Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Blaðsíða 42
< 50 Tilvera LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 DV American hótelsins við Leisekade 97, rétt við Leidseplein, þar sem haldin var brúðkaupsveizla njósna- kvendisins Mata Hari. Þetta er einn helzti stefnumótastaður miðborgar- innar, kjörinn til að fá sér kafíl og tertu og virða fyrir sér aldargömlu innréttingarnar, frostglerjaðar ljósakrónur, víðfeðm bogarið og steinda glugga. Kaffi og terta kosta 12 gyllini. Hefbundinn Oesterbar Beztu sjávarréttastaðirnir I Amsterdam eru enn hinir sömu og þeir voru í bókarútgáfunni frá 1992. Beztur er liflegur og berangurslegur Oesterbar, þægilega vistaður við Leidseplein 10, sími 626 3463, að vísu með heldur grófari þjónustu en áður. Miklar vinsældir hafa hins vegar ekki skaðað matreiðsluna neitt. Sólflúra og þykkvalúra í Oesterbar er hægt að fá hina ljúfustu fiska og sjávardýr, sem ekki veiðast hér við land, svo sem ostrur, sólflúru og þykkvalúru. Bezt er að panta einfalda matreiðslu, til dæmis grillun, því að þá er eldunar- tíminn undantekningarlaust hárná- kvæmur. Matur kostar um 120 gyll- ini á mann, en getur farið upp í 200 gyllini, ef menn fá sér dýra rétti á borð við humar. Jónas Kristjánsson Sheikh Aamir Uz-Zaman á veitingahúsinu Rijsttafel í Amsterdam Ég skal játa, að mér finnst ég eiga dálítið í indónesíska matstaðnum Sama Sebo í Amsterdam. Þegar leið- sögubók mín um borgina kom út í fyrstu útgáfu árið 1984, setti ég hann á stall sem uppáhaldsstað minn i borginni. Þá var Sama Se- bo óþekktur staður, en er nú kominn í öll leiðsögu- reit, þar á meðal rauða Michelin. Sér- grein staðar- ins var og er Rijsttafel, sem er veizlu- borð um það bil tuttugu smárétta frá Indónesíu. Indrapura er ný stjarna Vegna þessarar forsögu er mér þungbært að viðurkenna, að Sama Sebo hefur ekki þolað frægðina. Á allra síðustu árum hefur hann orðið að sálarlausri verksmiðju með lé- legri matreiðslu og ruddalegri þjón- ustu. Nú orðið fer ég ekki þangað til að fá mér Rijsttafel, heldur í veit- ingahúsið Indrapura, sem er nota- legur staður vandaðrar matreiðslu frá Indónesíu, vel í sveit settur við Rembrandtsplein 42, sími 623 7329. Rijsttafel-veizla með öllu kostar um 85 gyllini á mann. Pönnukökur (Jpstairs Það má nánast teljast til helgisiða i hverri heimsókn til Amsterdam að klifra upp þröngan hænsnastigann i pönnukökuhúsið Upstairs við Grimburgwal 2, rétt við Rokin. Þar komast ekki nema tólf manns fyrir í einu og sitja þröngt. Risa- stór engifer- pönnukaka að hollenzkum hætti kostar 13 gyllini, en hægt er að fá ótal um- fangsmeiri fyllingar. Café American og Mata Hari Annar pílagrímastaður er Art Nouveau kaffistofan á jarðhæð Mangó Kartöflukarrí með Ferskt mangó chutney DV-MYNDIR ÞOK Matreiöslumeistarinn Sheik Aamir Uz-Zaman matreiöir handa gestum veitingahússins Shalimar. ið kólna í stutta stund. Skolið mangóávöxtinn, flysjið hýðið með og skerið ald- inkjötið frá kjamanum í teninga (5 sm á breidd). Breiðið yfir með plasti og leggið til hliðar. Tak- ið soðnar kartöflurnar og skerið í bita og setjið á stóra og djúpa pönnu. Setjið vatn, kóríander- duft, turmeric, chiliduft, cumin, salt og mangó- duft út i og látið suðuna Mangóávöxturinn rekur uppruna sinn til Indlands og Malasíu þar sem hann hef- ur verið ræktaður og etinn svo árþús- undum skiptir. Evrópumenn kynntust þessum ágæta ávexti á nýlendutíman- um en þá var hann einkum notaður í sultu eða niðursoðinn. Nú um stundir er mangóið einkum ræktað í suðaust- urhluta Asíu og Austur-Afríku. Mangó er til í hundruðum afbrigða en oftast er aldinkjötið rauðgullleitt og safaríkt með afbrigðum; enda er stundum sagt að best sé að borða hann í baði. Þegar mangó er þroskað fær það á sig rauðleitan blæ og á að gefa örlítið eftir sé þrýst létt á það. Fullþroska ávöxt má geyma í kæli en þess ber að geta að hýðið er seigt og alla jafna ekki borðað. mangóávöxtum Mangó í köldu salati „Mangó er notað töluvert í ind- verskri matargerð, einkum ef mað- ur vill gera