Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Page 21
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 21 x>v Helgarblað DV-MYND E.ÓI. Finnur Torfi Stefánsson tónskáld Það er talið aö athyglispan nútímamannsins endist ekki nema i mesta lagi 10-15 mínútur þegar ný tónlist er annars vegar. Ég fer ekki eftir þessu og min hljómsveitarverk eru yfirleitt í kringum 25 mínútur í flutningi. “ „Það er svo. En það er svo dá- samlegur heimur sem sá maöur dvelur í sem semur tónlist að þótt viðurkenningu skorti þá skiptir það ekki öllu máli. Þetta er sá lífsstíll sem ég hef valið mér og efnisleg gæði falla fljótt í gildi samanborið við þennan starfa.“ Tónskáldið á traktornum Finnur hefur tamið sér nokkuð spartanska lifnaðarhætti og býr nú suður í Grindavík eftir að hafa verið búsettur á Tungufelli í Lundarreykjadal í Borgarfirði í mörg ár. „Það er ekkert erfitt að temja sér nægjusemi. Það er mér eðli- legt en samfélaginu finnst þessi skortur á munaði stundum ein- kennilegur. Þegar ég bjó á Tungu- felli átti ég um skeið engan bíl en notaði þess í stað traktor sem fylgdi jörðinni til kaupstaðar- ferða. Ég ók honum niður í Borg- arnes og tók rútuna þaðan í bæ- inn. Þetta fannst sveitungum mín- um sætt og skemmtilegt fyrst í stað en svo rann þeim til rifja bíl- leysi tónskáldsins og þegar ná- grannar mínir og vinir endurnýj- uðu eitt sinn bíl sinn létu þeir mig hafa þann gamla á slíku afsláttar- verði að það var nánast gjöf.“ Finnur hefur fengist nokkuð við tónlistarkennslu en síðustu ár helgað sig tónsmíðum eingöngu. Hann segist alls ekki vera einangr- aður eða einfari í íslenskum tón- listarheimi þótt hann kjósi að búa utan höfuðborgarsvæðisins. Aldrei heyra Legg og skel „Ég vissi alveg að hverju ég gekk þegar ég kom heim frá Am- eríku og var sáttur við að það væri þannig. Þó að valið í þessa keppni hafi ef til vill opnað lítinn glugga út í heiminn þá reikna ég alls ekki með að heyra öll verk mín meðan ég lifi. Ég samdi óp- eru, Legg og skel, fyrir fáum árum og vildi gjarnan ráðast í að semja óperu um Hallgerði langbrók. En möguleikar mínir á að heyra Legg og skel meðan ég lifi eru engir og ætli Hallgerður bíði því ekki um sinn.“ í þessu smáa samfélagi lista- manna á íslandi hafa mörg tón- skáld fengist við að semja margs konar tónlist, bæði fyrir leikhús og annars konar listflutning en hljómsveitarverk. Hefur Finni aldrei dottið í hug að semja vin- sælt jarðarfararlag? „Ég reyni að dreifa ekki kröft- um mínum. Sú tónlist sem ég vil helga mig er krefjandi ástkona og verður að fá að sitja ein að mér.“ -PÁÁ Tónlistin krefíandi er ástkona - tónverk Finns Torfa Stefánssonar valið eitt af 12 verkum úr 1131 í stærstu tónsmíðasamkeppni heimsins „í þessu felst auðvitað mikil uppörvun fyrir mig. Ég er alger- lega óþekkt tónskáld. Erlendis hef- ur enginn heyrt mín getið og hér heima eru þeir aöeins fáir sem þekkkja verk min.“ Þetta segir Finnur Torfi Stefáns- son, tónskáld sem nýlega hlotnað- ist sá heiður að verk hans, De Amore, var valið í hóp 12 verka í tónverkasamkeppni sem telja má meðal þeirra stærstu sem haldin er í heiminum. „Þessi keppni heitir Masterprice og er haldin af BBC og fleiri aðil- um og þetta er í annað sinn sem keppnin er haldin. Markmiö henn- ar er að finna hljómsveitarverk sem talið er líklegt að hafi varan- legt gildi og geti orðið klassísk. Það er verið að leita að nýju efni sem gæti orðið hluti af efnisskrá sinfóníuhljómsveita um heim all- an.