Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Side 19
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001
I>V
Helgarblað
19
Morton með frumkvöðlum djassins.
Lög hans, s.s. „Wolverine Blues“,
„Ordana" og „King Porter Stomp“,
eru nú talin til klassískra djasstón-
smíða.
Fyrstu hljóðritanir Mortons voru
gerðar í höfuðstöðvum Ku Klux
Klan í Indiana. Hann fékk afnot af
húsnæðinu vegna þess að hann
sagðist vera af spænskum ættum.
Kreólskt útlit hans ruglaði KKK-
menn í ríminu. Þessi súkkulaði-
strákur sem talaði frönsku gat ekki
verið negri!
Píanórúllur
Árið 1923 settist Jelly Roll aö í
stórborginni Chicago. Hann bjó
þar í rúmlega ílmm ár. Á þessum
árum lék hann fyrst inn á svokaU-
aðar píanórúllur og hljóðritaði
töluvert af verkum sínum I léleg-
um hljóðverum. Næstu þrjú árin
voru erfið fyrir Morton. Það var
ekki fyrr en hann gerði einka-
samning við plötuútgáfuna Victor
að hlutirnir fóru að breytast til
batnaðar.
Hjá Victor fékk Morton að hljóð-
rita sitt eigið efni með tónlistar-
mönnum að eigin vali. Það þarf
ekki að taka fram að þessir völdu
tónlistarmenn voru aUir kreólar:
„The Red Hot Peppers." Þeirra á
meðal var klarínettleikarinn
Omer Simeon.
Fram að þessum tímamótum
átti Morton í erfiðleikum með að
fá vinnu. Bófarnir, sem stýxðu öU-
um skemmtistöðum í Chicago,
voru ekki sérstaklega hrifnir af
kokhraustum kreólum. Þar að
auki var hroki Mortons og augljós-
ir fordómar hans gagnvart svört-
um djassleikurum honum ekki tU
framdráttar. Hann bjó því við tón-
listarlega einangrun um hríð.
Brautin rudd
Samningur Victors við „JeUy
RoU Morton and The Red Hot
Hljómsveit Jelly Roll Mortons,
„The Red Hot Peppers".
Myndin er sennilega tekin áriö
1922. Andrew Hilaire, trommur, Ed-
ward „Kid“ Ory, trombóna, George
Mitchell, trompet, John Lindsay,
bassi, Ferdinand „Jelly Roll“
Morton, píanó, Johnny St. Cyr,
banjó, og Omer Simeon, klarínett.
Peppers" reyndist vera tvíeggjað-
ur þegar á leið. ASCAP, samtök
sambærileg við STEF hérlendis,
vUdu ekki viðurkenna hann sem
tónskáld. Þar af leiðandi fékk
hann aldrei höfundarlaun af hljóð-
ritunum og útgefnum nótum.
Seinna meir kom meira að segja í
ljós að ASCAP hafði rukkað inn
fyrir notkun tónsmíöa Mortons en
aldrei skUað greiðslum tU tón-
skáldsins. Bestu hljóðritanir
„Peppers“ má í dag fá frá útgáfu-
fyrirtækinu Blue Bird sem nefnir
þær „Birth of the Hot“
í umsögn um „Birth of the Hot“
segir Jcunes Dapogny, prófessor í
tónlistarsögu við Michiganháskól-
ann, sem sjálfur er djasspíanisti og
útsetjari: „Þessar tónsmíðar eru
án nokkurs vafa sígUd meistara-
verk. Þær eru ótrúlega faUega
samansettar, bæði frá listrænu og
tæknUegu sjónarmiði." Dapogny
prófessor heldur því fram að þetta
sé ekki vegna leiks einstakra með-
lima hljómsveitarinnar, eins og
segja má um Louis Armstrong á
sama tíma, heldur vegna þess að
Morton notaði útsett samspU
hljómsveitar á þann hátt sem áður
var algjörlega óþekkt meðal djass-
leikara.
