Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2000, Qupperneq 26
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000
*
30
Ættfræði
I>V
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Stórafmæli
JB5 ára
ntiríkur Guðnason,
Votumýri 2, Selfossi.
Sigurður Sturluson,
Faxabraut 13, Keflavík.
80 áw______________________________
Aðaibjörg Guðmundsdóttir,
Árskógum 17, Egilsstöðum.
Guðmundur H. Andrésson,
Kirkjusandi 3, Reykjavík.
Herfríður Valdimarsdóttir,
Brekku, Varmahlíö.
Hun dvelur á Reykjalundi um þessar
mundir.
Kristófer Eyjólfsson,
Nýbýlavegi 26, Kópavogi.
**75 ára _______________________________
Kristín Kvaran,
Kleifarvegi 1, Reykjavík.
Oddur Guðmundsson,
Skipholti 21, Reykjavík.
70 ára_____________________________
Sólrún Gestsdóttir,
Skúlagötu 20, Reykjavík.
Sæmundur Guðmundsson,
Njaröargötu 29, Reykjavík.
OOáfa______________________________
Georg Einarsson,
Esjubraut 21, Akranesi.
Guðgeir Matthíasson,
Mánagötu 23, Reykjavík.
Hreinn Sverrisson,
Ægisgötu 16, Akureyri.
Jóhanna Kristjánsdóttir,
Stífluseli 16, Reykjavík.
Unnur Jónsdóttir,
Asparfelli 12, Reykjavík.
50 ára_____________________________
Agnes Agnarsdóttir,
Heimavöllum 3, Keflavík.
Arnbjörg Vignisdóttir,
Fögrusíðu 13c, Akureyri.
Birgir Sigfússon,
Birkigrund 23, Selfossi.
Dagbjört Eria Magnúsdóttir,
Háteigsvegi 14, Reykjavík.
Helga M. Jóhannesdóttir,
Fjaröarbraut 51, Stöövarfiröi.
lá Kári Halldór Þórsson,
Bergstaðastræti 17, Reykjavík.
María Ragnarsdóttir,
Skeljagranda 3, Reykjavík.
Sigurður Þorvarðarson,
Hraunbrún 50, Hafnarfiröi.
Stefanía H. Jóhannsdóttir,
Grundarási 2, Reykjavík.
Steinunn Sigurðardóttir,
Stóragejöi 5, Reykjavík.
Vigdis Ólafsdóttir,
Breiðuvík 1, Reykjavík.
Þórunn Þórðardóttir,
Hjaröarslóö 6e, Dalvík.
Þrúður Guðrún Haraldsdóttir,
Engjaseli 9, Reykjavík.
4Qára______________________________
Anna Soffía Guðmundsdóttir,
Öldugranda 7, Reykjavík.
-4- Gestur Stefánsson,
Arnarstööum 1, Hofsósi.
Guðlaug I. Arnsteinsdóttir,
Hvammi, Akureyri.
Helgi Geirharðsson,
Einilundi 8, Garðabæ.
Hólmgeir G. Hallgrímsson,
Álftagerði 1, Reykjahlíö.
Kristín Bjarnadóttir,
Laxárdal lb, Selfossi.
Petrína Sigurðardóttir,
Kirkjubraut 33, Njarövík.
Snorri Ingason,
Skógarási 11, Reykjavík.
Vliborg Gunnarsdóttir,
Víöihvammi 12, Kópavogi.
Andlát
Kristín Sigurrós Kristjánsdóttir,
dvalarheimilinu Ási, Hverageröi, lést 12.
12. sl.
Jón Elís Guðmundsson (Jón Massi)
Suöurhólum 20, Reykjavík, lést laugard.
9.12. Jarðarförin veröur auglýst síðar.
Jóhanna Sæmundsdóttir, Hólabraut 19,
Hafnarfirði, lést á Landspítala viö
Hringbraut mánud. 11.12.
Þórir Guðmundur Áskelsson, Noröurgötu
53, Akureyri, lést á Fjóröungssjúkrahúsinu
á Akureyri sunnud. 10.12. Jarðarförin fer
fram í kyrrþey aö ósk hins látna.
Magnús Ingimundarson er látinn.
Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey.
