Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2000, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2000, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2000 Neytendur I>V Vissir þú að - í Japan er vinsælasta áleggið á pitsur kolkrabbi! - hver Bandaríkjamaður etur að meðaltali 11 kíló af tómötum árlega en helmingur þess er í formi tómatsósu af einhverju tagi. - epli, laukur og kartöflur bragð- ast öll eins. Prófaðu að halda um nefið og bita í hvert um sig, svo lyktarskynið þvælist ekki fyrir. Allt bragðast þetta með sætum keim. - það eru til yfir 15.000 tegundir af hrísgrjónum. - sítrónur innihalda meiri sykur en jarðarber. - í Japan er mest seldi barnamat- ur í krukkum sardínur! ) - 88% af mjólk er vatn og aðeins 12% föst efni sem hafa næringargildi. - til eru yfir 400 þekktar tegundir af náttúrulegum osti. - að meðalfjölskylda í USA, 4 manna, etur um og yfir 6000 pund (3000 kg) af matvælum árlega. - það þarf um það bO 2000 kaffi- blóm til að nægar baunir fáist í hálft kíló af kafíi. - árið 1920 var heimabakstur brauða stundaður á yfir 70% heimila. - Earl Tupper fann upp og stofnsettir verksmiðju með plastílát árið 1945. Það varð byrjunin á hinu risastóra Tupp- . erware-veldi sem nú teygir sig um allan heim og ekki þykir neitt heimili með sjálfsvirðingu sem ekki státar af plastílátum í litaröð. - fyrsti örbylgjuofninn var kynnt- Dansskólarnir að hefja vetrarstarfið: Má bjóöa þér upp í dans? Dansskólar borgarinnar eru flest- ir farnir að innrita nemendur fyrir komandi vetur. Fjölbreytt úrval af danskennslu er í boði fyrir þá sem hafa áhuga á að setja á sig dans- skóna og fá sér snúning. Bæði geta pör og einstaklingar farið í dans- tíma. DV skoðaði úrvalið hjá nokkrum dansskólum i Reykjavík. Hjá Dansskóla Sigurðar Hákonar- sonar er meðal annars hægt að læra kántrí-línudans en slíkt námskeið stendur yfir í 14 vikur og er klukku- tíma í senn og kostar 11.000 krónur og það sama á við um námskeið í salsa, mambó og merenge. Þeir sem fara hins vegar á tvö slik námskeið fá helmingsafslátt á því síðara. Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar býður einnig upp á barna- og sam- kvæmisdans fyrir börn frá 4 ára aldri en barnanámskeiðin kosta 8900 krónur og eru í 14 vikur. Hver tími er 50 mínútur og sá síðasti er jólaball. Dansskóli Sigurðar Hákon- arsonar býður fjölskylduafslátt og í vetur verða meðal kennara erlendir gestakennarar. Dans fyrir alla Danssmiðjan er með námskeið fyrir börn frá 3 ára aldri og fyrir yngstu börnin, 3 til 6 ára, kostar námskeið í almennum bamadöns- um 7.900 krónur. Hver timi er 45 mínútur og kennt er í 14 skipti og síðan endað á jólaballi. Fyrir eldri bömin kostar námskeiðið hins veg- ar 8.900 krónur. Fyrir þá sem hafa áhuga á að skella sér i kántrídans hjá Danssmiðjunni kostar nám- skeiðið 9.900 krónur og er klukku- tími í senn og 14 skipti alls. Salsa- tímar eru 50 mínútur og kostar 14 tíma námskeið 8.900 krónur. Dans- smiðjan kennir víða um höfuðborg- arsvæðið. Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar býður upp á margs konar námskeið. Meðal þess er námskeiö sem kallað er Social Foxtrot, sem er aðallega fyrir fullorðna, en á því eru allir Dans Fjölbreytt úrval af danskennslu er í boöi fyrir þá sem hafa áhuga á aö setja á sig dansskóna og fá sér snúning. Bæöi geta pör og einstaklingar fariö í danstíma. dansar nema valsar kenndir og búið er að gera dansana plássminni þannig að þeir henti á dansleikjum. 14 vikna námskeið í bamadönsum, auk jólaballs, kostar 9.300 krónur og er hver tími 50 mínútur. Línudansa- námskeið kostar 9.900 krónur og er það tíu tímar en hver tími er ein klukkustund. Einnig fylgir bók námskeiðinu og í henni er að fmna lýsingar á dönsunum. 