Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Blaðsíða 10
10
Skoðun
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001
I>V
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aðstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Filmu- og plötugerð: isafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuði 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblað 280 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins i stafrænu formi og i gagnabönkum án endur-
gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Öryrkjar og moldviðri
Öryrkjamálið er án efa eitt erfiðasta mál sem ríkis-
stjórn Davíðs Oddssonar hefur þurft að glíma við, að
minnsta kosti gagnvart almenningsálitinu. Miklu mold-
viðri hefur verið rótað upp í kringum málið enda taldi
stjórnarandstaðan sig hafa himin höndum tekið. Eftir
eyðimerkurgöngu Samfylkingarinnar allt frá síðustu
kosningum gaf deilan um hvernig bregðast skyldi við
dómi Hæstaréttar í máli öryrkja von um betri tíma.
Skoðanakönnun DV, sem birt var hér í blaðinu í lið-
inni viku, sýndi að mikil andstaða var við ríkisstjórnina
í öryrkjamálinu. Halda má því fram að ríkisstjórnin hafi
í upphafi haldið óskynsamlega á málinu og ekki náð að
koma sjónarmiðum sínum á framfæri né réttum upplýs-
ingum. Nú þegar frumvarp ríkisstjórnarinnar er orðið að
lögum með undirritun forseta íslands verður forvitnilegt
að fylgjast með hvernig ríkisstjórninni reiðir af í hugum
almennings en þó ekki síður hvernig stjórnarandstöð-
unni tekst að fóta sig á hinu pólitíska svelli. Stjórnarand-
staðan hefur átt erfitt með að ná tökum á ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og því voru deil-
urnar um öryrkjadóminn og viðbrögð ríkisstjórnarinnar
sérstaklega velkomnar. Margt bendir hins vegar til að
það reynist stjórnarandstöðunni ekki það pólitíska fóður
sem hún vonaðist til.
Óhætt er að fullyrða að almenn samstaða sé um það
hér á landi að sameiginlegur sjóður komi þeim til hjálp-
ar sem á þurfa að halda, eins og bent var á hér í leiðara
DV undir lok liðins árs, en þar sagði einnig: „Samhjálp
er íslendingum i blóð borin en allt frá 1874 hefur ákvæði
um opinbera aðstoð við þá sem minna mega sín verið i
stjórnarskrá. Mikilvægt er að reglurnar sem þar gilda
séu skýrar og réttlátar og tryggi þeim sem á þurfa að
halda þann rétt.
Dómur Hæstaréttar í máli öryrkja gefur ríkisstjóm-
inni og Alþingi tilefni til að fara í róttæka endurskoðun
á samtryggingarkerfinu - kerfi sem fáir deila um að sé
mikilvægur þáttur í nútimaþjóðfélagi.“
Því miður hafa mörg stór orð fallið á undanfömum
vikum í tengslum við dóm Hæstaréttar í máli Öryrkja-
bandalagsins og fæst hafa þau orðið til að styrkja hag
þeirra sem minna mega sin. Eftir allt moldviðrið sem
þyrlað hefur verið upp standa þeir sem lökust hafa kjör-
in eftir í sömu sporum. Verkefnið, sem allir eru þrátt fyr-
ir allt sammála um að þurfi að leysa, er því enn óleyst.
Sendibréf
Svarbréf forseta Hæstaréttar til forseta Alþingis þar
sem öryrkjadómurinn er útskýrður er í hæsta máta
óvenjulegt. Auðvitað fer best á því að hæstaréttardómar-
ar standi ekki í bréfaskriftum til að skýra út dóma sem
þeir fella, enda ætti slíkt að vera óþarft þegar dómar eru
skýrir og vel rökstuddir. Því miður hefur reyndin verið
sú að dómar Hæstaréttar í mikilvægum málum hafa á
stundum verið óskýrir, illa framsettir með loðnum rök-
stuðningi. í stað þess að varpa skýru ljósi á lagaleg álita-
efni og skera úr ágreiningi hefur rétturinn valdið óróa og
verið uppspretta lagalegra deilna.
