Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Blaðsíða 36
Vinningstölur miðvikudaginn 06.10. ’99
í 1Y7 23 24 33 40
Fjöldi
< Vinningar vinninga Vinning&upphœð
- 1. 6 aþ 6 3 14.851.490
K 2.5 aþ 6* u. 1 4.808.080
p3-SO(6 5 61.180
C 4.4 at 6 208 2.330
« 5-3“t6.t 559 370
■PPNMMMNMi MiiiMI Ni 11 ■ Heildarvinning&upphœð 50.359.920 Á í&landi 5.805.450
UTTi
h___é_
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999
Campylobact-
er út um allt
Eggert Gunnarsson, dýralæknir á
Keldum, segir aö campylobacter sé
^umhverfissýkill sem finnist út um
allt. Starfshópur sá sem vinnur nú aö
rannsóknum á
campylobacter er
m.a. að rannsaka
útbreiðslu mengun-
ar í umhverfinu.
Sýni úr dýrum og
sláturhúsum eru
rannsökuð á Keld-
um.
„Við finnum
þetta í svínum,
sauðfé, vilitum
fuglum o.s.frv.,"
sagði Eggert. „En ekki er tímabært að
segja nákvæmlega um hve víðtæk
mengunin er,“ sagði Eggert. „ Við höf-
^um tekið sýni í sláturhúsi úr svínum
og sauðfé. Við höfum tekið sýni úr
saur dýranna. Það er handhægast að
gera þegar slátrað er, Því hafa þau
sýni verið tekin í sláturhúsum. Meng-
un hefur fundist í sáurnum en ekki í
kjöti sauðfjár né svína.
Campylobacter er alls staðar í um-
hverfmu, Af matvælum hefur hún
hins vegar eingöngu fundist í
kjúklingum." -JSS
2 nýir seðlar
1 Fókusi sem fylgir DV á morgun
kemur það skýrt fram að Emilíana
Torrini er ekki á nýju seðlunum sem
Fókus lét hanna. Hún er hins vegar í
London og ræðir opinskátt um kjafta-
sögur, framatilraunir og hvert hún
stefnir í framtíðinni. En varðandi
nýju seðlana þá eru seðlar skoðaðir í
sögulegu samhengi og reynt að finna
út hverjir það eru sem mega eiga
vona á að prýða seðil í framtíðinni.
Halldðr Gylfason leikari segist aldrei
hafa farið á Netið og að hann hafi
alltaf ætlað sér að verða leikari. Þá
skrifar Margrét Ólafsdóttir pistil frá
■ Jfr’rakklandi um landsleikinn á laugar-
dag og rifjuð er upp stemningin á H-
100 á Akureyri.
Smiðir undibúa hér ráðstefnuna Konur og lýðræði sem verður í Borgarleikhúsinu um helgina. Uppi á sviði verður
stórt og stórt og mikið ráðstefnuborð þar sem konur munu sitja og leiða umræður um ýmis efni tengdum ráðstefn-
unni. Meðal þátttakenda verður Hillary Clinton, forsetafrú Bandaríkjanna.
DV-mynd Pjetur
Odincovumálið að leysast:
Áhöfnin heim
- er ekki frágengið segir kaupandinn
„Það er þetta sem við höfum stað-
ið fyrir út á götu og ég og öll áhöfn-
in er ánægð ef satt er en ég hef ekki
heyrt um neitt samkomulag," sagði
Kril Sergey, yfirvélstjóri í hinu vél-
arvana skipi Odencovu, í morgun
en nýr eigandi skipsins mun hafa
samið við lögmann áhafnarinnar
um launargreiðslur og er áhöfnin
sögð geta farið heim í lok vikunnar.
Gendin skipstjóri var ekki um borð
í Odincovu í morgun en Sergey
kannaði hvort viðstaddir úr áhöfn-
inni hefðu heyrt um samkomulagið
en það hafði enginn gert.
Samkvæmt tilkynningu frá lög-
manni áhafnarinnar og lögmanni
nýs eiganda Odincovu hefur náðst
samkomulag í meginatriðum milli
áhafnar togarans annars vegar og
kaupanda skipsins hins vegár um
fullnaðaruppgjör á öllum launakröf-
um áhafnarinnar vegna starfa
þeirra í þágu fyrri eiganda, Sæ-
munds Árelíussonar. Stefnt er að
því að ljúka fuilnaðaruppgjöri í lok
vikunnar og að áhöfnin fari þá til
síns heima.
„Þ’að er ótrúlegur léttir að þetta
mál skuli vera að
leysast og að við
getum nú séð á
eftir þessum
mönnum heim.
