Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001
DV
57
Tilvera v
Afmælisbörn
Bridget Fonda
Bridget Fonda fagnar í dag 37 ára afmæli
sínu. Bridget er dóttir leikarans Peter Fonda
og sonardóttir Henry Fonda. Engan þarf að
undra að Bridget skuli hafa lagt fyrir sig
leiklist enda er móðir hennar, Susan Brewer,
einnig leikkona. Sagt er að Bridget hafi ver-
ið með foður sínum við upptöku myndarinn-
ar Easy Rider, en raunar mun hún ekki hafa
séð mikið til föður síns í æsku en samband
þeirra mun samt afar náið. Bridget hóf kvik-
myndaleik 1982 en hefur ekki komið mikið
við sögu í stórum hlutverkum.
Alan Alda
Hinn geðþekki leikari Alan Alda er 67
ára í dag. Alda hóf leikferil sinn á sviði
og fór þaðan yfir í sjónvarpsleik. Hann
varð fyrst þekktur fyrir hlutverk sitt í
MASH-þáttunum þar sem hann lék
Benjamin Franklin eða „Hawkeye." Alda
hefur leikið í nokkrum kvikmynda
Woodys Allens en síðast hafa íslenskir
sjónvarpsáhorfendur áreiðanlega séð
hann í Bráðavaktinni þar sem hann lék
lækni sem mátti muna sinn fifil fegri í
bransanum.
Stjörnuspn
Gildir fyrir sunnudaginn 28. janúar og mánudaginn 29. janúar
Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.)
Spa sunnudagsms:
Þó að þú sért ekki al-
veg viss xun að það sem
þú ert að gera sé rétt
verður það sem þú velur þér til
góðs þegar til lengri tíma er litið.
Spa mánudagsíns:
Þú ert að skipuleggja ferðalag eða
einhvern mannfagnað og hlakkar
mikið til. Þú hefur ekki mikinn
tíma fyrir sjálfan þig.
Hrúturinn (21. mars-19. aprill:
Spá sunnudagsíns:
Þú þarft að gæta þag-
mælsku varðandi
verkefni sem þú vinn-
ur að. Annars er hætt við að þú
náir minni árangri.
Spá mánudagsins:
Ekki er ólíklegt að þú lendir í
deilum við nágranna þinn, þar
sem spenna hefur ríkt á milli ykk-
ar um nokkurt skeið.
Tvíburarnir (21. mai-2i. iúnn:
Spá sunnudagsins:
Það verður leitað til þín
um ráðleggingar. Þú
skalt leggja þig fram um
að veita þá aðstoð sem þú getur en
ekki gefa ráð sem þú hefur litið vit á.
Spá mánudagsins:
Þú færð á þig gagnrýni sem þér
finnst óréttmæt. Það er þó best að
halda haus og láta ekki á neinu
bera.
Liónið (23. iúli- 22. áaústi:
Spa sunnudagsins:
' Þú færð fréttir sem
valda þér miklum
heilabrotum. Ættingi
þinn kemur þér verulega á óvart
og sýnir á sér nýja hlið.
Spá mánudagsins:
Þeir sem eru ólofaðir binda sig
trúlega á næstunni eða lenda í al-
varlegum ástarævintýrum. Félags-
lifið er með besta móti.
Vogin (23. sept.-23. okt.i:
Spa sunnudagsins:
Þú ert óþarflega varkár
gagnvart tiUögum ann-
arra, en þær eru allar
nýstárlegar. Þú myndir samþykkja
þær ef þú þyrðir að taka þá áhættu.
Spá manudagsins:
Mál sem hefur lengi verið að
þvælast fyrir þér leysist fyrr en
varir og það verður þér mikill
léttir. Kvöldið lofar góðu.
Bogamaður (22. nóv.-21. des.i:
Spá sunnudagsins:
"Morgiminn verður ró-
legur og notalegur og
þér gefst tími til að
hugsa málin. Kvöldið verður sér-
staklega notalegt.
Happatölur þínar eru 3, 8 og 27.
