Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2000, Qupperneq 45
57
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2000
DV Tilvera
Afmælisbörn
Barry Manilow, 57 ára
Einn þekktasti dægurlagasöngvari síðari tíma
Barry Manilow verður 57 ára á morgun. Manilow
hefur löngum verið samnefnari fyrir þá dægur-
lagasöngvara sem nánast eingöngu eru í róman-
tískum ballöðum og hefur frægð hann byggst á ró-
legum lögum sem heillað hafa viðkvæmar sálir.
Sitt besta tímabil átti hann seint á áttunda ára-
tugnum og í byrjun þess níunda. í dag er hann að-
allega að skemmta á stórum og dýrum nætur-
klúbbum auk þess sem hann heldur konserta þar
sem aðalnúmerin eru gömlu smellirnir hans.
Paul McCartney, 58 ára
Eitt af stórmennum poppsins, Paul McCartn-
ey, verður 58 ára á sunnudaginn. Ásamt félögum
sínum í The Beatles breytti hann poppsögunni og
í dag er hann sá tónlistarmaður sem á það lag
sem oftast hefur verið sungið inn á plötu, Yester-
day, og er einnig sá lagahöfundur sem oftast hef-
ur komið lagi í efsta sæti vinsældalistans í
Bandaríkjunum. Mörg þeirra samdi hann með fé-
laga sínum í The Beatles, John Lennon. í áranna
rás hefur Paul McCartney víkkað sjóndeildar-
hring sinn í tónlistinni og meðal annars samið
stór verk fyrir kór og hljómsveitarverk.
Stjörnuspá
Gildir fyrir laugardaginn 17. júní og sunnudaginn 18. júní
Vatnsberlnn (20. ian.-18. febr.l:
Spá sunnudagsins:
' Þú nýtur mikils stuðn-
ings innan fjölskyld-
_ unnar í ákveðnu máli.
Vinur þinn þarf á þér að halda.
Þér gengur vel að vinna með öðr-
um og ættir því að sækja í hóp-
vinnu frekar en að vinna einn
þessa dagana.
Hrúturlnn (21. mars-19. apriH:
Spá sunnudagsins:
Þú ert viðkvæmur fyr-
ir gagnrýni og hættir
^ til að vera óþarflega
tortrygginn. Þú átt engu að síður
góð samskipti við vini þína.
Spá mánudagsins:
Allir f kringum þig virðast upp-
teknir en láttu það ekki angra
þig, þú hefur sjálfúr lítinn tima
fyrir aðra.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúníi:
Spá sunnudagsins:
Vertu bjartsýnn varð-
andi vandamál sem
hefur angrað þig. Þú
færð lausna þinna mála innan tíð-
ar.
Dagurinn verður annasamur en í
kvöld færðu tækifæri til að slappa
af með ástvini. Vertu varkár í
tjármálum.
Liónlð (23. iúlí- 22. ágústl:
Spá sunnudagsins:
' Þú átt góða tíma fram
undan. Fjármálin hafa
sjaldan staðiö jafhvel
og þú ættir að nota kvöldið til að
gera þér dagamun.
Spá mánudagsins:
Rólegt tímabil er fram undan og
þú færð nægan tíma til að hug-
leiða afstöðu þína til ákveðins at-
viks.
Vogin (23. sept.-23. okt.l:
smmsmm
l Þú hefúr verið afar við-
Wf kvæmur gagnvart
Vr ákveðinni persónu und-
anfarið. Varastu að láta afbrýðisem-
ina hlaupa með þig í gönur.
SmSEESEI
Hugaðu að fjölskyldunni og gefðu
þér tíma til að hlusta. Happatölur
þínar eru 5, 26 og 30.
■Bogamaður (22. nóv.-21. des.l:
Spá sunnudagsins:
’ Ekki taka það næni þér
' þó að einhver sé með leið-
indi við þig. Framkoma
hans ætti ekki að skipa þig neinu máh.
Þú ættir að heimsækja góða vini þína.
Ástarmálin eru að komast á skrið
en vertu samt þolinmóður. Farðu
varlega ef ferðalag er á dagskrá en
ekki hafa alltof miklar áhyggjur.
Rskarnir (19. febr.-20. marsl:
Spá sunnudagsins:
■Dagurinn verður róleg-
ur í vinnunni og þú
gætir mætt einhverri
andstöðu við hugmyndir þinar sem
þú ættir ef til vill að endurskoða.
Spá mánudagsins:
Forðastu óhóflega peningaeyðslu.
Hugsaðu þig vel um áður en þú
tekur ákvöröun í sambandi við
fjármál.
Nautið (20. april-20. maí.l:
Hópvinna á vel við þig
í dag og þér gengur vel
W að semja við þitt fólk.
Viðskipti ganga vel þó ekkert sér-
stakt gerist á þeim vettvangi.
