Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Blaðsíða 40
j»48 Tilvera LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 DV • Svo sem rætist draumur hann er ráðinn - þá dreymir mest sem hafa trú á draumum sínum Stundum er mikill draumur fyrir litlu efni og hryggan mann dreymir sjaldan gleðilega drauma, segir í gömlum máltœkjum. Alla menn dreymir og frá ómunatíð hafa þeir velt fyr- ir sér gildi og merkingu drauma. Sumir leggja trún- aö í drauma sína og telja þá fyrirboða þess sem fram- tíöin ber í skauti sér. Efni drauma getur verið atvik sem þarf að túlka. Gríski heimspekingurinn Aristóteles taldi aftur á móti að draumar væru tengdir líkamsá- standi og óháðir yflrnáttúrlegum öflum. Hann hafnaði því að draumar gætu haft forspárgildi vegna þess að við gætum ekki munað framtíðina. Draumur um framtíð Draumar höfðu mikla þýðingu í ís- lensku sveitasamfélagi og mikið mark tekið á berdreymnu fólki. Sagt var að draumar sem menn dreymdi á vaxandi tungli rættust fljótt en að *"'*tlraumar sem menn dreymdi á minnkandi tungli rættust seint. Sumir halda þvi fram að draumar rætist eins og þeir er ráðnir og því eigi að ráða þá jákvætt. Jónas Jónasson frá Hrafnagili seg- ir frá nokkrum draumaráðningum í bók sinni fslenzkir þjóðhættir. „Ef menn dreymir, að menn fari í vatn eða kafi í því, er það fyrir veikind- um. Ef menn dreymir mikinn óþverra, til dæmis að maður hafi gert í rúmið eða eithvað því líkt, áður en menn fara til sjóar, boðar það góðan afla.“ í seinni tið hefur hugmyndin um góðan afla breyst í peninga þvi eins og alþjóð veit tákn- ar mannaskítur í draumi peninga _ eða happdrættisvinning. ^ Jónas segir að ef menn dreymir brennivin eða drykkjuskap á vetrum boði það hálku og ef menn dreymir að þeir sjái margar sólir eða tungl á lofti boði það mannslát. Þeir sem ljúga upp draumum eða þegja yfir þeim missa draumgáfuna og hreyfi menn höfuðið á undan fótunum eftir að þeir vakna gleyma þeir draumum sínum. Draumamenn Eitt öruggasta ráðið til að dreyma mikið er að fá sér draumamann eða draumakonu. Þetta er gert með því að biðja einhvern sem er rétt við andlátið að sjá um drauma sina. Flestir taka þvi vel vegna þess að talið er varasamt að neita þeirri bón. Jónas frá Hrafnagili segir að það sé gömul trú „að draumamenn og konur rotni að fullu í kirkjugörðum nema augun; þau halda sér með fullu lífi, sem lifandi væru“. Hann segir einnig að menn hafi stundum komið niður á slíkar höfuðkúpur í kirkju- görðum og það sé nóg að hylja augun með mold til að slokkni á þeim. Dreymi fólk sama drauminn oft er það vegna þess að draumgjafinn færi því hann aftur og aftur þar til við- komandi hefur meðtekið skilaboðin sem í honum felast. Vilji menn losna ^við draumgjafa sinn er nóg að reka hann burt því þá fyrtist hann. Þegar draumgjafinn fer að ljúga í draumi er maður feigur. Draumaráðningar Sagt er að draumar hafi mis- munandi merkingu fyrir hvern og ^ einn, sama atvikið í draumi hefur DV-MYND PJETUR/SAMSETNIN6 HALLUR í draumi sérhvers manns Nöfn hafa mikla þýöingu i draumum og algengt er að einstaklingar beri nöfn sem vitrast hafa fööur eöa móöur í draumi ekki sömu merkingu fyrir alla. Samkvæmt þessu verður hver ein- staklingur að læra að túlka sina eigin drauma og lítið gagn er í draumaráðningarbókum og ráðn- ingaformúlum. Því hefur þó verið haldið fram að nöfn hafi mikla þýðingu í draumum og algengt er að einstaklingar beri nöfn sem vitrast hafa í draumi. Konu eina frá Hornafirði dreymdi nóttina fyrir skírn sonar sins að til henn- ar kæmi maður og segði henni að skíra drenginn eftir fóður hennar. Nafni barnsins var breytt á síð- ustu stundu því ekki þykir