SKILTI Á LEIÐI
Plastkr.1990.-, Ál kr. 2600,-
Pantið tímanlega fyrir jól
Euro - Visa • sendum í póstkröfu
Sími: 565-1995
Fax: 565-1811
Dalshrauni 11, Hafnarfirði • marko-merki@isholf.is
Hundrað ara
Sigurbjörg Þorvarðardóttir
húsmóðir í Neskaupstað
Sigurbjörg Þorvarðardóttir hús-
móðir, öldrunardeild Sjúkrahúss
Neskaupstaðar, er hundrað ára í
dag.
Starfsferlll
Sigurbjörg fæddist á Þiljuvöllum
á Beruíjarðarströnd og ólst þar upp.
Eftir að hún gifti sig fluttu þau
hjónin í Neskaupstað þar sem þau
bjuggu lengst af og þar sem Sigur-
björg var húsmóöir á bammörgu
heimili.
Fjölskylda
Sigurbjörg giftist 7.5. 1922 Kristni
ívarssyni, f. í Borgargarði á Djúpa-
vogi 15.2. 1898, d. 4.12. 1973, sjó-
manni. Hann var sonur Ivars Hall-
dórssonar, f. 27.7. 1872, beykis á
Bjargi á Djúpavogi, og k.h., Önnu
Margrétar Jónasdóttur, f. 1.7. 1872,
húsfreyju.
Böm Sigurbjargar og Kristins eru
Kristín Kristinsdóttir, f. 16.7. 1921,
saumakona í Reykjavík en maður
hennar var Ingvar Magnússon, f.
26.6. 1912, d. 10.4. 1974, vélstjóri, og
eru böm þeirra Ægir, Öm, Björk og
Sigurbjörg; Hermann Kristinsson, f.
10.9. 1922, vélvirki í Kópavogi en
kona hans er Bóel Sigurgeirsdóttir,
f. 6.9. 1924, húsmóðir og eru böm
þeirra Sigþór, Sigurlín, Rúnar Þór
og Kristbjörg; ívar S. Kristinsson, f.
19.6. 1925, d. 9.6. 1992, húsasmíða-
meistari I Neskaupstað en eftirlif-
andi kona hans er Sigríður Elías-
dóttir, f. 26.6. 1923, húsmóðir og eru
böm þeirra Kristinn, Klara og Erla;
Anna M. Kristinsdóttir, f. 7.3. 1927,
d. 17.11.1989, saumakona í Neskaup-
stað en maður hennar var Rafn J.G.
Einarsson, f. 6.8. 1919, d. 11.6. 1977,
sjómaöur og eru böm þeirra Elísa
Kristbjörg, Svandís, Einar Þór, Auð-
ur, Hörður og Þröstur; Þór Kristins-
son, f. 18.4.1928, húsasmíðameistari
í Reykjavík, en kona hans er Hanna
Kristjánsdóttir, f. 22.7. 1925, hús-
móðir og eru synir þeirra Hörður og
Brynjar; Jón Kristinsson, f. 10.1.
1932, skipstjóri í Kópavogi, en kona
hans er Þórhalla Sveinsdóttir, f. 6.5.
1931, verslunarmaður og eru dætur
þeirra Ragnhildur og Brynhildur;
Hörður Kristinsson, f. 18.10. 1934, d.
20.7. 1954, sjómaður en unnusta
hans var Selma Gunnarsdóttir, f.
5.6. 1936 og er dóttir þeirra Hrönn.
Afkomendur Sigurbjargar og
Kristins eru nú á annað hundrað
talsins.
Hálfsystkini Sigurbjargar, sam-
feðra: Ásta, nú látin; Málfríður Lís-
bet, nú látin; Snæbjöm, liflr; Þór-
unn, lifir.
Foreldrar Sigurbjargar vom Þor-
varður Bjamason, f. 14.2. 1867, d.
12.11. 1940, bóndi, lengst af á Þilju-
völlum á Berufjarðarströnd, og
Kristín Snjólfsdóttir, f. 14.2. 1874, d.
19.9.1934, húsfreyja.
Ætt
Þorvarður var sonur Bjama, b. á
Núpi i Berufirði, Þórðarsonar, b. á
Núpi, frá Tungu í Fáskrúðsfirði,
Pálssonar. Móðir Bjarna var Sigríð-
ur Bjamadóttir, b. í Fagradal í
Breiðdal, Ámasonar og Guðnýjar
Gunnlaugsdóttur frá Þorgrímsstöð-
um. Móðir Guðnýjar var Oddný Er-
lendsdóttir, ættfóður Ásunnarstaða-
ættarinnar, Bjarnasonar.
