Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2001, Blaðsíða 18
18
FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001
FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001
23
Útgáfufélag: Otgáfufélagiö DV ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aóstoóarritstjórar: Jónas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson
Fréttastjóri: Birgir Guömundsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.netheimar.is/dv/
Fréttaþjónusta á Netinu: http://www.visir.is
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Strandgata 31, sími: 460 6100, fax: 460 6171
Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf.
Plötugerð: ísafoidarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverö á mánuði 2200 kr. m. vsk. Lausasöluverð 200 kr. m. vsk., Helgarblaö 300 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiöir ekki viömælendum fyrir viðtöl viö þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Fótfesta Samfylkingarinnar
Ekki sér fyrir endann á tilvistarkreppu Samfylkingarinn-
ar. Hún hefur ekki náð að marka sér þann sess í íslenskum
stjórnmálum sem sameiningarsinnar á vinstri væng stjórn-
málanna gerðu sér vonir um. Skoðanakönnun DV, sem birt
var i gær, er enn ein vísbending þessa. Fylgistap flokksins
er mikið, hvort sem miðað er við úrslit síðustu skoðana-
könnunar blaðsins eða kosningaúrslit. Flokkurinn mælist
aðeins með 13,5% fylgi og er á svipuðu róli og Framsóknar-
flokkurinn sem tapað hefur fylgi i stjórnarsamstarfinu við
Sjálfstæðisflokkinn. Sjálfstæðisflokkurinn kemur sterkt út
úr könnuninni með 45,6% fylgi og Vinstrihreyfmgin - grænt
framboð bætir stöðu sína og nýtur fylgis 24% þeirra sem af-
stöðu tóku í könnuninni, langt fyrir ofan kjörfylgi.
Rétt er að taka fram að Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri -
grænir hafa nýlega haldið flokksfundi sína og því verið í
fréttum fjölmiðla. Það kann að hafa haft einhver áhrif á af-
stöðu fólks en sú staðreynd ein skýrir á engan hátt ójafna
stöðu vinstri flokkanna tveggja. Könnunin sýnir að vísu að
fjórflokkurinn lifir sem fyrr þótt breytt hafi verið um nöfn
flokka og að nokkru leyti um áherslur. Að óbreyttu stefnir
Samfylkingin hins vegar í stöðu Alþýðuflokksins sem gjarn-
an var minnstur fjórflokkanna. Það er fjarri þeim áætlunum
sem samfylkingarmenn lögðu upp með um forystuhlutverk
og þriðjungsfylgi meðal kjósenda. Á þeim bænum verða Öss-
ur Skarphéðinsson formaður og liðsmenn hans því að taka
sig saman í andlitinu ætli þeir að „toppa“ á réttum tíma
eins og formaðurinn sagði þegar leitað var viðbragða i gær.
Eðlilegt er að bera saman gengi þeirra tveggja vinstri-
flokka sem fram komu í síðustu þingkosningum. Miðað
við DV- könnunina í gær hefur orðið kúvending á stöðu
flokkanna frá kosningum. Samfylkingin hefur tapað 9
þingmönnum en Vinstri - grænir bætt við sig sömu þing-
mannatölu. Kjósendur vinstra megin við miðju virðast sjá
meiri festu í málflutningi Vinstri - grænna en Samfylking-
arinnar. Stefnan í virkjana- og umhverfismálum virðist
þeim trúverðugri sem og landsbyggðaráhersla flokksins.
Þá er linan mörkuð í utanríkismálum, gegn aðild að Evr-
ópusambandinu og vilji til þess að herinn hverfi úr landi
og að ísland segi sig úr NATO. Herstöðvaandstæðingar
eiga því skjól í flokknum og þótt lítt hafi borið á þeim und-
anfarin ár vakna þeir til lífsins á óvissutímum í alþjóða-
málum líkt og nú.