ráðlegt að neita draumanöfnum. í þjóðtrúnni hafa áhveð- .in fyrirbæri í draumum svipaða merkingu, til dæmis tákna blóm eða tré yfirleitt af- komendur eða ætt viðkomandi. Sólar- upprisa eða skært sól- skin boðar gott en sól- myrkvi erfiðleika, lygnt og tært vatn táknar ham- ingju og velgengni en úfið haf óstöðuleika, ósætti og leiðindi. ekki neina hugmynd um hvemig hann fór að því og mundi sjaldnast eftir spurningunum. Hæfileikar Drauma-Jóa dofnuðu með aldrin- um og hann gerði lítið til að halda þeim við. Hæfileikar af þessu tagi eru ekki óþekktir í dag og annað slagið heyrast sögur af fólki sem dreymir fyrir daglátum eða óorðna atburði. Samdraumar Það kemur stundum fyrir að ná- komið fólk dreymi sama draum- inn eða svipaðan. í snilldarverki Finnboga Bernódussonar, Sögur og sagnir úr Bolungavík, rekur hann draum ungs manns sem dreymdi að hann var stadur í ókunnugu húsi þar sem margt fólk var saman komið við dans og gleð- skap. Manninum fannst hann vera vel til fara og fór að svipast eftir dansfélaga. Hann sá gullfallega dökkhærða stúlku og bauð henni í dans. „Hún var snotur, hávaxin og þrýstin, og honum fannst einhver straumur leggja frá henni yfir til sin. Einkanlega tók hann eftir hve augun voru dimm og seiðandi." Aö dansleiknum loknum fylgdi hann stúlkunni heim og bauð hún hon- um inn. Ekki er að sökum að spyrja, varir hennar voru freist- andi og hann spurði hvort hann mætti gista. Skúlkan svaraði með þeim orðum: „Hvað ætli þýði að fresta því sem fram á að koma,“ og eyddu þau nóttinni saman. Tveimur árum síðar var maður- inn í kaupstaðarferð og fór á dans- leik. Sér hann þá draumstúlkuna sína sitja við borð. „Hann bauð henni í dansinn og allt fór sem í draumnum. Hann fór með henni heim og stúlkan sagði, er þau voru komin inn til hennar: Ég þekki þig aftur, ég hefi sé þig fyrr og kannski meira. Þá sagði hann henni draum sinn. Hún brosti hýrt: Nákvæmlega þetta sama dreymdi mig fyrir tveimur árum og ég hef alltaf síðan beðið eftir piltinum sem faðmaði mig þá sæl- ustu nótt ævi minnar. Draumar geta ræst, jafnvel blautir draumar. Martröð Stundum kemur fyrir að menn dreymir að eitthver þyngsli sitji ofan á þeim og kallast það martröð. Samkvæmt þjóðtrúnni stafa martraðir af einhvers konar kvikindi eða illum anda sem sæk- ir á menn í draumi. í Færeyjum er mara kvenvættur sem birtist mönnum á nóttinni í líki fagurrar konu og finnst þeim eins og þeir liggi glaðvakandi og mara komi upp í til þeirra. Hún skríður síðan upp á brjóst þeirra og þjarmar svo fast að þeim að þeir geta hvorki náð andanum né hreyft legg né lið. Mara leitast eftir þvi að stinga fingrunum upp í menn og telja í þeim tenn- urnar, takist henni það gefa þeir upp öndina. Bældir kynórar Draumar og draumaráðningar eru sígilt umræðuefni og allir hafa gaman af því að láta ráða fyrir sig drauma. Freud hélt því fram að í draumum uppfyllti fólk óskir sin- ar og fengi útrás fyrir bælda kynóra. Hvort sem það er rétt eða ekki leynist nokkur sannleiks- broddur í spakmælinu: í draumi sérhvers manns er fall hans falið. -kip@ff.is Martröð Samkvæmt þjóötrúnni stafa martraöir af einhvers konar kvikindi eöa illum anda sem sækir é menn í draumi. Draumfarir Suma dreymir meira en aðra og segir sagan að þá dreymi mest sem hafa trú á draumum sínum og sumir kunna þá list að dreyma það sem þá langar til. Drauma-Jói var frægur um síðustu aldamót fyrir að geta dreymt um fjarlæga staði og atburði. Algengt var að Jói legðist til svefns og fólk spyrði hann frétta af fjarstöddum ættingj- um eða týndum hlutum. í flestum tilfellum sagði Jói rétt frá en hafði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.