Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2000, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2000
Sport
Sundmót Reykjavikur verður haldið
í Sundhöll Reykjavíkur á morgun.
Mótið hefst klukkan 9.30.
Keppni í þýsku A-deildinni i knatt-
spyrnu hefst aftur um helgina að
loknu vetrarfríi. Topplið Bayern
Míinchen mætir gömlu erkifjendun-
um i Hamburger á sunnudagskvöldið
en leikir á milli þessara liða hafa sér-
staka þýðingu fyrir Franz Becken-
bauer, forseta félagsins. Becken-
bauer lék í 12 ár í búningi Bæjara en
ferli sinum lauk hann hjá Hamburger
þegar hann lék með liðinu 1980-1982.
Eyjólfur Sverrisson
og félagar hans í
Hertha Berlin eiga
erfiðan leik fyrir
höndum en þeir
mæta Hansa
Rostock á útivelli en
Hansa-menn eru
mjög erflöir heim að
sækja. Brasilíumað-
urinn Alex Alves,
sem Hertha keypti
fyrir áramót, leikur sinn fyrsta leik
fyrir Herthu.
Dregió hefur verió i 8-liða úrslit í
belgísku bikarkeppninni i knatt-
spyrnu. Genk, lið bræðranna Þórðar
og Bjarna Guöjónssona, mætir Gent
á heimavelli og Lokeren, lið Arnars
Þórs Vióarssonar, leikur á útivelli
gegn Lierse. í hinum tveimur leikjun-
um leikur Standard gegn Mons og
Sint-Truiden mætir Aalst.
Karl Malone, leikmaðurinn snjalli
hjá Utah, getur ekki verið meö í hin-
um árlega stjömuleik NBA sem fram
fer um aðra helgi. Malone hefur átt
við meiðsli að stríða í baki og gaf
ekki kost á sér í leikinn.
Spretthlauparinn
Merele Ottey frá
Jamaíku, sem berst
hart fyrir því að fá
nafn sitt hreinsað af
meintri lyfjaneyslu
á síðasta ári, hefur
tekið stefhuna á að
keppa á Ólympíu-
leikunum í Sydney í
haust. „Ég vil keppa
í Sydney og ljúka
þar ferli mínum,“ sagði Ottey í við-
tali við fjölmiðla á Spáni í gær en 20
ár eru liðin síðan hún tók þátt í sín-
um fyrstu Ólympíuleikum sem fram
fóru í Moskvu árið 1980.
Alþjóöa frjálsiþróttasambandiö á
eftir að taka mál Ottey fyrir en verði
hún fundin sek um að hafa tekið inn
ólögleg lyf gæti hún átt yfir höfði sér
tveggja ára bann. íþróttasamband
Jamaíku hefur sýknað Ottey af
ákæru og sjálf segist hún vera sak-
laus. „Ég ætla ekki að tala fyrir aðra
en hvað mig varöar er ég 100% sak-
laus í þessu máli,“ sagði Ottey sem
sigraði í 60 metra hlaupi á móti i Val-
encia í fyrrakvöld þegar hún kom í
mark á 7,14 sekúndum. -GH
í kvöld
Nissandeildin í handknattleik:
Stjarnan-Valur .............20.00
KA-Afturelding..............20.00
1. deild kvenna í handknattleik:
Afturelding-ÍBV ............20.00
1. deild karla í körfuknattleik:
Þór Þorlákshöfn-Stjaman .... 20.00
HANOO*
Ætg cgity
Úrslitaleikur karla í körfuknattleik:
Stefnir í
hörkuslag
-milli Grindvíkinga og KR-inga
Það er reiknað með hörkuslag þeg-
ar KR og Grindavík leika til úrslita í
bikarkeppni KKÍ og Renault í karla-
flokki. Liðin hafa mæst þrívegis á
þessu tímabili. Grindvíkingar unnu
báða leikina gegn KR í Eggjabikar-
keppninni en KR-ingar höfðu betur í
rimmu liðanna í deildinni.
