Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Blaðsíða 20
24
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999
Hvar hefurðu átt heima?
Búsetusaga fólks er misjafnlega flókin. Sumir eru alltafað flytja
á nýjan stað en aðrir kjósa að halda kyrru fyrir mestalla ævina.
í Tilverunni í dag er búsetusaga þriggja Reykvíkinga kortlögð
- frá fæðingu til dagsins í dag.
Hringbrautin er mér afskaplega hjartfólgin
- segir Guðrún Ögmundsdóttir þingmeður sem hefur búið á átján stöðum í Reykjavík
d Bólstaðarhlíð
„Þcima fæddist ég og bjó fyrstu
tvö ár ævi minnar.“
o Hverfisgata
„Flutti tveggja ára á Hverfisgöt-
una. Ég man aö mér þótti afskap-
lega gaman aö sitja með ömmu við
gluggann og telja bílana sem fóru
hjá. Þeir voru auðvitað misflottir og
við amma spáðum mikið í það.“
9 Laugarnesvegur (gamli)
„Það var óskaplega gaman að vera
krakki i Laugamesinu. Ég eignaðist
mikiö af vinum sem ég á enn.“
0 Laugarnesvegur (nýi)
„Fjölskyldan flutti sig um set í
nýrra húsnæði. Ætli ég hafi ekki
verið svona sjö ára. Þetta breytti
ekki miklu fyrir mig enda enn þá í
sama hverfi."
9 Ljósheimar
„Þetta þótti mér erfitt hverfi að
búa í og ég náði aldrei sambandi við
krakkana þama enda heimtaði ég
að vera áfram í Laugamesskólan-
um. Ég gekk á hverjum degi i gegn-
um dalinn, alla leið í skólann, og ég
man að það var ansi erfitt enda
dimmt á morgnana."
© Hringbraut
„Tíu ára gömul flutti ég með fjöl-
skyldu minni á Hringbrautina og
þar áttum við eftir að vera næstu
fjögur árin. Hringbrautin er mér af-
skaplega hjartfólgin og ég hef æ síð-
an verið tengd vesturbænum eilífð-
arböndum. Það var gaman að vera
unglingur í vesturbænum og ég
gæti vel hugsað mér
að flytja einhvern
tíma aftur á Hring-
brautina."
© Háaleitisbraut
Ég er sextán ára þegar við flytjum
á Háaleitisbrautina. Mér fannst allt
í lagi að búa þarna en vinirnir voru
auðvitað allir í vesturbænum.
O Álftamýri
Foreldrar mínir voru af þeirri
kynslóð að vera sífellt að byggja og
við fluttum alltaf í nýbyggðu hverf-
in. Við stoppuðum frekar stutt við í
þetta skiptið í Álftamýrinni.
O Hvassaleiti
Við bjuggum stutt í Hvassaleitinu
og þetta var erfiður tími fyrir fiöl-
skylduna því faðir minn féll frá á
þessum tíma.
© Álftamýri
Flutti aftur með mömmu í Álfta-
mýrina, þó ekki i sama hús og
áður.
Guðrún hugsar með hlýhug til æskuáranna í Laug-
arnesinu.
Grjóta-
© Bræðraborgarstígur
Þama er komið að þeim tíma-
punkti í lífi míriu að ég fer að heim-
an. Ég flutti inn til vinkonu minnar
og ég man að mér fannst þetta allt
saman voðalega spennandi.
© Barmahlíð
Þarna kaupi ég mína fyrstu íbúð
fyrir arfinn frá pabba. Ég byrjaði á
að mála alla íbúðina í fiólubláum og
lillabláum litum enda hippatiminn í
algleymingi. Þarna bjó ég og naut
frelsisins í fiögur ár og get ekki ann-
að sagt en að Hlíðamar séu góður
staður að búa á.
„Þarna bjó ég
í einn vetur
hjá þeim
Guðmundu
Eliasdóttur
og Sverri
Kristjáns-
ÆmWlS&mæ syni Þau
voru afskap-
lega góð við mig og eftir á að hyggja
held ég að þarna hafi ég hlotið full-
orðinsvígsluna.
