Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2000, Side 2
2
LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000
JOV
Fréttir
íslenskur sjómaður fékk boð um að smygla fíkniefnum:
Stuttar fréttir
Boðnar 1,5 milljónir
fyrir að vera burðardýr
- lét vita af tilboði eiturlyfjaklíkunnar
„Ég horföi furðu lostinn á mann-
inn sem kinnroðalaust fór þess á
leit við mig að ég smyglaði fyrir sig
kílói af eiturlyfjum gegn gjaldi frá
hafnarborg í Evrópu,“ segir háseti
á flutningaskipi í samtali við DV.
Sjómaðurinn, sem er fjölskyldu-
maður og vill ekki láta nafns síns
getið af ótta við þá eiturlyfjaklíku
sem fór þessa á leit við hann, segist
hafa sagt manninum skýrt og skor-
inort að hann tæki ekki þátt í
smygli á dópi.
„Þessi maður, sem ég kannast
lauslega við, hringdi í mig og
spurði hvort ég gæti hitt hann til
að ræða mál sem ekki væri hægt að
tala um í síma.
Ég varð nokkuð hissa þar sem ég
vissi ekki að við ættum neitt sér-
stakt vantalað en samþykkti þó að
hitta hann. Erindið var þá að biðja
mig að taka pakka frá hafnarborg í
Evrópu og þiggja að launum eina
og hálfa milljón króna,“ segir sjó-
maðurinn.
Þama hafi veriö um að ræða kíló
af amfetamíni sem honum skiljist
að sé 15 milljóna króna virði í inn-
kaupum. Hann segir að þrátt fyrir
neitunina hafi milligöngumaður-
inn hringt nokkrum sinnum í sig
til að þrýsta á að hann tæki að sér
að vera burðardýr.
„Hann ítrekaði að áhættan væri
sáralítil sem engin en skattlausir
peningar í boði. Það er vissulega
rétt hjá honum þar sem einfalt er
að fela slíkan pakka um borð í
stóru skipi en samviska mín býður
mér að taka ekki þátt í smygli á
slíkum óþverra. Ég var orðinn
mjög reiður vegna þessa þrýstings
og íhugaði um tíma að berja dólg-
inn en ákvað síðan að hrista hann
af mér. Ég hef viðbjóð á þessum eit-
urlyfjasmyglurum sem rústa líf
ungs fólks og geri mér jafnframt
grein fyrir þvf að þetta eru stór-
hættulegir menn sem einskis
svífast til að koma fram hefndum
gagnvart þeim sem vinna gegn
þeim. Það er viðbúið að kæmi ég
fram undir nafni myndu þeir hefna
sín á fjölskyldu minni,“ segir sjó-
maðurinn. -rt
Heimsmet Finna jafnað:
Vélstjóri á
Húsavík í hópi
heimsmeistara
- Tal-notendur 50.000
„Maður verður ekki heimsmeist-
ari nema einu sinni, ekki ég alla
vega,“ sagði Guðmundur Sigtryggs-
son, fimmtíu þúsundasti viðskipta-
vinur Tals, þegar DV heyrði í hon-
um hljóöið í gærmorgun. Guðmund-
ur vélstjóri tók titlinum af mestu
rósemi og var með bátinn í viðgerð
í Reykjavíkurhöfh þegar ljósmynd-
ara DV bar að garði.
Talsímann var hann búinn að
eiga í u.þ.b. viku þegar hringt var í
hann og honum skýrt frá málavöxt-
um. „Mér flnnst þetta nú samt svo-
lítill brandari í aðra röndina," segir
nýbakaður fulltrúi íslenskra heims-
meistara f farsímaeign og -notkun.
Þann titil hlýtur Guðmundur einnig
því nú standa íslendingar jafnfætis
Finnum hvað varðar farsímaeign.
Segja má að kaup Guðmundar á Tal-
síma hafi því fleytt íslendingum
upp að hlið Finna í farsímavæðing-
unni.
Fjöldi farsíma í notkun á íslandi,
sem hlutfall af íbúafjölda, er nú
70,3% sem þýðir að alls eru um
Heimsmethafi frá Húsavík
Guömundur vélstjóri, fimmtíu þús-
undasti viöskiptavinurinn, um borö í
Aroni ÞH 105. Af þessu tilefni færði
Tal Guömundi 50.000 króna
inneign í símann.
197.000 farsímar í notkun. Þá eru
virkir notendur 171.000 talsins en
voru fyrir rúmum tveimur árum að-
eins 50.000. Hingað til hafa Finnar
verið heimsmeistarar en nú höfum
við jafnað metin og skjótum þeim ef-
laust ref fyrir rass á næstu vikum ef
fram heldur sem horfir. Til saman-
burðar má geta þess að í N-Ameríku
er fjöldi farsíma um 30% af íbúa-
fjölda en víðast hvar í Evrópu er
hlutfallið 50 til 60%. En ekki á ís-
landi, þetta snertir jú hina frægu
höfðatölu. -HH
Fjallamaraþon
Þátttakendur leggja afstaö i þriggja sólarhringa keppnisferö um fjöll og firnindi. - Sjá nánar bls 58
80 milljónir boðnar í Tjarnargötu 30:
Eigandinn vill fá
120 milljónir
- fermetraverðið á 300 þúsund krónur
Ég fékk tilboð í húsið upp
Tjarnargata 30
— Mörg tilboö á ári.
