Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Qupperneq 51
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000
DV
______sT
Tilvera
Ovæntur
glaðningur í
súpudiskinum
- eins og það gerist best í fínum boðum
Það er ekki að ástæðulausu að
Auður Jónasdóttir er matgæðingur
vikunnar að þessu sinni. Hún er
þekkt meðal vina og vandamanna
fyrir afbragðs eldamennsku og því
virkilega spennandi að fá að sjá í
uppskriftabók hennar.
„Ég verð nú að viðurkenna að
þessir réttir sem ég sýni hér eru frá
henni systur minni í Vestmannaeyj-
um. Hún er leyndarmálið á bak við
mína uppskriftabók því hún er al-
gjör meistarakokkur og hefur verið
mín stoð og stytta hvað uppskriftir
varðar þegar
gesti ber að ■t'/FfíTi£3>T
garði,“ sagði
Auður. Blaðamanni lék forvitni á að
vita hvort hún hefði ekki lent í
neyðarlegri reynslu við heimboð í
mat.
„Ég held að ég hafi komist áfalla-
laust í gegnum tíðina með matarboð
heim til mín, en hitt er annað mál
að ég hef farið í vægast sagt vand-
ræðalegasta matarboð sem hugsast
getur.
Málið er að vinur minn bauð mér
í mat til ættingja sinna þar sem
voru 15-20 manns, og ég ætla að
taka það fram að ég þekkti ekki
neinn annan en vin minn.
Þetta var allt virkilega flott og
bara eins og það gerist best í finum
boðum.
Nema hvað að sjávarréttasúpan
sem var í forrétt átti að slá öll met
og var frúin búin að vera að laga
hana frá hádegi.
Svo sitjum við vinur minn með
húsbóndanum inni í stofu og erum
rétt að tygja okkur að matarborðinu
þar sem gestirnir voru sestir þegar
konan hans kemur til okkar og er
vægast sagt vandræðaleg. Hún sagð-
ist vera búin að setja súpuna frægu
á diska og það væri ekki til nóg því
það vantaði á þrjá diska (okkar
diska). Vinur minn dó ekki ráða-
laus þar sem gestirnir biðu eftir
okkur við matarborðið varð því að
leysa vandann og
það strax. Hann
hentist inn í eldhús
og bjó til einhverja hveitiklessu fyr-
ir þrjá, bætti einhverju kryddi við
til að fá-réttu litina og smakkaði
ekki einu sinni á þessu áður en
þessu var hellt í diskana okkar.
Þannig endaði það að ég fékk kalda
hveitiklessu, húsbóndinn fékk
klessu og auðvitað vinur minn líka.
Ég þarf vart að taka fram að þetta
var mesti viðbjóður sem ég hef
smakkað en ég reyndi að bera mig
mannalega og reyndar herrarnir
líka.
Það stórfurðulega er að húsfrúin
vogaði sér að standa upp þegar allir
höfðu klárað af diskunum og spyrja:
„Má kannski bjóða ykkur meiri
súpu?“
„En svo við snúum okkur að upp-
skriftunum þá eru þessar fengnar
„Eg held að ég hafi komist áfallalaust í gegnum tíöina með matarboð heim
til mín, en hitt er annað mál að ég hef farið í vægast sagt vandræöaleg-
asta matarboð sem hugsast getur," sagði Auður S. Jónasdóttlr, matgæð-
ingur vikunnar.
að láni hjá henni yndislegu systur
minni Beggu."
Búri a la Vestmannaeyjar
Fyrir 4
1-2 flök búri (má vera skötuselur)
1 egg
1 msk. sítrónusafi
1 msk. mjólk
1 bolli rasp
1 bolli hveiti
1/2 bolli mulið ritzkex
1 tsk. karrí
1 tsk. aromat
1 tsk. kjöt- og grillkrydd
11/2 tsk. picanta krydd
salt og pipar (eftir smekk)
Búrinn er roðflettur og gæta þarf
þess vel að öll hvíta fitan fari með.
