan og vildu fá meira upplýsinga- flæði. Strax hefði verið gert átak í því máli. „Það er sorg- legt ef svona fer illa í bréfberana," sagði Óskar Örn. íslandspóstur vinnur nú að því að minnka póstburðarhverfin og fjölga bréfberum til muna til að minnka á Stefán Karl Guðjónsson bréfberi með sendinguna frá vinnuveitand- anum, auglýsingaspólu og bland í poka. DV-mynd Pjetur þeim álagið, að sögn framleiðslustjór- ans. Þegar hafa verið ráðnir tugir til viðbótar. Þá hyggst fyrirtækið vera með markvissari stýr- ingu á auglýsingapóstin- um til að koma í veg fyr- ir álagstímabil. Óskar Örn var staddur erlendis á sýningu að skoða hjóla- kerrur fyrir bréfbera þegar DV ræddi við hann í gær. Fyrirtækið hefur þegar pantað 150 kerrur með betri tösk- um, auk þess sem keypt- ar verða 600 léttari og þægilegri töskur. Til- raunir eru í gangi með notkun reiðhjóla þar sem aðstæður gera hana mögulega. Loks er unnið að ýmsum skipulagsbreytingum, á vinnustað og úti í hverfunum sem koma eiga bréfberum til góða. -JSS Finnur lýðræðislegur Finnur Ingólfsson iðnaðarráð- herra segir það misskilning hjá flokksbróður sínum Ólafi Erni Haraldssyni, for- manni umhverf- isnefndar Al- þingis, að verið sé að sniðganga umhverfisnefnd varðandi Fljóts- dalsvirkjun. Iðnaðarnefnd sem mun fá málið til meðferðar á Alþingi muni senda umhverfisnefnd það til umsagnar. Dagur sagði frá. Paprika dýrust hér í vikunni var gerð verðkönnun á ávöxtum og grænmeti í stór- mörkuðum sjö borga í þremur heimsálfum. í ljós kom að græn paprika er 403% dýrari í Reykja- vík en í Barcelona á Spáni en 14,5% dýrari en í Ósló. Þá kom í ljós að fimm ávaxta- og græn- metistegundir af þeim tíu sem fengust í Hagkaupi eru dýrastar á íslandi. Mbl. sagði frá. Erlend keðja til íslands McCann-Erickson, auglýsinga- keðjan sem rekur um 120 auglýs- ingastofur víða um heim, hefur verið aö leita hófanna með sam- s’tarfsaðila hérlendis. Sendinefnd frá fyrirtækinu hefur tvívegis komið hingað til lands á undan- fórnum mánuðum að kynna sér fyrirtæki á Islenskum auglýsinga- markaði. Mbl. sagði frá. Mikið hestasvindl Tollayfirvöld í Þýskalandi rannsaka nú skýrslur um inn- flutning íslenskra hesta síðustu tíu ár og segja þau að skattsvika- málið, sem kom upp í sumar, sé mun umfangsmeira en talið var í fyrstu. Tollayfirvöld og saksókn- arar um allt Þýskaland rannsaka nú innflutning á þúsundum hrossa. RÚV greindi frá. Aukamilljón á þingmenn Mikil útgjaldahækkun kemur fram á öllum stigum æðstu stiómar ríkisins í nýju „aðhalds-fjár- lagafmmvarpi" fyrir árið 2000. Þar á meðal eru 10,4 milljónir vegna úrskurðar Kjaradóms frá mai sl. - eða sem svarar tæplega einni milljón á hvern ráðherra. Dagur sagði frá. Tryggöi persónurétt í svari sínu við fyrirspurn um hvernig heilbrigðisráðherra og ráðuneytið hefði komið að þvi að Tölvunefnd leyfði ÍE aðgang að 30 sjúkraskýrslum á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, sagði Ingibjörg Pálma- dóttir að heilbrigðisráðuneytið hefði ekki komið með beinum hætti aö leyfisveitingunni. Hún sagði jafnframt að Tölvunefnd hefði tryggt persónurétt með skilyrðum sínum og lýsti fyllsta trausti. á nefndina. Vísir.is sagði frá. Hillary vel gætt Ráðstefnan, Konur og lýðræði, verður sett i Borgarleikhúsinu á morgun. Gestir á ráðstefnuna eru farnir að streyma til landsins og sá umtalaðasti kemur væntanlega á fóstudag, þ.e. Hillary Clinton og hennar fylgdarlið. Einnig er von á varautanríkisráðherra Bandaríkj- anna, Sfi-obe Talbott, sem mun setja ráðstefnuna. Það kemur í hlut Hill- ary að slíta ráðstefnunni nk. sunnu- dagskvöld. Dagur sagði frá. Sent til ríkissaksóknara Lögreglan í Reykjavík hefur lok- ið rannsókn sinni á morð- málinu sem kom upp við Leifs- götu í miðjum júlímánuði og mun málið verða sent ríkis- saksóknara í dag, fimmtudag, þar sem það verð- ur tekið til ákærumeðferðar. Mbl. sagði frá. -GAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.