Svanur Kristjánsson, prófessor i stjórnmálafræði við
HÍ, segir í DV í gær að Samfylkingin sé föst í því að taka
afstöðu þegar flokkurinn ætti ekki að gera það en í öðrum
málum sé afstaðan óskýr. Hann skellir skuldinni á foryst-
una. Þótt Samfylkingin hafi náð tæplega 27 prósent fylgi í
síðustu kosningum var forysta hennar veik. Hún hafði
ekki verið kjörin en Margrét Frímannsdóttir var talsmað-
ur fylkingar þeirra flokka sem að stóðu. Stjómmálafræði-
prófsessorinn heldur því fram að kosningabarátta Sam-
fylkingarinnar hafi verið ómarkviss og leitt til tapaðs fylg-
is kvenna og aldraðra.
Eftir formlega flokksstofnun og kjör Össurar Skarphéð-
inssonar sem formanns náði Samfylkingin kjörfylgi á ný
en það hefur dalað síðan og er lægra nú en nokkru sinni.
Það hlýtur að vera alvarlegt áhyggjuefni forystu Samfylk-
ingarinnar, ekki síst þar sem tveir kosningavetur eru
fram undan. Þær tvennar kosningar skera úr um hvort
Samfylkingin nær fótfestu sem öflugri jafnaðarmanna-
flokkur en Alþýðuflokkurinn sálugi var. Þar reynir ekki
síst á formanninn.
Jónas Haraldsson
4-
+
DV
Skoðun
Vextirnir og skuldirnar
Kristjón
Kolbeins
viöskiptafræöingur
Vart hittir höfundur
nokkurn sem ekki hefir allt
á hornum sér vegna hárra
vaxta og kennir Seðlabank-
anum um. Gjarnan spyr þá
höfundur viðmælanda sinn
hvort hann viti hversu háir
vextir bankans séu. í flest-
um tilvikum vefst mönnum
tunga um tönn við þá
áleitnu spurningu. Þegar
bent er á að af lánum bank-
ans til innlánsstofnana í
endurhverfum viðskiptum
séu vextir innan við 11%, sem séu ekki
háir vextir sé mið tekið af árshækkun
lánskjaravísitölu er mælist um átta af
hundraði. - Auk þess skuldi innláns-
stofnanir Seðlabanka einvörðungu
nokkra tugi mifljarða króna hverju
sinni að teknu tiUiti tU innstæðna
þeirra í bankanum.
Milljarða króna skuldir
Næst berst talið aö skuldum ein-
stakra athafnageira þjóðfélagsins. Þeg-
ar greinarhöfundur spyr hvort viðmæl-
andinn viti t.d. hversu mikið ríkið og
stofnanir skuldi er svarið oftast á þá
leið að það sé nærri því að verða skuld-
laust eftir fréttum að dæma. Því árum
saman hafi sjóðurinn verið
rekinn með afgangi og greidd-
ar hafi verið niður skuldir í
stórum stíl. Finnst viðmæl-
anda þá furðulegt að skuld rík-
issjóðs og stofnana hans skuli
enn vera vel yfir hálfu öðru
hundraði miUjarða króna.
Næst víkur sögunni að
sveitarfélögunum sem hafa
einatt verið í fréttum fjölmiðla
vegna bágrar stöðu sumra
þeirra. En skuldir þeirra eru á
níunda tug miUjarða. Finnst
nú sumum að nóg sé komið af svo góðu
en þó er enn eftir að nefna þá geira
sem mest skulda; einstaklingana með
sex hundruð og fimmtíu miUjarðana
sína og fyrirtækin sem nálgast biUjón-
ina óðfluga.
Sýnist viðmælanda mínum eftir
nokkra talnaleikfimi, að þegar upp er
staðið séu skuldir þjóðarinnar eitthvað
á nítjánda hundrað miUjarða þrátt fyr-
ir að stærsti hlutinn sé við innlenda
aöila. En engu að síður eru hreinar er-
lendar skuldir nokkuð á þriðju miUjón
króna á íbúa.
Og síðan vextirnir...