„Ég hef mjög góða tilfinningu fyrir
þessum leik. Við erum með ungt lið
og reynslu í bland og í liðinu eru
strákar sem hafa vanist því að vinna
í yngri flokkunum. Ég held að við fór-
um aba leið,“ sagði Ólafur J. Orms-
son, fyrirliði KR-inga, í samtali við
DV.
„Ég er ekki sammála því að
Grindvíkingar séu með besta liðið á
landinu í dag. Þeir eru með gott lið en
eru ekki bestir þó svo að þeir séu á
toppnum í úrvalsdeildinni. Við ger-
um okkur alveg grein fyrir því að
þetta verður mjög erfiður leikur og ég
held að úrslitin komi ekki til með að
ráðast fyrr en á lokamínútunum."
- Er ekki lykilatriði fyrir ykkur
að reyna að stöðva Brenton
Birmingham?
„Við þurfum vissulega að halda
honum niðri og það sem gerir leikinn
erfiðan fyrir Grindvíkinga er að þeir
eru að spila þetta mestmegnis á ein-
um manni en við erum að dreifa
þessu meira. Það á eftir að að skila
sér sterkt í lokin að við erum með
sterkari liðsheild. Auðvitað söknum
við Jónatans Bow og hann skilur
vissulega eftir sig gat en við höfum
verið að stíga upp og það sýndi sig til
dæmis á móti Njarðvík að við getum
fyllilega staðið í þessum stóru liðum
og unnið þau,“ sagði Ólafur.
„KR-liðið hefur sýnt það í vetur að
það er mjög gott og við vanmetum
það alls ekki. Keith Vassell er er aðal-
maður KR-inga og þá hafa þeir
hörkuvopn, menn eins og Ólaf Orms-
son og Jesper Sörensen. Þá hafa leik-
menn komið af bekknum sem hafa
verið að spila vel. Það var auðvitað
slæmt fyrir KR að missa Bow en leik-
ur þeirra hefur ekkert hrunið við það
og mér sýnist að KR-ingamir hafi
bara þjappað sér betur saman. Ég sá
KR á móti Njarðvík og þar var liðið
að leika mjög vel,“ sagði Einar Ein-
arsson, þjálfari Grindvíkinga.
- Talað hefúr verið um að leikur
Grmdvíkinga standi og falli með
Brenton Birmingham:
„Við höfum oft verið að skora yfir
90 stig í leik og Brenton hefur
kannski verið að skora 30 þeirra. Hin
60 stigin hafa dreifst á aðra leikmenn
svo mér finnst þessi umræða um að
hann sé allt liðið mjög furðuleg. Allir
vita það að einn leikmaður vinnur
ekki í liðsíþrótt. Einhverjir aðrir í lið-
inu hljóta að hafa verið að standa sig
vel fyrst við erum komnir í úrsht bik-
arsins og erum á toppi úrvalsdeildar-
innar. Við höfum líka verið að vinna
leiki þar sem Brenton hefúr ekki leik-
ið vel. KR-ingamir munu sjálfsagt
ætla að taka Brenton fóstum tökum
og sá leikmaður sem fer í það hlut-
verk verður vonandi mjög þreyttur
og niðurbrotinn maður. Ég á ekki
von á öðru en að þetta verði mjög jafn
leikur. Ef við verðum á tánum veit ég
að við vinnum þennan leik en ef
menn em ekki tilbúnir verður þetta
erfitt," sagði Einar.
-GH
Þaö kemur til með að mæða mikið á Bandaríkjamönnunum í liði KR og
Grindavíkur á morgun. Hér eru Keith Vassell KR-ingur til vinstri og Brenton
Birmingham í liði Grindavíkur. DV-mynd S
DV
Brenton Brimingham á örugglega eftir að leika stórt hiutverk í úrslitaleiknum
KR. Leikur Grindvíkinga veltur mikið á framgangi hans í leiknum.
URVALSDEILDIN
Urslitin í nótt:
New York-Portland.........98-88
Houston 22, Ewing 20, Sprewell 14 -
Smith 18, Wells 18, Stoudemire 16.