matinn sætari," segir Shéikh Aamir Uz-Zaman, mat- reiðslumaður á nýju indversku veit- ingahúsi, Shalimar, sem er í Aust- urstrætinu. Á Shalimar er boðið upp á klassískan indverskan mat, að sögn Aamirs, en í sumum rétt- anna gætir áhrifa frá heimalandi hans, Pakistan. Aamir hefur verið búsettur hérlendis í á fjórða ár og hefur meðal ann- ars starfað á veitingahúsun- um Grænum kosti og Á næstu grösum. Nýja veit- ingahúsið opnaði hann hins vegar í félagi við Inga Bjöm Albertsson þann 10. janúar síðastliðinn. „Við erum bjartsýnir hérna enda virðast Islendingar kunna að meta indverskan mat. Margir hafa kynnst þessari matseld í útlöndum, til dæmis London og á Norðurlöndum," segir Aamir. Rétturinn sem Aamir býöur lesendum upp á er að hans sögn ættaður frá Pakistan og hentar best þegar veður er drungalegt og fólk vill dvelja innandyra og hafa það huggulegt. Kartöflukarrí meö mangó 1 kiló kartöflur 1 mangó, óþroskað 5 bollar vatn 1/2 tsk. salt 2 tsk. kórianderduft 11/4 tsk. turmeric 1/4 tsk. chiliduft 1/2 tsk. cuminduft 2 tsk. amenchore (mangóduft) 3 tsk. grænmetisolía 2 tsk. sítrónusafi (ferskur) 3 tsk. cumin fræ 1 tsk. kalonji (laukfræ) 2-3 stk. chilipip- ar (má sleppa) Aðferð Sjóðið kart- öflurnar, hellið af þeim vatninu og lát Girnilegur grænmetisréttur Þessi réttur er heitur og sætur á bragöiö og á vel viö þegar úti er dimmt og kalt. Mangó chutney fer vel með mörgum indverskum réttum, svo sem kjúklingaréttum og grilluð- um mat. í þessa uppskrift þarf 1 mangóávöxt, 1 litla rauða papriku, 1/2 rauðlauk, 1 púrru- lauk, 1 msk. ferskan engifer, 1 chilipipar, 1 msk. púðursykur, 2 msk. ferska myntu, 1 msk. ferskt cilantro, 1/2 hvítlauksrif og 1/2 tsk. salt. Græn- metið og kryddjurt- irnar er saxað smátt utan engifer- inn sem er rifinn. Aðferðin getur ekki verið einfald- ari því öllu ofan- töldu er einfaldlega blandað saman og mangósultan er tilbú- in á borðið. Mangó í eftirrétt Byrjið á að búa til bökudeig. Fletjið deigið út og komið fyrir í meðalstóru móti og snyrtið kantana. Pikkið botninn vel og bakið bökuskelina í um það bil 10 mínútur. Takið tvo mangóávexti og flysjið. Skerið síðan til helminga og hreinsið steinana. Skerið annan helming- inn í mjóa báta og geymið. Mauk- ið afganginn af mangóinu í mat- vinnsluvél. Takið fram pott og setjið 75 grömm af ljósum púður- sykri út í ásamt mangómaukinu. Bætið út í 1/4 tsk af vanilludrop- um og látið malla 1 fáeinar núnút- ur. Takiö deigskelina fram og hellið maukinu í. Síðan er mangóbátunum raðað ofan á og bakan aftiu- sett í ofninn. Hún ætti að vera fullbökuð að um það bil 5 til 10 mínútum liðnum. Strá- ið kókosmjöli yfir bökuna þegar hún er tekin út og berið fram. fræin og síðan cumin-fræ- in út í. Steik- ið í 10 til 15 sek- úndur. Látið síð- an kartöflurnar út í og græna chil- ipiparinn (má sleppa) og látið malla í nokkrar mínútur. í Pakistan er þessi réttur jafnan borinn fram Hér er á ferðinni kalt ávaxta- salat sem gott er að borða með rjóma. í salatiö þarf 1 mangó- ávöxt, 2 kíví, 1 banana og 250 grömm jarðarber. Afhýðið ávext- ina og skerið í teninga. Að sjálf- sögðu má nota aðra ávexti ef það hentar betur. Setjið ávextina í skál og blandið saman slettu af púrtvíni, 50 g sykri og safanum ásamt rifnum berki af 1 sftrónu. Hellið yflr ávextina og setjið síð- an í kæli f stutta stimd. Berið fram svalt ásamt þeyttum rjóma. stund. Takið lokið af og bætið mangó- bitunum og sítrónu- safanum út í og lát- ið malla í 10 mínútur til viðbótar. Setijð lokið aft- ur á. Hitið oliima á pönnu eða potti og setjið lauk- koma upp. Lækkið hit- ann, setjið lok á í litlum skálum, sem á máli þar- lendra kall- ast „kator- ies“, og með þessu er borðað svo- kallað Puri- brauð. -aþ Næringargildi Hollustan leikur um mangóávöxtinn enda er hann ríkur af vítamínum. A- og C- vítamín eru í miklu magni en einnig er bæði að finna B- og E-vítamín í ávextinum. í 140 grömmum af mangó er aö finna: Kaloríur 70 Prótein 0 g Fifu 0,5 g Kolvetni 17 g
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.