Búrinn er skáskorinn í ca 5-7 cm stóra
bita. Gott er að sprauta sítrónusafa
yfir hann og látið liggja í 15 mínútur.
Egg, mjólk og sítrónusafi pískað
saman og búrinn settur í safann og
látinn liggja í 10 minútur. Þurrefnu^,
blandað saman í plastpoka og fiskin-
um velt vel upp úr þurrefnunum og
að lokum steiktur.
Sósa
4 msk. majones
4 msk. sýrður rjómi
2 msk. sætt sinnep
1 msk. sykur
salt og pipar á hnífsoddi
2 tsk. steinselja
Öllu hrært saman og borið
fram kalt.
Grjón
Soðin með Aromat-kryddi
1 msk. majones
1 msk. ananassafi
1/2 dós kurlaður ananas
(safmn tekinn frá)
1/2 dós gular baunir
(safinn tekinn frá)
öllu blandað saman.
Heitu eplin hennar
Beggu systur
10 msk. sykur
2 msk. kaniil
5-6 epli skorin í báta og raðað í eld^
fast mót.
Kanilsykri stráð yfir og álpappír
settur ofan á og gert gat á miðju.
Bakið í 15 mínútur og hellið safan-
um af.
3 eggjahvítur stífþeyttar
200 g sykri bætt smátt og
smátt saman við
Breiðið marengsinn yfir eplin og
bakið við 175-180"C þar til hann er
orðinn ljósbrúnn. _
Berið fram með þeyttum rjóma eða
ís.
Súkkulaði-
Valhnetu-
rjómatoppar
Mjúkt og einstaklega gott bragð
einkennir þessar smákökur.
blanda
Sérlega góðar og mjúkar
súkkulaðibitasmákökur - einfaldar
í framleiðslu.
200 g hveiti
100 g kókosmjöl
1/4 tsk. hjartarsalt
200 g smjör
125 g sykur
3 tsk. kakó
3 egg
130 g suðusúkkulaði
1 tsk. vanilludropar
Brytjið súkkulaðið og blandið
öllu saman í hrærivélarskálina, haf-
ið smjörið mjúkt og eggið ekki kalt.
Hnoðið saman deigið þar til vel hef-
ur blandast. Látið deigið standa
smástund áður en sett er á plötu.
Bakið við 180 gráður í 9-11 mín.
100 g smjör
100 g púðursykur
50 g sykur
1 egg
1 tsk. vanilludropar
150 g hveiti
salt á hnífsoddi
1/4 tsk. lyftiduft
100 g valhnetur
150 g rjómasúkkulaði
Hrærið saman
mjúkt smjörið og
sykurinn, setjið
eggið saman við og
hrærið þar til
deigið er vel
blandað. Saxið nið-
ur súkkulaðið og hneturnar og
blandið því út í ásamt þurrefnum,
kælið og gerið kúlur á plötu. Bakið
við 190 gráður í 10-12 mínútur.
Nykaup
Þarsem ferskleikinn byr
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.
Vanillukrans
Þessar eru einfaldar, eiga að vera
harðar og geymast vel
250 g smjörlíki
175 g sykur
1 1/2 msk. vanillu
dropar
1 stk. egg
375 g hveiti
Hafið egg og smjörlíki við stofuhita,
blandið öllu hráefhi saman í skál og
hrærið á litlum hraða þar til deigið er
rétt komið saman. Kælið deigið lítil-
lega áður en sett er í pressuna. Bakið
við 200 gráða hita i 9-11 mín.
Rístoppar
Einfaldar, mjúkar og mildar á
bragðið.
3 eggjahvítur
220 g púðursykur
50 g rice krispies
200 g ríssúkkulaði
Þeytið hvítur vel,
setjið sykur saman
við og þeytið þar til
hann er uppleystur. Saxið niður
súkkulaðið og blandið saman við
ásamt rice krispíinu með sleikju.
Bakið við 170 gráður í 11-13 mín.
Ragnar Björnsson ehf.
Dalshrauni 6, Hafharfirði, sími 555 0397, fax 565 1740
Gæðarúm á
góðu verði