Dallas-Charlotte ........106-96
Finley 32, Strickland 23, Nowitzki 14
- Jones 21, Coleman 19, Wesley 12.
Houston-Philadelphia . . .109-106
Anderson 32, Olajuwon 14 Williams
14 - Iverson 40, Ratliff 25, HiU 12.
SA Spurs-Toronto .........112-95
Duncan 32, Johnson 19, Rose 15 -
McGrady 21, Carter 19, Curry 17.
Utah-Milwaukee ..........99-102
Malone 28, Stockton 18, Russel 14 -
Allen 36, Robinson 30, Williams 10.
Bikarúrslit í körfunni:
Bikar-Brenton
- hefur ekki tapað bikarleik
Brenton Birmingham hefur skorað 33,4
stig að meðaltali fyrir Grindavík í
úrvalsdeildinni í vetur og hitt úr 61%
skota sinna, þar af 54,4% 3ja stiga skota.
Hann hefur gert 3,5 3ja stiga körfur að
meðaltali í leikjunum 16 og þá hefur
Brenton tekið 8,8 fráköst, gefið 5,3
stoðsendingar og stolið 4,1 bolta að
meðaltali í leik.
Þessi upptalning er ekki sist merkileg
fyrir þær sakir að Brenton hefur ekki enn
þá tapað bikarleik á íslandi, hann hefur
leikið níu leiki, fimm með Njarðvík þar
sem hann varð bikarmeistari i fyrra og
fióra með Grindavík í vetur. -ÓÓJ
íslandsmótið í badminton um helgina:
Spennandi mót
51. meistaramót íslands í badmin-
ton hefst í TBR-húsinu á morgun og
lýkur með úrslitum á sunnudaginn
sem hefiast klukkan 14 en klukkan 10
um morguninn verður leikið í undan-
úrslitum.
Þau Tómas Viborg, Brynja Péturs-
dóttir, Sveinn Sölvason og Tryggvi
Nielsen, sem öll æfa og keppa erlend-
is, eru komin heim gagngert til að
taka þátt í mótinu og má reikna með
því að ungir og efnilegir badminton-
spilarar ásamt gömlum jöxlum á borð
við Brodda Kristjánsson, Guðmund
Adolfsson, Þorstein Pál Hængsson og
Elsu Nielsen reyni að veita fiórmenn-
ingunum keppni.
Tómas Viborg og Elsa Nielsen eiga
titla að veija í einliðaleik karla og
kvenna og verður fróðlegt að sjá
hveming titilvömin fer hjá þeim.
„Ég stefni auðvitað að því að end-
urheimta titilinn og ég er ekki með á
mótinu fyrir annað. Ég er í ágætu
formi en ég geri mér alveg grein fyr-
ir að erfítt verður að vinna titilinn
aftur. Ég reikna með að Brynja Pét-
ursdóttir komi til með að veita mér
mjög harða keppni og ef að líkum læt-
ur mætumst við í undanúrslitunum.
Hvað strákana varðar þá held ég að
keppnm þar verði mjög jöfh og spenn-
andi. Ég býst við að Tómas komist í
úrslitin og mæti þar Sveini eða
Tryggva og þar verður mjög erfítt að
að spá fyrir um sigurvegara," sagði
Elsa Nielsen í samtali við DV í gær.
-GH
PSV tapaði
PSV Eindhoven tapaði á heimavelli,
0-1, fyrir Feyenoord í hollensku 1.
deildinni í knattspymu í gærkvöld. PSV
heldur þriggja stiga forystu i efsta sæti,
hefur 41 stig, en í næstum sætum koma
Heerenveen og Vitesse Amhem með 38
stig.
ÍR lagði ÍS í körfunni
I deild karla i körfuknattleik sigraði ÍR
lið ÍS í Kennaraháskólanum með 99
stigum gegn 87.
í 2. deild karla í handknattleik lagði
Grótta/KR lið ÍR b með 27 mörkum gegn
25.
