Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2000, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2000, Side 2
2_______ Fréttir ^ Fjöldi fólks tók á móti íslendingi í Boston í gær: Islendingur náð aug- um 70 milljóna manna - segir Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra íslands í Bandaríkjunum DV, BOSTON: Víkingaskipiö Islendingur kom til Boston í Massachusettsríki í Bandaríkjunum í hádeginu í gær. Mikil fjöldi fólks var viðstaddur komuna, auk þess sem fjöldi blaða- og fréttamanna fylgdist með þegar skipið sigldi inn í höfnina í blíð- skaparveðri. Koma skipsins hefur vakið töluvert mikla athygli fjöl- miðla vestanhafs. íslenska þjóðlaga- hljómsveitin Embla spilaði islensk þjóðlög ásamt því sem ráðamenn frá Bostonborg fluttu ræður. „Ferðin hefur gengið ákaflega vel,“ sagði Gunnar Eggertsson, skip- stjóri íslendings, við komuna til Boston. „Við fengum töluvert mik- inn straum þegar við komum upp að ströndum Nýfundnalands á dög- unum og síðan smábrælu á leiðinni frá Kanada til Bandaríkjanna, án þess að það hafi komið að sök.“ Hvorki Gunnar né aðrir meölim- ir áhafnarinnar könnuðust við það að dvölin um borð væri farin að verða langdregin en viðurkenndu þó að þau væru oröin þreytt. í næstu viku mun íslendingur verða til sýnis i höfninni í Boston og mun áhöfnin tala við gesti og gangandi. Veit- Þreyttir en ánægðir Áhöfn íslendings var þreytt en ánægð viö komuna til Boston í gær. Skipið mun verða bundið viö bryggju í Boston til 14. september. ingastaðir í Boston munu margir hverjir bjóða upp á íslenskan mat- seðil og í dag mun Siggi Hall, í fé- lagi við aðra matreiðslumeistara, elda íslenskan flsk ofan í gesti sæ- dýrasafnsins í Boston. Jón Baldvin Hannibalsson, sendi- herra íslands í Bandaríkjunum, var einn þeirra sem tók á móti íslend- ingi í gær. „Þessi ferð hefur vakið griðarlega athygli hérna vestanhafs og velflest- ir fjölmiðlar hafa fjallað um málið. Meðal annars hefur heimildamynd verið sýnd á kapalkerfl héma úti og náð augum 70 milljóna manna. Það er engin spurning að þessi ferð er fjárfesting sem hefur borgað sig og vel það.“ Aðspurður sagði Jón Baldvin að hann teldi þetta einnig koma til með að skila sér í aukningu bandarískra ferðamanna til íslands á þessu ári og í framtíðinni en aukning er- lendra ferðamanna til íslands hefur verið mest frá Bandaríkjunum á sl. ári. „Það versta er kannski það að ef þetta skilar sér fyllilega komum við ekki til með að geta annað þessu. Á íslandi eru einfaldlega ekki til hótel handa öflu þessu fólki,“ bætti Jón Baldvin við. íslendingur heldur til Providence í Rhode Island 14. september og það- an verður förinni heitið til New Haven í Connecticut. Síðasti við- komustaður íslendings verður í New York-borg 5. október. -ÓRV Elvars Arnar enn saknað Lögreglan í Reykjavík leitar enn Elvars Arnar Gunnarssonar, 33 ára gamals Reyk- víkings. Síðast er vitað um ferðir hans við JL-húsið við Hringbraut 6. ágúst siðastliðinn. Elvar Örn er grannvaxinn, um 175 cm á hæð og með dökkt, stutt hár. Að sögn Jónasar Hallssonar að- stoðaryfirlögregluþjóns leituðu hjálparsveitir árangurslaust að El- vari Emi um síðustu helgi. Þá var leitað með hundum á landi, fjörur gengnar frá Seltjamamesi að Gróttu og bátar sendir út. Einnig hafa hugs- anlegar utanlandsferðir Elvars Am- ar verið kannaðar en ekki virðist sem hann hafl farið úr landi. Eftir að lýst var eftir Elvari Emi í fjölmiðlum bámst margar vísbend- ingar en engin þeirra reyndist eiga við rök að styðjast. -SMK Hafnarfjöröur: Eldur í skúr Eldur kom upp í geymsluskúr vestast í Hafnarfirði um tvöleytið í nótt. Slökkviliðið mætti á svæðið og gekk greiðlega að slökkva eldinn. Rífa þurfti þakið af skúrnum sem var einangrað með spónum. í skúm- um voru geymd mótorhjól og vélsleði. Talsverðar skemmdir urðu á skúmum og því sem í honum var. Lögreglan í Hafnarfiröi rannsakar nú upptök eldsins. DV-MYND EINAR J. í fjötrum Busavígslur eru með ýmsum hætti. Þessar fjötruðu dömur rakst Ijósmyndari DV á í miðbæ Reykjavíkur, en þær þurftu að þola ýmislegt misjafnt við inngöngu í skólann sinn af hálfu efri bekkinga. Framkvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf.: Umsóknir hrannast upp - starf Fríhafnarforstjóra lagt niður Fjölmargar umsóknir hafa þegar borist um starf framkvæmdastjóra nýstofnaðs hlutafélags Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á