Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Blaðsíða 62
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000
I>V
* 70_________________________
Ættfræði___________________
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
iæli 18. nóvember
95 ára________________________________
^Birna Jónsdóttir,
^freyjugötu 13, Sauöárkróki.
Sesselja Sveinsdóttir,
Mýrargötu 18, Neskaupstaö.
85 ára________________________________
Gilbert Benjamin Faber,
Sunnuflöt 43, Garöabæ.
Sigurveig Eyjólfsdóttir,
Skálatanga 1, Akranesi.
8Q-ára _______________________________
Jónas Þorsteinsson,
Neskinn 4, Stykkishólmi.
Jónas tekur á móti gestum í
félagsheimilinu Skildi í kvöld, laugard.
18.11. eftir kl. 19.30.
Gústaf Ófeigsson,
Árskógum 6, Reykjavík.
Hólmgeir Guðmundsson,
Brekkubraut 15, Keflavík.
75 ára________________________________
Georg Georgsson,
Hringbraut 92b, Keflavík. Hann tekur á
móti gestum í félagsmiðstöðinni
Hvammi, Suöurgötu 15-17, Keflavík, í
dag, laugard. 18.11., milli kl. 14.00 og
17.00.
Hjalti Karlsson,
Bjarnhólastíg 17, Kópavogi.
Jón Bjarnason,
Bakka, Blönduósi.
Kristveig Jónsdóttir,
„ Hólmgarði 15, Reykjavík.
Tryggvi Guðbjörnsson,
Núpasíöu 4b, Akureyri.
Vilmundur Þorsteinsson,
Kirkjulundi 8, Garðabæ.
70 ára________________________________
Dóra Brynjólfsdóttir,
Gautlandi 1, Reykjavík.
Friðþjófur Björnsson,
Skriöuseli 7, Reykjavík.
Hreiðar Björnsson,
Álfaheiöi 24, Kópavogi.
60 ára________________________________
J Guðmundur Karlsson,
Vaðlaseli 1, Reykjavík.
Guðmundur Sverrir Jósefsson,
Sporðagrunni 13, Reykjavík.
Helga Ármannsdóttir,
Ljósabergi 30, Hafnarfiröi.
Hrafn Óskarsson,
Noröurgötu 31, Akureyri.
Jens Kristleifsson,
Langageröi 88, Reykjavík.
Sigurður Guðjónsson,
Arnarhrauni 21, Hafnarfiröi.
Örn Óskarsson,
Skaröshlíö 2a, Akureyri.
50 ára________________________________
Antonía Guðmundsdóttir,
Borgarlandi 7, Djúpavogi.
Ásgrímur Ragnar Kárason,
Víöigrund 4, Akranesi.
v Gerður Jónsdóttir,
Tungusíöu 27, Akureyri.
Guðbjartur Daníelsson,
Kirkjubraut 35, Njarðvík.
Guðrún Njálsdóttir,
Arnarhrauni 26, Hafnarfirði.
Hieronim Graczyk,
Aöalbraut 67, Raufarhöfn.
Lilja Th. Laxdal,
Bólstaðarhlíð 11, Reykjavík.
Matthías M. Kristiansen,
Bólstaöarhlíö 42, Reykjavík.
Pétur Valgeir Pálmason,
Borgarsíöu 33, Akureyri.
Sveinsína G. Steindórsdóttir,
Furuhlíö 1, Sauðárkróki.
Þórunn Benediktsdóttir,
Þinghólsbraut 35, Kópavogi.
40 ára________________________________
- j Bergþóra Svanfr. Guðmundsdóttir,
Vestursíöu lb, Akureyri.
Guðni Örvar Þór Guönason,
Hátúni lOb, Reykjavík.
Hanna Bjarney Valgarðsdóttir,
Klapparstíg 7, Dalvík.
Harald H. Isaksen,
Aöallandi 16, Reykjavík.