En hvað sem liður deilum um réttmæti þess að forseti
Hæstaréttar standi í að svara bréfum og fyrirspurnum,
varpa bréfaskriftirnar kastljósinu að vinnubrögðum og
hæfni hæstaréttardómara. Og kannski verður bréf for-
seta Hæstaréttar til þess að raunverulegar umræður
skapist um hlutverk, skyldur og vinnubrögð Hæstaréttar.
Óli Björn Kárason
Mútur í garöi Kremlarbónda
Þegar Pavel Borodín, einn af æðstu
embættismönnum rússneska ríkisins,
var að stiga af flugvél í Bandaríkjun-
um fyrir fáeinum dögum var hann
tekinn fastur. Borodín ætlaði sér að
fylgjast með og fagna embættistöku
nýs Bandaríkjaforseta en þess í stað
hefur hann mátt dúsa í fangelsi. Öll-
um óskum rússneskra ráðamanna um
að Borodín verði leystur úr haldi hafa
bandarísk yfirvöld hafnað, jafnvel þó
að á fimmtudag hafi sendiherra Rússa
vestanhafs lofað því upp á æru rúss-
nesku stjómarinnar að Borodín muni
ekki hlaupast á brott. Yfir honum vof-
ir framsal til Sviss en það er saksókn-
araembættið þar sem fyrirskipaði
handtöku hans. Og ástæðan er ósköp
einfóld: Mútu- og hneykslismál sem
tengja marga æðstu leiðtoga Rússa
við skipulagða glæpastarfsemi og pen-
ingaþvætti. Þó er mál Borodíns lík-
lega ekki meira en örlítil sletta úr
þeirri eðju spillingar sem um þessar
mundir einkennir Rússland.
Hver er Borodín?
Borodín þessi er kannski ekki sá
taflmaður rússneskra stjórnmála sem
mest ber á út á við en hann er sannar-
lega ekkert peð. Hann er, eins og Borís
Jeltsín, sveitamaður sem á frama sinn
að þakka velviljuðum stuðningsmönn-
um sem kölluðu hann til starfa í
Moskvu eftir að hann hafði um hríð
verið borgarstjóri í Jakútsk, en það er
höfuðborg Sakha sem áður hét
Jakútía. Leið hans lá hratt upp á við í
embættismannakerfi Jeltsínstjórnar-
innar og árið 1993 var hann skipaður
yfirmaður ríkiseigna sem merkir yfir-
maður um 100 þúsund manna starfs-
liðs og umsjónarmaður eigna að verð-
gildi 50-60 þúsund milljarða íslenskra
króna eða sem því svarar. Eitt hlut-
verk Borodíns var að stjórna endurbót-
um á opinberum byggingum, þar á
meðal Kremlarhöllum. Þar hefur ekk-
ert verið til sparað og í gegnum árin
hefur mönnum stundum þótt undar-
legt að í landi þar sem ekki er einu
sinni hægt að borga opinberum starfs-
mönnum laun vegna peningaleysis
eyði stjórnvöld milljarðatugum í glæsi-
byggingar sínar. Þegar Vladímír Pútín,
núverandi forseti Rússlands, var kall-
aður til starfa í Moskvu var hann til að
byrja með aðstoðarmaður Borodíns.
Þaðan lá leið hans upp á við. Hann los-
aði sig hins vegar fljótlega við sinn
fyrrverandi yfirmann. Fáeinum vikum
eftir að Pútín tók við af Jeltsín var
Borodín bolað burt úr Kreml. Hann
hefur síðan gegnt starfi eins konar
framkvæmdastjóra Sambands Rúss-
lands og Hvita-Rússlands.