Spá mánudagsins:
Vertu jákvæður og bjartsýnn á
framtíðina. Ferðalag gæti verið á
dagskrá og gættu þess að skipu-
leggja þaö vel.
Krabblnn (2?. iúní-??. iúin:
Spá sunnudagsins:
I Vertu hreinskilinn við
vini þína og fjölskyldu
og athugaðu að ein-
hver er viðkvæmur fyrir gagnrýni
frá þér.
Spá mánudagsins:
Þú gætir fengið óvæntar fréttir af
einhveijum sem þú þekkir. Þetta
er góður tími fyrir hvers konar
viðskipti.
Mevian (23. áeúst-22. sept.i:
Spá sunnudagsins:
y(VV 1
Dagurinn verður við-
^V^-burðaríkur og þú ættir
' að fara varlega í öllum
fjármálum. Það gætu komið upp aö-
stæöur sem virðast réttlæta fjárútlát.
Spá mánudagsms:
Fjármálin mættu standa betur en
það fer þó að rofa til hjá þér.
Varastu svartsýni í garð vina
þinna.
Sporðdreki (24. okt.-21. nðv.l:
Spá sunnudagsins:
Þú hefur um nóg að
Miugsa á næstunni og
ættir að einbeita þér
að sjálfum þér. Láttu ekki undan
þó einhver beiti þig þrýstingi.
Spá mánudagsins:
Dagurinn verður rólegur framan
af en þú hefur meira að gera þeg-
ar líður á kvöldið. Happatölur
þínar eru 1, 14 og 23.
Stelngeltln (22. des.-19. ian.i: .
[X/ Einhver vinur eða ætt-
ingi kemur þér á óvart
með skoðun sinni eða
gerir þér óvæntan greiða. Ekki
treysta þó um of á hjálp annarra.
Spá mánudagsms:
Fram undan eru rólegir dagar og
þú ættir að nota þá til að hvíla
þig því það kemur aftur að því að
þú munt hafa í nógu að snúast.
Meistari Kurosawa
Akira Kurosawa
Merkur kvikmyndaleikstjóri sem hafði mikil áhrif á aöra kvikmyndagerðar-
menn.
Akira Kurosawa átti sér langan
starfsaldur og eftir hann standa fjöl-
mörg stórverk. í heildina leikstýrði
hann 32 kvikmyndum og skrifað
handrit að 41. Af hans eldri verkum
er þekktust Shichinin no samurai
(The Seven Samurai) og kemur það
mikið til, fyrir kvikmyndagerða-
menn, því þar notaði Akira
Kurosawa svokallaða tveggja kvik-
mynda tökuaðgerð (Multi-cum). í
raun notaði Kurosawa þrjár mynda-
vélar í einu við gerð þessarar mynd-
ar og náði því mismunandi sjónar-
hornum að hverri senu. Önnur
þekkt kvikmynd hans frá fyrri
árum er hin magnað dramatíska
mynd Akahige (Red Beard).
Af síðari tíma myndum hans má
nefna: Ran, Yume (Dreams) og
Hachigatsu no kyoshikyoku
(Rapsody in August).
Maðurinn sjálfur
Akira Kurosawa var yngstur af
fjórum bræðrum og fjórum systr-
um. Hann fæddist 23. mars 1910 í
Tokyo. Listræn tjáning varð fljótt
áberandi í fari Kurosawa og beind-
ist hugur hans fyrst til þess að
verða listmálari. Þó gekk ekki betur
en svo að í mars 1928, þegar hann
tók inntökupróf í listaskóla, féll
hann á prófinu. 1936 sótti hann síð-
an um starf tengt þeirri grein sem
hann er þekktastur fyrir, kvik-
myndum.
Fyrsta myndin sem Akira
Kurosawa leikstýrði sem aðalleik-
stjóri leit dagsins ljós 1943. 1945 var
svo viðburðaríkt ár hjá Kurosawa í
einkalífinu þvi hann giftist í þann
21. maí leikkonunni Kayo Kato og
20. desember sama ár eignaðist
hann soninn Hisao. 1959, nánar til-
tekið í april, stofnaði Kurosawa síð-
an eigið fyrirtæki, Kurosawa Prod-
uctions. Ekki var lífið alltaf dans á
rósum hjá Kurosawa og þegar hann
var 61 árs reyndi hann að fremja
sjálfsmorð. Haföi sá sorglegi atburð-
ur þó lítil áhrif á framleiðsluna,
hann hélt á fullum krafti áfram að
leikstýra myndum. Kurosawa lést 6.
september 1998, hafði hann þá verið
ekkjumaður í þrettán ár.