Erum við viðmælandi minn og ég
sammála um að þessar
skuldir hljóti að kosta tölu-
vert í ljósi þeirra vaxta sem
lánakerfið tekur af útlánum
sinum, því í boði eru margs
kyns lán, svo sem víxlar
með vöxtum sem nema
nítján til tuttugu af
hundraði. Boðið er einnig
upp á yflrdráttarlán með
nokkru hærri vöxtum,
Væntanlega eru þau af öðr-
um og betri gæðum, þvi
vinsældir þeirra meðal
skuldunauta eru gífurlegar.
Enn fremur má nefna verð-
tryggð skuldabréf og óverð-
tryggð á matseðli vaxtanna,
með kjörum á svipuðu róli.
En hvað eru einn eða tveir
af hundraði á milli vina? -
Reyndar er það nú þannig,
segi ég við viðmælanda
minn, að góðir viðskipta-
vinir fá nokkuð betri kjör en aðrir.
Undir lok samtalsins er klykkt út
með því að vextir Seðlabankans geti
nú vart vegið þungt í þessari vaxtahít
vegna þess hversu lágir þeir eru og
lánin lítill hluti heildarútlána lána-
kerfisins því hver hundraðshluti vaxta
„Finnst nú sumum að nóg sé komið af svo
góðu, en þó er enn eftir að nefna þá geira
sem mest skulda; einstaklingana með sex
hundruð og fimmtíu milljarðana sína og
fyrirtœkin sem nálgast billjónina óðfluga. ‘
af allri skuld landsmanna sé um átján
milljarðar króna.
Að mestu leyti eru þó vaxtagjöld
eins vaxtatekjur annars, því einvörð-
ungu fjórðungur þessara átján hundr-
uð milljarða eru af erlendum uppruna.
Enn bætir höfundur við: Seðlabankinn
Að halda sín heit
Ágætt framtak Vátryggingafélags
íslands undir forskriftinni: Ég heiti
því hefur nú verið í gangi um nokk-
urt skeið og minnir okkur rækilega
á skyldur okkar í umferðinni sem
vissulega eru ærnar. í umferðinni
eins og annars staðar er ævinlega
hollt aö hafa í huga gullnu regluna
sem Kristur setti fram fyrir meira en
20 öldum en sem er ætíð jafnsönn og
krefjandi um leið: Allt sem þér viljið
að aðrir menn gjöri yður það skuluð
þér og þeim gjöra.
Þetta einfalda en um leið erfiða
heit til að efna ættum við hafa sem
fastan fylginaut í hverri ferð. Erfitt
er það að efna slíkt háleitt heit en
jafnsjálfsagt að freista þess ævinlega
að halda það sem allra best.
Umferðin er sannarlega slík að
þar veitir ekki af að hafa tillitssem-
ina og varkárnina helst í huga,
alltaf, alls staðar.
Undrunarefni
Ég hef í sumar ekið nokkur þús-
Helgi Seljan
fyrrverandi
alþingismaöur.
Sem áhorfandi að þessu hér í borg undrast maður oft
að slysin skuli ekki vera enn fleiri og er þó vissulega
meira en nóg af þeim, maður er hreinlega agndofa oft
á tíðum og spyr sig þá hvaða veraldarinnar ávinning
menn œtli sér af slíku háttalagi.
und kílómetra, bæði vítt
og breitt um okkar fagra
land sem og í ofurum-
ferð höfuðborgarsvæðis-
ins og í engu ætla ég
mér að halda þvi fram
að þar hafi í engu skeik-
að hinum eina rétta öku-
máta, en dæmin sem ég
varð vitni að um alvar-
leg brot, öfugt við alla
heilbrigða skynsemi,
voru ótrúlega mörg í
þessum ferðum öllum.
