Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Page 52
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000
30 V
Tilvera
Guitar Islancio
Tónleikar í Listasafni íslands.
Sævar
Bjarnason
skrifar um
skák
Aukakeppni um titilinn
Skákmeistaramóti Taflfélags
Reykjavíkur lauk um síðustu helgi.
Bragi Þorfmnsson varð skákmeistari
Taflfélags Reykjavikur. Lokastaðan í
aukakeppninni varð sem hér segir:
1. Bragi Þorfinnsson 2,5 af 4.
2. Sigurður Daði Sigfússon 2 af 4. 3.
Sævar Bjarnason 1,5 af 4.
Drengja- og telpnaflokkur
íslands
íslandsmót drengja- og telpna fór
fram á Akureyri um síðustu helgi.
Alls tóku 42 unglingar þátt, þar af
komu 22 að sunnan. Dagur Arn-
grímsson sigraði á mótinu, Guðjón
Heiðar Valgarðsson varð annar og
Guðmundur Kjartansson þriðji.
Anna Lilja Gísladóttir varð telpna-
meistari í þriðja sinn. Guðrún
Svana Hilmarsdóttir varð önnur og
Björk Baldursdóttir þriðja.
Vel var staðið að mótinu af hálfu
norðanmanna og sáu þeir Gylfi Þór-
hallsson, Þór Valtýsson, Sigurður Ei-
ríksson og Halldór Brynjar Halldórs-
son til þess að allt færi vel fram.
Athyglisverð var góð mæting
sunnanmanna en Hellir, TR og TK
stóðu öll fyrir hópferðum norður.
Alls tóku 19 félagar í SA þátt, 10 úr
Helli, 6 úr TR, 5 úr TK og einn frá
Taflfélagi Vestmannaeyja og einnig
einn frá Skákfélagi Þórshafnar.
Nú nær hvítur að lauma að ein-
um öflugum peðsleik. 28. e6! hxg5
29. exd7 Del+ 30. Kg2 De4+ 31.
Kh2 Dxd4 32. Dg3 f4 33. Dxg5+
Kh7 34. d8D 1-0.
Og svo að lokum sjáum við
skemmtilega kóngssókn Kínverjans
gegn sterkasta skákmanni Armena.
Hvítt: Jiangchuan Ye (2670)
Svart: Rafael Vaganian (2623)
Aljechin-vörn, Istanbúl (13) 10.11. 2000
1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 d6 4.
Útgáfutónleikar Guitar Islancio:
Léttdjössuð þjóðlög
Tríóið Guitar Islancio heldur tón-
leika í dag, kl. 15.00, i Listasafni
Reykjavíkur, Tryggvagötu 17, í tilefni
af útkomu nýrrar geislaplötu. Á þess-
ari nýju plötu, sem ber einfaldlega
nafnið Guitar Islancio II, eru þeir fé-
lagarnir, líkt og á fyrri diskinum, að
fást við íslensk þjóðlög i léttdjössuð-
um útsetningum. Tríóið hefur notað
undanfarna daga til að leika fyrir
landann á Akranesi, Selfossi og Vik í
Mýrdal og hefur aðsókn verið góð og
mikil stemning. Fram undan eru svo
tónleikar vítt og breitt um landið.
Guitar Islancio hefur verið mikið á
faraldsfæti þetta ár, jafnt innanlands
sem utan. Tríóið er skipað þeim
Bimi Thoroddsen og Gunnari Þórð-
arsyni, sem leika á gítara, og Jóni
Rafnssyni á kontrabassa. Eins og
fyrr sagði hefjast tónleikarnir kl.
15.00 og er aðgangur ókeypis.
Að loknu Ólympíumóti:
Erum að dragast aftur úr
mát eða 37. - Dg7 38. He8+ og svart-
ur missir lið sitt. 1-0.
íslandsmótið í netskák
Stefán Kristjánsson sigraði á ís-
landsmótinu í netskák sem fram fór
sl. sunnudag. Stefán, sem staddur
var í Tyrklandi, tefldi þaðan ásamt
Jóni Viktori Gunnarssyni. Mótið
var geysilega vel sótt en alls tóku 75
keppendur þátt sem er mun meiri
þátttaka en vænst var en mesta
þátttaka á þessu móti hingað til var
1996 en þá tók 31 keppandi þátt! Hér
er því um 150% fjölgun að ræða!
