Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2000, Blaðsíða 55
"V LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2000
^fmæli
63
Til hamingju
með afmælið
30. janúar
95 ára
Gunnar Páll Björnsson,
Miðási 5, Raufarhöfn.
70 ára
Magnús Hjálmarsson,
Bláskógum 11, Egilsstöðum.
Rögnvaldur Þorleifssbn,
Faxatúni 19, Garðabæ.
60 ára
Agnar J. Levy,
Hrisakoti 2, V.-Hún.
Rannveig Jóhannesdóttir,
Hólmagrund 17, Sauðárkróki.
Sigríður Tómasdóttir,
Sunnuvegi 16, Selfossi.
Þórhalla Stefánsdóttir,
Holtsgötu 34, Njarðvík.
50 ára
Arnbjörg Andrésdóttir,
Veghúsum 3, Reykjavík.
Hún tekur á móti öllum sem
vilja koma á heimili hennar
þann 6.2. kl. 17.00-21.00.
Anna Guðmundsdóttir,
Foldasmára 9, Kópavogi.
Björgvin S. Friðriksson,
Barmahlíð 1, Reykjavík.
Böðvar Gíslason,
Hafnarbergi 9, Þorlákshöfn.
Guðmundur Jóhannsson,
Eyrarholti 6, Hafnarfirði.
Gunnþór Ægisson,
Karlsbraut 25, Dalvík.
Sólveig Sigurðardóttir,
Flyðrugranda 4, Reykjavík.
Stefania S.
Ingimundardóttir,
Hringbraut 1, Hafnarfirði.
40 ára
Arnar Gylfason,
Rósarima 6, Reykjavík.
Baldur Kjartansson,
Kolbeinsgötu 6, Vopnafírði.
Birgir Sveinsson,
Skólavegi 26,
Vestmannaeyjum.
Hermóður Gestsson,
Stelkshólum 4, Reykjavík.
Hrafnhildin- H. Ólafsdóttir,
Norðurtúni 4, Keflavík.
Hulda Kristjana Leifsdóttir,
Giljaseli 11, Reykjavík.
Maria Knudsen,
Laugarásvegi 7, Reykjavík.
Halldór Geirmundsson
Halldór Geirmundsson leigubif-
reiðastjóri, Lautasmára 10, Kópa-
vogi, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Halldór fæddist á Látrum í Aðal-
vík. Hann stundaði sjómennsku frá
Hnífsdal í nokkur ár, fyrst sem há-
seti en síðustu árin sem kokkur.
Hann var síðan vörubifreiðastjóri
og verktaki hjá ísafjarðarbæ í rúm
tuttugu ár og jafnframt leigubif-
reiðastjóri á ísafirði í nitján ár.
Halldór og tengdasonur hans,
Halldór Hauksson, festu kaup á
versluninni Hljómborg 1989 og starf-
ræktu hana til 1992. Þá starfrækti
hann söluturn um skeið. Halldór
hóf aftur leigubifreiðaakstur, nú hjá
Hreyfli í Reykjavík 1996, og stundar
aksturinn enn.
Fjölskylda
Halldór kvæntist 26.12. 1959 Guð-
nýju Eygló Hermannsdóttur, f. 20.6.
1941, húsmóður. Hún er dóttir Her-
manns Ámasonar og Sigurlaugar
Friðriksdóttur.
Börn Halldórs og Guðnýjar Eygló-
ar eru Lilja Hrönn
Halldórsdóttir, f. 23.7.
1957; Ólafur Magnús
Halldórsson, f. 13.11.
1959, vörubifreiðastjóri
í Reykjavík, en kona
hans er Harpa Böðv-
arsdóttir, f. 10.3. 1963,
húsmóðir, og eru börn
þeirra Vignir Þór, f.
22.6. 1983, Guðný
Eygló, f. 6.4. 1985,
Ágúst Elí, f. 14.5. 1994,
og óskírður sonur, f.
6.1. 2000; Sigurlaug Re-
gina Halldórsdóttir, f.