Þá hafa hljóðritanir frá árinu
1939, sem Morton gerði fyrir Alan
Lomax, þáverandi safnvörð hjá
Þjóðarbókhlöðunni í Washington,
undirstrikað mikilvægi Jellys RoU
Mortons í sögu djasstónlistarinn-
ar. Þessar hljóðritanir voru gefnar
út áriðl993 af Rounder Records á
fjórum hljómplötum sem merktar
eru „Library of Congress." Flestir
sem heyrt hafa þessar upptökur
telja þær meðal stórverka
Mortons.
Guð forði okkur
Hljómplötumar fjórar og ævi-
saga JeUy RoU, rituð af Alan Lom-
ax, verða endurútgefnar í vor í tU-
efni af 60 ára dánardægri Mortons
en hann lést í júlímánuöi 1941.
Þegar hann lést var hann öreigi. í
dag hafa verk hans verið hafin til
vegs og viröingar. Leikarinn
Gregory Hines lék aðalhlutverkið í
söngleik á Broadway, gerðum eftir
æfisögu Mortons. „The Chicago
Humanities Festival" á síðastliðnu
ári var tUeinkað Morton og tónlist
hans flutt í tónleikaröð sem stóð i
tvo daga. Þá hefur „The Chicago
Jazz Ensemble" nýverið leikið ný-
fundin tónverk eftir Morton á tón-
leikum.
Það má segja að lygasögur JeUys
RoUs hafi að vissu leyti orðiö að
sannleika nú seint og síðar meir. í
bréfi tU ritstjórans og útvarps-
mannsins J. Ripley í Chicago,
dags. í ágúst 1938, ritar Morton um
sitt eigið ágæti um leið og hann ít-
rekar að hann og enginn annar
hafl fundiðupp djasstónlistina.
Hann lýkur bréflnu á þessum orð-
um: „Lord protect us from more
Hitlers and Mussolinis." (Guð
forði okkur frá fleiri Hitlerum og
Mussolinum).
Ólafur Stephensen
Nýr gómsætur
íslenskur mjólkurréttur
allra eftirlæti
• með súkkulaði og súkkulaðlspónum
• með perum og súkkulaðispónum
• með vanillu og súkkulaðispónum
I
...og fyrstu verðlaun
"ALLRA FLOKKA"
árið 2001 fær...
„ALLIR FLOKKAR"
Bllar sem efstir urðu I
sínum flokkum:
Disiljeppar
Mitsubishi Pajero Shogun Dl-D
Palljeppar
Ford Ranger Double Cab
Lifstill
SuzukiJimny
Lúxus
Jeep Gr. Cherokeg V8 lim. edit
Stærrijeppar
Land Rover DiscoveryV8
Minni jeppar
Mitsubishi fójero Pinin Farina GLS
Breska tímaritið „Off Road
& 4 Wheel Drive", nóvember
2000, þarsem allir jepplinqar
og jeppar voru prófaðir.
SUZIJKI JllVITslY
í umsögn dómnefndar segir m.a.:
„Frébært verð, frábær hönnun og frábærir aksturseiginleikar."
„Jimny SoftTop er með litla, kraftmikla vél og sérlega gott fjórhjóladrifskerfi sem er
auðtengt og með möguleika á lágri gírskiptingu þannig að hann kemst leiðar sinnar
við allar aðstæður." VERÐ: 1.490.000,-
JANÚAR
TILBOÐ!
Sjálfskiptan Jimny á
verði beinskipts ef þú
segir okkur nvarþú
sast þetta tilboð.
(Verð sjálfskiptingar:
130.000 kr.).
$ SUZUKI
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Simi 568 51 00.
www.suzukibilar.is
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænuklnn 20, slmi 555 15 50. Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Gardabraut 2, simi 431 28 00. Borgames: Bflasala Vesturlands, slmi 437 15 77. Isafjörður: Bílagarður ehf„ Grænagarði, slmi 45B 30 95.
Hvammstangi: Bfla- og búvélasalan, Melavegl 17, slmi 451 22 30. Sauðárkrókur: Bfla- og búvélasalan, Borgarröst 5, slmi 453 66 70. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, slmi 462 63 00. Egilsstaðir: Bflasala Austurlands, Fagradalsbraut 21, slmi 471 30 05.