Meginskýringin á þessari miklu
þátttöku er að mínu mati að mótið
var haldið á ICC en hingað til hefur
mótið verið haldið á EICS og á Mát-
netinu. Langflestir skákmenn tefla
fremur á ICC en á „Skotaskákþjón-
unum“ enda mun betri hugbúnaður
þar á ferð og mun fleiri skákmenn
ætíð þar að tefla. ICC hélt utan um
sjálft mótshaldið og þrátt fyrir allan
fjöldann var mótið vel á áætlun!
Mótsstjóri var John Femandez,
varaforseti ICC, og er þar einstakur
ljúflingur á ferð. Ávallt tilbúinn að
rétta fram hjálparhönd og aðstoða.
ICC hélt ekki mótið aðeins ókeypis
heldur gáfu þeir 17 frímánuði í
verðlaun.
Þrátt fyrir hrókakaup er nóg af
liði til að sækja að svarta kóngin-
um. 18. Df4 Rg8 19. g4 Dd8? Sókn
er alltaf besta vörnin!? Mun betra
var 19. Db2 með hótunum. 20. g5
De7 21. Dg4 Kh8 22. gxh6 Rxh6
23. Df4 Kg7 24. Dcl Bd7 25. Rg5!
Hótar peðsvinningi, svartur tekur á
sig slæma stöðu. 25 - Rf5 26. Bxf5
exf5 27. Dc7 h6.
Svartur hefur nú fengið 3 peð og
nú fylgir riddari í kjölfarið. En
svarti kóngurinn missir skjólflík-
urnar. 31. Rxg6+ fxg6 32. Dxg6
Bf7 33. Dxh6+ Kg8 34 Dg5+ KÍ8
35. Dh6+ Kg8 36. Hxf5 Ba2 37.
Dg6+ vegna þess að ef 37. -Hg7 38.
He8+ Hxe8. 39. Dxe8 Kh7 40. Hh5
Illa gekk í síðustu umferðum
Ólympíumótsins eftir góða byrjun
og varð karlaliðið að sætta sig við
55.-58. sæti sem er slakasti árangur
sem náðst hefur á Ólympiumóti
hingað til. Kvennasveitin hafnaði i
77.-81. sæti sem einnig er lakasti ár-
angur frá upphafi. Ekki voru sveit-
irnar samt að tefla undir styrkleika,
síður en svo. Bæði hefur ísland
dregist aftur úr, aðallega vegna þess
áð umhverfi atvinnustórmeistara á
íslandi getur varla talist hvetjandi,
og einnig er hitt að aðrar þjóðir sem
vom mun veikari en við hér í den
hafa tekið stór stökk og eru komnar
með sterkari sveitir en við. Fyrir
keppnina var íslenska liðið metið
það 47. sterkasta. Lokastaðan telst
því vera innan „skekkjumarka".
Liðið var óheppið og tapaði í síðastu
umferð fyrir Víetnam en sigur í
þeirri viðureign hefði fleytt liðinu
upp um mörg sæti. Víetnamska lið-
ið hafnaði t.d. í 33.-37. sæti.
Árangur Hannesar Hlífars Stef-
ánssonar og Helga Ólafssonar var í
samræmivið skákstig en bæði Jón
Viktor Gunnarsson og þó sérstak-
lega Þröstur Þórhallsson stóðu sig
betur en vænta mátti miðað við
skákstig. Jón Garðar Viðarsson og
Stefán Kristjánsson tefldu lítið en
stóðu sig ágætlega.
Kröfur okkar hafa hins vegar
ávallt verið miklar fyrir Ólympíu-
mót og því veldur árangurinn von-
brigðum. Vitað var fyrir fram að
kvennasveitin myndi eiga erfitt
uppdráttar og kemur árangur henn-
ar því ekki á óvart og er mínu mati
ásættanlegur. Kvennalið hefur ekki
verið sent í 16 ár og hlýtur sveitin
að liða fyrir það.