Alltof oft gleymast stefnuljósin hjá
svo mörgum sem stórhættu getur
skapað og það er rétt eins og svo
margir hugsi: Það hljóta allir aðrir
að vita hvert ég ætla, eða kannski er
nær sanni segja að viðkomandi
hugsi hreint ekki neitt. Framúrakst-
ur er ótrúlega algengur við hæpnar
og oft hreinlega hættulegar aðstæður
og margoft urðum við hjónin fyrir
því að ekið var fram úr okkur á ekki
minni hraða en 120 og þeim hraða
greinilega haldið svo lengi sem séð
varð og minnir þá um leið á þennan
gegndarlausa hraðakstur sem maður
verður vitni að, jafnt innan bæjar
sem utan.
Sem áhorfandi að þessu hér í borg
undrast maður oft að slysin skuli
ekki vera enn fleiri og er þó vissu-
lega meira en nóg af þeim, maður er
hreinlega agndofa oft á tíðum og
spyr sig þá hvaða veraldarinnar
ávinning menn ætli sér af slíku
háttalagi. Farsimanotkunin er sér-
mál og grafalvarlegt í raun og þar
þarf svo sannarlega að freista þess
að setja reglur sem megna að draga
úr þeirri hættu sem þessu síblaðri er
samfara, því ég er sannfærður um að
mikill meirihluti þessara sím-
tala er marklaust og tilgangs-
laust blaður, ávani eða kækur
án allrar þarfar.
Notkun bílbelta, svo sjálf-
sögð sem hún er nú, er furðu-
lega vanrækt og ætti þó jafnvel
þeim kærulausustu í umferð-
inni að vera Ijóst að bilbelti
koma þeim fyrst og síðast til
góða sem þau spennir, þannig
að eðlislæg sjálfselska mann-
skepnunnar ætti þarna að ráða
allri ferð.
Slævö dómgreind
Og svo skal í lokin minnt á þá
dauðans alvöru að freista þess að
aka farartæki undir áhrifum áfengis
sem viðgengst alltof oft og kannski
ekki að undra þegar til þess er hugs-
að, hversu áfengið slævir afla dóm-
greind fólks fljótt, en þó ætti það
vart að fá brjálað svo alla heilbrigða
hugsun að menn vilji stofna lífi sínu
og annarra í hættu með svo hræði-
legu háttalagi.
Það er kannski að vonum í þessari
geggjuðu umræðu um áfengið sem
eðlilegasta förunaut manna afltaf og
alls staðar að einhverjir ruglist í
riminu og þyki akstur undir áhrifum
þess bara hið besta mál og ekki orð
um það meir.
Gleymum þvi aldrei hver ábyrgð
okkar er. gagnvart sjáifum okkur og
öðrum þegar við erum á ferðinni og
gjarna megum við heita þvi í hvert
sinn að aka ævinlega eins og við vild-
um sjá aðra aka, því jafnvel hinir
harðsvíruðustu ökufantar gjöra ótrú-
lega miklar kröfur tfl annarra um
akstur svo og allt sem honum fylgir.
Helgi Seljan
leiðir hjörðina þótt hann
leggi lítið af mörkum í þá
grýtu sem lánakerfið er.
Aðrir fylgja í kjölfarið og
bæta aldeilis um betur eins
og við vorum að ræða um
áðan og vaxtamunurinn ber
vott um.
Hver er þá meinsemdin?
er spurt. Svarið lætur ekki
á sér standa. - Skuldirnar,
maður, skuldirnar og vaxta-
munurinn, það er töluvert
annað að greiða vexti sem
nema fimm af hundraði af
skuld sem er ein milljón
króna eða tíu af hundraði,
verðtryggða, af tveggja
milljóna króna skuld, og
það í átta prósenta verð-
bólgu.
íslendingar eru veikir
fyrir „effum“, bætir höfund-
ur við. Eitt sinn voru það
fótanuddtæki, þá Qórhjólin og síðan
farsímar. Nú eru það frjálsir fjár-
magnsflutningar. Við skulum vona að
þeir verði okkur ekki „eff um eff - og
að effi“, þ.e.a.s. fjötur um fót og að
falli.