19.2. 1962, starfsmaður
hjá íslandspósti, en
maður hennar er Halldór S. Hauks-
son, f. 24.2. 1961, mælingarmaður
hjá Vegagerðinni, og eru böm þeira
Kristján Ragnar, f. 26.12. 1979, Gaut-
ur ívar, f. 18.5. 1983, Halldór Geir, f.
28.12. 1987, og Sonja Marý, f. 31.5.
1990; Sigríður Ólína Halldórsdóttir,
f. 8.9. 1964, húsmóðir, en maður
hennar er Lech Pajdak, f. 10.5. 1957,
verkfræðingur, og eru böm þeirra
Tómas Halldór, f. 18.9. 1985, Róbert,
f. 15.6. 1988, og Viktor, f. 4.4. 1993;
Hafþór Halldórsson, f. 23.8. 1965,
Halldór Geirmundsson.
vörubifreiðastjóri, en
kona hans er Sigurbjörg
Guðmundsdóttir, f. 2.6.
1966, starfsmaður hjá ís-
landspósti, og er kjör-
sonur Guðmundur
Magnús Pétursson, f.
21.9. 1983, en börn
þeirra eru Hermann
Freyr, f. 18.10.1989, Rún-
ar Freyr, f. 18.10. 1989,
og Sigurlaug Margrét, f.
16.6. 1994; Kristjana
Halldórsdóttir, f. 25.5.
1970.
Systkini Halldórs eru
Júlíus Gunnar Geir-
mundsson, f. 15.4. 1931;
Sigurlíni Geirmundsson, f.
1932; Helgi Geirmundsson, f.
1934; Ásthildur Hjálmfríður
f. 19.6. 1936; Bald-
Ætt
Geir
25.5.
17.10.
Geirmundsdóttir,
ur Geirmundsson, f. 15.10.1937; Karl
Geirmundsson, f. 13.3. 1939.
Foreldrar Halldórs voru Geir-
mundur Júlíusson, f. 4.3. 1908, d.
17.10. 1996, útvegsb. á Skjaldbreið í
Fljótavík og húsasmiður í Hnífsdal,
og k.h., Guðmunda Regina Sigurðar-
dóttir, f. 5.5. 1904, d. 23.6. 1994, hús-
freyja.
Geirmundur var sonur Júlíusar,
útvegsb. á Atlastöðum i Fljótavík,
Geirmundssonar Guðmundssonar,
b. í Kjaransvik, Snorrasonar, b. í
Hælavík, Brynjólfssonar. Móðir
Guðmundar var Elísabet Hallvarðs-
dóttir. Móðir Geirmundar var Sig-
urfljóð ísleifsdóttir, b. á Hesteyri, ís-
leifssonar.
Móðir Geirmundar á Skjaldbreið
var Guðrún Jónsdóttir, húsmanns í
Steinnesi, Guðmundssonar, á
Dröngum, Ólafssonar, b. á Eyri í
Ingólfsfirði, Andréssonar. Móðir
Guðmundar var Guðrún Björnsdótt-
ir. Móðir Jóns var Guðrún Sigurð-
ardóttir, b. á Dröngum, Alexíusson-
ar. Móðir Guðrúnar á Atlastöðum
var Elísa Ólafsdóttir, frá Ósi, Ólafs-
sonar. Foreldrar Guðmundu Regínu
voru Sigurður Þorkelsson, útvegsb.
í Látrum í Aðalvík, og k.h., Ólína
Halldóra Sigurðardóttir húsfreyja.
Halldór og Guðný taka á móti ætt-
ingjum og vinum í Hreyfllshúsinu,
Fellsmúla 26, samkomusal á 3. hæð,
kl. 20.00 í kvöld.
Margrét Rósa Grímsdóttir
Margrét Rósa Grímsdóttir tann-
læknir, Hrauntungu 7, Kópavogi, er
fertug í dag.
Starfsferill
Margrét fæddist á Akranesi en
flutti í Kópavoginn 1967 þar sem
hún hefur síðan verið búsett að
Hrauntungu 7.
