Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2000, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2000, Side 26
^______ Tilvera FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2000 DV Meðgöngutími Dagblaðsins síðsumars 1975: Fjörutíu dagar og fjörutíu nætur Dagblaöið stofnaö Stofnfundur Dagblaðsins hf. var haldinn sunnudaginn 7. september, gert var hlé á störfum og stólum komiö fyrir í anddyri hússins þar sem starfsmenn og nokkrir fleiri tóku þátt í að stofna einstakt fyrirtæki. Hér eru á mynd þeir Jónas Kristjánsson, ritstjóri DB, Björn Þórhallsson, Benedikt Jónsson, starfsmaður DV, Sveinn R. Eyjóifsson, fram- £ kvæmdastjóri Dagbtaösins, og Jón Birgir Pétursson fréttastjóri. 17 Vísismenn meðal 23 fyrstu starfsmanna Sá sem þetta ritar var Visismað- ur í 13 ár og fréttastjóri þess blaðs Lögbannsturninn Utandyra var söluturn sem vakti mikla athygli en í bás í höllinni gafst fólki kostur á að verða áskrifendur. Það er óhætt að fullyrða að áskriftir seldust eins og heitar lummur. DAGBLAÐID kom glóövolgt úr ^pressunni upp úr hádeginu mánu- daginn 8. september 1975. Fyrstu eintökin fóru aö renna í gegnum pressuna í Blaöaprenti klukkan rétt rúmlega hálftvö, sautján mín- útum eftir aö prentun á keppi- nautnum, Vísi, lauk þennan dag. Dagblaöiö var strax í byrjun bylt- ing og stór nýjung í íslenskum blaöaheimi, djarft og ágengt blaö sem vann fyrir venjulegt íslenskt fólk en hafnaöi þunglamalegu kerfi þess tíma. Eftir þessu blaöi var beöiö með mikilli óþreyju og blaöið brást ekki vonum lesenda sinna. Lungann úr sumrinu höföu áform um stofnun blaösins veriö í fréttum og vakið forvitni og vonir fólks. Þúsundir geröust áskrifend- *ar að blaöinu óséöu, áöur en þaö kom á markaö. Enn aðrar þús- undir voru orðnar litlir hluthafar í fyrirtœkinu þegar það kom á markaö. Sprengja féll á miðbæinn Fyrstu blöðunum var ekið í sendiferðabíl frá Blaðaprenti i Síðumúla 14 niður í miðbæ. Þar beið eftir þessu fyrsta blaði ungt sölufólk, sem var 200 til 300 talsins í upphafi Dagblaðsins, og lesendur j^em biðu blaðsins í blíðu haust- veðri í Austurstrætinu, við apó- tekið. Gatan minnti á vel lukkaða menningarnótt, fólk stóð hvar- vetna og las eða umkringdi sveitta blaðasalana og beið þess að hreppa eintak. Móttökumar voru glæsi- legar og blaðið líkaði vel alveg frá fyrsta blaði; það mátti strax heyra á fólkinu. Áttundi september var sigurdag- ur fyrir hóp fólks sem hafði lagt mikla vinnu og krafta í að koma þessu blaði út. Á ritstjóm blaðsins var korkur dreginn úr kampavíns- flösku og menn skáluðu fyrir til- verunni og glæstri framtíð Dag- blaðsins. Það er ekki ofmælt að starfsmenn á ritstjórn voru ^.allslæptir eftir margra vikna und- irbúning að fæðingu þessa blaðs og lítið glas af frönskum eðalveig- um verkaði furðu sljóvgandi á menn. Þannig gleymdum við loka- hnykkniun, sölunni á götum borg- arinnar. Við sváfum á verðinum allt þar til síminn hringdi og eigin- kona, stödd i miðbænum, spurði hvort ekki ætti að mynda hama- ganginn í miðborginni. Það væri allt orðið vitlaust i kringum blaða- salana. Og Bjamleifur og Björg- vin, ljósmyndarar blaðsins, þustu á staðinn og komu til baka með eftirminnilegar myndir. Blaðið sem kom út þennan morgun, 40 síðna tvískipt blað, var prentað í 37 þúsund eintökum samkvæmt prentskýrslu Blaða- prents. Þetta stóra upplag var rifið út á stuttri stund. Vísir hafði prentað rúm 23 þúsund eintök þennan dag. Elii Már afgreiðslu- stjóri stýrði sínu fólki eins og her- foringi, kominn nóttina áður frá sólarströnd, og dreifði nú blaðinu vítt og breitt á höfuðborgarsvæð-. / inu og út á land og jafnvel tii út- , landa. t Allt of fá eintök höfðu verið f prentuð, það var ljóst, allt var ' uppurið á afgreiðslu. Líka var / ljóst að annað stærsta blað * landsins fæddist þennan dag og ‘ Mogginn mátti passa sig. f BlAfírn Ríkinu gefið langt nef Undirbúningurinn ac þessu fyrsta tölublaði Dag- f blaðsins tók tímann sinn - mér