Ættingjar og vinir Sigurbjargar
tóku forskot á sæluna í sumar og
héldu upp á afmælið 22.7. 2000 í Nes-
kaupstað í dýrlegu veðri. Mættu þar
um hundrað manns, víðs vegar að,
bæði utanlands frá og innan. Sigur-
björg naut stundarinnar til fulls,
enda ótrúlega em og fylgist vel með.
Sjötug
Ingveldur Magnúsdóttir
húsmóðir í Ólafsvík
Ingveldur Magnúsdóttir húsmóðir,
til heimilis að Ólafsbraut 38, Ólafsvík,
verður sjötug fimmtudaginn 21.12. nk.
Starfsferill
Ingveldur fæddist í Magnúsarhúsi í
Ólafsvik. Hún ólst upp í Ólafsvík og
lauk bamaskólaprófi frá Bamaskóla
Ólafsvíkur 1942.
Ingveldur vann í Hraðfrystihúsi
Ólafsvíkur á unglingsárunum eða frá
1942-45. Þá tók hún við heimilishaldi
fyrir fóður sinn og bræður er móðir
hennar lést. Auk húsmóðurstarfa
vann hún jafnframt hjá Bakka hf. í
Ólafsvík.
Ingveldur var stofnfélagi í Slysa-
vamadeildinni Sumargjöf i Ólafsvík.
Hún hefur ásamt manni sínum unnið
mikið fyrir Framsóknarflokkinn, m.a.
að uppbyggingu Miðbæjar ehf. Þá hef-
ur hún stutt starf Sjómannadagsráðs
Ólafsvíkur í yfir þrjátíu ár með ráð-
um og dáð.
Ingveldur hefur verið heimavinn-
andi húsmóðir síðustu árin.
Fjölskylda
Ingveldur giftist 17.6. 1962 Rikharði
Jónssyni sem er frá bænun Sakxun á
Straumey í Færeyjum. Hann kom til
Ólafsvíkur 1953 þá tuttugu og þriggja
ára. Hann starfaði við sjómennsku til
ársins 1978. Hann starfaði einnig lengi
sem flskmatsmaður og einnig við
störf tengd fiskvinnslu. Rikharður tók
próf frá Fiskvinnsluskólanum og
einnig hefur hann skipstjómarrétt-
indi. Nýlega hafa þau hjón reist sér
húsnæði til harðfiskvinnslu í Ólafs-
vík. Ríkharður hefur einnig fengist
við tónsmíðar í frístundum.
Dóttir Ingveldar og Ríkharðs er
Katrín, matráðskona á Leikskólanum
Krílakoti í Ólafsvík, og er hún gift
Stefáni Egilssyni en hann er vélstjóri
á snurvoðarbátnum Ólafi Bjamasyni
SH 137. Þeirra dóttir er Hafdís Björk,
starfsstúlka hjá Sparisjóði Hafnar-
ijaröar, en hennar maður er Sigurvin
Breiðfjörð Pálsson steypustjóri.
Albræður Ingveidar eru Eyjólfur
Aðalsteinn, f. 23.10. 1923, búsettur í
Reykjavík, kvæntur Sigurrósu Jóns-
dóttur og eiga þau tvær dætur; Magn-
ús, f. 20.6. 1926, stýrimaður í Reykja-
vík, kvæntur Margréti Gunnarsdóttur
og eiga þau tvo syni en að auki á
Magnús son frá fyrra hjónabandi.
Foreldrar Ingveldar voru Magnús
Kristjánsson, f. í Ytra-Skógamesi í
Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi 1.10.
1875, d. 22.4.1963, smiður og meðhjálp-
ari í Ólafsvík, og k.h., Katrín Eyjólfs-
dóttir ættuð úr Breiöafjarðareyjum, f.
í Bjameyjum 29.8. 1890, d. 26.5. 1949,
húsfreyja. Þau bjuggu lengst af í
Ólafsvík.
Ætt
Katrín var dóttir Eyjólfs, b. og sjó-
manns í Bjarneyjum, Eyjólfssonar,
bónda í Bjameyjum, Jónssonar, b. og
sjómanns í Innstu-Búðey, Jónssonar.