Kristjón Kolbeins
Ummæli
Langveik börn og
lúxusjeppi
„Mér finnst... að
veita eigi fólki ákveðna
tekjutryggingu við fæð-
ingu barns. Mér finnst
óþarfi að hafa hana jafn
lága og örorkubæturn-
ar, því eins og við vit-
um lifir enginn af þeim, svo þessi
tekjutrygging þarf að vera raunsæ. En
minna má gagn gera. Meðan við höf-
um ekki efni á því að búa til velkom-
in börn og getum ekki hjálpað fötluð-
um börnum sem vert væri, og alls
ekki liðsinnt langveikum börnum sem
nauðsyn er á, þá eigum við ekki að
gera upp á milli foreldra vel stæðra
barna á þann hátt að þau lakar settu
fái aðeins fólksbíl í gjöf frá ríkinu
þegar þau best settu frá lúxusjeppa í
sængurgjöf. Og kaflast fæðingarorlof."
Stefán Jón Hafstein í Víösjá
á Rás 1 á miövikudag.
Eignarétturinn
„Eignarétturinn er hornsteinn borg-
aralegs samfélags og hagnaðarvonin
er drifkraftur þess. Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur einn flokka staðið vörð um
þessi gildi hér á landi ásamt því að
hafa lagt grunninn að velferðarsamfé-
laginu. Tilraunir andstæðinga flokks-
ins til þess að klekkja á honum byggja
gjarnan á því að höfða til óæðri hvata
fólks, öfundar, vonleysis og ábyrgðar-
flótta. Þannig eru einhver helstu rök
þjóðnýtingarsinna í sjávarútvegi þau
að í upphafi hafi úthlutanir á afla-
heimildum ekki verið réttlátar ... Það
er vissulega rétt að aðferðimar við út-
deilingu aflaheimilda voru umdeilan-
legar en hafa verður í huga að algjör
óvissa ríkti um hversu mikil verð-
mæti var að tefla."
Þórlindur Kjartansson á Deiglan.com
Spurt og svarað
Trúir þú fréttum af stríðinu íAfganistan
Ólafur Sigurðsson,
fréttastjóri erl. frétta á Sjónvarpi:
Blaðamenn háð-
ir striðsaðilum
„Það er sagt að hið fyrsta sem falli
f sérhverju stríði sé sannleikurinn.
Það byggist á því að í stríði verða
blaðamenn algerlega háðir stríðsaðilum með öflun upp-
lýsinga og hafa ekki tök á því að fara á vígvefli nema í
fylgd með öðrum hvorum aðilanum. Svona var þetta í
síðari heimsstyijöld, Kóreustríðinu, Víetnam, Flóabar-
daga. í öllum stríðum saka stríðsaðilar hvor annan um
illgjörðir, eins og að henda sprengjum á spítala og bama-
heimili. Hugmyndin um fjölmiðla í stríði þar sem þeir
svífi yfir vötnum sem allt sjáandi auga er hins vegar ný
af nálinni. Þær fréttir sem berast til íslands reynum við
að vega og meta eftir bestu getu, þannig að fólk fái sanna
mynd af stöðu mála sem ég vona að sé raunin.“
Þórunn Sveinbjamardóttir,
þingmaður Samfylkingar:
Lítið um gagn-
rýna umrœðu
„Mér hefur ofboðið fréttaflutning-
ur sjónvarpsstöðva, t.d. í Bandaríkj-
unum, af stríðsrekstrinum í
Afganistan. Mér hefur lítið þótt fara fyrir gagnrýnni og
upplýstri umræðu um árásirnar, en þeim mun meira
hefur verið gert til aö fegra aðgerðirnar. Þetta á ekki
við um alla flölmiöla, það er mikill munur á vönduðum
fréttaflutningi BBC og sumra annarra stöðva. Því mið-
ur virðist það hafa gerst, likt og gerðist í Persaflóastríð-
inu, að menn láta glepjast af tækni og gervihnatta-
myndum. Hungursneyð blasir við Afgönum og loftárás-
imar hafa litið gert annað en bæta við hörmungar.
