Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2000, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2000, Blaðsíða 18
LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2000 TIV i. fjölskyldumál Unglingarnir og vímuefnin Á hátíöarstundum (og fyrir kosn- ingar!) tala menn gjarnan um æsk- una sem á að erfa landið. Það kem- ur alltaf vel út i ræðum. Á slíkum stundum er enginn skortur á hug- myndum um það hvemig hægt sé aö hlúa að unglingunum okkar. Allir vilja búa þeim hina bestu vaxtarmöguleika. Hátíðarræöum- ar og kosningaloforðin undirstrika lika nauðsyn þess að við, þessir fullorðnu, verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að efla hag barnanna okkar og ung- linganna. Og það er auðvitað hið besta mál. Hver vill ekki búa vel aö bömum og unglingum? Að minnsta kosti opinberlega! En raunveruleikinn vill oft ekki verða jafn fallegur og hátíðarræð- urnar og loforðin. Af og til gjósa upp fréttir í fjölmiðlum af ung- lingaofbeldi og vímuefnaneyslu bama og unglinga, fréttir sem alltaf virðast koma öllum jafnmik- ið á óvart. Alla vega þeim sem hæst töluðu á hátíðarstundunum. Þegar fréttimar berast er rokið upp til handa og fóta til aö „finna lausn á vandanum“. Þess á milli er lítið tal- að um málið og unglingamenning- in mallar áfram, fram að næstu stórfrétt. *** Nú er auðvitað langt í frá að all- ir unglingar séu einhverjir vand- ræðagemlingar. Flestir eru ágætis- fólk eins og gengur og gerist um alla aldurshópa. En aftur á móti eru unglingarnir i meiri hættu heldur en aðrir aldurshópar. Þeir lifa í veröld þar sem stööugt er ver- ið að ýta að þeim vímuefnum og það getur verið erfltt að segja nei. Þegar ég segi vímuefni þá er ég að tala um hvers konar vímuefni: áfengi, kannabisefni og önnur það- an af sterkari fíkniefni. Og hvers vegna skyldu unglingamir nú vera í meiri hættu gagnvart vímuefnun- um en aðrir? Jú, það er staðreynd að flestir unglingar lenda í því að þurfa að gera upp hug sinn til þessara efna, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Það er verið að bjóða þeim að prófa og oft er félagslegi þrýsting- urinn mikill, sérstaklega hvað varðar áfengið. Annars eru vímu- efnin á sveimi allt í kringum ung- lingana þrátt fyrir boð og bönn og allt of margir unglingar verða þeim aö bráð á einn eða annan hátt og bíða þess seint eða jafnvel aldrei bætur. Ég þarf ekki aö lýsa í smá- atriðum hver áhrif vímuefnanna á líf einstaklingsins em og hvemig þau brjóta fólk og fjölskyldur nið- ur. Flestir kannast við afleiðingar þessara efna þvi vímuefnin snerta við flestum fjölskyldum í landinu. Þaö er varla til sú fjölskylda sem ekki hefur fengið að kynnast þess- um vágesti á einn eða annan hátt. *** Ekkert foreldri vill að barnið sitt leiðist út í vímuefnaneyslu og mik- iö starf hefur fariö fram og fer fram í þjóðfélaginu, bæði á vegum skóla, félagasamtaka, lögreglu, foreldrafé- laga og annarra aðila til þess að koma í veg fyrir að unglingamir leiðist út á braut vimunnar. En spurningin vaknar þrátt fyrir allt hvort ekki gæti ákveðins tvískinn- ungs hjá okkur hinum fullorðnu gagnvart þessum málum? Um leið og allir segjast vilja vemda börnin og unglingana þá virðast ungling- amir hafa opin aðgang að áfengi og vímuefnum, alla vega margir hverjir. Samkvæmt skoðanakönn- unum hefur komið í ljós að neysla unglinga á vimuefnum hér á ís- landi er mun algengari en áður var talið. Sú neysla fer fram allt árið, e.t.v. mest á útihátíðum sumarsins þar sem „dauðatjöldin“ eru enda- stöð margra. Hvaðanæfa að berast fréttir af aukinni neyslu bama Þórhallur Heimisson undir lögaldri. Og sá hópur fer vax- andi sem þarf á meðferð að halda á unglingsaldri vegna fiknar í vímu- efni. Þetta eru staðreyndir málsins. En það skyldi þó ekki vera að rót vandans sé að finna i „fulloröins- menningunni" frekar en í „ung- lingamenningunni"? Því það þarf meira til en fallegar ræður hinna „Annars eru vímuefnin á sveimi allt í kringum unglingana þrátt fyrir boö og bönn og allt of margir unglingar veröa þeim aö bráð á einn eöa annan hátt og bíöa þess seint eöa jafnvel aldrei bœtur. “ fullorðnu og loðin kosningaloforð til að breyta þeirri „menningu" sem ríkir. Það þarf raunverulegt, markvisst átak, átak sem nær til allra aldurshópa. Það er nefnilega til lítils að lesa yfir börnunum um skaðsemi vímuefnanna á meðan þau hafa „fullorðinsmenninguna" fyrir augunum eins og hún er. fimm breytingar * * i ----------- Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum ver- ið breytt. Finnir þú þessi fimm at- riði skaltu merkja við þau Vi með krossi á myndinni til hægri og senda okk- ur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfii sigur- vegaranna. 