Margrét lauk stúdentsprófi frá
MK 1980, embættisprófi í tannlækn-
ingum frá HÍ1986, lauk sérfræði-
námi í barnatannlækningum með
MS- gráðu frá The University of
Iowa 1989, lauk sérfræðinámi í tann-
réttingum frá Universitetet i Oslo
1991, og lauk doktorsprófi frá Uni-
versitetet í Oslo og rannsóknarstof-
unni NIOM í Noregi í árslok 1998.
Margrét var formaður Félags
tannlæknanema 1984-85, ritstjóri
Tannlæknablaðsins 1991-95 og á
sæti í endurmenntunarnefnd Tann-
læknafélags íslands.
Fjölskylda
Margrét giftist 11.6. 1982 Óskari
Eyvindi Arasyni, f. 17.6. 1957, raf-
eindavirkja. Hann er sonur Guð-
mundu Guðmundsdóttur, skrifstofu-
manns í Hafnarfirði, og
Ara G. Guðmundssonar,
fyrrv. skattendurskoð-
anda í Hafnarfirði.
Börn Margrétar Rósu
og Óskars Eyvindar eru
Guðrún Óskarsdóttir, f.
8.7. 1989; Hugrún Óskars-
dóttir, f. 20.7. 1994; Brim-
rún Óskarsdóttir, f. 7.3.
1997.
Systkini Margrétar
Rósu eru Ragnheiður
Þóra Grímsdóttir, f. 6.6.
1948, sérkennari á Akra-
nesi; Björn Grímsson, f.
27.7. 1950, tannsmiður,
Reykjavík; Lísbet Gríms-
dóttir, f. 2.7. 1951, meinatæknir,
Reykjavik; Vilborg Soffia Gríms-
dóttir, f. 10.5.1954, fóstra, Kópavogi;
Magnús Orri Grímsson, f. 30.12.
1964, sjóntækjafræðinemi i Kaup-
mannahöfn.
Foreldrar Margrétar Rósu: Mar-
grét Oddgeirsdóttir, f. 11.1. 1923,
húsmóðir, og Grímur M. Björnsson,
f. 7.3.1924, tannlæknir.
Ætt
Grímur er sonur Björns, verka-
Margrét Rósa
Grímsdóttir.
manns, kennara og
forstjóra Pöntunarfé-
lags verkalýðsins á
Akureyri og Húsavík,
og verslunarmanns á
Akureyri og í Reykja-
vík, Grímssonar, b. á
Helgustöðum í Fljót-
um og síðar á Möðru-
völlum í Héðinsfirði,
Björnssonar. Móðir
Bjöms var Ásta Gísla-
dóttir.
Móðir Gríms var
Vilborg Soffia Lilli-
endahl, dóttir Carls
Péturs Jakobsson
Lilliendahls, útvegsb.,
hafnsögumanns og verslunarmanns
i Austur-Skálanesi, og k.h., Þóru
Jakobínu Nielsdóttur Beck.
Margrét er systir Fanneyjar, móð-
ur Kristjáns Jóhannssonar óperu-
söngvara. Önnur systir Margrétar
er Agnes, móðir Magnúsar Jónsson-
ar óperusöngvara. Bróðir Margrétar
er Hákon óperusöngvari. Margrét er
dóttir Oddgeirs, útgerðarmanns á
Hlöðum í Grenivík, Jóhannssonar,
b. í Saurbrúargerði á Svalbarðs-
strönd, Gíslasonar. Móðir Oddgeirs
var Kristín Björg Sigurðardóttir, b.
Skautahöllin í Laugardag um helgina:
boðið á skauta í fylgd með börnum
Foreldrum
Nú hefur vetrarkonungur glaðst að
nýju og eys niður snjó um borg og bæ.
Margir kætast yfir því að fá snjóinn
aftur og þá sér í lagi þeir sem stunda
vetraríþróttir. Skautar er gömul vetr-
aríþrótt og þegar frysta tekur þeysa
ungir sem aldnir á frosnar tjarnir til
að renna sér á svellinu.
í tilefni vetrarins og þess að heilsu-
átakinu, Leið til betra lífs, er að ljúka
er foreldrum boðið á skauta í fylgd
með bömum í Skautahöllina í Laug-
ardag í dag og á morgun.