“ Allir jarðarbúar með Öllum jarðarbúum er heimilt að taka þátt í keppninni og senda inn verk sem skyldi vera 6-15 mínútur aö lengd. Alls barst 1131 verk til dómnefndar sem nú hefur valið 12 þeirra til nánari skoðunar. „Það sem tekur við nú er langt og flókið ferli sem stendur í allt sumar áður en endanleg úrslit liggja fyrir,“ sagði Finnur í sam- tali við DV. Að sögn Finns hefur mat manna á æskilegri lengd tónverka fyrir sinfóníuhljómsveit verið breyti- legt gegnum aldirnar. Mozart og Haydn sömdu gjarnan verk sem tóku 20-30 mínútur í flutningi en Beethoven, eftirmaður þeirra, kom því á að verk gátu tekið allt að einn og hálfan tima í flutningi og þótti ekki mikið. Ytri mörkin liggja síðan eflaust f Niflunga- „En þetta er svo dásamleg- ur heimur sem maður dvel- ur í þegar maður er að semja tónlist að þótt viður- kenningu skorti þá skiptir það ekki máli. Þetta er sá lífsstíll sem ég hef valið mér og efnisleg gœði falla fljótt í verði samanborið við tónlistina. “ hring Richards Wagners sem tek- ur á aðra viku í fullu starfi að spila og fer þeim fækkandi sem eru handgengnir verkinu í fullri lengd. „Það er talið að athyglispan nú- tímamannsins endist ekki nema í mesta lagi 10-15 mínútur þegar ný tónlist er annars vegar. Ég fer ekki eftir þessu og mín hljómsveitar- verk eru yfirleitt í kringum 25 mínútur í flutningi,“ segir Finnur strangur á svip. Þarna er komin skýringin á þvi hvers vegna De Amore er 10 mín- útna langt því það er hluti af verki í þremur þáttum. Poppari, þingmaður, tónskáld Finnur er rúmlega fimmtugur og hefur fengist við ýmislegt um dagana. Hann var á sínum yngri árum poppari í einni vinsælustu hljómsveit landsins, Óðmönnum, með Ólafi Þórarinssyni og Jó- hanni G. Jóhannssyni. Þegar hann hengdi gítarinn upp á snaga lærði hann lögfræði og starfaði sem lög- fræðingur árum saman. Hann var á kafl í pólitík um hríð eins og hann á kyn til, sonur Stefáns Gunnlaugssonar í Hafnarfirði en tveir aðrir synir Stefáns, Guð- mundur Árni og Gunnlaugur, hafa setið á þingi. En þrátt fyrir ýmsa kosti kallaði tónlistin alltaf á hann og Finnur hvarf til Ameríku og nam tónfræði og tónsmíðar árum saman áður en hann sneri heim aftur til íslands um 1990 og hefur síðan helgað sig tónsmíðum að mestu og eingöngu síðustu fimm árin. Hann hefur samið fjölda verka þótt fæst þeirra hafi hann heyrt flutt og meðal ann- ars óperu sem heitir Leggur og skel. It’s the real thing „Vandi tónskálda í dag er vandi nútímamenningar almennt. Við eig- um í miklum vandræðum með að svara gildishlöðnum spurningum eins og hvaö er ljótt, fallegt, gott o.sv.frv. Mælikvarði markaðshyggj- unnar er lagður á allt. Er þetta vin- sælt? Er hægt að græða á því? Afleiöingin er sú að okkur hætt- ir til að telja það gott sem okkur líkar við fyrstu heyrn og selst vel. Menntaðir og vel upplýstir menn, sem fá að velja sér lag í útvarpi, biðja um The Monkees. Maöurinn hefur sjaldan átt eins erfitt með þessar spurningar og í dag. Gott tónverk er ekki eitthvað sem maður fellur fyrir við fyrstu heyrn. Tónlist er mjög krefjandi og hún vill alla athygli þína og smátt og smátt ferðu að heyra þau ríku blæbrigði sem gott tónverk býr yfir. Ef við hins vegar lítum á 20. öld- ina gegnum gleraugu markaðarins þá er lagið við kókauglýsinguna, „It’s the real thing", sennilega merkasta tónverk aldarinnar því aldrei hafa fleiri hrifist né gróðinn verið meiri." Þetta er lítill heimur En hvað gerir tónskáld á íslandi sem vill fá verk sín leikin? „Þetta er lítill heimur á íslandi og sá heimur sem við tónskáld og tónlistarfólk lifum í er enn minni en flest annað. Sem betur fer er hér furðu mikið af hæfu tónlistar- fólki sem er tilbúið að fást við ný tónverk og leika þau á tónleikum þótt það fái jafnvel ekkert fyrir það. Það er erfiðara með hljóm- sveitarverk. Það verk sem De Am- ore er hluti af hefur legiö hjá Sin- fóníuhljómsveit íslands í nokkur ár en ekki verið flutt opinberlega. Þetta er auðvitað mjög bagalegt fyrir tónskáld sem hefur í raun ekki lokið verki sínu fyrr en hann heyrir það. Ef valnefnd hér heima hefði átt að velja verk í þessa keppni hefði De Amore aldrei komist úr landi. En þetta er ekki af óvild Sinfón- íuhljómsveitar Islands í garð tón- skálda eða nútímatónlistar. Hljóm- sveitin er seld undir sömu mark- aðslögmál og allt annað í okkar samtima. Hún er hrædd við að taka áhættu á nýjum höfundum." - Felur þetta ekki í sér að tón- skáld er dæmt til að lifa án viður- kenningar, að minnsta kosti fram- an af ferlinum? Laugardagar eru nammidagar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.