Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Blaðsíða 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001
DV
Shimon Peres
Fundur ráöherrans og Yassers
Arafats Palestínuleiötoga er
ráðgeröur á morgun.
Peres svartsýnn
á friðarsamning
fyrir kosningar
Shimon Peres, ráðherra skipu-
lagsmála í ísrael, sagði í gær að
ágreiningurinn um Jerúsalem
kæmi í veg fyrir að friðarsamkomu-
lag milli ísraela og Palestínumanna
næðist fyrir kosningamar 6. febrú-
ar næstkomandi. Fundur Peresar og
Yassers Arafats, leiðtoga Palestínu-
manna, er fyrirhugaður á morgun.
Ekki er gert ráð fyrir að Ehud
Barak forsætisráðherra taki þátt í
viðræðunum.
Samkvæmt niðurstöðum þriggja
nýrra fylgiskannana, sem birtar
voru í gær, er stjórnarandstöðuleið-
toginn Ariel Sharon með stórt for-
skot á Barak, frá 16 prósentustigum
til 18 prósentustiga. Kannanirnar
leiddu í ljós að Peres myndi ganga
betur en Barak gegn Sharon.
Gautaborg:
Særðust er bíla-
sprengja sprakk
Tveir menn særðust þegar bíla-
sprengja sprakk fyrir utan Volvo-
verksmiðjuna í Gautaborg aðfara-
nótt föstudags. Mennirnir voru að
koma af kvöldvakt og settust í bíl
fyrir utan verksmiðjuna. Þær ætl-
uðu að taka þriðja manninn upp í
bilinn. Sprengjan sprakk þegar þeir
höfðu ekiö nokkra metra.
Blaðafulltrúi Volvo taldi
sprengjutilræðið ekki tengjast verk-
smiðjunni. Hann vildi ekki tjá sig
um hvort mönnunum höfðu borist
hótanir.
Alexia prinsessa
Gríska prinsessan á leiö til brúö-
kaups síns og Carlos Morales
Quintana fyrir einu og hálfu ári.
ETA fylgist með
ferðum Alexiu
Félagar í ETA, aðskilnaðarhreyf-
ingu Baska, fylgjast grannt með
ferðum grísku prinsessunnar Alex-
iu, bróðurdóttur Sophiu drottning-
ar, í Barcelona.
Spænska blaðið La Vanguardia
greindi frá því í gær að lögreglan
hefði oft orðið vör við að félagar í
ETA veittu bíl prinsessunnar eftir-
för. ETA-hreyfingin reyndi eitt sinn
að ráða Jóhann Karl Spánarkonung
af dögum. Alexia prinsessa er dóttir
Önnu Maríu Danaprinsessu og Kon-
stantíns, fyrrverandi konungs af
Grikklandi.
^ Jarðskjálftinn á Indlandi:
Óttast að mörg
þúsund hafi látist
Óttast er að þúsundir hafi látið
lífið í jarðskjálftanum sem reið yfir
vesturhluta Indlands í gærmorgun.
Fréttastofan Press Trust of India
greindi frá því í gærkvöld að 1500
hefðu látist, þar af eitt þúsund í
bænum Bhuj sem er nálægt miðju
skjálftans. Innanríkisráðherra
Gujarat-héraðs, Haren Pandya,
sagði í viðtali við Reutersfréttastof-
una að hann óttaðist að mörg þús-
und hefðu látist í skjálftanum sem
mældist 7,9 á Richter.
Björgunarmenn leituðu í rústun-
um í gær á meðan þúsundir manna
höfðust við á götum úti. Á loft-
myndum sást að 90 prósent bygg-
inga í Bhuj, sem er 150 þúsund
manna bær nálægt landamærum
Pakistans, höfðu skemmst. í Ah-
medabad, höfuðborg Gujarat-hér-
aðs, þar sem um 5 milljónir búa, lét-
ust að minnsta kosti 400 manns þeg-
ar um 80 hús jöfnuðust við jörðu.
Nokkur húsanna voru fimm hæða
fjölbýlishús.
Pandya sagði að minnsta kosti 30
til 40 vera á lífi í rústunum. Björg-
unarmenn notuðu sagir og bora til
að komast að þeim sem voru grafn-
ir undir húsarústunum. Fjöldi
manna reyndi að aðstoða með því
að grafa með berum höndunum.
Sjúkrahús voru yfirfull af slösuðu
fólki.
Lögreglan greindi frá fleiri
dauðsföllum í borgum meðfram
ströndinni. ÍGujarat bjuggu menn
sig undir eftirskjálfta.
í Pakistan létu að minnsta kosti
átta manns lífið af völdum jarð-
skjálftans. Yfirmaður pakistanska
hersins, Pervez Musharraf, skrifaði
forsætisráðherra Indlands, Atal
Behari Vajpayee, bréf og vottaði
honum samúð sína.
George W. Bush Bandarikjafor-
seti sendi þeim sem um sárt eiga að
binda samúðaróskir og bauð um
leið aðstoð við björgunarstörfm.
Þjóðhátíðardagur var á Indlandi í
gær. Margir voru því enn sofandi
þegar skjálftinn reið yfir. Aðrir
voru að búa sig til að taka þátt í
skrúðgöngum og hátíðarsýningum í
tilefni þess að 51 ár var liðið frá því
að landið varð lýðveldi.