1. verðlaun: United-sími með símanúmerabirti frá Sjónvarpsmiöstöðinni, Síðumúla 2, að verðmæti kr. 6.990. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og Kólibrísúpan eftir David Parry og Patrick Withrow. Vinningarnir veróa sendir heim. Merkið umslagið með Iausninni: Finnur þú fimm breytingar? 551 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavik Finnur þú fimm breytingar? 551 Hvaö gerist ef þú þarft svo aö pissa? Nafn:___________________________________________ Heimili:________________________________________ Vinningshafar fyrir getraun númer 550 eru: Vigdís Siguröardóttir, Borgum, 681 Þórshöfn. Bima María Þorbjörnsdóttir, Steinum, Grímsnesi, 801 Selfossi. BRETLAND SKÁLDSÖGUR - KIUUR: 1. Tom Clancy: Rainbow Six. 2. Danlelle Steel: The Klone and I. 3. Dick Francis: Reld of Thirteen. 4. Ruth Rendell: A Sight for Sore Eyes. 5. Sebastian Faulks: Charlotte Grey. 6. James Patterson: When the Wind Blows. 7. Elvi Rhodes: Spring Music. 8. Charlotte Blngham: The Kissing Garden. 9. Nicholas Evans: The Loop. 10. Jane Green: Mr Maybe. RIT ALM. EÐLIS - KIUUR: 1. Amanda Foreman: Georgina, Duchess of Devonshire. 2. Chris Stewart: Driving over Lemons. 3. Tony Adams o.fl.: Addicted. 4. Anthony Beevor: Stalingrad. 5. Frank McCourt: Angela's Ashes. 6. Bill Bryson: Notes from a Small Island. 7. John Gray: Men Are from Mars, Women Are from Venus. 8. Rlchard Branson: Losing My Virginity. 9. Slmon Winchester: The Surgeon of Crowthome. 10. Tony Hawks: Around Ireland with a Fridge. INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR: 1. Dick Francis: Second Wind. 2. Thomas Harris: Hannibal. 3. Danlelle Steel: Granny Dan. 4. Roddy Doyle: A Star Called Henry. 5. Penny Vincenzl: Almost a Crime. 6. Ruth.Rendell: Harm Done. 7. laln Banks: The Business. 8. Jlll Cooper: Score! 9. Kathy Relchs: Death Du Jour. 10. Ellzabeth George: In Pursuit of the Proper Sinner. INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS: 1. Alex Ferguson: Managing My Life. 2. John Humphrys: Devil's Advocate. 3. Simon Singh: The Code Book. 4. Bob Howitt: Graham Henry; Supercoach. 5. Brian Keenan o.fl.: Between Extremes. 6. Lenny McLean: The Guv'nor. ( Byggt á The Sunday Times) BANDARÍKIN SKÁLDSÖGUR - KIUUR: 1. Anlta Shreve: The Pilot’s Wife. 2. Tom Clancy: Rainbow Six. 3. Penelope Fltzgerald: The Blue Rower. 4. Arthur Golden: Memoirs of a Geisha. 5 Judy Blume: Summer Sisters. 6. Patricia Cornwell: Point of Origin. 7. Rebecca Wells: Divine Secrets of the Ya-Ya Sisterhood. 8. Margaret Truman: Murder at Watergate. 9. Sldney Sheldon: Tell Me Your Dreams. 10. Taml Hoag: Still Waters. RIT ALM. EÐLIS - KIUUR: 1. Robert C. Atklns: Dr. Atkins’ New Diet Revolution. 2. Frank McCourt: Angeia's Ashes. 3. John Berendt: Midnight in the Garden of Good and Evil. 4. Michael R. Eades o.fl.: Protein Power. 5. John E. Samo: Heaiing Back Pain. 6. Jared Diamond: Guns, Germs and Steel. 7. Sebastlan Junger: The Perfect Storm. 8. Adellne Yen Mah: Falling Leaves 9. Wllllam L. Ury: Getting Past No. 10. Gary Zukav: The Seat of the Soul. INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR: 1. Patricla Cornwell: Black Notice 2. Thomas Harris: Hannibal. 3. Meilssa Bank: The Girl's Guide to Hunting and Rshing 4. Jeffery Deaver: The Devil's Teardrop. 5. Tlm F. LaHaye: Assasins. 6. Catherine Coulter: The Edge. INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS: 1. Suzanne Somers: Suzanne Somers'Get Skinny on Fabulous Food. 2. Mltch Albom: Tuesdays with Morrie. 3. Christopher Andersen: Bill and Hillary: The Marriage. 4. Bill Phllips: Body for Life. 5. H. Lelghton Steward o.fl: Sugar Busters. 6. Sally Bedell Smlth: Diana, in Search of Herself. (Byggt á The Washington Post)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.