reiknast til að það hafi verið „fjörutíu dagar og f fjörutíu nætur“ eins og . sagt hefur verið, allavega / skeikar þar ekki miklu, / en trúlega voru undir- ’ búningsdagar og -nætur / fleiri hjá frumkvöðlun- | um, Sveini og Jónasi. t Allt frá því um mitt f sumar var stofnun Dag- blaðsins rædd og und- j irbúin. Hópur manna t hittist kvöld eftir * kvöld og bollalagði ' um stofnun blaðsins. Heimili Jónasar Kristjáns- sonar og Kristínar Halldórsdóttur, konu hans, vestur á Seltjamamesi var oftar en ekki fundarstaðurinn og hvíldi allmikil launung yfir þessum samkomum. Þar var skraf- að og skeggrætt tímunum saman og langt fram á nótt. Hundruð at- riða þurfti að ákveða, meðal ann- ars nafn blaðsins, og komu all- mörg til álita. Sem betur fer völdu Frum- buröurlnn Fyrsta tölublað Dagblaðsins með fjörmiklar fréttir á forsíðu. Blaðið var annars nokk- uð litlaust miðað við það sem síðar varð. menn rétta nafnið, Dagblaðið, ein- falt og virðulegt nafn. Það var hiti í mannskapnum, menn voru fullir af hugsjónum og hugmyndirnar streymdu fram í stríðum straum- um. Menn vildu stofna alvörudag- blað sem væri laust við að þjóna kenjum og dyntum stjómmála- flokkanna, blað fyrir fólkið. Það var vitað að öll önnur dagblöð voru á einn eða annan hátt hnýtt aftan í flokkana. DB var því blað með nýja hugmyndafræði í ís- lenskri blaðamennsku. Ráðuneytismaður, Björn Frið- finnsson, hringdi í DB einn af fyrstu dögunmn og sagði með all- nokkru yfírlæti við fréttastjórann, sem hafði gripið simann, að rikið myndi að sjálfsögðu styrkja hið unga blað og kaupa af þvi sama skammt og af öðrum blöðum. Þessu var þegar hafnað í fyrsta simtali og bent á að ríkinu væri í sjálfsvald sett hvort það keypti eða keypti ekki Dagblaðið. Það blað væri frjálst og óháð og ekki á rik- isframfæri. Þetta þótti okkar gamla fréttaritara við Mývatn á Vísisárunum ekki fyndið, enda vanur því að blöðin lægju í duft- inu þegar þessi voldugi blaðakaup- andi birtist með innkaup eða „styrk“ fyrir að kaupa 250 blöð, auk þess að ráða yfir auglýsingum frá því opinbera. í 9 ár en bauðst sama staða hjá hinu nýja blaði. Það skal viður- kennt að valið milli blað- anna tveggja var erfitt fyrst í stað. En ákvörðunin hlaut þó á endanmn að verða sú að fylgja ágætum félögum frá Vísi. Und- irbúningur fór á fulla ferð í ágúst og unnið var af miklum eldmóði og dugnaði allra sem komu við sögu. Frá Visi komu alls 17 starfsmenn til að taka þátt í Dag- blaðs-ævintýri sem eng- inn vissi fyrir fram hvemig tækist til, þar af voru 8 blaðamenn, fjórir handritalesarar, tveir ljós- myndarar og fjórir af skrif- stofu og afgreiðslu hjá Visi. Alls voru fyrstu starfsmenn blaðsins 23 talsins en næstu daga og vikur fjölgaði tals- vert í starfsliðinu, enda reyndist blaðið meira fyrir- tæki en jafnvel bjartsýnustu menn höfðu þorað að vona. Dagblaðið byrjaði með tvær hendur tómar og ekki vantaði að blaðinu væri spáð illum endi. Húsnæði þurfti að leigja á tveim- ur stöðum í borginni, að Síðu- múla 12, sem er sambyggt Síðu- múla 14, þar sem Vikan var með ritstjóm og Axel Kristjánsson, að- alræðismaður S-Afríku, með skrif- stofu. Áður var þetta húsnæði nýtt sem varahlutalager fyrir Fokker- flugvélar Flugfélags fslands. Hluta af þessu húsnæði fékk DB til um- ráða, 3-4 herbergi, framköllunar- kompu og myndasafn, auk ofurlít- illar móttöku. Þegar búið var að raða niður blaðamönnum kom í ljós að ekkert skrifborð var til fyr- ir ritstjórann, Jónas Krist- jánssson! Hann lét sér lynda um talsverðan tíma að sitja frammi á gangi og ræða við viðskiptavini þar og í símum hér og þar um rit- stjómina. Innréttingasmiöir af guðs náð Það gerðist um helgi að rit- stjórnin hjá DB varð til. Þeir bræður, Þorbergur og Páll Sævar Kristinssynir, komu og gerðu kraftaverkið. Þeir fengu sniðnar spónaplötur hjá Árna Jónssyni hf. og gerðu að litlum skrifborðsplöt- um sem sátu á hliðum niður á gólf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.