Móðir Eyjólfs Jónssonar var Halldóra
Jónsdóttur úr Hergilsey. Móðir Eyj-
ólfs Eyjólfssonar var Guðbjörg Gríms-
dóttir, b. á Dröngum, Grímssonar, og
Sigríðar Vigfúsdóttur.
Móðir Katrínar var Matthildur
Björg Matthíasdóttir, b. á Harastöðum
á Fellsströnd, Jónssonar, b. í
Akurholti í Eyjahreppi, Sigurðsson-
ar. Móðir Matthíasar var Ragnhildur
Jónsdóttir. Móðir Matthildar var Elín
Einarsdóttir, b. á Ytrafelli,
Magnússonar og Valgerðar Karitas-
ardóttur.
Ingveldur heldur upp á afmælisdag-
inn í Félagsheimilinu Klifi fóstudag-
inn 15.12. nk.
Merkir íslendingar
Ingibjörg H. Bjarnason, alþingiskona og
forstöðumaður Kvennaskólans í Reykja-
vík, fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð 14.
desember 1867. Hún var dóttir Hákonar
Bjamasonar, kaupmanns á BOdudal og
Þingeyri, og k.h., Jóhönnu Kristínar
Þorleifsdóttiu- húsmóður. Bróðir Ingi-
bjargar var Lárus H. Bjarnason, sýslu-
maður, bæjarfógeti og hæstaréttar-
dómari.
Ingibjörg þótti vel menntuð á þeirra
tíma mælikvarða. Hún var í námi hjá
Þóru, konu dr. Þorvaldar Thoroddsens
náttúrufræðings og dóttur Péturs Péturs-
sonar biskups. Þá stundaði hún nám í Kaup-
mannahöfn 1884-1885 og aftur 1886-1893 auk
Ingibjörg H. Bjarnason
þess sem hún dvaldi erlendis 1901-1903 og
kynnti sér þá m.a. skólahald í Þýskalandi
og Sviss.
Ingibjörg var fyrsta konan sem kjörin
var á Alþingi. Hún sat á þingi
1922-1930, fyrst fyrir. Kvennalistann
eldri, þá fyrir íhaldsflokkinn og loks
Sjálfstæðisflokkinn.
Ingibjörg kenndi við Kvennaskól-
ann í Reykjavík frá 1903 en þá var
hann enn til húsa í Thorvaldssenstræti
í húsi sem síðar var nefnt Sjálfstæðis-
hús eða Sigtún. Er skólinn flutti í nýtt
húsnæði við Fríkirkjuveg 1906 tók hún við
stjóm skólans og stýrði honum til æviloka
30. október 1941.
_______________Jarðarfarir
Kristín Soffia Jónsdóttir, Vesturbergi
138, Reykjavík, veröur jarösungin frá
Fíladelfíukirkjunni fimmtud. 14.12. kl.
13.30.
Sigríður Magnúsdóttir frá London,
Vestmannaeyjum, Stigahlíð 4, Reykjavík,
veröur jarösungin frá Áskirkju föstud.
15.12. kl. 15.00.
Útför Elliða Guðmundar Úlfars (Úlla)
Skúlasonar Norðdahl frá Úlfarsfelli fer
fram frá Lágafellskirkju föstud. 15.12.
kl. 13.30.
Kristinn Guðsteinsson garöyrkjumaöur,
hjúkrunarheimilinu Skjóli, áöur Hrísateigi
6, verður jarösunginn frá Áskirkju
fimmtud. 14.12. kl. 13.30.
Skúli Eyjólfsson kaupmaöur, Lyngholti
18, Keflavík, verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju fimmtud. 14.12. kl.
14.00.
Afmælisgreinar í DV um hátíðarnar
Upplýsingar vegna afmælisgreina sem birtast eiga í jólablaði DV, laugardaginn 23. desember,
þurfa að berast blaðinu eigi síðar en miðvikudaginn 20. desember.
Upplýsingar vegna afmælisgreina sem birtast eiga í áramótablaði DV, laugardaginn 30.
desember, verða að berast blaðinu eigi síðar en miðvikudaginn 27. desember.
Upplýsinguniun þurfa að fylgja skýrar andlitsmyndir í lit.