-JKS
FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2000
17
Sport
Bikarúrslit kvenna í körfubolta:
Fjórar reyndustu
Fjórir reyndustu leikmenn bikarúrslitaleiks kvenna frá upphafi vom
samankomnar á leik ÍS og Keflavíkur í 1. deild kvenna á mánudaginn en sömu
lið mætast einmitt í bikarúrslitaleiknum í Höllinni á morgun. Þrjár léku leikinn
og ein var að horfa á dóttur sína spila gegn sínum gömlu félögum en allar eiga
þær 13 ára eða lengri bikarúrslitaleikjaferil að baki.
Það verða 14 ár á morgun síðan Hafdís Helgadóttir, fyrirliði ÍS, lék sinn fyrsta
bikarúrslitaleik, 1986, en hún bætir þar með met sitt og Kolbrúnar Leifsdóttur en
sú síðamefnda var stödd í Kennó til að fylgjast með dóttur sinni, Öldu Leif
Jónsdóttur, áður leikmanni með ÍS en nú Keflavíkur.
Kolbrún heldur samt enn þá metinu yfir flest ár milli bikarmeistaratitla því 13
ár liðu frá þeim fyrsta, 1978, til þess síðasta, 1991, þegar hún einmitt tryggði IS
titilinn með 3ja stiga körfú í blálokin, þá 39 ára. Anna María Sveinsdóttir og
Kristín Blöndal jafna einnig árangur Kolbrúnar á morgun því þá verða 13 ár
síöan þær tvær léku sinn fyrsta bikarúrslitaleik, 1987, en engin hefur þó skorað
jafnmörg stig í úrslitaleik né fagnað oftar sigri en Anna María sem hefur skorað
16,4 stig að meðaltali i tíu úrslitaleikjum, samtals 164 stig og hefur fagnað átta
bikarmeistaratitlum. Á DV-mynd Hilmars Þórs hér að neðan eru frá vinstri,
Kolbún, Hafdis, Anna María og Kristín. -ÓÓJ
Arnar ákærður
- ásamt sjö öðrum leikmönnum Leicester vegna miðabrasks
Arnar Gunnlaugsson, knatt-
spyrnumaður hjá Leicester, hefur
verið ákærður af enska knatt-
spymusambandinu ásamt sjö sam-
herjum sínum fyrir að braska með
aðgöngumiða fyrir úrslitaleik
deildabikarsins á síðasta tímabili
þar sem Leicester lék gegn Totten-
ham.
Áður höfðu þeir Tony Cottee og
Andy Impey verið ákærðir en aðr-
ir í hópnum eru þeir Steve Guppy,
Stuart Campbell, Graham Fenton,
Neil Lennon auk Amars. Þrír
starfsmenn félagsins hafa einnig
verið ákærðir í sama máli. Sjö-
menningarnir hafa verið kallaðir
til funda hjá enska knattspyrnu-
sambandinu þann 15. mars þar
sem þeir verða yfirheyrðir vegna
málsins.
í umræddum úrslitaleik í fyrra
sló í brýnu milli áhangenda lið-
anna og mátti rekja það til þess að
stórum hópi stuðningsmanna
Leicester var úthlutað miðum á
svæði áhangenda Tottenham.
Ástæðu þessa vilja menn rekja til
brasksins með aðgöngumiðana.
í úrslitaleik sömu keppni þann
27. febrúar nk. milli Leicester og
Tranniere á að koma í veg fyrir
brask og fær hver leikmaður
beggja liða einungis 25 miða í stað
75 í fyrra.
Líklegt má telja að leikmennim-
ir sem ákærðir hafa verið verði
dæmdir í sekt. DV reyndi ítrekað
að ná tali af Arnari Gunnlaugssyni
vegna málsins í gærkvöld en tókst
ekki.
-JKS
Bikarúrslit í körfu 2000
ÍS og Keflavík leika til úrslita í
kvennaílokki og hefst leikurinn í
Laugardalshöll klukkan 14. Leikinn
dæma Einar Einarsson og Rögn-
valdur Hreióarsson.
Klukkan 17 hefst svo karlaleikurinn
en þar eigast við KR og Grindavík.