10 tíma salsa- námskeið kostar líka 9.900 krónur. Hjá Dansskóla Heiðars Ástvaldsson- ar er boðið upp á ókeypis kynning- artíma bæði fyrir börn og fullorðna og gefinn er systkinaafsláttur. Þar er lögð áhersla á að allir geti komið og lært dans. -MA EEI32 Danssmiöjan Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar, ur til sögunnar árið 1947. Bamadansar -14 vikur 8.900 staögreitt - meðalending þurrkara er 18 ár, Bamadansar -15 vikur 8.900 þvottavélar 13 ár, uppþvottavélar 12 ár, ísskáps 20 ár, eldavélar 18 ár og vatnshitara 13 ár. Línudans —10 tímar Línudans —14 tímar 9.900 11.000 Salsa, mambó, merenge 8.900 11.000 Dans fyrir keppnispör 14.000 tár \ Hjón á námskeiði 24.000 _JJiSJ Böm, yngri en 6 ára 7.900 9.900 Vistmenn - vinna fýrir jöröina Vistmenn eru fyrirtæki sem sér- hæfir sig í vistvænum lausnum og ráðgjöf til fyrirtækja, stofnana, sveitarfélaga og skóla um meöferð á lífrænum úrgangi. Fyrirtækið veitir ráðgjöf um end- urvinnslu og sorpflokkun og býður hentugar lausnir fyrir flokkunina. Vistmenn selja nokkrar tegundir af heimajarðgerðartönkum og fræðsla er í boði um hvernig á að breyta matarleifum í mold á nokkrum mánuðum. Þeir hafa verið í samstarfi við nokkur sveitarfélög sem hafa hvatt íbúa til heimajarð- gerðar, því það getur sparað sveitar- félögum umtalsverðar upphæöir ef fólk jarðgerir heima. Nefna má sem dæmi að ekki þarf að sækja annaö sorp til fjölskyldu, sem jarðgerir matarleifar, nema á 2-3 vikna fresti (yfirleitt vikulega núna), fyrir utan að víða þarf að aka sorpi um langan veg að urðun- arstað. Meðai sveitarfélaga sem Vist- menn eru i samstarfi við eru Akra- nes, Reykjavík, Súðavík, Siglufjöröur, Hvamms- tangi og Hrísey. Kvartanir vegna nýbygginga Mikið af kvörtunum hefur borist Neytendasamtökunum í sumar vegna nýbygginga. Ástæðan fyrir því er að í kaupsamninga skortir að sett séu inn ákvæði um að farið sé eftir ákveðnum stöðlum þegar ný- byggingum er skilað til kaupenda. Til er íslenskur staðall um nýbygg- ingar en hann er númer 51 og segir meðal annars til um hvenær ný- byggingar geta talist fokheldar og hvemig frágangi eigi að vera hátt- að. Neytendasamtökin vilja benda kaupendum nýbygginga á að láta setja ákvæði í kaupsamningana um að farið verið eftir þessum islenska staðli. Með því er hægt að koma í veg fyrir að kaupendur lendi í vandræð- um vegna nýrra bygginga. i Það er gott... ... að frysta epli. Fyrst þarf að skera þau í sneiðar og leggja þau í bleyti smástund í sítrónusafa bland- aðan með vatni svo þau mislitist ekki. Látið svo sneiðarnar í sjóð- andi vatn í tvær mínútur og kælið í ísköldu vatni í tvær mínútur og lát- ið renna af þeim. Sneiðið niður með ostaskera eða beittum hníf og frystið í hæfilega stórum einingum. ... að eiga kökuprjón til að kanna hvort kökumar séu fullbakaðar, en með honum má einnig stinga göt á grænmeti eins og eggaldin og kartöflur áður en það er bakað. ... að búa til eplamauk og frysta í plastpokum eða litl- um ílátum. ... að fara vel undirbúinn í helgarinnkaupin og vikuinnkaupin. Vera búinn að borða (jú, það skiptir máli), gefa börnunum að borða líka ef þau fá að fara með og fara á þeim tíma sem álagið er heldur minna, t.d. að morgni eða i miðri viku. Best er að kaupa til vikunnar í einu, aflt nema ferskvöru, en til þess þarf að vera búið að ákveða hvað á að vera í matinn þá vikuna. ... að eiga hýðis- hníf með hreyfan- legu blaði til að af- hýða ýmsa ávexti og grænmeti. ... að slökkva á ljósum í herbergj- um sem ekki er verið að nota hverju sinni. Einnig á raftækjum sem eyða rafmagni ef aðeins er slökkt á þeim með flar- stýringu. Raf- magnsveitan hefur gefið út afbragðs bæklinga þar að bomir hafa verið í lútandi sem hvert hús. ... að stilla ofnana vel í húsinu til að spara hitakostnað. Ekki láta einn ofn ganga á fuflu, þá fer vatnið of heitt út úr húsinu og hitareikning- urinn verður mun hærri. Þetta er sérstaklega mikið mál í fjölbýlishús- um þar sem einn aðili getur hækk- að heildarrreikninginn verulega, bara með því að vera kærulaus og láta hitann vera of háan hjá sér á þeim forsendum að það skipti ekki máli, þetta sé sameiginlegt. ... að nota sólblómaolíu ef bragðið á að vera hlutlaust, sesamolíu tfl að krydda austurlenska rétti en bal- samedik til að fá fram sætsúrt bragð sem sumum þykir óviðjafnanlegt. Ólífuolía er óviðjafnanleg til steik- ingar og í salöt en best er að kaupa aðeins bestu tegund af jómfrúrolíu. Beint samband við neytendasíðu Lesendur sem vilja ná sambandi við neytendasíðu DV hafa til þess nokkrar leiðir. í fyrsta lagi geta þeir hringt í beinEm síma: 550 5821. Faxnúmerið er: 5505020 og svo er það tölvupósturinn en póstfangið er: vigdis@ff.is. Tekið er á móti öllu því sem neytendur viija koma á framfæri, hvort sem það eru kvartanir, hrós, nýjar vörur eða þjónusta - eða spumingar um eitt og annað sem kemur upp á í daglegu lífi. Sé umsjónarmaður ekki við er tekið við skUaboðum. Vigdís Stefánsdóttir umsjónarmaður neytendasíðu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.