Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2000, Blaðsíða 25
25
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2000
X>V___________________________________________________________________________________________________Helgarblað
íslendingar neyta mest allra af geðlyf jum:
Þunglyndi kostar
þjóðina 3,5 milljarða
- neyslan eykst hröðum skrefum meðal ungs fólks
Ef marka má niðurstöður loka-
ritgerðar Tinnu Traustadóttur, í
lyfjafræði við Háskóla íslands, not-
uðu um það bil 4% íslendinga á
aldrinum 18-25 ára geðdeyfðarlyf
árið 1999. Aigengustu lyfin eru úr
flokki sem er kallaður SSRI sem er
skammstöfun fyrir Selective
sorotonin reuptake inhibitor.
Þekktasta og vinsælasta lyfið í
þessum flokki er Prozac en einnig
mætti nefna lyfjaheiti eins og Flú-
oxetín Delta, Tingus, Fontex, Zo-
loft, Efexor, Seroxat, Cipramil og
íleiri. Þessi lyf komu á markað fyr-
ir fáum árum og hefur neysla
þeirra aukist hröðum skrefum.
/ ritgerð sinni leggur
Tinna, í samvinnu við
Axel Hall, sérfrœðing hjá
Hagfrœðistojhun Háskóla
íslands, mat á óbeinan
kostnað samfélagsins
vegna þunglyndisraskana
og kemst að þeirri niður-
stöðu að óbeinn kostnað-
ur sé að minnsta kosti
3,5 milljarðar en varar
við að þessar niðurstöður
séu varfœmar.
Áður hafði beinn kostn-
aður samfélagsins af
sömu orsökum verið
áœtlaður 2,6 milljarðar.
Þessi lyf eru einkum notuð gegn
þunglyndi, þráhyggju og kvíða og
öðrum röskunum sem áður voru
ekki alltaf gefín lyf við. Þessi lyf
hafa í munni almennings á sér
nafnið „gleðilyf ‘ sem vísar til þess
að þau jafna út geðsveiflur og þeir
sem áður voru þunglyndir, svart-
sýnir og nöldurgjamir eru nú jafn-
an glaðir og brosa framan í heim-
inn.
Unga fólkið stöðugt þung-
lyndara
Tinna, sem er að útskrifast úr
lyfjafræði, gerði í lokaritgerð sinni
faraldsfræðilega skimrannsókn á
útbreiðslu þunglyndis í aldurs-
hópnum 18-25 ára.
„Það er mikið rætt um þung-
lyndi sem vaxandi heilbrigðis-
vandamál til framtíðar litið en
þessum aldurshópi hefur ekki ver-
ið sinnt nóg en þama hlýtur þung-
lyndið að eiga upptök sín.“
Tinna sendi spurningalista í
pósti til 2000 íslendinga fæddra á
árunum 1973-1980. Niðurstöður
rannsóknarinnar benda til þess að
um 17% ungs fólks á íslandi sé með
þunglyndi. Ungar konur (19,4%)
reyndust þunglyndari en ungir
karlar (14,2%).
50% þátttakenda höfðu einhvern
tímann neytt ólöglegra fíkniefna og
45% höfðu einhvem tímann velt
því fyrir sér að svipta sig lífi en
5,4% höfðu einhvern tímann gert
til þess tilraun. 17% reyndust hafa
tilhneigingu til að misnota áfengi,
karlar meira en konur, og í þessum
hópi var þunglyndi mun útbreidd-
ara eða um 29%.
Samkvæmt niðurstöðum Tinnu
töldu 50% þeirra sem nota geð-
deyfðarlyf að þau kæmu að miklu
gagni.
Frá sjónarhóli geðlækna hafa
þessi lyf marga kosti fram yfir
eldri lyf en þó þann kost helstan að
mjög lítil eða engin hætta er á of-
skömmtun og því stafar fólki lítil
hætta af umgengni og notkun lyfj-
anna. Vinsældir þeirra hafa verið
mjög miklar og íslendingar neyta
lyfja í þessum flokki í meira mæli
en t.d. flestar nágrannaþjóðir okk-
ar.
Erum við nýjungagjarnari?
Tómas Zoega geðlæknir sagðist í
samtali við DV ekki kunna neina
sérstaka skýringu á því hvers
vegna svo væri aðra en þá að við
værum nýjungagjarnari en aðrar
þjóðir. Hann benti á að hjá öðrum
þjóðum ykist neysla þessara lyfja
einnig jafnt og þétt og því væri sér-
staða okkar íslendinga ekki svo
mikil en við héldum samt ákveðnu
forskoti á aðrar þjóðir og héldum
þeirri forystu milli ára. í ritgerð
Tinnu kemur fram að hér er neysla
SSRI lyfíanna rúmir 53 dagskammt-
ar á hverja þúsund íbúa árið 1998
en næstir okkur koma Svíar með
37 dagskammta á 1000 íbúa árið
1998, svo forysta okkar er ótvíræð á
þessu sviði.
Samkvæmt því sem kemur fram
í ritgerð Tinnu jókst kostnaður
vegna neyslu geðdeyfðarlyfía úr 700
milljónum 1998 í 800 milljónir árið
1999. Til samanburðar var kostnað-
ur við slík lyf árið 1989 rúmar 100
milljónir. Kostnaðurinn hefur því
áttfaldast á 10 árum, skv. upplýs-
ingum frá heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneyti.