Þú færð fréttir sem gleðja þig
mjög. Þú ert bjartsýnn og fullur
áhuga á því sem þú ert að gera.
Fiskarnir (19. febr.-20. mars):
V
Spá sunnudagsins:
*Þú færð að heyra gagn-
jj rýni varðandi það hvem-
[If ig þú verð tíma þínum.
Þér finnst þú hafa mikið að gera en
sumum finnst þeir vera vanræktir.
Spá mánudagsins:
Bömin em í aðalhlutverki í dag og
þú þarft að gefa þeim mikinn tíma.
Breytingar eru fyrirsjáanlegar á
næstunni og þú farir i stutt ferðalag.
Nautið f20. april-20. maD:
Ekki gera neitt gegn
betri vitund. Liklegt er
Sv að ákveðnar upplýsing-
ar vanti sem muni gera þér auðveld-
ara fyrir þegar þú kemst að þeim.
Spá mánudagsins:
Ástarlifið blómstrar um þessar
mundir en ekki er vist að það muni
standa lengi. Njóttu augnabliksins.
Happatölur þínar eru 2,13 og 37.
Krabbinn (22. iúní-22. íúií>:
| Mikið rót er á tilfinn-
ingum þínum og þér
gengur ekki vel að
taka ákvarðanir. Mannamót lífgar
upp á daginn.
Spa manudagsins:
Fólk er ekki sérlega samvinnuþýtt
í kringum þig. Með lagni getur þú
þó náð þvi fram sem þú vilt.
Happatölur þinar eru 5, 8 og 34.
Mevian (23. áeúst-22. sept.l:
Spá sunnudagsins:
Þú ert orðinn þreyttur
^^^^á venjubundnum verk-
' efnum og ert fremur
eirðarlaus. Þú ættir að breyta til og
fara að gera eitthvað alveg nýtt.
Spa mánudagsms:
Reyndu að gera þér grein fyrir þvi
hvað þú vilt gera í lífinu. Það er
timi til kominn að þú setjist niður
og veltir fyrir þér málunum.
Sporðdreki (24. okt.-21. nóv.l:
Spá sunnudagsins:
Þér verður mest úr
►verki fyrri hluta dags-
ins. Dagurinn verður
afar skemmtilegur og lánið leikur
við þig á sviði viðskipta.
Spá mánudagsins:
Sjálfstraust þitt er með besta móti og
þér gengur vel við allt sem þú tekur
þér fyrir hendur. Gættu þess þó að of-
metnast ekki og sýna öðru fólki hroka.
Steingeltin (22. des.-19. ian.>: '
Spá sunnudagsins:
Þú hefur í mörgu að
snúast og þarft á aðstoð
að halda. Ástvinir þínir
eru fúsir til að láta þér hana í té og
ekki hika við að þiggja hana.
Spa manudagsms:
Kunningi þinn launar þér ríku-
lega aðstoð sem þú veittir honum
er hann þurfti á að halda og þú
finnur að hann metur þig mikils.
_____________Vinsailnstn myndbandið
Hasaratriði af
gamla skólanum
Vinsælasta myndbandið í dag er
Mission Impossible II og kemur
það engum á óvart. Myndin var
vinsælasta kvikmyndin í Banda-
ríkjunum í fyrra og er komin á
lista yfir mest sóttu kvikmyndir
allra tíma. Sá sem græðir mest á
þessum vinsældum er Tom Cruise
en reikningsglöggir menn sögðu
að tekjur hans af myndinni væru
um það bil 80 milljónir dollara.
Fyrsta myndin í þessum flokki
(við verðum að reikna með að
fleiri en tvær myndir verði gerð-
ar) náði ekki jafn mikilli aðsókn
þó að hún væri svo sem nógu mik-
il - skilaði 180 milljón dollurum í
Bandaríkjunum einum. Það var
Brian De Palma sem leikstýrði
mynd númer eitt en við stjórnvöl-
inn á númer tvö er John Woo sem
segist reyndar ekki hafa veriö
mjög hrifinn af fyrri myndinni:
„Mér fannst hún allt of flókin. Ég
náði ekki sögunni. Ég samþykkti
að leikstýra númer 2 eftir að Tom
Cruise lofaði mér að þetta yrði
ekki hátæknimynd - hressileg
hasaratriðin yrðu af gamla skólan-
um,“ sagði Woo í viðtali um þær
mundir sem myndin var frum-
sýnd.
