Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 Reglusemi í olíuskiptingu og smurningu borgar sig til lengri tíma: Olíuskipti gera vélinni gott - áríðandi að skipta af og til um kælivökva „Fólk sem ekur um 10 þúsund kílómetra á ári á hiklaust að láta skipta um olíu á bílnum á 5000 km fresti. Ég hef séð vélamar verða mjög óhreinar þegar olíuskipti eru trössuð og það er mjög slæmt fyrir endingu og gang. Sérstaklega þegar fólk ekur eingöngu stuttar vega- lengdir í einu. Þessi venjulegi öku- maður, sem er endalaust að aka í vinnuna og heim aftur, á hiklaust að láta skipta um olíu á 5 þúsund km fresti þó leiðbeiningar framleið- anda segi kannski að olíuskipti megi fara fram eftir hverja 8-10 þús- und ekna kílómetra," segir Ævar Friðriksson, tæknimaður hjá FÍB og Bílgerinasambandinu, í samtali viö DV þessu sviði enda sparnaðurinn langsóttur þegar horft er til lengri tíma. Við olíuskipti eru órhreinindi losuð úr vélinn og þau gera henni bara gott,“ segir Ævar. Nýr kælivökvi Ævar vill endilega koma á fram- færi við lesendur nauðsyn þess að skipta um kælivökva. Það gleymist mjög oft en er ódýrt og hentugt að gera um leið og skipt er um oliu. „Það er fiarri mörgum að skipta þurfl um kælivökva. Menn láta jú mæla frostþolið á haustin. En þó það sé í lagi má ekki hunsa að skipta um kælivökva. Þegar kælivökvi eldri bíla er skoðaður sést yfirleitt mikil ryð- myndun. Það er vegna þess að kæli- vökvinn missir smám saman, m.a. vegna ryðs og óhreininda, þann eigin- leika að ryðverja kæligöngin eins og hann á að gera. Ryðvörn er einmitt Fróðir menn er segja öruggast og einfaldast að kaupa þjónustu smurstöðva þegar skipta á um olíu og smyrja bílinn. DV-myndir E.ól. Öruggast að kaupa þjónustuna Eftir samtöl við fróða menn á þessu sviði er niðurstaðan sú að ör- uggast og einfaldast sé að kaupa þessa þjónustu og eins sé mjög gott að miða við 5 þúsund km þó ein- hverja kunni að greina á um tíðni olíuskipta. Við endurteknar stuttar aksursferðir hitnar vélin jafnvel úr frosti og upp í 90 gráður oft á dag. Þá eykst hætta á myndun raka sem fer úr í olíuna og rýrir gæði henn- ar. Sótmyndun verður einnig meiri. Ef menn aka hins vegar um og yfir Ráðgjafaþjónustan Húsráð: Kælivökvinn f þessum bíl er tiltölulega nýr enda enginn ryðlitur sem blasir við þegar vatnskassalokið er tekið af. 20 þúsund kílómetra á ári og eru mikið í lengri ferðu, segja viðmæl- endur DV óhætt að fara eftir leið- beiningabók bílsins um tíðni olíu- skipta. Þá eru ótalin áhrif reglulegra ol- íuskipta á endursöluverð. Sýni smurbókin reglusemi í þessu efnum sé síður hætta á verðfalli við sölu. „Annars er þetta ekki það mikill kostnaður að taki því að spara á mikilvægur þáttur í virkni kæli- vökva.“ Framleiðendur mæla með að skipt sé um kælivökva ekki sjaldnar en á 40 þúsund km fresti. Er upplagt að gera það á haustin. Ef það er ekki gert styttist líftími vatnskassa og hætta verður á tæringu í heddpakkingum. Kostnaður getur því orðið verulegur ef kælivökvaskipti eru hunsuð. -hlh Smurstöðvar mæla með olíuskipt- um á 5 þúsund km fresti. Meðalakstur fólksbíla er talinn vera frá 15.000 km á ári. Þegar farið er með bíl í olíuskipti og smurningu mælir smurstöðin með að komið sé aftur eftir 5.000 km akstur. Það þýð- ir að bíllinn fari í