Fyrirmyndin Kurosawa
Kurosawa hafði gott auga fyrir
möguleikum kvikmyndavélarinnar
og var uppátækjasamur í sköpun
sinni. Allar hans myndir einblína á
mannveruna og tilvist hennar sem
og tilflnningar. Er nálgun
Kurosawa engan veginn augljós en
samt svo einfold og lifandi. Hann er
sérlega góður í að nota skugga og
litbrigði skugganna. Þvi kemur það
manni á óvart, en þó ekki, hversu
litirnir spila sterkt hlutverk í
Hachigatsu no kyoshikyoku
(Rapsody in August) og hversu það
eykur á fegurðina í umhverfmu.
Það er því ekki ofsögum sagt að
þarna hafi verið á ferðinni mikill
listamaður.
Guðrún Guðmundsdóttir
Klassískt myndband
Shichinin No Samurai (The Seven Samural) - spenna ★★★!
Hetjur og hetjudáðir
Sú ímynd sem flest fólk hefúr í huga
sér þegar þaö hugsar um samúræja er
t.d. hetja sem deyr fremur en gefast
upp, sérlega hæfur bardagamaður og
málaliðar. Fæstir hugsa þó um nei-
kvæða hlið samúræja heldur er litið
meira á upphefðina sem í því felst að
vera slík hetja.
Mynd Akira Kurosawa af hinum sjö
samúræjum er fyrir löngu orðin sígilt
efni og fyrirmynd
margra mynda. Hún
hefur meira að segja
hlotið það lof hjá Kan-
anum að bandarísk út-
gáfa hefur verið gerð af
henni í vestrastíl.
í smáu og fremur fá-
tæku þorpi í Japan búa
bændur sem hafa lifibrauð sitt af upp-
skeru sinni. Þeir borga skatta til „kúg-
ara“ síns og fá að halda nægu eftir til
að lifa af. Það dugir þeim þó ekki því
þjófar herja reglulega á þá eftir að þeir
hafa gengið frá uppskerunni. Því hefur
fólk lítið milli handanna og þarf að
herða sultarólina reglulega. Bændum-
ir eru ekki hrifnir af þessu og telja að
eitthvað verði að gera í þessu máli því
svona gangi þetta ekki til lengdar.
Nokkrir bændanna fara til að fá ráð
hjá öldungi þorpsins. Honum dettur
það í hug að eina leiðin sé að fá til liðs
við sig þjálfaða bardagamenn; sam-
úræja.
Nokkrir eru sendir í sendifor í leit
að samúræjum. Eftir misjafnt gengi
tekst þeim loks að fá vel þjálfaðan
mann til að vinna fyrir sig og áhang-
anda hans. Sá maður hjálpar þeim sið-
an að útvega fleiri samúræja.
Nokkuð er ljóst að bændumir hefðu
aldrei fengið nokkum samúræja til
liðs við sig hefði ekki komið til mann-
gæska Kambei, þess fyrsta sem ákveð-
ur að vinna fyrir þá. Þegar hann sér
hversu aumt líf bændanna er getur
hann ekki annað en ákveðið að reyna
að gera eitthvað í þeim málum.
Myndin er yndislega hæg á köflum
og hröð á öðrum köflum. Þó svo að hún
sé hæg er alltaf heil-
mikið í gangi; mann-
legar tiFmningar þar
efst á baugi. Kurosawa
kemur þessu vel tO
skila. I þessum mikla
ljótleika og fátækt
leynist fegurð en jafn-
framt depurð. Sérlega
áhrifamikil er sena þar sem kona situr
í rúmi og nær alfarið að túlka eymd og
trega lífsins án þess að segja orð né
gera nokkuð sérstakt.
Mjög margt leynist í þessari mynd
og ógemingur að fara út í afla þætti
hennar. Því er um að gera að eyða
nokkmm tíma fyrir framan imbann og
leigja sér myndina. Það er líka alltaf
hressandi að horfa á svart/hvíta mynd
öðm hvom.
Myndin fæst hjá Vídeóhöllinni í Lágmúla.
Lelkstjóri: Akira Kurosawa. Aöalhlutverk:
Takashi Shimura, Toshiro Mifune, Yoshiro
Inaba, Seiji Miyaguchi, Minoru Chiaki,
Daisuke Kato, Ko Kimura, Kamatari Fu-
jiwara, Kuninori Kodo, Bokuzen Hidari,
Yoshio Kosugi, Keiji Sakakida, Yasuhisa
Tsutsumi, Keiko Tsushima og Toranosuke
Ogawa. Japönsk, 1954. Lengd upprunar-
legu útgáfu: 207 mín. Bönnuö Innan 16
ára. Guðrún Guðmundsdóttir
www.romeo.is
Stórglæsileg netverslun,
frábær verö!
ótrúleg tilboð
Rafstöðvar
Mikið ún/al bensín og
dísil rafstöðva.
Hagstætt verð!