Helga Jóna Grímsdóttir,
Dalhúsum 52, Reykjavík.
Hörður Jóhannsson,
Hjaltabakka 22, Reykjavík.
Jóhann Helgi Sigurðsson,
Borg, Borgarfirði eystra.
Sigríður Kristín Halldórsdóttir,
Ásgarði 119, Reykjavík.
■’* Slawomir Modzelewskl,
Suöurgötu 7, Sandgerði.
Sveinbjörg H. Eggertsdóttir,
Grundarsmára 4, Kópavogi.
Þorsteinn H. Ögmundsson,
Veghúsum 13, Reykjavík.
Þór Þráinsson,
Helgubraut 9, Kópavogi.
Þórarinn Karl Gunnarsson,
Viöarrima 35, Reykjavík.
Sjötugur
Sigfús J. Johnsen
fyrrv. félagsmálastjóri í Garðabæ
Sigfús J. Johnsen, fyrrv. félags-
málastjóri í Garðabæ, Sóltúni 28,
Reykjavík, verður sjötugur þann
25.11. nk.
Starfsferill
Sigfús fæddist i Vestmannaeyj-
um. Hann lauk verslunarprófi frá
VÍ 1950 og kennaraprófi frá KÍ 1953.
Sigfús var yfirkennari í Gagn-
fræðaskóla Vestmannaeyja til 1968
og starfrækti frystihús, verslun,
ferðaskrifstofu og útgerð í Vest-
mannaeyjum um árabil. Hann
kenndi síðan í Vogaskóla og Ár-
múlaskóla til 1973 og var félags-
málastjóri í Garðabæ til starfsloka
1997.
Sigfús var formaður Eyverja, FUS
í Vestmannaeyjum, í áratug, sat á
Alþingi sem fyrsti varaþm. Sjálf-
stæðisflokksins i Suðurlandskjör-
dæmis 1965 og 1966, var formaður
ÍBV 1959-60, stofnandi SEM-samtak-
anna og er félagi í Stærðfræðifélagi
Islands.
Sigfús hefur ritað fjölda greina
um málefni fatlaðra, þjóðmál og
Vestmannaeyjar.
Fjölskylda
Sigfús kvæntist 26.7. 1952 Krist-
inu Sigríði Þorsteinsdóttur, f. 27.5.
1930, húsmóður. Hún er dóttir Þor-
steins Þórðar Víglundssonar, f.
19.10. 1899, d. 3.9. 1984, skóla- og
sparisjóðsstjóra og heiðursborgara
Vestmannaeyja, og k.h., Ingigerðar
Jóhannsdóttur, f. 6.9. 1902, d. 10.12.
1993, húsmóður.
Börn Sigfúsar og Kristínar eru
Þorsteinn Ingi, f. 4.6. 1954, prófess-
or og frumkvöðull, kvæntur Berg-
þóru K. Ketilsdóttur forstöðumanni
og eiga þau þrjú börn; Árni, f. 30.7.
1956, forstjóri og fyrrv. borgar-
stjóri, kvæntur Bryndísi Guð-
mundsdóttur talmeinafræðingi og
eiga þau íjögur börn; Gylfi, f. 23.2.
1961, framkvæmdastjóri, kvæntur
Hildi Hauksdóttur flugfreyju og
eiga þau tvö böm; Margrét, f. 19.7.
1963, innanhússarkitekt og á hún 3
börn; Þór, f. 2.11. 1964, aðstoðar-
framkvæmdastjóri, kvæntur Hall-
dóru Vífilsdóttur arkitekt og eiga
þau eitt barn; Sif, f. 16.11. 1967,
markaðsstjóri, gift Búa Kristjáns-
syni, grafískum hönnuði, og eiga
þau 5 börn.
Systkini Sigfúsar: Gísli, f. 18.10.
1916, d. 1.8. 1964, skrifstofumaður í
Vestmannaeyjum; Anna Svala, f.