MI-2, eins og hún er oftast
skammstöfuð, er þrátt fyrir hasar-
atriðin í anda sígildra njósna-
mynda og því vildi Woo fá
leikkonu í anda Ingrid Bergman
eða Audrey Hepburn. Frægt er
orðið að Cruise krafðist þess að fá
að framkvæma öll áhættuatriðin
sjálfur og hafði sitt fram oftast
nær. Meðal annarra leikara sem
koma við sögu má nefna Thandie
Newton, Ving Rhames, Dougray
Scott og Anthony Hopkins. Hand-
ritið skrifaði Robert Towne en fer-
ill hans reis hæst á áttunda ára-
tugnum meö Chinatown og
Shampoo.
Mission
Impossible il
Mikill hasar
og heit rómantík
The Hunchback of
Notre Dame - ★★
Klassík
Hringjarinn
frá Notre Dame
eftir Victor
Hugo er ein
frægasta skáld-
saga allra tíma.
Hefur hún jafn-
an vakið áhuga
kvikmynda-
gerðarmanna,
enda einstak-
lega myndræn, og hafa margar út-
gáfur litið dagsins ljós. Fyrir rúm-
um fjórum árum gerði Walt Disn-
ey vandaða og góða teiknimynd
eftir sögunni og í kjölfarið kom
leikin útgáfa sem Peter Medak
(The Krays, Romeo is Bleeding)
leikstýrir og skartar söngvaranum
og leikaranum Mandy Patinkin í
hlutverki hringjarans og kroppin-
baksins Quasimodo. Richard Harr-
is er í hlutverki kardínálans Dom
Frollo og Salma Hayek leikur
sígaunastúlkuna Esmeröldu.
Hringjarinn frá Notre Dame er svo
magnað skáldverk að ef þokkalega
er staðið að handritsgerð og góðir
leikarar fylla upp í persónurnar
þá getur myndin aldrei klikkað og
þessa niðurstöðu er auðvelt að fá
eftir að hafa séð útgáfu Medaks
sem gerð var upprunalega fyrir
sjónvarp. Þegar á heildina er litið
er myndin innhaldsrík og vel leik-
in en frekar flöt. Það er lítill kraft-
ur í henni frá leikstjórans hendi.
Leikararnir ná góðum tökum á
persónum sínum, sérlega verður
Richard Harris aumkunarvert ili-
menni í hlutverki prestsins. Salma
Hayek er eins og fædd í hlutverk
Esmaröldu, dökk á húð og hár og
kynþokkafull og Mandy Patinkin
er óþekkjanlegur í hlutverki
hringjarans og nær vel að halda
sér innan þess ramma sem hann
skapar sér.
-HK
Útgefandi: Góöar stundir. Leikstjóri: Pet-
er Medak. Bandarísk, 1998. Lengd: 98
mín. Bönnuö börnum innan 12 ára.
The List - ★★
Dómarar í ®
vondum málum
The List er
dæmigerð
Hollywood B-
mynd, spennu-
tryllir sem stend-
ur ekki undir
nafni, aðallega
vegna þess að
plottið er ekki
nógu vel úthugsað
til að myndin
gangi upp. Auk þess eru fljótfærnis-
mistök alltof mörg. Aðstandendur
myndarinnar hafa grafið upp vand-
ræðagemlinginn Ryan O’Neal í aðal-
hlutverkið, leikara sem má muna
sinn fifil fegri. Þetta er ekki sami
leikarinn og heillaði allar stelpur
heimsins í Love Story á sínum tíma.