Keflavíkuflug- velli: „Umsóknarfrestur rennur úr 15. september og ný stjóm tekur við rekstri flugstöðvarinnar um næstu mánaðamót þannig að við verðum að hafa hraðan á,“ segir Gísli Guð- mundsson, stjómarformaður hins nýja hlutafélags. „Við erum að leita að framkvæmdastjóra til að gegna veigamiklu starfi því flugstöðin veltir 4 milljörðum á ári en tekjum- ar koma að mestum hluta frá Frí- höfninni." Við ráðningu framkvæmdastjóra flugstöðvarinnar verður starf for- stjóra Frihafnarinnar lagt niður og mun Fríhöfnin falla beint undir framkvæmdastjóra. Launin sem í boði eru fyrir nýjan framkvæmda- stjóra em, samkvæmt heimildum DV, undir milljón krónum á mán- uöi. Ómar Kristjánsson hefur gegnt starfi forstjóra Flugstöðvar Leifs Ei- ríkssonar undanfarin tvö ár og mun hann vera í hópi fjölmargra ann- arra umsækjenda um starf fram- kvæmdastjóra. -EIR Flug vöruflutningaflugvélar frá Afríku: Fullt samráð í tilefni af frétt í DV, 7. sept- |UjjL 4|p|n flugvél er á lista yfir flug- ember, þar sem fjallað er um |S? | ;||1 vélar sem hafa sérstaka flug vöruflutningaflugvélar frá t| tój undanþágu frá hávaöa- Afriku á vegum Flugleiða, seg- reglum Evrópusam- ir flugmálstjóri að fullt samráð >'*• J bandsins til að fljúga til hafi verið milli Flugmála- pfr ' , , :}■ Evrópu. Úttekt sem gerð stjórnar og samgönguráðherra I V ‘ ,/m var af eftirlitsmönnum varðandi heimild tO umrædds flugöryggissviðs Flug- flugs. Allt er varðar flugörygg- málastjórnar við komu ismál er á valdsviði Flugmála- I—vélarinnar tfl íslands stjómar en samgönguráðherra Þorgeir Pálsson leiddi ekkert í ljós sem veitti flugréttarlega heimild til flu£málastjóri gæfi tjjefnj tjj ag hefta fer flugsins, enda var um að ræða flug- hennar eða benti til að hætta stafaði vél frá landi sem hefur ekki loft- af þvi að hún héldi áfram flugi sínu feröasamning við ísland. Umrædd héðan. FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2000 x>v Ríkið fer ekki að reglum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borga- stjóri sagði í viðtali við Vísi.is að við- skipti ríkisins færu oft ekki í útboð, þar með talin heilmikil viðskipti milli Landssímans og menntastofnana. Hafa skipað flesta Skipan nýs hæstaréttardómara er af mörgum talin pólitísk og gegn anda jafnréttislaga. Meirihluti dóm- ara Hæstaréttar er skipaður af ráð- herrum Sjálfstæðisflokksins. Dagur sagði frá. Ólögleg leiga félagsíbúða í vöxt færist að óprúttnir eigend- ur félagslegra íbúða í Reykjavík leigi út íbúðir sínar án leyfis. Dagur sagði frá. Tannlæknar munnhöggvast Reynir Jónsson, yf- irtryggingatannlækn- ir Tryggingastofnun- ar ríkisins, höfðar meiðyrðamál gegn Gunnari A. Þormar tannlækni vegna ásakana Gunnars í garð Reynis á aðal- fundi Tannlæknafélags Islands og vegna ásakana Gunnars í fjölmiðl- um. Dagur sagði frá. Flugvél út af brautinni Farþegavél frá Flugfélagi íslands lenti með nefhjól og annað aðalhjól utan brautar í flugtaki á Reykjavik- urflugvelli í gærkvöld. Vaxandi óánægja Alfreð Þorsteinsson borgarfull- trúi sagði í Sjónvarpinu að vaxandi óánægja væri innan Framsóknar- flokksins með vinnubrögð einstakra ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Gjaldskrá leigulína lækkar Landssíminn lækkar verð fyrir leigulínur i stofnlínukerfi sinu um 10 til 60 prósent. Mannleg mistök í sjóprófum í Héraðsdómi Vestur- lands í Borgamesi i gær sagðist skipstjóri ferjunnar Baldurs hafa litið undan stefnu skipsins þegar það steytti á skeri á dögunum. Mbl: sagði frá. Gistu í kirkjunni Meðhjálparinn i Stórólfshvols- kirkju á Hvolsvelli hefur tvisvar orðið var við það í sumar að erlend- ir ferðamenn hafi gist í kirkjunni og segir að það hafi gerst áður. Mbl. sagði frá. Kristinn Guðbrandsson látinn Kristinn Guðbrandsson, forstjóri Björgunar hf., lést að heimili sínu á miðvikudag, 78 ára að aldri. Krist- inn fæddist í Raknadal við Patreks- fjörð. Mbl. sagði frá. Datt um skóreimar Kona sem var á gangi fyrir utan Iðnskólann í Reykjavík í gærmorg- un var svo óheppin að stíga á skóreimar sínar með þeim afleiðing- um að hún féll á vélarhlíf bifreiðar og slasaðist nokkuð. Mbl. sagði frá. VISA-hnífurinn í Bónuskúnni Bónus og VISA hafa enn ekki náð samakomulagi uni greiðslukortavið- skipti. Bónus vill að þeir sem nota greiðslukort greiði hærra verð en VISA neitar. Mbl. -GAR sagði frá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.