19.10.1917, nú látin, húsmóðir í Suð-
urgarði í Vestmannaeyjum; Jón
Hlöðver, f. 1919, nú látinn, útgerðar-
maður og Bjarnareyjarjarl á Salta-
bergi í Vestmannaeyjum; Ingibjörg,
f. 1.7.1922, fyrrv. kaupkona í Ásnesi
í Vestmannaeyjum, móðir Árna
Johnsen alþm.; Áslaug, f. 10.6. 1927,
d. 25.3. 1986, hjúkrunarkona og
kristniboði.
Hálfbræður Sigfúsar, samfeðra:
Guðfinnur Grétar, f. 20.6. 1949, vél-
fræðingur; Jóhannes, f. 27.7. 1953.
Foreldrar Sigfúsar voru Árni
Hálfdán Johnsen, f. 13.10. 1892, d.
15.4. 1963, kaupmaður í Vestmanna-
eyjum, og k.h., Margrét Marta Jóns-
dóttir, f. 5.3. 1895, d. 15.5. 1948, hús-
móðir.
Ætt
Systur Árna voru Sigríður, móðir
Gísla Ástþórssonar blaðamanns, og
Soffía, móðir Árna ísleifssonar
hljóðfæraleikara. Bræður Árna
voru Lárus, afi Ríkarðs Pálssonar
tónskálds, og Sigfús, faðir Baldurs
Johnsens, fyrrv. forstöðumanns
Heilbrigðiseftirlitsins. Árni var son-
ur Jóhanns Johnsens, kaupmanns í
Vestmannaeyjum. Móðir Jóhanns
var Guðfinna Jónsdóttir Aust-
manns, pr. í Vestmannaeyjum,
Jónssonar. Móðir Jóns var Guðný
Jónsdóttir, eldprests, Steingríms-
sonar.
Margrét Marta var dóttir Jóns, b.
í Suðurgarði í Eyjum, Guðmunds-
sonar, hreppstjóra á Voðmúlastöð-
um, Guðmundssonar, b. á Torfastöð-
um, Guðmundssonar, b. þar, Magn-
ússonar, bróður Páls, langafa Ás-
geirs, föður Asgeirs forseta. Páll var
einnig langafi Steinunnar, ömmu
Ólafs Thors. Móðir Guðmundar á
Torfastöðum var Guðríðar Árnadótt-
ir, pr. í Steinsholti, Högnasonar,
prestaföður, Sigurðssonar.
Móðir Margrétar var Ingibjörg
Jónsdóttir, formanns I Hallgeirsey,
Brandssonar, b. á Úlfsstöðum, Ei-
ríkssonar, b. í Ketilshúsahaga,
Loptssonar, hreppstjóra á Víkings-
læk, Bjarnasonar, ættföður Víkings-
lækjarættar Halldórssonar.
Sigfús heldur upp á afmælið í
safnaðarheimili Vídalínskirkju í
Garðabæ sunnud. 19.11. kl.
16.00-18.00.
Áttræöur I ! Sjötugur
Sigurður Magnússon
Sigurður Þorleifsson
fyrrv. verkstjóri
fyrrv. oddviti á Karlsstööum
Sigurður Magnús-
son, fyrrv. verkstjóri,
Hringbraut 50, Reykja-
vik, er áttræður í dag.
Starfsferill
Sigurður fæddist aö
Herjólfsstöðum í Ytri-
Laxárdal í Skagafirði
og ólst þar upp. Hann
stundaði almenn
sveitastörf í sinni
heimasveit frá ferm-
ingu, flutti á Skagaströnd 1943 og
starfaði þar hjá Hólanesi hf., sótt
fiski- og síldarmatsnámskeið 1953 og
var síðan verkstjóri hjá Hólanesi hf.
þar til hann flutti tÚ Reykjavíkur
1993.