Mútur og peningaþvætti
Svissnesk yfirvöld hafa i nokkur ár
haft tvö þarlend fyrirtæki, Mabetex og
Mercata, undir grun um að hafa tekið
þátt i peningaþvætti og að hafa mútað
háttsettum rússneskum embættis-
Pavel Borodín
Hvernig sem máli Pavels Borodins lýkur þá er handtaka hans og allur málatilbúnaður-
inn því miður einkennandi fyrir þann farveg sem viðskipti Rússa og vestrænna fyrir-
tækja hafa lent í á síðustu árum.
mönnum. 1998 lét svissneska saksókn-
araembættið rússneska ríkissaksókn-
aranum Júrí Skúratov í té upplýsing-
.ar um spillingu æðstu manna ríkis-
ins, þar á meðal Borodíns og sjálfs
Borís Jeltsins, þáverandi forseta. Til-
raunir Skúratovs til að rannsaka mál-
ið leiddu til þess að honum var bolað
úr embætti. Mabetex og Mercata hafa
séð um stór byggingaverkefni í Rúss-
landi allar götur frá 1990. Fyrirtækin
hafa notið óvenjulega góðrar fyrir-
greiðslu stjómvalda og hafa bara á
síðustu árum gert verksamninga sem
nema 40-50 milljörðum íslenskra
króna. Svissnesk yfirvöld telja að sem
svarar 4-5 milljörðum króna hafi lent
í vösum rússneskra embættismanna
en Borodín er talinn hafa þegið allt að
Valur
Ingimundarson
stjórnmála-
sagnfræöingur
helmingi þeirrar upphæðar í mútur.
Sönnunargögnin eru fjöldi banka-
reikninga í Sviss, sumir skráðir á
nafn Borodíns og fjölskyldu hans.
Aðrir em tengdir Borís Jeltsín, dóttur
hans og tengdasyni. Talið er líklegt að
einhverjar greiðslur hafi farið beint
til forsetans fyrrverandi þó að sviss-
nesk yfirvöld hafi ekki gengið svo
langt að fyrirskipa handtöku hans.
Eftir að Júrí Skúratov var hrakinn úr
embætti hafa rússnesk yfirvöld slegið
þagnarmúr um rannsóknina og rúss-
neska saksóknaraembættið lét málið
niður falla í desember síðastliðnum
og sagði engin sönnunargögn liggja
fyrir um að rússneskir embættismenn
hefðu þegið mútur eða misnotað að-
stöðu sína með öðrum hætti.
Rússagull
Hvernig sem máli Pavels Borodíns
lýkur þá er handtaka hans og allur
málatilbúnaðurinn því miður ein-
kennandi fyrir þann farveg sem við-
skipti Rússa og vestrænna fyrirtækja
hafa lent í á síðustu árum. Það er ekki
svo mjög ótryggt stjórnmálaástand
sem kemur í veg fyrir að fyrirtæki og
peningastofnanir sem annt er um orð-
spor sitt eigi viðskipti við rússneska
aðOa heldur hin óhjákvæmilega spiO-
ing sem er samfara slikum viðskipt-
um. Það að æðstu embættismenn liggi
undir grun um mútuþægni lýsir
ástandinu betur en nokkuð annað.
Enginn er undanskilinn og tengsl
rússnesku mafiunnar við stjórnkerfið
eru því augljósari sem þau eru myrk-
ari. Það er kannski ekki síst þessi
mikla fjármálaspiOing sem kemur í
veg fyrir að samskipti Rússlands við
vestræn ríki geti orðið eðlOeg. Vest-
ræn fyrirtæki sem eiga viðskipti við
Rússa eða taka að sér að ávaxta fé
sem frá Rússum kemur kaOa sjálf-
krafa yfir sig grun um peningaþvætti
og aðra ólöglega starfsemi. Þannig er
RússaguUið ekki síður viðsjárvert nú
á dögum en á meðan sovéski komm-
únistaflokkurinn réð ríkjum.