Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000 DV Fréttir Kennaraverkfallið getur varað í mánuði Hvikum hvergi Nafn: Elna Katrín Jónsdóttir Staða: Formaöur Félags framhaldsskólakennara Efni: Kjaradeila framhaldsskólakennara Gerir þú ráð fyrir löngu verkfalli? „Ef stjómvöld ætla að halda áfram aö hunsa þessa kjaradeilu, þá erum við undir það búin að vera í löngu verkfalli, sem gæti varað í einhverja mánuði. Það er óæskilegt og skaðlegt, en það þarf tvo til að semja. Það er ekkert sem getur leyst þessa kjaradeilu annað en að menn setjist niður og geri sér einhverja raunhæfa mynd af því hvaða fjármuni þarf til að leysa deiluna." Opna yfirstandandi viðræður um nýtt launakerfi möguleika á samningum? „Ekki raunverulega. Samnings- aðilar eru sammála um að það sé líkega til góðs að taka upp nýtt launakerfi, þ.e. breyta launaröð- unarkafla kjarasamningsins meira til samræmis við það sem tíðkast í hinu nýja launakerfi, sem mjög margir ríkisstarfsmenn, aðrir en við, hafa tekið upp, þar með talið nær öll félög í Bandalagi háskóla- manna. I því felst ákveðið endur- mat á störfum kennara, námsráð- gjafa og þeirra skólastjómenda sem eru í félagi framhaldsskóla- kennara með tilliti til launa. En þá er óútkljáð mál hvaða laun fara inn í þetta nýja umhverfi. Þá er ósvarað hvort og hversu mikið menn eru tilbúnir að koma til móts við kennara vegna breytinga á þeirra störfum sem tengjast nýju aðalnámsskránni." Standa á kröfunum Eruð þið tilbúin að færa yfir- vinnuna meira inn 1 dagvinn- una? „Náist viðunandi árangur varð- andi raunverulegar kauphækkan- ir til kennara þá má vel skoða hvort heppiiegt sé að færa eitt- hvað úr yfirvinnu í dagvinnu, m.a. til þess að vinna þá enn frek- ar að því markmiði að hækka meðaldagvinnulaunin og auka hlut þeirra í meðalheildarlaunum. En við viljum ekki ræða um það í staðinn fyrir þær kröfur um launahækkanir sem við höfum sett fram. Eftir samningana 1997 skildi með ykkur og fólki í samsvar- andi störfum í BHM: „í upphafi árs 1997 varð ljóst, að ríkið var farið að ýta að mönn- um hugmyndum um nýtt launa- kerfi, sem þá voru mjög fjarri því að vera sá búningur sem nýja launakerfið er í nú. Ekkert af BHM-félögunum hefði fallist á þær. Þaö var ekki fyrr en að stétt- arfélögin töldu sig búin að tryggja sinn samningsrétt og möguleika á að hafa áhrif á kjör félagsmann- anna að umræðan fór á skrið. Þá var komið fram á sumar 1997.“ Veðjuðu kennarar ekki ein- faldlega á rangan hest og sátu eftir í miðlægum kjarasamn- ingi? „Nei, það hefðu orðið að vera einhverjar raunhæfar forsendur fyrir okkur til að fara út í vinnu- staðasamninga. Það var og er enn engin hefö fyrir þvi að hver fram- haldsskóli sé rekinn sem sterk ríkisstofnun. Aðstaðan til að fara út í vinnustaðasamninga, með einhverjum raunhæfum vonum um að forstöðumenn skólanna myndu fara út og afla fjár til að greiða þær viðbótarkauphækkanir sem eingöngu var samið um á vinnustöðunum, var ekki fyrir hendi.