^ölskylda
Fyrri kona Sigurðar var Sigur-
björg Björnsdóttir, f. 10.11. 1906, d.
6.1. 1959, húsmóðir. Hún var dóttir
Björns Guðmundssonar og k.h., Sig-
urlaugar Kristjánsdóttur.
Börn Sigurðar og Sigurbjargar:
Bjöm, f. 5.3. 1944, d. 30.12. 1996, var
kvæntur Eygló Kristófersdóttur;
Árni, f. 17.10. 1945, kvæntur Ingi-
gerði Ámadóttur og eiga þau eitt
barn; Þórunn Sigurlaug, f. 28.2.1949,
gift Gunnari H. Gunnarssyni og
eiga þau þrjú böm.
Seinni kona Sigurðar var
Dórothea Hallgríms-
dóttir, f. 8.5. 1940, hús-
móðir.
Börn Sigurðar og
Dórotheu eru Jósep
Hjálmar, f. 5.8. 1961,
kvæntur Evu Björk
Lárusdóttur og eiga
þau tvö böm;Magnús
Elías, f. 17.7. 1962,
kvæntur Hrafnhildi
Gunnarsdóttur og eiga
þau fjögur börn; Sigríð-
ur Aðalborg, f. 1.7.1963, gift Jóhann-
esi Guðnasyni og á hún þrjú börn
frá fyrrv. sambúð; Ævar Þórarinn,
f. 4.6.1964, d. 28.9.1964; Hjörtur Þór-
arinn, f. 9.6. 1965 og á hann tvö
börn;Rósa Dröfn, f. 24.8. 1967, gift
Áma Óla Friðrikssyni og eiga þau
þrjú börn; Kolbeinn Vopni, f. 6.6.
1972, kvæntur Önnu Báru Reynalds-
dóttur og eiga þau þrjú böm; Hug-
rún Gréta, f. 28.7. 1973, gift Lárusi
Konráössyni og eiga þau tvö börn.
Systkini Sigurðar: Hjörtur, f. 2.2.
1913, d. í júlí 1965; Guðrún, f. 4.7.
1914; Sigríður, f. 1.9. 1917, d. 9.1.
2000; Bima Lahn, f. 10.4. 1923; Stef-
án, f. 23.9. 1925, d. 9.6. 1982; Guð-
mundur, f. 23.8. 1928; Sigurlaug, f.
18.1. 1931.
Foreldrar Sigurðar voru Magnús
Sigurðsson og Þórunn Björnsdóttir.
Sigurður Þorleifs-
son, fyrrv. oddviti á
Karlsstöðum í Beru-
neshreppi, S-Múla-
sýslu, er sjötugur í
dag.
Starfsferill
Sigurður fæddist i
Fossgerði í Djúpavogs-
hreppi. Hann var
nokkra mánuði í far-
skóla og sótti síðar
mótornámskeið í
Reykjavík 1948.
Sigurður var til sjós í tvö ár.
Hann var bóndi á Karlsstöðum frá
1950 og sótti jafnframt sjó á trillubát
frá Krossi í mörg ár með þorskanet
og hákarlalínu. Þá var hann vita-
vörður í fjörutíu ár og í brúarvinnu-
ílokki hluta úr fíórum sumrum.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 10.6. 1951
Kristbjörgu Sigurðardóttur, f. 29.9.
1927, húsfreyju. Foreldrar Krist-
bjargar: Sigurður Sigurðsson, bóndi
á Skjöldólfsstöðum í Breiðdal, og
k.h., Arnleif Kristjánsdóttir hús-
freyja.
Börn Sigurðar og Kristbjargar
eru Stefanía Mekkín, f. 8.11. 1951,
gift Sveini Elíssyni húsasmíða-
meistara og eiga þau tvö börn; Sig-
ríður Arnleif, f. 29.7.