Það trúa því
kannski ekki sum-
ir en það er það
sem ég hef alltaf
stefnt að,“ sagði
Sæmundur Arelí-
usson. „Það er
ekki nema algjörlega ófyrirsjáanleg-
ir hlutir sem geta komið í veg fyrir
Fimm bílar lentu saman í
árekstri við Litlu kaffistofuna á
Sandskeiði um áttaleytið í morgun.
Um tíma þurfti að loka Suðurlands-
vegi vegna slyssins og klippa konu
út úr ilia fórnu bilflaki. Tveir bfi-
að þetta gangi ekki upp,“ sagði
hann.
Væntanlegur kaupandi skipsins
er Vélsmiðjan Gjörvi. Vilhjálmur
Óskarsson, annar eigandi hennar,
sagðist undrandi á að málið væri
komið í fjölmiðla. „Við ræddum
þetta í nótt en málið er ófrágengið,
þó mjög líklegt sé að það endi með
þessari niðurstöðu," sagði Vilhjálm-
ur. Gjörvi mun kaupa Odincovu
með það í huga að togarinn verði
gerður upp.
-GAR
anna þeyttust út af vegi en önnur
slys urðu ekki á fólki.
„Það var framúrakstur sem olli
slysinu og hér var ömurlegt um að
litast," sagði starfsstúlka í Litlu
kaffistofunni í morgun. -EIR
Fimm bíla árekst-
ur á Sandskeiði
Veðrið á morgun:
Él norðan-
lands
Á morgun verður norðvestan-
og vestanátt. 8-13 m/s norðaust-
anlands en hægari annars stað-
ar. É1 norðanlands en víða létt-
skýjað sunnanlands.
Hiti verður á bilinu 0 til 5 stig
að deginum en víða frost um
kvöldið.
Veðrið í dag er á bls. 37.
Campylo í rénun
Haraldur Briem sóttvarnalæknir
sagði við DV að dregið hafi verulega
úr sýkingum af völdum campylo-
bacter á síðustu
vikum. „Ég er
nokkuð ánægður
en við sjáum að
við erum enn þá i
óeðlilegu
ástandi."
í september sl.
greindust 37 til-
felli á móti 28 á
sama ’ tímabili í
fyrra. Árið 1997
greindust um 10 tilfelli i september-
mánuði. í júli sl. greindust 110 sýk-
ingar og 65 í ágúst sl.
Haraldur sagði að þær rannsókn-
ir sem gerðar hefðu verið til að
rekja ferlið sýndu að kjúklingurinn
kæmi út sem helsti áhættuþáttur-
inn. Úrtakið í rannsókninni hefði
verið mjög lítið en mjög nákvæm-
lega skoðað.
„Það sem finnst í matvörum á
markaðinum er einungis í kjúkling-
um enn sem komið er.“ -JSS
Baugur:
Óskar hættir
„Þesi ákvörðun er tekin sjálfstætt
með hagsmuni Baugs fyrir augum,“
sagði Óskar Magnússon, stjórnarfor-
maður Baugs, sem
lætur af störfum
um næstu áramót.
„Þetta gengur allt
átakalaust fyrir sig
og í góðu,“ sagði
Óskar í morgun
þar sem hann var
staddur í höfuð-
stöðvum Deutsche
Fiskfang Union í
Cuxhaven sem er
dótturfyrirtæki
Samherja. Óskar er þar sem stjórnar-
maður í Samherja en ekki sem nýr
starfsmaður þýska útgerðarfyrirtæk-
isins. „Ég hef ekki gert upp hug minn
hvað ég tek mér fyrir hendur en mér
hefur boðist að starfa fyrir erlenda
verslunarkeðju," sagði Óskar. -EIR
Hassið lækkar
Verð á hassi á höfuðborgarsvæðinu
hefur lækkað á ný eftir verðspreng-
ingu sem varð í kjölfar aðgerða lög-
reglunnar í stóra fikniefnamálinu.
Verðið á grammi af hassi fór þá úr
1500 krónum í 3000 krónur og hélst
þannig í nokkra daga. Síðan hefur
verðið sigið hægt og samkvæmt heim-
ildum úr undirheimum Reykjavíkur
er það nú aftur orðið 1500 krónur og
framboð nægilegt.
„Þó þeir loki einni leið þá eru
margar eftir. Ég hef ekki orðið var við
skort á hassi þrátt fyrir yfirlýsingar
um annað en fíkniefnasalar notfærðu
sér að sjálfsögðu ástandið sem skapað-
ist við handtökumar í stóra fíkniefna-
málinu og hækkuðu verðið. -EIR
Færeyjar
MERKILEGA MERKIVELIN
brother pt-i2qq_
(slenskir stafir
5 leturstærðir
8 leturgerðir
6, 9 og 12 mm prentborðar
Prentar í tvær línur
Verð kr. 6.603
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443