Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2000, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000
37
Helgarblað
þó ekki við hæfi að ég færi að gefa
sjálfum mér gullplötu - mér þótti
það aðeins of hégómagjarnt."
Þrátt fyrir velgengni Hallbjörns
og nýju plötunnar var Hallbjörn
ósáttur.
„Ég var ósáttur við Frelsarann -
að þetta skyldi vera þaö sem þyrfti
til þess að vekja mig. Þessi plata
vakti gríðarlega athygli og það
rigndi yfir mig skemmtanabeiðnum
næstu þrjú árin. Ég ferðaðist um
landið þvert og endilangt þar sem
ég flutti mína dagskrá og ég naut
þess innilega að vera kominn aftur
á stjá.“
Kántrýbær brennur
En hörmungum Hallbjörns var
ekki lokið með slysi afabarnsins.
Nóttina 22. október 1997 brann Kán-
trýbær og allar þær minningar sem
vagga kántrýtónlistarinnar hafði að
geyma.
„Nóttina sem þetta gerðist fór ég
út á planið héma fyrir framan og
horfði á hjarta mitt fuðra upp. Bær-
inn brann með öllu sem í honum
var og hjarta mitt brotnaði enn eina
ferðina. Ég gat engan veginn áttað
mig á því hvað það var sem ég hafði
gert til þess að verðskulda alla
þessa baráttu og spurði Drottin að
„Eftir gresjunni kemur maður“
Hallbjörn gaf út plötu áriö 1989 til þess aö fjármagna aögerð sem miöaöi aö því aö gefa einu barnabarna hans
heyrnina aftur. Piatan seldist gríöarlega vel og meö réttu heföi Hallbjörn átt aö fá gullplötu. Þaö þótti
honum þó heldur of hégómlegt.
Draumurinn endurbyggöur
Eins og þjóöin man þá brann Kántrýbær aöfaranótt 22.
október 1997. Þaö er íslensku þjóöinni aö þakka aö
bærinn var endurbyggöur - Kántríbær er eign þjóöarinnar.
því hvað ég hefði mögulega gert.
Tengdasonur minn kom til mín á
meðan Kántrýbær stóð í ljósum log-
um og lagði hönd sína á öxl mér og
sagöi: „Við byggjum þetta allt aft-
ur.“ Ég hugs-
aði bara með
mér: „Hann
er bjartur,
þessi!“ Mér
fannst það
ekki koma til
greina og þótt
ég væri
tryggður þótt-
ist ég vita að
það væru
ekki til pen-
ingar fyrir
því.“
Næstu daga
rigndi yfir
Hallbjöm
stuðningsyfir-
lýsingum frá
landsmönn-
um öllum þar
sem þeir sögð-
ust styðja við
bakið á hon-
um í erfiðri
baráttu.
„Ég var
ekki viss
hvemig ég
átti að bregð-
ast við þess-
um símtölum
________ og bréfum
sem rigndi
yfir mig. Ég fékk þó hugdettu sem
ég ákvað að fylgja eftir. Ég ætlaði að
láta reyna á stuðning landsmanna -
kanna hvort þetta væri jafnt á borði
sem í orði. í framhaldi af því sendi
ég út gíróseðla víða um land þar
sem ég óskaði eftir því að fólk borg-
aði eitt þúsund krónur til þess að
endurbyggja Kántrýbæ. Ég átti svo
sem ekki von á miklu en landsmenn
létu ekki á sér standa. Áður en ég
vissi af höfðu sex milljónir safnast
til þess að endurbyggja Kántrýbæ.
Það fer ekkert á milli mála að lands-
menn eiga Kántrýbæ. Ég veit ekki
með vissu hverjir það voru sem
borguðu þúsundkallinn - margir
borguðu mun meira - en til þess að
taka af allan vafa segi
ég ávallt að Kántrýbær
er í eigu íslensku þjóð-
arinnar."
Hinn nýi Kántrýbær
var opnaður 27. júní
1998 og það fer ekkert á
milli mála hverjir eru
eigendur staðarins.
Þegar gengið er inn í
Kántrýbæ hangir þar á
vegg afsal Hallbjöms -
þar sem Hallbjöm af-
salar Kántrýbæ i hend-
umar á þjóðinni.
Andlit Skaga-
strandar
Sama ár og staður-
inn var opnaður á ný
var haldin önnur Kán-
trýhátíð - sú sjötta í
röðinni. Höfðahreppur
stóð fyrir hátíðinni og
hefur gert en Hallbjörn
er óumdeilanlegt andlit hátíðarinn-
ar út á við.
„Sú hátíð gekk þokkalega,“ segir
Hallbjöm en minnist hennar ekkert
sérstaklega. „Árið á eftir gekk mun
betur og sú hátíð var fjölmenn. Hing-
að komu sex, sjö þúsund manns og
sökum þess að við misreiknuðum
okkur komum við ekki út í plús. Há-
tíðin sem haldin var í ár hefur ekki
verið gerð endanlega upp en ljóst er
að ef allt gekk sem skyldi mun hún
koma út í plús.“
En hvemig leið Hallbirni þegar
hann gekk um götur Skagastrandar á
nýliðinni Kántrýhátíð?
