Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2000, Blaðsíða 48
56
LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2000
DV fylgir Guðjóni Þórðarsyni eftir í erfiðum leik í London og á heimaslóðum í Stoke:
Á The Den, leikvelli Millwall t London. Á myndinni eru stuðningsmenn Stoke City sem voru um 1.200 af 11.500 manns
sem sáu ieikinn á laugardag. DV-mynd Óttar
Þegar gengiö er inn í byggingu leikvangs Stoke finnst nánast strax hver þar ræður ríkjum - Guöjón Þóröarson.
Þarna er m.a stór veitingastaöur, skrifstofur og fjöldi starfsfólks. DV-mynd Pjetur
Við erum stödd í London á einu
af átta Holiday Inn-hótelum risa-
borgarinnar við ána Thames. Úti
er hægur en napur breskur vetr-
arvindur. Borgarbúar vöknuðu
við þrumur og eldingar klukkan
hálfsjö um morguninn. Með
hagléli. En nú er orðið bjartara og
komið hádegi, laugardaginn 22.
janúar. Leikmenn Stoke City frá
Staffordskíri eru að ljúka við
pasta- og kjúklingahádegisverð
eftir fund og morgungöngutúr
með þjálfara sínum ofan cif Is-
landi, Akurnesingnum Guðjóni
Þórðarsyni. Hópurinn kom frá
Stoke undir kvöld á fostudeginum
eftir að rútan hafði tafist fyrst á
hraðbrautinni þar sem umferðar-
slys varð og síðan í gríðarlegri
helgartraffíkinni i London.
Það er talsverð spenna í loftinu
fyrir mikilvægan deildarleik gegn
Lundúnaliðinu Millwall. Völlur
liðsins er skammt frá í hverfinu
* Bermondsey. Stoke-leikmennirnir
eru á leið til herbergja sína þar
sem þeir slaka á áður en lagt
verður að stað á völlinn klukkan
hálftvö, einni og hálfri klukku-
stund fyrir leik.
Við ætlum að fara á leikinn.
Leik á erfiðasta útivelli deildar-
innar - The Den þar sem áhorf-
endur storka bæði leikmönnum
gestaliðsins og áhangendum sem
fylgja þeim.
Blaöamaður DV hittir þjálfar-
ann inni á setustofu hótelsins.
' Hann er búinn að „afgreiða" leik-
menn sína í bili og er að horfa á
fótboltafréttir BBC í sjónvarpinu.
Guðjón heilsar kumpánlega, tek-
ur þétt í höndina á viðmælanda
sínum og horfir hlýlega en ákveð-
ið í augun á honum. Þetta er mað-
ur sem gustað hefur um en hann
er greinilega með sjálfstraustið í
góðu lagi. Það á eftir að koma bet-
ur í ljós á næstu tveimur dögum.
„Jæja, hvernig leggst leikurinn
í þig?“ spyr blaðamaður.
Ja, ég er aldrei bjartsýnn. Mað-
ur verður að halda sig á jörð-
inni,“ segir Guðjón.
Þeim var sagt að þeir
gætu ekki neitt
Eftir talsverðar umræður um
fótboltann segir Guðjón um leik-
menn sína, þ.e. þá bresku og írsku
sem eru f liði hans:
„Þessum strákum hefur ekki
beinlínis verið leiðbeint áður.
Þeim hefur bara verið sagt að þeir
geti ekkert - þeir eigi bara að
keyra þetta einhvem vegin áfram
með látum.“
Guðjóni er alvara. Hann er að
segja að nú sé hann að byggja sina
menn upp. Efla sjálfstraust þeirra.
Hafa trú á sjálfum sér. Segja þeim
að þeir geti í vor - ef þeir sjálflr
v vilji það - komist upp úr þriðju
bestu deildinni í þá næstbestu.
Leikurinn við Millwall skiptir
miklu máli því það lið er í fjórða
sæti deildarinnar en Stoke í því
fimmta, aðeins stigi á eftir.
En Guðjón er líka að spá og
spekúlera. Skipta út leikmönnum,
sérstaklega framlínuleikmönnum.
Fá nýja í staðinn.
