Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 Fréttir DV Borgarfulltrúar taka vel í hugmyndir Skúla Bjarnasonar: Neðanjarðarlest fær mikinn meðbyr Stuttar fréttir „Ætli menn að byggja upp mið- borgina og hafa hana sem mið- punkt Reykjavík- ur, þá er neðan- jarðarlest einn af þeim hlutum sem munu koma til með að verða hluti af þeirri mynd,“ segir Júlí- us Vífill Ingvars- son, borgarfull- trúi Sjálfstæðis- fiokks í Reykja- vík, um hugmynd- ir Skúla Bjarna- sonar lögmanns, sem gerði skýrslu fyrir Reykjavíkur- borg um almenn- ingssamgöngur á höfuðborgarsvæð- inu. Helgí Hjörvar: fysilegur kostur. Júlíus Vífill Ingvarsson: fyrirsjáanlegt neyðarástand. Skúli sagðist í DV í gær vera sér- staklega hrifinn af þeirri hugmynd að setja á legg neðanjarðarlestar- kerfi í Reykjavík og kallaði á raun- hæfar aðgerðir í þá átt að skoða þann möguleika. „Við stöndum frammi fyrir því að í náinni framtíð er fyrirsjáanlegt neyðarástand á götunum í Reykjavík ef horft er út frá núverandi skipu- lagi,“ segir Júlíus VifiU og kallar á nýjar leiðir í samgöngum í borginni. „Það kostar okkur ekki mikið að setja vinnuna í gang og athuga hvað neðanjarðarlest komi til með að kosta og hvaða staðsetning verði hag- kvæmust í nálægri framtíð. Við þurf- um að skoða aðrar leiöir en að um- ferðin fari bara eftir götunum, þar sem þær bera þessa miklu umferð nú þegar illa. Miðað við spár sem lagðar hafa verið fram í tengslum við svæð- isskipulag er ljóst að aukning um- ferðar leiðir til þess að hér stefnir í hálfgert neyðarástand á götunum," segir Júlíus sem hefur meðal annars mælt með eins kílómetra löngum jarðgöngum frá Umferðarmiðstöð- inni að miðborginni. ^ . Mállð . skoð- *««e&........ að Helgi Hjörvarr, borgarfull- trúi R-list- ans í Reykjavík, segir jarðlest /íSgffSSte vera fysilegan kost í almenn- ingssamgöngum sem horfa ætti til í framtíðinni. „Það þarf að fara í gríðarleg verk- efhi í vegagerð til að halda uppi nú- verandi þjónustustigi í gatnakerfinu og kostnaðurinn við þau hleypur á milljarðatugum. Neðanjarðarlesta- kerfi í Reykjavík er fýsilegur kostur í framtíðinni en hingað til hafa lest- arhugmyndir strandað á of miklum kostnaði og of fáu fólki. í fljótu bragði sýnist mér kostnaðurinn geta numið um millj- ón króna á hvert heimili í borginni," segir hann. Helgi segir líklegt að borg- arjdirvöld muni taka mál- ið til athugun- ar á næstunni. Of snemmt er að segja til um það núna hvort skipuð verði nefnd eða einhver ráðinn til að meta að- stæður fyrir neðanjarðarlest í borg- inni. Mér finnst sjálfsagt að fara yfir málið og skoða allar stærðir í sam- bandi við það, enda kemur sá tími að lestir verða nægilega hagkvæmar hér,“ segir hann. -jtr 819 e-töflur í meltingarvegi Guðmundur Njáli Guðmundsson, 29 ára, hefur verið ákærður fyrir að hafa flutt 819 e-töflur í líkama sínum þegar hann kom með flugi til Kefla- víkur frá Þýskalandi þann 15. október síðastliðinn. Honum er einnig geflð að sök að hafa ætlað að selja efnin hér á landi í hagnaðarskyni. Guðmundur Njáll hefur viður- kennt sök. Við þingfestingu í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær lýsti hann því yfir að ákæran á hendur honum væri rétt. Samkvæmt upplýsingum DV var allt þetta magn falið í smokk- um sem ákærði hafði ýmist gleypt eða stungið í endaþarm áður en hann lagði upp í flugferðina til íslands. Þeg- ar hann var handtekinn voru efnin „á ýmsum stöðum í meltingarvegi". Ákærði gaf lögreglu ekki skýringar á því hvort hann eða einhver annar hefði lagt á ráðin um innflutninginn. Réttarhöld með vitnaleiðslum hefjast í málinu 5. febrúar. -Ótt Plönturnar gerðar upptækar Lögreglumaður með marijúanaplönturnar sem fundust í geymslunni í Kríuhólum. New York-Keflavík: Leið yfir farþega Tveir farþegar í Flugleiðaþotu á leiö frá New York til Keflavíkur féllu í yfirlið með stuttu millibili í áætlunarflugi félagsins að morgni síðastliðins mánudags. Um var að ræða tvær konur, önnur var sænsk en hin frönsk. Engin tengsl voru á miili kvennanna. Talið er að of- þreyta hafi valdiö yfirliðinu í öðru tilvikinu en flensa hinu. Konurnar náðu sér fljótt og gengu frá borði í Keflavík eins og ekkert hefði í skorist. Flugleiðir fljúga dag hvem með j um fjögur þúsund farþega þannig að | ekki þykir tiltökumál þó einn og einn farþegi falli í yfírlið. Hins veg- ar mun fátítt að það líöi yfir tvo far- I þega í einu og sömu flugferðinni. -EIR Marijúana í Kríuhólum Síðdegis í gær lagði fikniefnalög- reglan hald á marijúanaplöntur sem veriö höfðu í ræktun í geymslu fjöl- býlishúss í Kríuhólum í Breiðholti. Réðst lögreglan til inngöngu í geymsl- una eftir ábendingu frá íbúa hússins sem fundið hafði torkennilega lykt þegar hann var að þrffa eigin geymslu. í ljós komu stórar mari- júanaplöntur sem vaxið höfðu vel með aðstoð hitalampa og annars út- búnaðar sem henta þykir við slíka ræktun. Eigandi geymslunnar í Kríu- hólum var krafinn skýringa á þessu tómstundagamni sínu og plönturnar gerðar upptækar af lögreglu. -EIR Blaðið í dag Sprett- hlauparann skorti úthald Erlent fréttaljós •f ^ Áhyggjur af kjötsmygli Kúariða og Creutzfeldt-Jakob 1 c Hvað er Hvannadals- hnúkur hár? Líklega ekkl 2019 m Tónlistin er krefjandi ástkona Finnur Torfi Stefánsson í draumi sérhvers manns Á næturnar Elskaðu rassinn þinn Allt bygglst á endanum Sársaukafull og fyndin hamingja Kristján Þórður Hrafnsson Austfirsk hús Reykjavík Símatorg Hæstaréttar Hallgrímur Helgason Þrumustuð í þrjátíu ár Geirmundur Valtýsson Ekki pólitísk afskipti „Ég kannast ekki við það að fyrri eig- endur Stöðvar tvö hafi reynt að hafa nein pólitísk afskipti af eða áhrif á störf fréttastofunnar," sagði Elín Hirst þeg- ar blaðamaðiu Vís- is.is bar þau ummæli Sigurðar G. Guð- jónssonar undir hana að áhrifamenn í Sjálfstæðisflokknum hefðu ætlað henni sem fréttastjóra Stöðvar 2 að vinna borgina fyrir flokk þeirra. Stórsamningur Orkuveita Reykjavíkur og Hf. Eim- skipafélag íslands gerðu f gær með sér þjónustusamning um birgðahald og dreifingu sem sagður er sá stærsti sinnar tegundar hér á landi. Þjónustu- samningurinn er til fimm ára og mark- ar tímamót þar sem um er að ræða fyrsta samning sem opinbert fyrirtæki gerir um heildarbirgðahald sitt. Samn- ingurinn nær til vörumóttöku, inn- skráningar, birgðavörslu, móttöku pantana, tollafgreiðslu, aimennrar af- greiðslu og dreifingar. Sjómenn samþykkja Sjómenn í Verkalýðsfélagi Húsavík- ur hafa samþykkt í atkvæðagreiðslu að boða til verkfalls sem heQist 15. mars. 82,6 prósent sjómanna, sem tóku þátt i atkvæðagreiðslunni, samþykktu verkfaliið en 17,4 prósent sögðu nei, samkvæmt upplýsingum frá verka- lýðsfélaginu. Mbl.is sagði frá. Mjólkurfoú gegn fósturvísum Stjórn og varastjóm Mjólkursam- lagsins í Búðardal hafa samþykkt ályktun þar sem skorað er á Guðna Ágústsson landbúnaðarráðherra að fresta fyrirhuguðum innflutningi á fósturvísum úr norskum kúm. Þar seg- ir einnig að afar mikilvægt sé að halda imynd hreinleika og hollustu, öll vafa- mál beri að túlka íslenskum landbún- aði og íslensku þjóðinni í hag. Sandkassaleikur Grétar Mar Jóns- son segir útgerðar- menn vera í sand- kassaleik sem valdi því að ekki sé hægt að semja við sjó- menn. Grétar Mar sagði í samtali við fréttastofu Útvarps- ins að útgerðarmenn stefndu flotanum í verkafall í því skyni að fá enn einu sinn sett lög á sjómenn. Salmonellusvið Salmonella hefur greinst f sviðahús- um á Höfn. I desember kom í ljós að um 20 prósent sýna reyndust smituð. Salmonella hefúr ekki ftmdist í öðrum sláturafurðum og ekki hafa komið upp veikindi. RÚV sagði frá. Kreppumerki Hætta er á að fjár- málakreppa vofi yfir íslensku efnahagslífi að mati Össurar Skarphéðinssonar, formanns Samfylk- ingarinnar. Össur les þetta út úr umsögn sendinefndar Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins um íslensk efnahagsmál. Sendinefndin kannaði ástand íslenskra efnahagsmála í síð- ustu viku og komst að þeirri niður- stöðu að viðskiptahallmn væri of mik- ill og erlendar skuldir svo háar að að- gerða væri þörf. Haldið til haga í teikningu þar sem gerður var sam- anburður á stærð Reykjavikurborgar og Vestfjarðagöngum láðist að geta þess að grunnteikning var gerð af starfsmönnum Vegagerðarinnar. -rt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.