1953, gift Kára Húníjörð
Bessasyni og eiga þau
tvær dætur; Sólveig
Þórhildur, f. 1.2. 1957,
gift Páli Kárasyni og á
hún tvö böm; Sigrún
Guðleif, f. 7.10.1958, gift
Ólafi Ásgeirssyni og
eiga þau þijú börn; Sig-
gerður Ólöf, f. 25.12.
1963, gift Stefáni Ás-
geiri Guðmundssyni og
eiga þau tvö böm; Jóna
Kristín, f. 27.8. 1967, gift Þór Jóns-
syni og eiga þau tvo syni.
Stjúpsonur Sigurðar og sonur
Kristbjargar er Sigurður Arnþór
Andrésson, f. 14.12. 1947, kvæntur
Sigrúnu Garðarsdóttur og eiga þau
tvo syni.
Systur Sigurðar eru Þorgerður, f.
28.6. 1928, húsmóðir í Kópavogi, var
gift Eiríki Jónasi Gíslasyni brú-
arsmið, sem lést 1997; Ragnhildur, f.
16.4. 1943, húsmóðir í Mosfellsbæ,
var gift Jóni Hannibalssyni sem lést
1998.
Foreldrar Sigurðar voru Þorleif-
ur Hildibjartur Sigurðsson, f. 23.8.
1892, d. 9.2. 1958, bóndi og hrepp-
stjóri í Fossgerði á Berufjarðar-
strönd, og k.h., Stefanía Þorvaids-
dóttir, f. 23.4.1902, d. 30.3. 1989, hús-
freyja.
Fertugur
Þröstur Viöar Gunnarsson
verktaki í Kópavogi
Þröstur Viðar Gunnarsson verk-
taki, Grundarsmára 16, Kópavogi,
verður fertugur á morgun.
Starfsferill
Þröstur fæddist á Hofsósi og ólst
þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi
frá Varmahlíðarskóla í Skagafirði,
lauk meiraprófi bifreiðastjóra og
síðan einkaflugmannsprófi 1986.
Þröstur flutti til Reykjavíkur
átján ára, stundaði ýmis störf en
festi kaup á vörubíl 1988 og hefur
síðan verið verktaki. Þá æfði hann
og keppti í knattspymu um árabil.
Fjölskylda
Þröstur var í sambúð með Hönnu
K. Pétursdóttur 1980-1994.
Sonur Þrastar og Hönnu er Þröst-
ur Heiðar, f. 14.5.1989.
Sambýliskona Þrastar er Kristín
Bergmann, f. 25.10. 1962, gjaldkeri.
Hún er dóttir Harðar Bergmann
sem er látinn, og Guðlaugar Þor-
steinsdóttur, húsmóður i Kópavogi.
Böm Þrastar og Krist-
ínar eru Viðar Geir, f.
2.8.1995; Hekla Sól, f. 3.2.
1997.
Börn Kristinar frá
fyrri sambúð eru Rúnar
Örn Kristinsson, f. 6.6.
1980; Elsa Hrund Krist-
insdóttir, f. 2.5. 1983;
Birta Mjöll Kristinsdótt-
ir, f. 24.2. 1990.
Hálfsystir Þrastar,
sammæðra, er Jóna
Þórðardóttir, f. 16.7.
1947, húsmóðir í Kópavogi, gift
Kristjáni Arasyni múrara og eiga
þau fjögur böm og eitt
barnabarn.
Alsystkini Þrastar:
Gunnar Geir, f. 24.1.
1952, verktaki í Reykja-
vík, og á hann tvö börn;
Pálína Sif, f. 15.7. 1969,
hársnyrtir í Kópavogi,
gift Einari Marteinssyni
vélamanni og eiga þau
eitt bam.
Foreldrar Þrastar eru
Gunnar Geir Gunnars-
son, f. 4.9. 1927, vörubíl-
stjóri i Reykjavík, og k.h., Arnbjörg
Jónsdóttir, f. 6.1. 1928, ljósmóðir.