Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2000, Qupperneq 8
8
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000
Viðskipti
Umsjón: Vidskiptabla&iö
McDonalcTs a Islandi
siglir lygnan sjó
- sala McDonald’s í Evrópu minnkar vegna hræðslu við kúariðu
Á mánudaginn tilkynnti
McDonald’s hamborgarakeðjan í
Bandaríkjunum að útlit væri fyr-
ir að tekjur félagsins yrðu minni
en gert var ráð fyrir og er helsta
ástæðan fyrir því talin vera
minni sala í Evrópu vegna
hræðslu við kúariðu. Um 25%
tekna fyrirtækisins koma frá Evr-
ópu en í fyrra seldi McDonald’s
hamborgara fyrir samtals 35,1
milljarð dollara.
Pétur Þórir Pétursson, upplýs-
ingafulltrúi Lystar hf., sem er um-
boðsaðili McDonald’s á íslandi, seg-
ir þessa hræðslu ekki hafa náð til ís-
lands, heldur þvert á móti hafa sala
stöðugt aukist milli mánaða allt frá
stofnun fyrirtækisins. „Það kjöt
sem McDonald’s notar hefur farið í
gegnum strangt gæðaeftirlit og ekki
hefur orðið vart viö sjúkdóma af
neinu tagi í kjöti fyrirtækisins,
enda notar McDonald’s á Islandi að-
eins íslenskt nautakjöt. Hræðslan
við kúariðu í kjöti McDonald’s á
ekki við nein rök að styðjast heldur
er frekar um að ræða almenna
hræðslu gagnvart öllu kjöti á svæð-
inu,“ segir Pétur. Varðandi við-
brögð McDonald’s keðjunnar gagn-
vart þessu ástandi sagðist Pétur
ekki verða hissa á að veitingastaðir
á því svæði myndu auka vöruúrval-
ið með áherslu á svina- og
kjúklingaafurðir ásamt fiskafurð-
um. Pétur taldi auk þessa að ekki
myndu koma til gagngerra verð-
breytinga þrátt fyrir minnkandi
sölu í Evrópu.
Skinnaiðnaður leggur til að
hlutafjáraukning verði heimiluð
Búna&arbankl íslands hf.
Hlutafjár-
aukning Bún-
aðarbankans
í biðstöðu
Á aðalfundi Skinnaiðnaðar hf.,
sem haldinn verður 20. desember
nk„ leggur stjóm félagsins til að
heimiluð verði aukning hlutafjár fé-
lagsins um allt að 200 miújónir
króna. Einnig er lagt til aö stjóm-
inni sé heimilt að taka allt að 60
milljóna króna umbreytanlegt
skuldabréfalán.
Samkvæmt tillögu stjómar er lagt
til að lánardrottni verði veitt heimild
til að breyta höfuðstól lánsins í hlut í
Skinnaiðnaði í síðasta lagi í ágúst
2005. Breytiréttur þessi skal heimila
kröfuhafa að breyta kröfu sinni í
hlutafé í ágústmánuði ár hvert, fyrst
árið 2000 á genginu 3,0 en síðan á því
gengi sem stjóm félagsins kann að
ákveða hverju sinni og tekið skal
fram í skilmálum hvers skuldabréfs.
Breytiréttur skal þó aldrei heimill á
lægra gengi en 3,0.
Ef eigandi skuldabréfs sem gefið
verður út með breytirétti í hlutafé
vill breyta kröfu sinni í hlutafé skal
hann tilkynna félaginu um það með
mánaðarfyrirvara. Ef hlutafé félags-
ins verður hækkað á lánstímanum
hefur eigandi bréfsins einungis rétt
til forgangs að nýjum hlutum, ef
hann hefur þegar tilkynnt útgef-
anda um að hann ætli að breyta
skuldinni í hlutafé. Verði félaginu
slitið, með samruna eða skiptingu,
áður en láninu hefur verið breytt í
hlutafé eða það greitt skal þess gætt
að staða skuldbindingar skv. láninu
verði með sama hætti og staða
hlutafjár í nýju felagi.
Að öðm leyti en að framan greinir
skal ákvörðun um lækkun hlutaíjár í
félaginu, útgáfa nýrra breytanlegra
skuldabréfa, hækkun hlutafjár með út-
gáfu jöfnunarhlutabréfa, áskriftarrétt-
indi eða slit félagsins ekki hafa áhrif á
réttarstöðu eigenda skuldabréfsins
áður en kröfu hans verður breytt í
hlutafé nema á þann hátt að tryggt
verði að verðmæti réttar hans verði
ekki minna en þær viðmiðanir sem
fram koma í viðkomandi skuldabréfi.