Yfirvöld Indlands héldu í gær
neyðarfund vegna náttúruhamfar-
anna.
m
Ræöst á áætlanir Bush
Vladimir Pútín
Rússlandsforseti
réðst í ræðu í gær
harkalega á áætlan-
ir George Bush
Bandaríkjaforseta
um eldflaugavama-
kerfi úti í geimn-
um. Pútín varaði
einnig NATO við því að veita fyrr-
verandi Sovétlýðveldum aðild.
Vilja shjóta úlfa
52 prósent norskra karla og 53
prósent norskra kvenna eru fylgj-
andi úlfaveiðum. 37 prósent eru
andvíg en 10,3 prósent óákveðin.
Norsk yfirvöld hafa heimilað veiðar
á 20 úifum. Alls eru 100 úlfar sam-
tals í Noregi og Svíþjóð.
Hætta farsímaframleiðslu
Ericsson-fyrirtækið í Svíþjóð ætl-
ar að hætta farsímaframleiðslu og
verður 600 manns sagt upp störfum.
Ericsson tapaði rúmlega 200 millj-
örðum íslenskra króna á farsímum í
fyrra. Bandaríska fyrirtækið
Flextronics tekur við framleiðslunni.
Lést í sprengjutilræði
Kokkur í spænska sjóhemum
beið bana er sprengja sprakk undir
bíl hans í San Sebastian. Stjórn-
málamenn saka ETA, aðskilnaðar-
hreyfmgu Baska, um árásina.
í fangelsi vegna hártísku
Tuttugu og átta háirgreiðslumenn
í Kabul í Afganistan hafa verið
fangelsaðir fyrir að hafa klippt við-
skiptavini sína eins og Leonardo
DiCaprio var klipptur í myndinni
Titanic. Titanic-myndbönd hafa
gengið á milli unglinga í leyni í
Kabúl.
Pinochet á sjúkrahús
Augusto Pin-
ochet, fyrrverandi
einræðisherra
Chile, var í gær
lagður í skyndi inn
á sjúkrahús. Að
sögn fjölmiðla í
Chile veiktist Pin-
ochet á heimili
sínu. Hann var íiuttur í þyrlu á
sjúkrahús.
Húsarústir í Ahmedabad
Jaröskjálftinn sem skók vesturhluta Indlands í gærmorgun mældist 7,9 á Richter.
Blair styöur ráðherra sinn
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, kvaðst í gær ekki sjá að
neitt ólöglegt hefði átt sér stað varð-
andi þátt ráðherrans Keith Vaz sem
bar fram fyrirspum vegna ríkis-
fangsumsóknar Indverja.
Starfsmenn Clintons skildu illa við:
Skáru símasnúrur og veltu
húsgögnum í Hvíta húsinu
Af erlendum uppruna
Yfir helmingur allra sem kærðir
voru vegna ofbeldis í Noregi seinni
helming síðasta árs voru af erlend-
um uppruna.
Mafíumóðursýki
Lögmaður Rúss-
ans Pavels Borod-
ins, sem handtek-
inn var í New York
í síðustu viku að
beiðni svissneskra
yfirvalda, segir
handtökuna lið í
herferð Bandaríkj-
anna gegn meintum rússneskum
mafíósum og peningaþvotti. Um sé
að ræða mafiumóðursýki. Borodin
er grunaður um mútuþægni og pen-
ingaþvott.
Starfsmenn Bills Clintons, fyrr-
verandi Bandarikjaforseta, skildu
illa við þegar þeir yfirgáfu Hvíta
húsið. Bandaríska stórblaðið Was-
hington Post greindi frá því í gær
að menn Clintons hefðu skorið i
sundur símasnúrur og tölvusnúrur,
velt húsgögnum, skilið eftir sig
hauga af rusli, dónalegar myndir og
sóðalegar orðsendingar á tölvu-
skjám og á símsvörum.
Starfsmennirnir höfðu sem sagt
ekki bara fjarlægt stafinn „W“ af
lyklaborði margra tölvanna í Hvíta
húsinu þannig að nýir starfsmenn
áttu í erfiðleikum með að skrifa rétt
nafn núverandi forseta, George W.
Bush.
Samkvæmt frétt Washington Post
höfðu starfsmenn Clintons einnig á
brott með sér postulín og silfur úr
forsetaþotunni, Air Force One. Hátt-
settur starfsmaður á kosningaskrif-
George Bush
Forsetinn skilur aö valdaskipti geti
valdiö miklu tilfinningaróti.
stofu Bush sakaði starfsmenn Clint-
ons um að hafa pakkað niður mál-
verkum til að láta senda sjálfum
sér.
Nokkrir fyrrverandi starfsmanna
Clintons hafa staðfest að strákapör
hafi verið framin. Þeir leggja
áherslu að menn hafi ekki haft neitt
illt í huga. Starfsmönnum Bush
þótti þetta hinsvegar ekkert fyndið.
Ari Fleischer, talsmaður Bush,
sagði að ekki stæði til að leggja
fram kæru vegna málsins. „Forset-
inn skilur að valdaskipti geta verið
erfið og valdið miklu tilfinning-
aróti. Hann mun taka tillit til þess,“
sagði talsmaðurinn.
Starfsmaður Clintons staðfesti að
postulín hefði horfið úr forsetaþot-
unni. Það hefði brotnað vegna
óhapps. Embættismenn Bush
reyndu fyrst að verjast allra fregna
af málinu.