Það eru ekki margar íþróttagreinar
sem fjölskyldan getur stundað saman
en skautar er ein af þeim. En sækja
margir fullorðnir á skautasvellið? „Sá
elsti sem kemur á skauta hjá okkur er
88 ára gamall og hann kemur 3 - 4
sinnum i viku hverri,“ sagði Hilmar
Björnsson, rekstrarstjóri Skautahall-
arinnar. Hilmar sagði talsvert um að
fjölskyldan kæmi saman um helgar og
Skautar eru góö almenningsíþrótt sem öll fjölskyldan getur stundaö saman. í tilefni heilsuátaksins, Leiö til betra lífs,
er fjölskyldum boöiö á skauta í Skautahöllinni um helgina.
skemmti sér saman.
Hægt er að leigja skauta á staðnum
en Hilmar sagði alla hjartanlega vel-
komna og tilvalið að eiga góðan dag
saman á skautum. Þá er ekkert annað
en að skella sér í hlýrri fótin og muna
eftir ullarsokkunum og þeysa um
svellið og ekki gleyma börnunum því
þetta er í þeirra boði! -hól
í Fellsseli í Kinn, Bjarnasonar.
Móðir Margrétar var Aðalheiður
Kristjánsdóttir, systir Jóhanns á ^
Végeirsstöðum, afa Jóhanns Kon-
ráðssonar, föður Kristjáns Jóhanns-
sonar.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Austurberg 12, íbúð á 3. hæð, merkt
010303, m.m. og bflskúr, merktur
030104, Reykjavík, þingl. eig. Ingvar
Ingvarsson, gerðarbeiðendur Ibúðalána-
sjóður og Tollstjóraembættið, fimmtu-
daginn 3. febrúar 2000 kl. 14.00.
Bergstaðastræti 31a, 4ra herb. íbúð á 2. *
hæð, 74,9 fm, m.m., Reykjavík, þingl.
eig. Bjami Már Bjamason, gerðarbeið-
andi Ibúðalánasjóður, miðvikudaginn 2.
febrúar 2000 kl. 10.30.
Frostafold 131, 3ja herb. íbúð á 3. hæð,
merkt 0303, hluti af nr. 117-131, Reykja-
vík, þingl. eig. Bryndís Ema Garðarsdótt-
b, gerðarbeiðandi Ibúðalánasjóður, mið-
vikudaginn 2. febrúar 2000 kl. 14.00.
Hagamelur 38, 50% ehl., 3ja herb. kjall-
araíbúð, Reykjavík, þingl. eig. Ásgeir
Ingi Magnússon, gerðarbeiðendur Ibúða-
lánasjóður og Tollstjóraskrifstofa, mið-
vikudaginn 2. febrúar 2000 kl. 11.30.
Hraunbær 1, ásamt bílskúr, Reykjavík,
þingl. eig. Ingólfur G. Gústafsson, gerð-
arbeiðendur íbúðalánasjóður og Toll- ,*
stjóraskrifstofa, fimmtudaginn 3. febrúar
2000 kl. 15.00.____________________
Hverafold 128, Reykjavík, þingl. eig.
Sigurður Rúnar Sigurðsson, gerðarbeið-
andi Landsbanki Islands hf., lögfræði-
deild, miðvikudaginn 2. febrúar 2000 kl.
13.30.'____________________________
Rjúpufell 48, 4ra herb. íbúð, 92,2 fm á 4.
hæð t.h., m.m., Reykjavík, þingl. eig. Kaj
Anton Larsen, gerðarbeiðandi Tollstjóra-
skrifstofa, fimmtudaginn 3. febrúar 2000
kl. 13.30._________________________
Sólbraut 5, Seltjamamesi, þingl. eig. Sól-
braut 5 ehf., gerðarbeiðandi Lífeyrissjóð- «
ur starfsmanna rflrisins, B-deild, mið-
vikudaginn 2. febrúar 2000 kl. 11.00.
Vættaborgir 10, Reykjavflc, þingl. eig. Jó-
hann Kristjánsson, gerðarbeiðandi Ibúða-
lánasjóður, miðvikudaginn 2. febrúar
2000 kl. 14.30.____________________
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK