Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Qupperneq 6
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000
Fréttir
I>V
Málefni íslands á loftslagsráöstefnunni í Haag:
Landgræðsla verði leyfð
til að binda kolefni
- til mótvægis við aukna losun gróðurhúsalofttegunda
„Viö íslendingar munum leggja
einna mest áherslu á að land-
græðsla verði leyfð sem aðferð til að
binda kolefni til mótvægis við
aukna losun gróðurhúsaloftteg-
unda,“ segir Magnús Jóhannesson,
ráðuneytisstjóri í umhverfisráðu-
neytinu, um þau mál sem íslending-
ar munu vinna að á loftslagsráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna í Haag
sem hófst á mánudag. Magnús segir
að einnig sé áríðandi fyrir íslend-
inga að hið svokallað „islenska
ákvæði" fái frekari afgreiðslu til að
hægt sé að tryggja aðild íslendinga
aö samningnum.
Styðja ekki hömlur
Mörg stór mál liggja fyrir fundin-
um og meðal þess er að ná sam-
komulagi um hvaða leiðir eigi að
fara til að standa við markmið
Kyotobókunarinnar frá 1997 um að
draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda. Einnig verður fjallað um
sveigjanleikaákvæði bókunarinnar
Akureyri:
Slökkviliöið sér
um flugvöllinn
DV, AKUREYRI:
„Það er ákveðið að um áramótin
tökum við yfir rekstur ílugvallar-
slökkviliðsins. Stöðugildum íjölgar
um 3,5 hjá okkur við þetta og við verð-
um með sólarhringsvakt á ílugvellin-
um og tvo menn þar á vakt á þeim
tímum sem flugumferð er í gangi,“
segir Tómas Búi Böðvarsson, slökkvi-
liðsstjóri á Akureyri.
Samgönguráðherra, flugmálastjóri
og bæjarstjórinn á Akureyri hafa und-
irritað samning varðandi þessa yfir-
töku slökkviliðsins. Sá samningur
sem gerður var nær einnig til þess að
slökkviliðið á Akureyri annast þjálf-
un allra starfsmanna á landsbyggðar-
flugvöllum en þeir eru 14 talsins. Að
sögn Tómasar Búa Böðvarssonar er
gert ráð fyrir æfingum ailra flugvall-
arstarfsmanna tvisvar sinnum á ári.
Hvað varðar Akureyrarflugvöll segir
Tómas Búi að slökkviliðið muni hafa
umsjón og eftirlit með flugbrautinni
og sjá um bremsumælingar og veður-
gjöf, auk þess að hafa eftirlit með flug-
sögutækjum.
I skoðun er hvort byggð verður ný
slökkvistöð á Akureyri en slökkvilið-
ið þar er reyndar í nýlegri stöð við Ár-
stig. Ef af yröi yrði byggð slökkvistöð
nærri flugvallarsvæðinu en þó nærri
miðbænum. Tómas segir þessi mál í
skoðun. -gk
sem tekur meðal annars til aðstoðar
við þróunarríki og hvort iðnríki,
sem fara í verkefni í þróunarlönd-
unum sem leiða til minni losunar,
eigi rétt á að fá hluta þeirra dreginn
frá losuninni heima fyrir. Engar
takmarkanir voru settar á losun frá
þróunarríkjunum.
Reiknað er með hörðum deilum á
milli fulltrúa Bandaríkjanna og
ESB-ríkjanna um hugsanleg við-
skipti með losunarkvóta. Fulltrúar
Bandaríkjanna vilja mikinn sveigj-
anleika en ESB-fulltrúarnir vilja
hömlur á viðskiptin og að engin
þjóð fái aö kaupa eða selja meira en
50% af úthlutuðum losunarkvóta
sínum.
Að sögn Magnúsar hafa íslend-
ingar fylgt þeirri meginlínu að
styðja það að ekki verði settar tak-
markanir á viðskipti með kvóta.
„Við teljum að sú leið sé líklegri til
árangurs til að það verði tryggt að
þær aðgerðir sem nota á til að draga
úr losun verði kostnaðarhagkvæm-
ar og farið verði í að framkvæma
þær þar sem það er ódýrast," segir
Magnús.
Skilningur á sérstööu
Magnús segir að það skipti Islend-
inga miklu máli að landgræðsla
verði viðurkennd sem leiö til að
binda kolefni og jafngildi því að
dregið sé úr losun á gróöurhúsaloft-
tegundum. I Kyoto hafi skógrækt
verið viðurkennd sem aðferö til að
binda kolefni en ekki liggi fyrir
hvaða aðrar leiðir verði leyfðar og
hvort eða hvenær landgræðsla verði
að öllu leyti viðurkennd sem aðferð
til að binda kolefni. „Það er mjög
mikilvægt fyrir íslendinga að þau
gróðurbótarverkefni sem þarf að
vinna í landgræðslu hér heima ver-
ið tekin til greina," segir Magnús.
Hann segir að tölvert miklar deil-
ur séu um það hvaða aðferðir eigi
að leyfa og að hve miklu leyti.
Tryggja verði að raunverulega sé
verið að auka bindingu. „Reglurnar
DVA1YND GYLR
Jólin koma
Bæjarstarfsmenn á Akureyri hafa undanfarna daga unniö höröum höndum viö aö setja upp jólaskreytingar í bænum,
m.a. hafa þeir hengt jólastjörnur utan á Ijósastaura í miöbænum og voru viö þá iöju þegar þeir uröu á vegi DV í gær.
Kynning á hvalveiðiáformum kostar sitt:
30 milljónir á tveimur árum
- engar ákvarðanir samt teknar um að hefja hvalveiðar
Ámi M. Mathiesen sjávarútvegs-
Svanfríður Jónasdóttir alþingis-
maður óskaði eftir því að sjávarút-
vegsráðherra gerði skriflega grein
fyrir ýmsum þáttum er tengjast
kynningu á hvalveiðum Islendinga
sem samþykk var í þingsályktun
1998. Þar er kveðið á um að rikis-
stjórnin skuli hefja undirbúning að
hvalveiðum, m.a. með því að kynna
stefnu íslands. I svari ráðherra
kemur fram að 30 milljónir eru ætl-
aðar til kynningarstarfs á þessu og
næsta ári.
„Mér lék forvitni á að vita og
taldi eðlilegt að þinginu yrði gerð
grein fyrir því hvað menn hafa gert
í málunum síðan 1998. Ég spurðist
fyrir um það hvar þingsályktunar-
tillagan heíöi verið kynnt og þá
hverjum og hvað þær kostuðu,"
sagöi Svanfríður Jónasdóttir.
ráðherra sagði í samtali við DV að
hann hefði svarað þessum spurning-
um Svanfríðar. Hann segir þó að
engar ákvarðanir liggi fyrir um að
hefja hvalveiðar á næstunni.
I svari ráðherra kemur fram að í
samræmi við þingsályktunina hefur
verið lögð sérstök áhersla á að
kynna stefnu íslands í hvalamálum
á fundum sjávarútvegsráðherra
með fulltrúum annarra þjóöa, full-
trúum frjálsra félagasamtaka og
blaðamönnum. Einnig kemur fram
að i undirbúningi er sérstök kynn-
ing á hvalamálum í Bandaríkjun-
um. Þá er ráðuneytið að skoða hver
áhrif innganga íslands í hvalveiði-
ráðið að nýju hefði og þar meö hver
lagaleg staða okkar yrði. I svarinu
segir að unnið sé að málinu á
Svanfríöur
Jónasdóttir.
Arni M.
Mathlesen.
grundvelli þingsályktunarinnar
með það að markmiði að heíja hval-
veiðar að nýju. Þá segir að á fjárlög-
um ársins 2000 sé gert ráð fyrir að
varið verði 15 millj. kr. til kynning-
ar á stefnu íslands í hvalamálum og
er sama fjárhæð áætluð til þessarar
kynningar á næsta ári. Þegar hafa
verið greiddar rúmar 8 milljónir
króna vegna verkefnisins.
Svanfríöur Jónasdóttir sagðist
hafa gagnrýnt hvalveiðitillöguna á
sínum tíma vegna þess að hún var
algjörleg opin. „Þar var eingöngu
um að ræða friðþægingu fyrir kosn-
ingar. Frá því ég kom inn á þing
1995 fæ ég það æ meir á tilfínning-
una að menn séu að reyna að þókn-
ast þeim meirihluta þjóðarinnar
sem sýnir sig í skoðanakönnunum
um þessi mál. Hugsanlega er líka
verið að reyna að róa ákafamenn
um hvalveiðar í þinginu. Það er
greinilegt að menn eru ekkert að
flýta sér. Ég er með þingsályktunar-
tillögu um það núna að íslendingar
gangi aftur í Alþjóðahvalveiðiráðið.
Við eigum auðvitað að vera þar sem
helst er tekist á um þessi mál, það
þýðir ekkert að fara þá leið eins og
gert var að fara í fýlu og rjúka
heim.“ -HKr.
Sandkorn
mega ekki vera þannig að erfitt sé
aö fylgjast með að farið sé eftir þeim
því þá er hætta á misnotkun," segir
Magnús og bætir við að það geti
orðið vandamál þar sem víða í
heiminum sé bæði verið að planta
trjám og höggva tré.