„Er ekki nægur peningur í
buddunni núna, t.d. söfnuðust hátt
í hundrað milljónir króna í hluta-
bréfakaupum heima á íslandi í síð-
ustu viku?“ spyr blaðamaður.
„Jú, en ég get ekki bara keypt
eitthvað. Ég verð að vera ánægður
með leikmann sem ég kaupi. Hann
verður að vera betri en þeir sem
ég hef fyrir. Ef þú ætlar að kaupa
góðan leikmann er hann farinn að
kosta meira en hundrað milljónir
króna. Síðan þarf að selja aðra,“
segir Guðjón og útskýrir að góðu
bitarnir séu hvorki of margir né
yflr höfuð á lausu. íslendingurinn
hugsar með sér: „Hvílíkir pening-
ar - bara fyrir einn leikmann - og
þetta er þriðja besta deildin í land-
inu.“
„Já,“ segir Guðjón. „Svona er
þetta. Ef menn standa sig ekki er
ekki hægt að halda þeim. Þetta er
ekkert elsku mamma.“
Við gefum Guðjóni Tröllatópas
að heiman til að taka með sér á
varamannabekkinn með von um
að hann noti nammiö sem mest.
Hann er kvaddur í bili og óskað
góðs gengis.
Við erum að fara á leikinn.
Stærri en Frakkaleikur-
inn hár heima
Gamaldags svarti „skápaleigu-
bíllinn“ nálgast leikvöll Millwall,
The Den. Þegar stigið er út, meira
en klukkutima fyrir leik, sér mað-
ur alvöruna. Lögreglumenn með
hjálma á hestum, lögreglumenn
með talstöðvar hér og þar, úti um
allt. Fólk streymir á völlinn. Hér
er stórviðburður á feröinni miðað
við íslenskar aðstæður. Búist er
við 11 þúsund áhorfendum. Til
samanburðar voru nákvæmlega
10.382 á stórleik íslands og heims-
meistara Frakka á Laugardalsveil-
inum i september 1998. Já, það fer
að renna upp fyrir manni að
þriðja besta deildin í Bretlandi er
meira en maður geröi sér grein
fyrir. Ekki síst eftir milljónatalið í
Guðjóni okkar Þórðarsyni
skömmu áður.
Uppi á 5. hæð I suðurbyggingu
leikvallarins er boðið upp á leik-
skrár og te fyrir blaðamenn og
sjónvarpsfólk - samtals á þriðja
tug manna og kvenna. M.a. frá
Daily Mail, Sky Sport, Sentinel í
Stoke, og The Daily Express.
„Hello there, are you from
Iceland?" heyrist kallað skyndi-
lega. Þetta er snaggaralegur mað-
ur á sextugsaldri. Hann býður DV
sæti og er strax byrjaður að tala.
„Eruð þið að koma frá íslandi?
Gott hjá ykkur. Hvemig líst ykkur
á leikinn? Þetta er erfiður útivöll-
ur,“ segir maðurinn. Hann heitir
Joe Broadfoot, fyrrum úrvalds-
deildarleikmaður með Millwall og
Ipswich:
„Ég lék meira en fimm hundruð
leiki með þessum liðum og skoraði
67 mörk,“ segir Joe. „Ég lék á móti
öllum þeim bestu, George Best,
Bobby Charlton og Dennis Law,“
segir hann. „Og Gordon Banks hjá
Stoke líka, er það ekki?“ spyr
blaðamaður. „Jú ég lék lfka á móti
honum þegar hann var með
Leicester," segir Joe og færist all-
ur í aukana. Hann er í blaða-
mannaherberginu með syni sínum
sem er blaðamaður. „Hann talar
bara og ég skrifa. Það er gott að
hafa hann,“ segir sonurinn. „ís-
land er búið að leika vel í heims-
meistarakeppninni," segir pabbi
Broadfoot. „Hvað eruð þið eigin-
lega mörg þarna á íslandi - 5 millj-
ónir?“ spyr hann. „270 þúsund,“
svörum við. Nú kemur smáhik á
karlinn en hann stoppar ekki og
segir: „Þetta er ótrúlegt hvað lítil
þjóð kemur miklu í verk í knatt-
spyrnu."
Brynjar á fullt í fangi
með...
Leikurinn er að byrja. Við for-
um út úr blaöamannastofunni.