á 80 milljónir króna. Ég gerði
gagntilboð upp á 120 milljónir
og síðan ekki söguna meir,“
sagði Magnús Ólafsson, við-
skiptafræðingur og eigandi að
húseigninni að Tíarnargötu
30. „Ég hef átt húsið í ein 18
ár og fengið tilboð í það ár-
lega. Sérstaklega frá kvótaeig-
endum og öðrum slíkum. En
þaö er svo mikill draugagang-
ur í húsinu að ég veit ekki
hvort nokkur getur búið þar
nema ég og fjölskylda mín.
Hér líður okkur vel þrátt fyr-
ir allt,“ sagði Magnús.
Miðað við tilboðið sem
Magnús fékk í húseign sina,
sem er 400 femetrar að stærð,
er fermetraverðiö um 200
þúsund krónur. „Það er
ásættanlegt verð á þessum
stað,“ sagði fasteignasali sem
inntur var eftir verðinu. Ef
miðað er við gangntilboð
Magnúsar upp á 120 milljónir króna
þá er fermetraverðið komið upp í
300 þúsund krónur og ......það er
toppverð," sagði sami fasteignasali.
Það voru aðilar úr reykvískum fjár-
málaheimi sem komu tilboöinu
áleiðis til Magnúsar á Tjamargötu
30 og sömu aðilar tóku á móti
gagntilboði hans.
DV tókst ekki að fá staðfestingu
um það hverjir stæðu aö baki
tilboðunum. -EIR
Suede-tónleikar í október
Breska stórhljómsveitin Suede
spilar á tónlistarhátíðinni Iceland
Airwaves 2000 19.-21. október. Búist
er við allt að tvö þúsund erlendum
tónleikagestum gagngert á hátíöina
sem er hluti af Reykjavík menning-
arborg Evrópu árið 2000. Visir.is
greindi frá.
Ekki má breyta
Forsætisráðherra
segir það stríða
gegn reglum Þing-
vallanefndar að
breyta notkun Hót-
els Valhallar á
Þingvöllum í sum-
arhús og ekki geti
orðið af því nema
með því að flytja húsið á brott. RÚV
greindi frá.
Kærir Félag fasteignasala
Hugbúnaðarfyrirtæki Kuggur
ehf. kærði í gær Félag fasteignasala
til Samkeppnisstofnunar. Ástæða
Kuggs er sú aö félagiö hefur gert
það að skilyrði fyrir inngöngu
nýrra félaga að þeir kaupi hugbún-
aðinn Húsvaka sem er 1 beinni sam-
keppni við kerfi Kuggs, Húsval. Vis-
ir.is greindi frá.
Hjartasjúklingar mótmæla
Stjórn Landssamtaka hjartasjúk-
linga hefur samþykkt harðorð mót-
mæli gegn auknum lyfjakostnaði.
Samtökin vísa til þess að margir
hjartasjúklingar eru mjög háðir sín-
um lyfjum. Dæmi eru um allt að
73% hækkun á lyfjaskammti. Bylgj-
an greindi frá.
Menningarnótt
Menningamótt í
miðborginni verður
haldin í fimmta
sinn laugardaginn
19. ágúst næstkom-
andi. Markmið
menningamætur er
að beina kastljós-
inu að þvi blómlega
menningarstarfi sem fram fer í
borginni og kveikja áhuga á menn-
ingarviðburðum hjá fólki á öllum
aldri. Vísir.is hefur nú sett upp yfir-
gripsmikla síðu þar sem hægt er að
kynna sér allt það sem i boði verð-
ur þessa nótt. Visir.is greindi frá.
Víöa vantar fólk
Vandræðaástand er víða á vinnu-
markaðnum. Víða vantar fólk og
hafa fyrirtæki leitað út fyrir land-
steinana til að fá fólk í vinnu. Jón
Baldvinsson, framkvæmdastjóri
Ráðningarþjónustunnar, segir að
ástandið hafi sjaldan verið eins
slæmt. RÚV greindi frá.
2000 ferðamenn daglega
Um 2000 erlendir ferðamenn
komu til landsins dag hvem að með-
altali í júlímánuði síðastliönum.
Þann mánuð komu samtals rúmlega
59.600 erlendir ferðamenn tO lands-
ins sem er fjölgun um 9000 frá sama
mánuði í fyrra. RÚV greindi frá.
Fjölmenni
Hátt í 80 ungmenni komu á sam-
verustund sem haldin var í Félags-
miðstöðinni Frostaskjóli fyrir ungt
fólk sem á um sárt að binda eftir
hópslys að undanfomu þar sem
ungt fólk hefur látið líflð eða slasast
alvarlega. Bylgjan greindi frá.
Bann viö rækjuveiöum
Sjávarútvegsráðuneytið hefur gef-
ið út reglugerð um bann við rækju-
veiðum fyrir Norðurlandi. Reglu-
gerðin tekur gildi frá og með 20.
ágúst næstkomandi. Visir.is greindi
frá. -KEE