Það kemur í hlut Jóns Benders og
Sigmundar Más Herbertssonar að
dæma leikinn.
Brenton Birmingham og Svavar
Garöarsson, leikmenn Grindavíkur,
urðu bikarmeistarar með Njarðvík í
fyrra.
Einar Einarsson, þjálfari Grindavík-
ur, lék sjálfur tvívegis til úrslita með
Keflvikingum í bikarkeppninni. Ein-
ar fagnaði sigri í öðrum þeirra og tap-
aði hinum svo hann þekkir báðar
hliðar.
Grindvikingar eru eina ósigraða lið-
ið i bikarúrslitaleik karla ásamt Fram
en Grindvlkingar unnu tvo úrslita-
leiki sína til þessa, 1995 og 1998.
KR-ingar hafa leikið flesta bikarúr-
slitaleiki allra félaga en þetta er í
fimmtánda sinn sem KR kemst í úr-
slitaleikinn en Vesturbæingar hafa
unnið níu af leikjunum 14.
Grindjánarnir, stuðningsmenn
Grindavíkur, ætla að koma saman í
Veitingahúsinu Vör í Grindavík á
morgun klukkan 13 og hita þar upp
fyrir leikinn. Þar verður boðið upp á
málningu og annað tilheyrandi og síð-
an fara rútur á leikinn klukkan 15.30.
KR-ingar geta náð í bikarinn til
Reykjavíkur í fyrsta sinn í 9 ár, eöa
síðan þeir unnu hann síðast árið 1991,
en Reykjavíkurliö sem unnu fyrstu
flmmtán bikarúrslitaleikina hafa aö-
eins fagnað sigri í einum bikarúrslita-
leik frá 1985.
KR-ingar hafa unniö állar þrjár bik-
arviðureignir félaganna. Allir
leikirnir þrír hafa verið á heimavelli
þeirra svarthvitu. Liðin mættust í
undanúrslitunum 1997 og vann KR,
73-69, líkt og í 8 liða úrslitum 1992,
78-73, og í undanúrslitum 1991,120-90.
Teitur Örlygsson úr Njarðvík hefur
skorað flest stig allra i bikarúrslita-
leik en hann hefur gert 181 stig í níu
leikjum en Anna Maria Sveinsdótt-
ir, sem er stigahæst hjá konunum,
þarf að skora 18 stig I leiknum á
morgun til að verða stigahæsti leik-
maður bikarúrslitaleiks karla og
kvenna frá upphafi en hún hefur gert
164 stig í sínum 10 leikjum.
Þrir leikmenn í kvennaleiknum hafa
tapað síðustu tveimur bikarúrslita-
leikjum en það er ljóst að einhver
þeirra fagnar loksins sigri í ár. Haf-
dis Helgadóttir og Kristjana Magn-
úsdóttir leika enn með IS en Alda
Leif Jónsdóttir hefur fært sig um set
og spilar nú með Keflavík.
Keflavik og ÍS jafna á morgun met
KR-kvenna frá því í fyrra er liöin
spila bæði sinn tólfta bikarúrslitaleik
en Keflavík hefur unnið oftast bikar-
inn eða níu sinnum. Keflavík hefur
unnið 9 af 11 bikarúrslitaleikjum og
49 af 53 bikarleikjum liðsins frá upp-
hafi. Af þessum fjórum töpum hafa
tvö komið gegn Is.
Keflavik og ÍS hafa alls mæst 12
sinnum í bikarnum í kvennaflokki og
dregist saman I nfu skipti á síðustu 12
árum en eina liðið til að hindra Kefla-
vík í aö komast í bikarúrslitin frá
1987 er ÍS, sem vann Keflavík í 8 liða
úrslitum 1991 og undanúrslitum 1999
en öll önnur ár á þessu tímabili, alls
12 sinnum, hefur Keflavík komist í
HöUina. -GH/-ÓÓJ
Úrslitaleikur í bikar kvenna:
Ekki tapa
einum enn
- segir Alda Leif Jónsdóttir, leikmaður Keflvíkinga
ÍS og Keflavík mætast í bikarúrslita-
leik í kvennaflokki á morgun. Fyrir
fram reikna flestir með því að bikar-
inn fari tfl Keflavíkur enda trónir Suð-
umesjaliðið á toppi 1. defldarinnar og
hefur leikið vel að undanfomu.