Að mínu mati er árangurinn í
takt við það sem mátti gera ráð fyr-
ir þótt auðvitað hafi verið vonast
eftir betra sæti. Mikilvægt er hins
vegar að gefa ungum skákmönnum
tækifæri og hefur mótið örugglega
verið góð reynsla fyrir Jón Viktor
og Stefán að taka þátt í en þeir eiga
án efa eftir tefla á mörgum Ólymp-
íuskákmótum. Nú er bara að byggja
upp, hlúa að unglingastarfinu og
búa til Ólympiusveitir framtíðinn-
ar!
Lítum nú á tvær skemmtilegar
skákir frá Ólympíumótinu. Sú fyrri
er frá viðureign Bandaríkjamanna
og Kúbu og það er lettneski stór-
meistarinn frá Pittsburgh sem leik-
ur listir sínar gegn kúbverska stór-
meistaranum.
Hvítt: Alexander Shabalov (2601)
Svart: Jesus Nogueiras (2552)
Frönsk vörn, Istanbúl (13) 10.11. 2000
1. e4 e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3
Rc6 5. Rf3 Bd7 6. Be2 Hc8 7. 0-0
Rh6 8. Ra3. Riddari úti á kanti.
Þessum riddurum er ætlað að valda
d4 peðið. 8. - cxd4 9. cxd4 Bxa3 10.
Bxh6 gxh6? Nauðsynlegt er 10. -
BfB með um það bil jafnri stöðu. 11.
bxa3 0-0 12. Dd2 Kg7. Svarta
kóngsstaðan er nú þegar orðin við-
sjárverð og erfitt að bæta úr. 13.
Hacl Re7 14. h4 Hxcl 15. Hxcl
Db6 16. Bd3 Hc8 17. Hxc8 Bxc8.
Rf3 dxe5 5. Rxe5 g6. Frekar óhefð-
bundið afbrigði Aljechin-varnarinn-
ar. Svartur á í vandræðum með lið-
skipan sína. 6. Bc4 c6 7. 0-0 Rd7 8.
Rc3 R7f6 9. Bg5 Bg7 10. Rxd5!
Rxd5. Nauðsynlegt því eftir 10. cxd5
11. Bxf6 Bxf6 12. Bb5+ er staða
svarts vart teflanleg. Næsti leikur
hvíts er þvingaður því svartur hót-
aði að stofna til óláta með f6 og
vinna mann. 11. Bh4 0-0 12. Hel
Be6 13. c3 Bf6 14. Bxd5 Dxd5 15.
Bxf6 exf6.
Nú verðum við vitni að afar
skemmtilegri taflmennsku þar sem
góður riddari og peðameirihluti á
drottningarvæng, sem er fómað fyr-
ir tima (tempó), knýr fram vinn-
ingsstöðu. Skólabókardæmi.
16. Rd3 Bf5 17. Rf4 Dd6 18. Re2
Be6 19. Dd2 Hfe8 20. h3 c5 21. Rg3
f5 22. Dg5 cxd4. Kínverjar skeyta
lítið um peð, það eru sóknir sem
gilda! 23. Rh5 Hed8 24. Hadl Df8
25. cxd4 h6 26. Dg3 Dd6 27. He5
Kf8 28. Rf4 Bxa2. Tvö peð liggja í
valnum hjá hvít, en hann getur
samt ekki varið kóngsstöðu sína.
Hvítur stillir upp liði sínu fyrir
lokaátökin. 29. h4 Hd7 30. Hdel
Dxd4.
Toyota
Nissan
Range Rover Ford
Chevrolet
Suzuki
Cherokee
JeepWillys
Land Rover
Musso
Isuzu
heimasíða :
ALLT PLAST
Kænuvogi 17 • Sími 588 6740
Framleiðum brettakanta. sólskyggni og boddíhluti á flestar gerðir jeppa,
www.sinmet.is\aplast
!i í vörubíla og vanbíla. Sérsmíði og viðgerðir.
Laugardagar
eru nammidagar