Kostar 3,6 milljaröa árlega
í ritgerð sinni leggur Tinna, í
samvinnu við Axel Hall, sérfræð-
ing hjá Hagfræðistofun Háskóla !s-
lands, mat á óbeinan kostnað sam-
félagsins vegna vinnutaps og tap-
aðra lífa vegna þunglyndisraskana
og kemst að þeirri niðurstöðu að
óbeinn kostnaður sé að minnsta
kosti 3,5 milljarðar en varar við að
þessar niðurstöður séu í varfæm-
ara lagi.
Áður hafði beinn kostnaður sam-
félagsins, sem samanstednur af
lyfíakostnaði, örorkugreiðslum til
þunglyndra, rekstri sjúkrastofnana
og félagslegri þjónustu, verið áætl-
aður 2,6 mifljarðar.
Eldri rannsókn sem til er frá ár-
inu 1984, gerð af Tómasi Helgasyni,
sýnir að neysla þunglyndislyfía í
aldurshópnum 20-29 ára var þá að-
eins um 0,3% sem sýnir betur en
margt annað hve neyslan hefur
aukist mikið.
Annað sem bendir til þess hve
læknar umgangast þessi nýju lyf
með öðrum hætti en eldri lyf er að
75% allra lyfseðla á geðdeyfðarlyf
eru gefin út af heimilislæknum en
í tíð eldri og sterkari lyfía var þeim
í mun meira mæli ávísað af geð-
læknum.
Dregur ekki úr öðrum
áhrifum
í skýrslu sem kom út á vegum
heilbrigðis- og tryggingaráðuneytis-
ins árið 1999 kemur fram að þrátt
fyrir aukna neyslu SSRI-lyfía hafi
innlögnum á geðdefldir ekki fækkað
yfir nokkurra ára tímabil og ekki
dregið úr sjáifsvígum. Ekki hefði
heldur dregið úr viðtölum við geð-
lækna og örorkulífeyrisþegum vegna
geðfótlunar hefur ekki fækkað.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
WHO spáir því að næstu tvo ára-
tugi verði mest aukning í geð- og
taugasjúkdómum í heiminum og
þeir verði næstútbreiddasta orsök
fotlunar. Það er því ekki að undra
að vinsældir geðdeyfðarlyfia aukist
í takt við stækkandi hóp þunglynd-
issjúklinga. í dag er Prozac út-
breiddasta þunglyndislyf í heimi og
talið að rúmlega 17 milljónir í
Bandaríkjunum taki það inn dag-
lega. Prozac kom fyrst á markað í
Bandaríkjunum 1986.
Missa áhuga á kynlífi
í bandaríska veftímaritinu Salon
var nýlega fíallað um notkun lyfia
af þessu tagi, einkum með tilliti til
algengustu aukaverkunar sem fylg-
ir neyslu þeirra en það er minnkað-
ur áhugi á kynlífi, það tekur konur
á lyfinu lengri tíma að ná fullnæg-
ingu eða þær missa alveg áhugann
á kynlífi og hjá körlum ná einkenn-
in yfir allan skalann, allt frá áhuga-
leysi og deyfð yfir í algert getu-
leysi.
Það er fullyrt í Salon að slíkar
kynlifstruflanir hrjái allt að 80%
þeirra sem nota geðdeyfðarlyf. Því
er jafnframt haldið fram að fyrir
flestum notendum séu kostirnir við
neyslu svo miklir og jafnvægi hug-
ans og vellíðan slík að þeir kæri sig
koflótta um það þótt þeir fari á mis
við holdsins lystisemdir í staðinn.
í blaðinu er vitnað í rannsóknir
á rottum sem farið hafa fram við
háskólann í Gautaborg í Svíþjóð og
tilraunir á mönnum sem fóru fram
við háskólasjúkrahús i Haag í
Hollandi. Eftir að hafa neytt flúox-
etíns, sem er virka efnið í Prozac,
reyndust rottumar ófærar um að
stunda kynlíf en karlmenn áttu
mjög erfitt með að fá fullnægingu
eða reyndist það alveg ómögulegt.
Þessar rannsóknir leiða auðvitað í
ljós um leið að Prozac getur lækn-
að ótímabært sáðlát sem er algengt
kynlífsvandamál hjá körlum.
Þekkt vandamál
Tómas Zoéga geðlæknir sagði í
samtali við DV að áhugaleysi af
þessum toga væri þekkt aukaverk-
un geðdeyfðarlyfia en taldi töluna
80% margfalt of háa. Hann taldi lík-
legra að 20-30% notendanna yrðu
varir við slik vandamál. Hann
benti jafnframt á að áhugaleysi á
kynlífi og getuleysi væri þekktur
fylgifiskur þunglyndis sem lyfin
eru gefin við.
Tinna sagði að i sinni rannsókn
hefði lítið verið spurt út í auka-
verkanir en engin lyf væm án
aukaverkana og áhrif geðdeyfðar-
lyfía á kynlif notenda væri mjög
þekkt vandamál. Tinna sagðist per-
sónulega þekkja neytendur þar sem
lyfin hefðu haft í för með sér kyn-
lífstengdar truflanir.
-PÁÁ