olíuskipti og smurningu þrisvar sinnum á ári að meðaltali. Reyndar fara ekki alltaf saman leiðbeiningar frá framleið- anda, það sem sagt er í umboðinu eða hvað smurstöðvarnar segja. Vekur það spurningar um hvort fólk sé að láta smyrja og skipta um olíu of oft eða hvort það ætti bara að gera það sjálft og spara þannig 8-12 þúsund krónur á ári svo dæmi sé tekið af algengum fólksbíl. Þess- ar tölur byggjast á skyndikönnun DV sem sýndi að það kostar 3.000-3.500 krónur að skipta um ol- íu, olíusíu og fara yfir stöðu helstu vökva á algengum japönskum fólks- bíl. Breytilegt verð miðast við hve dýr olía er sett á vélina. Oháð sérfræðiráð' gjöf fyrir húsfélög - sparar tíma, fé og fyrirhöfn HUSRAÐ Húsráð eru þjónustumiðstöð fyrir húsfélög sem veitir víðtæka þjón- ustu og ráðgjöf varðandi allt sem viðkemur rekstri húsfélaga. Hefur þessi nýjung fengið góð viðbrögð í húsfélögum. í þjónustusíma Hús- ráða - 568 9988 geta forsvarsmenn húsfélaga fengið margvislega ráð- gjöf, upplýsingar og þjónustu og sparað sér þannig tíma, fé og fyrir- höfn. Húsráð aðstoða við að útvega reynda og trausta iðnaðarmenn og afla tilboða í flest verk. Markmið Húsráða er að tryggja sem best hag húsfélaga og eru Húsráð því í sam- starfi við Húseigendafélagið, Sam- tök iðnaðarins og fleiri fyrirtæki og sérfræðinga með dýrmæta þekk- ingu á ýmsum sviðum er snerta starfsemi fjöleignarhúsa. Öfl húsfélög geta gerst aðilar að Húsráðum sem eru í samstarfi við húsfélagaþjónustu íslandsbanka. Húsfélög í húsfélagaþjónustunni geta gerst aðilar að Húsráðum. Sérfræðingar til reiðu Verkfræðistofan Verkvangur býður húsfélögum ráðgjöf um viðhald, fram- kvæmdir, orkusparnað o.fl. Aðildarfé- lög Húsráða fá fyrsta viðtal hjá verk- fræðingi endurgjaldslaust og þeim bjóðast sérstök kjör á Viðhaldsverðin- um, eftirlits- og viðhaldsþjónustu Verkvangs. í samstarfl við Þema endurskoðun- arskrifstofu bjóða Húsráð húsfélögum aðstoð og ráðgjöf við frágang árs- reikninga, uppgjör, endurskoðun árs- reikninga, skattaráðgjöf o.fl. og veita afslátt af allri þjónustu. Við inngöngu í Húsráð fær húsfélagið fyrsta viðtal hjá endurskoðanda Þema endurgjalds- laust. Loks eru Húsráð í samvinnu við GÁJ lögfræðistofu sem býður lög- fræðilega ráðgjöf og aðstoð við húsfé- lög, gerð eignaskiptayfirlýsinga, að- stoð við meðferð ágreiningsmála og innheimtu hússjóðsgjalda ef til van- skila kemur. Aðildarfélög Húsráða fá afslátt af allri þjónustu og fyrsta við- tal hjá lögfræðingi endurgjaldslaust. Sérkjör og neyðarsími Félagar í Ráðgjafaþjónustunni Húsráðum njóta sérstakra kjara hjá Húsasmiðjunni. Hvert húsfélag og hver íbúi í viðkomandi fjöleigna- húsi fær 12% afslátt í Húsasmiðj- unni við inngöngu í Húsráð auk sérstakra tilboða sem auglýst eru sérstaklega í fréttabréfi Húsráða. Ef upp koma neyðartilvik utan hefðbundins vinnutíma geta félagar í Húsráðum hringt í þjónustusíma Húsráða, 568 9988. Þar fást upplýs- ingar um iðnaðarmenn sem leyst geta þann vandann. Framkvæmdastjóri Húsráða er Fanny Kristín Tryggvadóttir. -hlh Mat- vinnsluvél • Tekur 2 lítra • Safapressa • Þeytari • Grænmetisrifjám • Deighrærari • Alhliða hnífur • Má þvo í uppþvottavél Kynningartilboð 5.995 Kr. HUSASMIDJAN Sími 525 3000 • www.husa.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.