Göngum upp á sjöundu og efstu
hæðina og förum þar út og síðan
niður „bekkjabrattann". Hávaðinn
í Millwall-áhorfendunum er gríð-
arlegur og stemningin góö. Um
1.200 áhorfendur frá Stoke láta
líka í sér heyra. Einangraðir af
lögreglumönnum í austurenda
vallarins. Heimamenn benda í átt
að þeim og baula - þeir eru byrjað-
ir að storka gestunum.
Leikurinn er hafinn. Guðjón
Þórðar er með gráu Stoke-húfuna
fyrir neðan og Tröllatópasið er í
úlpuvasanum. Áfram, Stoke! Okk-
ar maður, KR-ingurinn Brynjar
Björn Gunnarsson, metsamnings-
maðurinn hjá Stoke, er í byrjunar-
liðinu. Var seldur til Staffordskír-
is eftir áramót fyrir meira en 70
milljónir. Þessi jaxl á fullt í fangi
með Millwall-menn sem margir
eru vaxnir eins og rugby-leikmenn
og tækla óhikað með takkana upp
í loft. Og dómarinn leyfir þetta.
Hvílík harka. Hér er ekkert gefiö
eftir. Þetta eru meiri líkamleg átök
en maður átti von á. Ákveðnin er
gríðarleg hjá fótboltamönnunum
sem eru að berjast fyrir því að
eiga vel fyrir salti í grautinn. Einn
leikmaður Millwall kemst í færi
og skýtur rétt yfir. Áhorfendur
reka upp ofsaroku. Leikmenn
Stoke eiga í vandræðum. Þeir eru
ekki alveg með í bili.
Um miðjan hálfleikinn er Stoke
i sókn. Heimamenn ná boltanum
og renna honum upp hægra megin
við vítateig Stoke. Brynjar var
næstum því búinn að stöðva sókn
Millwall en heimamenn halda
áfram. Það er stórhætta upp við
vítateiginn. Varnarmanni mis-
tekst að hreinsa og það er geflð
fyrir markið. Boltinn berst yfir til
vinstri. Þar er sóknarmaður gjör-
samlega frír. Hvar er bakvörður-
inn sænski, Michael Hansson sem
Guðjón keypti til Stoke í nóvem-
ber? Hann náði ekki að fyigja til
baka og passa stöðuna sína. Sókn-
armaður Millwall hefur nægan
tíma og spymir fast í fjærhornið.
Ward markmaður á ekki séns.
Nei, djö. ... Mark!
Úff. Þetta verður erfitt.
Við vorum teknir í
bólinu!
Stoke, svonefndir Potters, taka
sig saman í andlitinu og reyna að
komast inn I leikinn. Það er kom-
inn hálfleikur. Við forum úr kuld-
anum og aftur inn í hlýtt blaða-
mannaherbergið. Blaðamaður frá
The Daily Express spyr blaða-
mann DV hvernig honum finnist
leikurinn. Bretinn kveðst verða
að vera búinn að skrifa grein sína
rétt eftir að leiknum lýkur - fyrir
1 milljón kaupenda blaðsins.
í síðari hálfleik hefst bardaginn
á ný. Bæði lið eiga góð færi. írinn
Graham Kavanagh, sem er pottur-
inn og pannan í leik Stoke, leikur
sig „hálfrían" í tvö skipti en tekst
ekki að skora þrátt fyrir góða til-
burði. Hinum megin á Millwall
dauðafæri og enn fleiri færi. Þeg-
ar leikurinn er flautaður af fagna
Millwallarar gríðarlega.
Blaðamaður The Daily Express
kveðst búinn að skrifa um leikinn
- blaðið hans er farið í prentun:
„Ég sagði i greininni að
Millwall hefði verið nær því að
skora tvö til þrjú núll frekar en að
Stoke næði að jafna.“
Við förum á blaðamannafund
eftir leikinn. Guðjón Þórðarson
kemur upp en þjálfari Millwall er
hvergi sjáanlegur. Hann kemur
Guöjón ræöir viö aðstoðarþjálfara sinn á Britannia í vikunni. Leikmenn
skokka löturhægt í nokkra hringi á léttri æfingu eftir erfiöan leik í London.
DV-mynd Óttar