Engar fréttir borist af því að bin Laden hafl náðst sem
var yfirlýstur tilgangur árásanna í upphafl."
Jón Kaldal,
ritstjóri Skýja:
Hvenœr sannar
stríðsfréttir?
„Ég trúi því að það sé stríð í
Afganistan, en ég leyfi mér að efast
um að við fáum rétta mynd af at-
burðarásinni þar í gegnum vestræna fjölmiðla. Þegar
Persaflóastríðið var gert upp kom í ljós að áróðursmeist-
arar herja Vesturveldanna höfðu notað fjölmiðlana mis-
kunnarlaust til þess að senda út rangar fréttir. Mynd-
bandsupptökur sem áttu að sýna stýriflaugar hitta skot-
mörk sín í írak voru til dæmis gamlar upptökur úr safni
bandaríska hersins. En það þurfti svo sem ekki að koma
á óvart. Hvenær hafa verið sagðar sannar fréttir á stríðs-
tímum? Það er engin ástæða til þess að ætla að annað sé
upp á teningnum nú. Þvert á móti reyndar eftir ritskoð-
unartilburði vestrænna ráðamanna undanfarnar vikur."
Þorbjöm Broddason
prófessor:
Tek fréttunum
með fyrirvara
„Þessum fréttum tek ég með eðlileg-
um fyrirvara. Þegar miklir hagsmunir
eru í húfi er ekki auðvelt að vera al-
gjörlega yfirvegaður í fréttaflutningi og óhætt er að
reikna með því að ef styrjaldaraðila verður eitthvað á
reyni hann að ljúga sig frá því, alveg sama hver á í hlut.
Þegar menn segjast hafa náð sér niðri á andstæðingi með
loftárásum úr mikilli hæð er auðvitað enginn til frásagn-
ar, nema sá sem fyrir þeim verður. Ég tek undir þau sí-
gildu sannindi að fyrsta fómarlambið í sérhverju stríði sé
sannleikurinn, enda sést á fréttum nú að styrjaldaraðilum
ber ekki saman í frásögnum. Hryðjuverkamaður reynist
vera geitahirðir og hernaðarmannvirki reynast vera
sjúkrahús. Slíkum fréttum mun Qölga enn.“
í náðarfaðmi
st j órnsýslunnar
Byggðastofnun er skilget-
ið afkvæmi hugmynda sem
svífa í lausu lofti og eru
byggðar á fortíðarhyggju
þótt tilgangurinn sé að
skipuleggja framtíðina. En
stofnunin getur ekki einu
sinni skipulagt sjálfa sig
hvað þá óskilgreinda
byggðastefnu sem ekki get-
ur ákvarðað við hvaða
tímapunkt i fortíðinni á að
miða byggðamynstur fram-
tíðar í fjöljjjóðasamfélag-
inu. Tilgangsleysið kemur glöggt
fram í því að ekki er hægt að hrekja
alla starfsmennina í aðra vinnu og
flytja út á land nema að koma á ný
upp kontór handa forstjóranum í
Reykjavík. Einhverjir stjórnar-
menn hafa líka aðgang að hon-
um. Svo þarf að útvega lög-
fræðingi stofnunarinnar hús-
næði við gnægtabrunna stjórn-
sýslunnar í höfuðborginni.
Stærð og dýrleiki þessara
kontóra er aukaatriði. Hitt er
mikilvægara, að Byggðastofn-
un er að afsanna það að hægt
sé að reka fyrirtæki í byggðum
fjarri því umhverfi sem hún er
sífellt að gagnrýna og forða
þjóðinni frá. Ef stjórnendur
Byggðastofnunar trúa ekki á þá
hugsjón að færa byggðamynstr-
ið í svipað horf og það var á
tímum mótorbáta og dagróðra
og þúfnabana til sveita, hverjir
eiga þá að taka mark á frösun-
um um jafnvægi í byggð lands-
ins og öflu því orðatildri sem
umvefur þjóðlega byggða-
stefnu.