Óvíst er hvort heimild til hluta-
fjáraukningar hjá Búnaðarbanka
íslands hf. verður nýtt. Þetta kem-
ur fram í Viðskiptablaðinu sem út
kom i gær.
Að sögn Pálma Jónssonar, for-
manns bankaráðs, er ekki búið að
taka endanlega ákvörðun um nýt-
ingu heimildarinnar og sagði
hann að sérfræðingar bankans
væru að fara yfir málið.
Hluthafafundur bankans 16. októ-
ber síðastliðinn samþykkti að
hækka hlutafé í Búnaðarbankan-
um um 250 milljónir króna með út-
gáfu nýrra hluta og að bankaráð
hefði heimild til að ákveða síðar
gengi og framkvæmd aukningar
að öðru leyti.
Síminn GSM og Gagarín kynna
afþreyingarefni fyrir farsíma
Síminn GSM og Gagarín setja í
dag á markað gagnvirkt afþreying-
arefni fyrir farsíma. Fyrst um sinn
verður hægt að spila leiki á WAP-
síma en leikimir em jafnframt þró-
aðir fyrir komandi kynslóðir far-
sima.
í þessum fyrsta áfanga geta við-
skiptavinir Símans leikið fjóra ein-
falda leiki: skák, drekaat, faUbyssu-
leik og sjóorrustu. Hægt verður að
velja um að spila við aðra mann-
eskju eða tölvu. Á næstu vikum og
mánuðum bætast við fleiri leikir og
ýmis þjónusta. Það er Gagarín ehf.
sem hefur þróað þessar lausnir,
leikina og leikjamiðlarann
GameBrain til að stýra leikjun-
inn en þúsundir munu geta spilað
á sama tíma.
í frétt frá Símanum og Gagarín
segir að félögin séu að stíga skref
inn í framtíðina með þessari þjón-
ustu á sviði fjarskipta. íslendingar
Halló Frjáls fjarskipti sameinast Mint Holding
Eignarhaldsfélagið Mint Holding
og Halló Frjáls fjarskipti hafa gert
samning um sameiningu félaganna.
Óvíst er með hvaða hætti þessi sam-
eining verður nákvæmlega en líkur
eru til þess að sameinað félag muni
verða breskt og starfa undir nafni
Mint þó eignarhlutir beggja í sam-
einuðu félagi verði jafnir. Dótturfyr-
irtæki Mint Holding, svo sem
breska fjarskiptafyrirtækið Mint
Telecom og sjö önnur fyrirtæki,
meðal annars í Sviss, Þýskalandi,
Bandaríkjunum, Indlandi og Brasil-
íu, munu ásamt fjórum dótturfyrir-
tækjum Halló Frjálsra íjarskipta,
sem starfrækt eru á íslandi, starfa
undir hinu sameinaða fyrirtæki.
Mint Telecom og Halló Frjáls fjar-
skipti hafa verið í samstarfi viö
uppbyggingu alþjóðlegs GSM kerfis
sem byggir á forgreiddum farsima-
kortum (Mint Worldwide GSM
Roaming), að því er fram kemur í
frétt frá Talentu-Hátækni sem á
27% hlut í Halló Frjálsum fjarskipt-
um.
eru fremstir í flokki þjóða þegar
kemur að notkun farsíma
og þeir hafa verið fljót-
ir að tileinka sér nýj-
ungar tengdar far-
símum og þráð-
lausum við-
skiptum. Með
nýrri tækni,
GPRS og
\ síðar
þriðju
kyn-
slóð
far-
síma
eykst
flutnings-
geta og
myndgæði
verða betri.
Til að byrja með þarf ekki að
greiða sérstaklega fyrir afþreyingar-
efnið sjálft heldur einungis fyrir
tengitímann.
Minni líkur á uppsögn samninga
I ljósi þeirra verðbólgutalna sem
birtar voru á dögunum kemur fram
í Morgunkorni FBA að ólíklegt sé
að verðlagsþróun leiði til þess aö til
endurskoöunar eöa uppsagnar á
launalið kjarasamninga komi á
næsta ári.
FBA bendir á að ein forsenda
samninganna sé sú að verðbólgan
minnki á samningstímabilinu og
mun nefnd skipuð ASÍ og SA leggja
mat á það í febrúar á næsta ári. í
febrúar á þessu ári mældist 12 mán-
aða hækkun vísitölu neysluverðs
5,6%, samanborið við 4,2% nú. Verð-
bólgan hefur því hjaðnað nokkuð.