“ Fóruð þið of bratt í verkfallið nú og létuð verkfallsviljann ráða meiru en samningsvilj- ann? „Það má spyrja sig hvort það er of bratt að fylgja eftir kröfum sín- um þegar búið er að flytja málið í eitt og hálft ár. Ef við hefðum staðiö í þeim sporum að launaþró- un okkar hefði fylgt þeim saman- burðarhópum sem tengdir voru við okkur 1997, þá má vel vera að biðlundin hefði verið meiri. En vorið 1999 vorum við þegar byrjuð með mjög ákveðnum hætti að vekja athygli fiármálaráðherra, menntamálaráðherra og allra sem á okkur vildu hlusta, eða öllu heldur vildu ekki hlusta, á því að forsendur kjarasamnings kennara frá 1997 væru brostnar. Út í sandinn Undirbúningsviðræður voru í febrúar og mars, sem runnu út í sandinn því ríkið mátti ekki heyra minnst á launin. Upp úr 30. júní hófum við samningaviðræður af fullum krafti á grundvelli við- ræðuáætlunar, sem samningsaðfi- ar voru sammála um. Málinu var vísað til ríkissáttasemjara 2. októ- ber. Er það eitthvert sérstakt bráðlæti að rúmlega mánuði síðar fylgi menn kröfum sinum eftir. Ég segi nei. Við byggjum á því að lögum um stéttarfélög og vinnu- deilur var breytt fyrir fiórum árum. Þá var mönnum gert með lögum að gera sér viðræðuáætlan- ir. í greinargerð með lögunum var yfirlýst markmið aö stefna bæri að þvi að nýr kjarasamningur lægi fyrir þegar sá gamli rynni út. Þessi endalansi skœting- ur út í kennarastéttina er að verða einhver leið- inlegasti þjóðarósiður sem ég veit um. “ Við tökum þessi lög alvarlega." Þið setjið fram kröfur upp á samtals 60-70 prósenta hækkun á launum. Eru svona háar kröf- ur ekki út úr kortinu? „Laun kennara eru í sögulegu lágmarki, bæði heildar- og grunn- laun. Meðalheildarlaun liggja í 211-220 þúsund. í þeiri tölu liggur gríðarleg yfirvinnukennsla. Kraf- an er að byrjandinn hafi í lok tveggja ára samningstíma náð því að fá 190 þúsund krónur fyrir fullt starf við kennslu. Meðalmaðurinn hafi um 240 þúsund krónur í grunnlaun fyrir fulla kennslu. Ég spyr því hvort það sé heilbrigt að klifa alltaf á þessum prósentum þegar allir vita að launin eru svona lág. Við verðum að trúa því að sá kjarasamningur sem verður gerður verði ekki bara ávísun á eitt verkfallið enn. Hvorki við né samfélagið megum við því að ekki verði geröur mannsæmandi samn- ingur við kennara. Það þarf að verða svo veruleg breyting á sjálf- um laununum, að kennarar telji að nú sé þannig gert við þá að starfi þeirra og skólanum sé þokkalegur sómi sýndur, að menn þurfi ekki að ganga með það á bakinu að það sé sífellt verið að sparka í skólana og skíta út kenn- arana. Þessi endalausi skætingur út í kennarastéttina er að verða einhver leiðinlegasti þjóðarósiður sem ég veit um.“ Er haustönn framhaldsskóla- nema ónýt? „Nei, en ég tel að verkfall sem fer mikiö yfir háifan mánuð sé líklegt til að strika út þann mögu- leika að menn geti útskrifast um áramót eða það megi ljúka prófum fyrir áramót. Ég er þeirrar skoð- unar að menn veröi að líta svo á að jafnvel þó svo að það taki lengri tíma aö semja þá ættu menn í lengstu lög að hugsa sér að skólaárið lengist í hinn endann og menn verði að ráða fram úr því hvemig nám nemenda á þessu ári kemst í höfn.“ Óvinsæl uppbótarkennsla Ná kennarar þá því inn á aukakennslu í vor sem þeir tapa í verkfalli í vetur? „Aukakennsla eftir verkfall er ekki vinsælt umræðuefni á meðal kennara. Þeir eru búnir að fá nóg af því að láta grenja út úr sér þessa uppbótarkennslu sem þeir vfija margir hverjir ekki fara í af því þeim finnst hún draga úr vægi verkfallsins og láta síðan kasta skít í sig á eftir fyrir að hafa farið í hana.