„Ég get ekki sagt að ég hafi kiknað
í hnjáliðunum. Þetta er að sjálfsögðu
sigur - sigur Skagastrandar hversu
vel þetta hefur gengið."
Hallbjöm er hógvær þegar hann er
spurður að því hvort hann sé ekki
Skagaströnd holdi klædd - hvort það
hafi ekki verið hann sem kom Skaga-
strönd á kortið.
„Ég myndi kannski ekki taka svo
sterkt til orða sjálfur. Engu að síður
hefur mér verið sagt að ég „eigi
Skagaströnd", að það sé fyrir mína
tilvist að Skagaströnd sé merkt inn á
kortið. Ég vill lítið út á það gefa sjálf-
ur. Hins vegar hefði ég ekkert á móti
því að eignast Skagaströnd einhvern
tíma - tíminn mun líklega leiða það í
ljós hvort af því verður," segir Hall-
björn og yfir andlit hans færist bros
sem svo margir íslendingar þekkja.
Framtíðin
Hallbjörn hefur ekkert samið í
tvö ár og segist ekki ganga með
plötu „í maganum".
„Það blunda ekki í mér nein lög.
Einhvern daginn mun ég þó gefa út
meira og ég hef gælt svolítið við það
að gefa út jólaplötu sem yrði þá hin
tíunda og síðasta í röðinni. Ætli
hún muni ekki bara heita Kántrý
jól.“
Hallbjöm segir að hann sé enn þá
þungur marga daga og oft séu dimm
ský sem sveimi yfir honum. Hann
segist ekki geta sagt að hann sé
glaður í hjartanu, „en ég hef þó
trúna á Frelsarann og barnabörnin
mín sem færa mér svo mikla gleði.
Það er ekki loku fyrir það skotið að
ég verði glaður í hjartanu - ég trúi
því.“
-ÓRV
Tilgangur lífsins
/ dag eru þaö trúin á Guö og barnabörnin sem gefa Hallbirni tilgang í lífinu. Hérna er
hann ásamt fjórum af tíu. Frá vinstri: Linda Rós Ómarsdóttir, Eva Dís Gunnarsdóttir,
afi, Auöur Valdís Grétarsdóttir og Alex Már Gunnarsson.
Enn við stjórnvölinn
Útvarp Kántrýbær sendir út kántrýtónlist allan sólarhringinn - alla daga
ársins. Oftar en ekki má heyra rödd Hallbjörns glymja í viötækjum
Skagstrendinga og nærsveitarmanna.
Friðrik Þór Friðriksson man glöggt eftir fyrstu Kántrýhátíðinni:
Eitt af mínum
bestu verkum
- segir kvikmyndagerðarmaðurinn um kvikmynd
Kántrýhátíðin árið 1984 líður
fólki seint úr minni. Á hátíðinni
var mikið af mætum mönnum sem
hafa sagt margar góðar sögur í
seinni tíð. Einn þessara manna var
kvikmyndagerðarmaðurinn Frið-
rik Þór Friðriksson sem ákvað að
kvikmynda hátíðina upp á sitt eins-
dæmi.
„Enn þann dag i dag þykir mér
myndin sem þarna var gerð vera
eitt af mínum bestu verkum,“ sagði
Friðrik Þór þegar DV náði tali af
honum í vikunni.
„Ég fór ásamt öðrum kvik-
myndagerðarmönnum og tók upp
mynd um atburðinn sem síðar var
sýnd í kvikmyndahúsum borgar-
innar."
Myndin þótti skemmtileg og þeg-____________________
ar menn eru minntir á hana muna Fríðrik Þór Fríðriksson
sem hann gerði um hátíðina
allir eftir henni. Af gæðum mynd-
arinnar fara þó tvennar sögur --
sumir segja jafnvel að myndin hafi
nú ekki alltaf verið í fókus og ann-
að eftir því.
„Þama skemmtu menn sér kon-
unglega og þetta þótti nýbreytni
svo ekki sé meira sagt,“ bætir Frið-
rik við. Kálfar voru snaraðir, boð-
ið var upp á nautaat og kúrekar
riðu á barinn á hestum.
„Hestarnir voru síðan eins og
beljur á svelli þar sem gólfið var
svo hált,“ segir einn gárunginn
sem man glöggt eftir hátíðinni.
„Á hverju kvöldi stóð síðan Hall-
björn fyrir balli sem allir skemmtu
sér konunglega á,“ bætti Friðrik
Þór við í lokin og það skyldi engan
undra þegar konungur kántrýsins
tók að sér að skemmta fólki. -ÓRV