„Ljóst er að samningarnir eru
vart í hættu nema þá því aðeins aö
næstu tvær mælingar leiöi í ljós
mun meiri verðhækkanir en um og
eftir síðustu áramót. I byrjun janú-
ar á þessu ári mældist vísitala
neysluverðs um 0,8% hærri en í
byrjun desember á síðasta ári og
skýrðist nokkur hluti þeirrar hækk-
unar af tæplega 1,5% hækkun bens-
ínverðs. Nú má hins vegar frekar
búast við lækkun á bensíni vegna
verðlækkana á heimsmarkaði og
lækkunar á gengi dollara. í janúar
hækkaði húsnæði um 0,6% og mn
0,4% í febrúar. Vart er hægt að bú-
ast við meiri hækkunum þeirra liða
nú. Hins vegar er líklegt að gengis-
þróun krónunnar komi að nokkru
fram í aukinni verðbólgu í næstu
tveimur mælingum. Einhverjar taf-
ir gætu þó orðið á þessum áhrifum
a.m.k. fram yfir útsölur í febrúar.
Einhverjir kunna líka að vilja bíða
með verðbreytingar þar til þeir hafa
meiri vissu um að gengisbreyting
krónunar hafi fest sig í sessi. Að
teknu tilliti til þeirra þátta sem hér
hafa verið nefndir má telja ólíklegt
að verðþróunin kollvarpi forsend-
um kjarasamninga i byrjun næsta
árs,“ segir í Morgunkomi FBA.
DV
Þetta helst
HEILDARVIÐSKIPTI 1.209 m.kr.
- Hlutabréf 279 m.kr.
- Bankavíxlar 360 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
Pharmaco 134 m.kr.
Össur 29 m.kr.
, Íslandsbanki-FBA 26 m.kr.
MESTA HÆKKUN
© Þormóður rammi-Sæberg 7,1%
Q Samherji 2,4%
O Eignarh.fél. Alþýðubankinn 1,8%
MESTA LÆKKUN
O Tangi 5,8%
O íslenska járnblendifélagið 4,8%
! © Opin kerfi 3,4%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.289 stig
- Breyting O 0,26%
BM veðjar á
Linux
Lou Gerstner, forstjóri IBM, hef-
ur greint frá því að fyrirtækið hygg-
ist verja yfir einum milljarði doll-
ara til að styðja við Linux-stýrikerf-
ið á næsta ári en Linux er helsti
keppinautur stýrikerfis Microsoft.
Forstjóri IBM segir að aukinn
stuöningur IBM við Linux sé hluti
af þeirri stefnu IBM að beina sjón-
um að opnum kerfum og hann gagn-
rýndi Microsoft, Sun Microsystems
og EMC fyrir að vera síðustu stóru
tölvufyrirtækin sem ekki aðhyllast
opin kerfi.
Grimsey ráð-
inn forstjóri
íslands
Ein stærsta keöja matvöruversl-
ana í Bretlandi sem ber hið þjóðlega
nafn Iceland hefur ráðið nýjan for-
stjóra. Sá heitir Grimsey, Bill
Grimsey. Hann tekur við af Stuart
Rose sem nýverið kvaddi Iceland og
fór til starfa hjá Arcadia tískukeðj-
unni. I kjölfar ráðningar Grimsey
hækkuðu hlutabréf í Iceland um
2,2% í gær.
Carlsberg
þarf að selja
Coca-Cola i
Noregi
Norsk samkeppnisyfirvöld hafa
komist að þeirri niðurstöðu að
Carlsberg verði að selja Coca Cola
Drikker A/S og minnka þannig ítök
sín á norska gosdrykkjarmarkaðn-
um, til þess að sameining Carlsberg
og Orkla geti gengið eftir. Norska
fréttaþjónustan TDN Finans greindi
frá þessu í gærmorgun.
KAUP SALA
feli Dollar 86,600 87,050
S9 Pund 126,810 127,460
1*1 Kan. dollar 57,000 57,350
B S5I Dönak kr. 10,2570 10,3130
Norsk kr 9,4140 9,4660
C9 Sœnsk kr. 8,9140 8,9630
; I4H FI. mark 12,8535 12,9307 j
U Fra. franki 11,6507 11,7207
■J Belg. franki 1,8945 1,9059
; CJ Sviss. franki 50,7900 51,0700 |
S Holl. gyllini 34,6795 34,8878
Þýskt mark 39,0747 39,3095
11 B ít. lira 0,03947 0,03971 j
£23 Aust. sch. 5,5539 5,5873
Port. escudo 0,3812 0,3835
LS_J Spá. peseti 0,4593 0,4621
[ * 1 Jap. yen 0,76910 0,77370
B lirsktpund 97,037 97,620
SDR 111,5100 h-1 fO h* 00 o o
^ECU 76,4235 76,8827