© Laugavegur
Þetta var stuttur timi en ég fékk
inni hjá vinkonu minni. Ég var að
brúa bilið áður en ég hélt til Ind-
lands þar sem ég dvaldi í nokkra
mánuði ásamt þeim Sigvalda Hjálm-
arssyni og Baddý, konu hans.
© Óðinsgata
Seldi Barmahlíðina þegar ég kom
frá Indlandi og keypti mér íbúð við
Óðinsgötuna. Skömmu seinna hélt ég
til Kaupmannahafnar ásamt ungum
syni mínum. Þar átti ég eftir að búa
næstu sjö árin og bjó á einum átta
stöðum í borginni. Það þótti nú bara
eðlilegt að flytja einu sinni á ári í
Kaupmannahöfn. Þegar ég kom svo til
baka bjó ég einn vetur í íbúðinni við
Óðinsgötu áður en ég seldi hana.“
© Grundarstígur
Þarna bjó ég i ein fimm ár, frá 1987
til 1992. Grundarstígurinn hefur alltaf
síðan verið í uppáhaldi hjá mér.“
© Smiðjustígur
Keypti mér hús við Smiðjustíg.
Garðurinn var stór og þarna kunni
ég afskaplega vel viö mig.
© Stangarholt
Hér hef ég átt heima síðustu tvö
árin. Hingað flutti ég aðallega vegna
skólagöngu dóttur minnar en hún
gengur í Háteigsskólann. Þótt ég sé
komin i póstnúmer 105 þá finnst mér
ég enn vera í miðbænum, enda vil ég
hvergi annars staðar vera.
Imyndaði mér vini
í Sigtúninu
- segir Kjartan Guðjónsson leikari sem hefur flutt sjö sinnum á átta árum
Kjartan kann vel við sig í vestur-
bænum og segist ekki á förum það-
an á næstunni.
© Sigtún
„Ég bjó i Sigtúninu fyrstu tuttugu
og sex ár ævi minnar. Mér fannst
það ágætt en það var mikið af
gömlu fólki í hverfinu og ég þurfti
að fara alla leið upp á Kleppsveg til
að finna mér einhvem að leika við.
Ég var mikið einn á þessum árum
og ef ég nennti ekki á Kleppsveginn
þá ímyndaði ég mér bara vini. Þess
vegna er ég eins og ég er.“
© Þjórsárgata
„Eg flutti út í Litla-Skerjafiörð
þegar ég byrjaði í Leiklistarskólan-
um. Þetta var í fyrsta skipti sem ég
bjó ekki hjá foreldrunum en þama
leigði ég með vinkonu minni. Þetta
var frábær tími því hún keyrði mig
alltaf í skólann og var svo alltaf með
heitan mat- á kvöldin. Ég á því
margar góðar minningar frá Þjórs-
árgötunni."
„Það voru
hrikaleg við-
brigði að flytja
úr Skerjafirði og í
gettóið þarna í
Engihjallanum. Mér
leið aldrei vel í Kópa-
voginum og gat ekki beð-
ið eftir að komast þaðan.
© Laugavegur
„Ég flutti í ömurlega
íbúð við Laugaveginn sem
var þó skárra en Engihjall-
inn. Bjó þama í ár.“
© Sólvallagata
„Þetta var svo sem í lagi en mér
fannst rosalega óþægilegt að búa í
kjall-
ara. Ég er bara enginn
kjallaramaður í mér. Var því enn
og aftur feginn þegar ég flutti.“
J Laugavegur
„Frábær tími enda bjó ég í
svona ekta piparsveina-
ibúð. Þetta var voða góður
tími, þægilegt að geta
labbað í leikhúsið og svo-
leiðis."
OEn&hjalli Kópavogi
O Ingólfsstræti
„Ekki slæmur staður að búa á.
Þarna bjó ég þar til í fyrra en þá var
ég búinn að fá meira en nóg af því að
henda stórfé í húsaleigu."
© Hjarðarhagi
„Það er rosaleg góð tilfinning að
vera kominn í sína íbúð. Núna er
líka allt breytt hjá mér, ég eignaðist
son fyrir rúmri viku, auk þess sem
konan mín á fimm ára strák. Þetta
er fint hverfi fyrir fiölskyldur og ég
held ég nenni ekki flytja næstu fiög-
ur til fimm árin að minnsta kosti.“