Að sögn Magnúsar eru menn
hæfllega bjartsýnir á að það takist á
fundinum að fá niðurstöðu varð-
andi hið „íslenska ákvæði" sem
gengur út á að tekið sé tillit til að-
stæðna þar sem hagkerfi eru lítil
eins og hér á landi og ákveðin verk-
efni auki losunina hlutfallslega mik-
ið. „Þessar sérstöku aðstæður ís-
lendinga voru viðurkenndar þegar
Kyotobókunin var gerð og við telj-
um að það sé skilningur á þessari
sérstöðu og hann hafi heldur aukist
en hitt,“ segir Magnús.
Hann telur að Islendingar þurfi
einnig að taka á þessum málum eins
og aðrar þjóðir en ekki megi setja
meiri skyldur á okkur en aðra.
-MA
__________ÍgflJmsjón:
Höröur Kristjánsson
netfang: sandkorn@ff.is
Púður í Margréti
Það hvessti
skyndilega í
þingsölum í.vik-
unni þegar Mar-
grét Frímanns-
dóttir, varafor-
maður Samfylk-
| ingar, réðst af
| hörku á Sólveigu
Pétursdóttur
dómsmálaráðherra fyrir að bera
ábyrgð á fjársvelti og yfirvinnu-
banni fikniefnadeildar lögreglunn-
ar í Reykjavík. Margrét, sem þótt
hefur daufleg það sem af er kjör-
tímabilinu, þótti sýna gamalkunna
takta í ræðustóli og ráðherrann lá
undir áföllum. Gömlum allaballa
hlýnaði um hjartarætur við skot-
hríð Margrétar og varð að orði að
það væri allavega talsvert púður
eftir í einni kanónu Össurar Skarp-
héðinssonar í Samfylkingunni...
Brotið á Jóni
Ungir fram-1
sóknarmenn
efndu til uppá-
komu fyrir
framan Alþing- f
ishúsið á Áust-
urvelli um há-
degisbil í gær
og þar opnuðu
þeir formlega
fyrir ESB-um-
ræðuna með táknrænum hætti sem
Halldór Ásgrlmsson fylgdi síðan
eftir á fundi í gær. I sviðsetning-
unni lék Jón Sigurðsson forseti
talsvert hlutverk. Gárungar segja
þó að eflaust hafi Jón Sigurðsson
bylt sér harkalega í gröf sinni við
að vera gerður að leikara í leiksýn-
ingu ungra framsóknarmanna.
Telja fróðir að með þessu athæfi
hafi Frammarar framið mannrétt-
indabrot á Jóni og þvingað hann
án samþykkis til þátttöku í skrípa-
leik. Hann sé búinn að standa vakt-
ina á Austurvelli um áratugaskeið
og hafi ekki átt þess kost að forða
sér af vettvangi...
Hver er hvað?
Á miðvikudag
hafði eignarhalds-
félagið Hólshyma
hlutabréfaskipti
við Muirfield In-
vestment AB í
Svíþjóð. Lét Hóls-
hyrna 3,5% af
hlut sínum í
Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna í skiptum fyrir 17%
hlut í Scandsea AB. Stjórnarfor-
maður SH, Róbert Guðfinnsson,
sagðist telja það í samtali við
Mogga að mikil viðurkenning væri
að fá þennan sænska fjárfesti inn í
SH og mikill styrkur af því fyrir fé-
lagið. Gárungar vilja hins vegar
minna á að í sömu frétt kom fram
að sænska fyrirtækið er nú ekki
sænskara en svo að SH, sem Ró-
bert er í forsvari fyrir, á þar 20%
hlut og Hólshyrna á þar nú 17%
hlut. Svo skemmtilega vill líka til
að stjómarformaður SH er einnig
stjórnarformaður Hólshymu...
Býður heim vanda
Gömlum fjósa-1
manni, sem frá ]
barnæsku er mik-
ill unnandi is-
lenska kúastofns-
ins, brá illilega í |
brún þegar frétt-
ist af ákvarðana-
töku Guðna I
Ágústssonar
landbúnaðarráðherra um að leyfa
innflutning fósturvísa úr norskum
beljum. Gat fjósamaðurinn ekki
setið þegjandi yfir þessari aðfór að
íslenskum kúm og orti:
Þessi kynbótadraumur er kolvitlaus Jjandi
sem kalla md þjóðlegan ósió.
Þessar tröllauknu kýr þaö er kunnugur vandi
þœr komast ekki inn ífjósið.
Fyrst róóherrann stundar alls konar hrekki
úr ermi hann hönd lúti standa.
Þvl beijurnar stœkka en bœndurnir ekki
það býður heim dálitlum vanda.
-Óþ2000