“ Það er talaö um að verkfallið fái lítil viðbrögð úti í þjóðfélag- inu. Fólk búist við því eins og hverju öðru náttúrulögmáli að kennarar leggi reglulega niður vinnu. Er raunin sú? „Við höfum tilfinningu fyrir þessum sljóleika. Það getur vel veriö að það sé eitthvert þjóðar- einkenni okkar íslendinga að þetta sé allt í lagi svo lengi sem allir geti reddað sér einhverri vinnu. Ég held að menn muni vakna upp við mjög vondan draum. Þama er verið að raska til- veru ungmenna á mjög viðkvæmum aldri. Þá er dýrt spaug að raska skólastarfi. Hins vegar held ég að verulega mikill hluti almennings hafi þá sannfær- ingu að kjör kennara verði að batna, annars gangi þetta ekki upp. Meðbyr er þvi fyrir hendi. Á hinn bóginn óttast margir, of mik- ið að mínu mati, þessa köldu höfnun og fyrirlitningu ráða- manna gagnvart heilli stétt manna í svona alvarlegri kjara- deilu. Ég get ekki trúað því að meiri hluti íslensku þjóðarinnar taki undir það orðfæri sem bæði forsætisráðherrann og fiármála- ráðherra hafa viðhaft um þessa kjaradeilu." EZSBHKá: Jóhann S. Sigþórsdóttir blaðamaöur Framhaldsskólinn: Saga kenn- araverkfalla Þrjár vikur Árið 1985 sagði þorri allra kenn- ara í framhaldsskóla upp störfum. Um var að ræða uppsagnaraðgerð sem farið var í þar sem kennarar höfðu enn ekki fengið verkfaOsrétt. Uppsagnirnar tóku gildi 1. mars. Flestir kennaranna sneru til vinnu sinnar þremur vikum síðar. Þetta var eina kjaraaðgerðin sem kennar- ar áttu mögulega á þeim tíma og raunar fyrsta tímamótaaðgerðin sem framhaldsskólakennarar lögðu út í. Tvær vikur Árið 1987 tóku gildi ný lög um kjarasamninga opinberra starfs- manna. Með þeim lögum öðluðust stéttarfélögin innan BHM hvert um sig samningsrétt og verkfallsrétt. Áður var aðalkjarasamningsréttur- inn hjá bandalögunum en sérkjara- samningsrétturinn hjá stéttarfélög- unum. Verkfallsréttur félaga innan BHM var þá enginn, heldur fór mál- ið fyrir kjaradóm ef samningar náð- ust ekki. Á vormánuðum 1987 fóru framhaldsskólakennarar í verkfall, sem og íleiri félög háskólamanna. Verkfallið stóð í 15 daga. Þeir kjara- samningar skiluðu all nokkrum launahækkunum til kennara. Sex vikur Árið 1989 fóru tólf félög í BHM í sameiginlegar aðgerðir, þar á meðal Hið íslenska kennarafélag með þorra fram- haldsskóla- kennara. Þá var lögð fram sameiginleg kröfugerð. Uppistaðan í henni var að koma laun- um háskólamanna í ríkisþjónustu á svipaðan grundvöll og sem var við lýði hjá háskólamönnum á almenn- um markaði. Verkfallið stóð í sex vikur. Þeir kjarasamningar sem gerðir voru vorið 1989 voru afnumd- ir með lögum 1990 þegar sett voru bráðabirgðalög á þá. Sjö vlkur Árið 1995 fóru fram- haldsskóla- kennarar og grunnskóla- kennarar í verkfall. Það verkfall stóð í sjö vikur og skilaði litlum ávinningi miðað við herkostnað. Þó var lækkuð kennslu- skylda í framhaldsskólum og kenn- arar fengu um stund kauphækkun sem lagfærði kaupmátt þeirra. ? vikur Þriðjudaginn 7. nóvember sl. hófst verkfall kennara í framhalds- skólum landsins. Lítið sem ekkert hefur þokað í samningaviðræðum, að mati formanns Félags framhalds- skólakennara, þrátt fyrir nær dag- lega fúndi hjá ríkissáttasemjara eft- ir að verkfaílið hófst. -JSS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.