Eitt hefur þó ekki breyst, hann er
jafn slæmur leikari og hann var
áður. í The List leikur hann dómara
einn sem þarfa að höggva skarð í
vinahóp sinn meðal laganna varða
þegar glæsileg gleðikona, sem hand-
tekin hefur verið, gerir ljóst að allir
æðstu menn borgarinnar hafi sæng-
að hjá henni og að hún eigi mynd-
bandsupptökur með þeim öllum.
Hún færir dómaranum lista með
nöfnum sem verður að sjálfsögðu
heitari en allt sem heitt er.
The List heldur vel dampi fram
yfir miðja mynd þrátt fyrir ótrú-
verðugheitin sem birtast í mjög svo
skrýtnum túlkunum á lögum og
heiðarleika. Ein af mörgum mistök-
um leikstjórans, sem jafnframt er
handritshöfundur, gerir það þó að
verkum að botninn dettur úr tunn-
unni meðan hún er aðeins hálf og
leiðir til þess að allir meðalgreinda
menn gruna nú hvert leiðin liggur í
leit að morðingjanum. Svona af-
drifarik mistök eiga ekki að sjást í
spennutryllum og gerir það að verk-
um að þegar spennan er að mestu
horfin verða gallarnir mun meira
áberandi.
Útgefandl: Sklfan. Leikstjóri: Sylvain
Guy. Bandarísk, 2000. Lengd: 91 mín.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Dog Park - ★★ jjg|
Hundagrín
Kanadíska gaman-
myndin Dog Park,
sem er frá árinu 1998,
gekk vel í heimalandi
sínu og sópaði til sín
verðlaunum. Leik-
stjórinn, Bruce
McCulloch, er eink-
um þekktur fyrir
gamanþáttaröðina Kids in the Hall,
sem var m.a. sýnd í sjónvarpi hérlend-
is.
Dog Park er rómantísk gamanmynd
þar sem segir frá Andy, leiknum af
Luke Wilson, sem er nýskilinn við
konu sína. Hundur þeirra hjóna kemur
illa út úr skilnaðinum og þarf að ganga
til hundasálfræðings. Andy verður síð- ^
ar hrifinn af annarri konu, sem einnig
á hund, en er í millitíðinni seldur
ljósku á piparsveinauppboði. Yfimaður
Andys á einnig í brasi með ástarmálin
eftir að upp kemst um framhjáhald eig-
inmanns hennar og úr þessu verða
ýmsar flækjur.
Andy hefur til að bera dæmigert
aulaútlit sem minnir til dæmis á Ross
í Friends og Amerikanar virðast voða-
lega hrifnir af. Luke skilar sínu hlut-
verki sæmilega en langfyndnastur er
Mark McKinney í hlutverki hundasál-
fræðingsins. Persónur myndarinnar
eiga það flestar sammerkt að eiga
hunda og leika þeir stórt hlutverk og
halda jafnvel myndinni uppi á köflum
með ótrúlegum skemmtilegheitum. 4'
Dog Park er stundum fyndin mynd
en hún ristir aldrei djúpt. Eftir á að
hyggja er Dog Park meira í ætt við lít-
ið sjónvarpsleikrit þar sem lítið er um
vera en bíómynd. Meiri spenna og
dramatísk átök hefðu gert gæfumun-
inn. Hafi fólk hins vegar ekkert merki-
legt fyrir stafni er Dog Park ágætis af-
þreying. -aþ
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Bruce
McCulloch. Lengd: 90 mín. Aldurstak-
mark: 12 ára.
ss
naust
RAFCEYMAR
PALLHLlFAR
www.benni.is
Vagnhöfða 23 • Sími 587 0 587
Eigum fyrirliggjandi plasthlífar
í palla fyrir eftirtalda pallbíla:
MMC '87-'92, GM S10 '82, GM langur '88-96,
GM langur '74-'87, GM Stepside '96 ->,
Dodge langur 74-'93, Dodge stuttur 74-'93,
Ford F150 '97->, Ford langur '80-'96,
Ford stuttur '80-'96, Ford Ranger '82-'92,
Jeep Commanche '86, Isusu D/C ’88-'96,
Mazda '86-'93.
VERÐ TILB0Ð KR. 4.900,-
Takmarkað magn!