Bikarúrslitaleikurinn er svolítið
sérstakur fyrir Öldu Leif Jónsdóttur.
Hún hefúr tvö síðustu árin tapað bik-
arúrslitaleik með liði ÍS en nú leikur
hún með Keflavík og mætir sínum
gömlu samheijum, ÍS.
„Það er auðyitað skrýtin tilfinning
að leika gegn ÍS í úrslitaleik og það
liggur við að maður geti sagt að hjart-
að slái báðum megin. Ég hef tapað
tveimur úrslitaleikjum i röð og ég hef
sagt stelpunum í Keflavíkurliðinu að
ég ætli ekki að tapa einum enn. Ég veit
að lið ÍS mætir i þennan leik af mikilli
grimmd og við verðum einfaldlega að
gera slíkt hið sama ef við ætlum að
vinna,“ sagði Alda Leif Jónsdóttir,
leikmaður Keflavíkur.
„Ég held að aðalmálið fyrir okkur sé
að mæta í þennan leik ekki of sigur-
vissar. Við þurftum að hafa mikið fyr-
ir sigrinum á ÍS í deildinni nú i vik-
unni. Styrkur ÍS-liðsins felst í þvi að
þær geta spilað mjög vel saman sem
lið og það hefur oft fleytt þeim áfram.
Við þurfum að ná að spila sem ein
sterk heild og ef það tekst verður mjög
erfitt að stöðva okkur,“ sagði Alda.
Vonandi brjótum við ísinn
„Við höfúm spilað þrisvar sinnum á
móti Keflavík í vetur og í þessum leikj-
um höfum við náð að standa í þeim.
Við vonum að nú takist okkur að
bijóta ísinn og leggja Keflavík að velli.
Styrkur Keflavíkurliðsins er að i lið-
inu eru reynslumiklir leikmenn sem
smita út frá sér og þá er byrjunarliðið
stórt og líkamlega sterkt. Ef við náum
toppleik held ég að möguleikar ÍS séu
til jafns á við Keflavik," sagði Ósvald-
ur Knudsen, þjálfari ÍS.
-GH
Hafdís Helgadóttir, fyrirliði ÍS (til vinstri), og Alda Leif Jónsdóttir, Keflavfk, hafa
báðar tapað tveimur bikarúrslitaleikjum í röð en nú leika þær hvor með sínu
liðinu í úrslitaleiknum á morgun og önnur þeirra fagnar sigri. DV-mynd S
Samkomulag ekki náðst
- um félagaskipti Gunnleifs Gunnleifssonar í Keflavík
Keflavík og KR hafa enn ekki náð samkomulagi um félagaskipti Gunn-
leifs Gunnleifssonar, markvarðar KR, yfir til Keflavíkur en eins og fram
hefur komið vilja Keflvíkingar fá Gunnleif til liðs við sig. Gunnleifur er
samningsbundinn KR og á rúmt ár eftir af samningi sínum við vestur-
bæjarliðiö.
„Við höfum átt í samningaviðræðum við KR-inga um að fá Gunnleif.
Málin hafa eitthvað þokast áfram en þetta hefur dregist of mikið á langinn
og ég vona bara að við getum klárað þetta mál sem allra fyrst," sagði Rún-
ar Amarson, formaður knattspymudefldar Keflavíkur, við DV í gær.
- Heyrst hefur að KR vilji fá miðjumanninn Eystein Hauksson og Bjarka
Guðmundsson í skiptum fyrir Gunnleif. Hvað vilt þú segja um það?
„Ég held að þetta séu bara sögusagnir. Við vilja bara fá Gunnleif keypt-
an og ekki láta neina menn í staðinn. Hins vegar höfum við heimilað
Bjarka að ræða við önnur félög,“ sagði Rúnar. -GH