Varla leikur vafi á að stofn-
unin sem forðað var norður í
land á erindi við það fyrirbæri
sem enginn Reykvíkingur veit
hvað er en vex mjög í augum
annarra, sjálfa stjórnsýsluna.
En að það þurfi sérstakar skrif-
Oddur Olafsson
skrifar:
vík, nema að forstjóraskrif-
stofan séu höfuðstöðvarnar
en annexían með sínum „at-
vinnutækifærum" á Sauð-
árkróki.
Umskiptingur
Þeir sem láta hæst um
mikilvægi og þjóðhagslengt
gildi Byggðastofnunar eru
um leið duglegastir allra að
smala fólki frá dreifðum
byggðum og þorpum suður
i Kringlu- og Smáralindar-
sæluna. Það lið kvartar í síbylju um
hvað það sé erfltt að búa utan kall-
færis við höfuðborgina þar sem aflir
hafa allt til alls. Það er einhver mun-
ur en úti á kaldrana landsbyggðar-
Ýmsir vestrænir fjölmiölar hafa sjáifviljugir játast undir ritskoðun frétta af stríðsrekstrinum.
bandí vfðl^ mikfalriaS'- Þingmaðurinn er nú farinn að kynna
vald sem stjórnsýslan er er ofar SÍg í nýja kjördceminu Og skýst Um-
skflningi þeirra sem íifa í ná- svifalaust í meistaraflokk í lýð-
græna gióru um hvar hennar er skrumi. Hann sannar það fynr Sunn-
að íeita. lendingum að þeir séu afskiptir í
Þegar fynrgangurinn var ° ......
hvað mestur um nauðsyn þess þjOÖfelaginu Og njOtl ekkl SOmu þegn- bað þess að honum yrði forðað
að flytja Byggðastofnun var réttinda Og þeir sem höfðu vit á aö frá vinum sínum- Um óvinina
aldrei á það minnst að hún . . ,7 „ 7 . _ , , ,, var hann einfær um að sjá
þyrfti að hafa annexíu í Reykja- fiytja Slg tll Reykjavíkur l tceka tlð. sjálfur.
innar. Auðvitað dregur fólk sínar
ályktanir og flytur suður við fyrsta
tækifæri.
Hjálmar Árnason þingmaður hóf
um daginn kosningabaráttu sína í
gjörbreyttu kjördæmi. Keflvíkingur-
inn þarf nú að sækja atkvæðin í
dreifbýlið allt austur í Landbrot. Um
leið og kjördæmið tognar austur á
land gerist Hjálmar umskiptingur
sem voru merkileg fyrirbrigði í
bændasamfélaginu.
Þingmaðurinn er nú farinn að
kynna sig í nýja kjördæminu og
skýst umsvifalaust í meistaraflokk í
lýðskrumi. Hann sannar það fyrir
Sunnlendingum að þeir séu afskiptir
í þjóðfélaginu og njóti ekki sömu
þegnréttinda og þeir sem höfðu vit á
að flytja sig til Reykjavíkur í
tæka tíð. Rökin eru sótt í
handbók um öfund og sjálfs-
vorkunn.
En Hjálmar Árnason hefur
ráð undir rifi hverju og kann
ráð til að leysa verðandi kjós-
endur sína undan armæðunni
sem hann telur að hrjái þá.
Hann ætlar að jafna lífskjörin
og lækka alla skatta á lands-
byggðarfólki um 10%. Þá
munu byggðir blómstra og bú-
sældin drjúpa af hverju skatt-
framtali.
Vinlrnir
Unnið er skipulega að því að
grafa undan sjálfstrausti og
sjálfsbjargarviðleitni þeirra
sem byggja hina dreifðari
landshluta. Sífelldur saman-
burður á kjörum þeirra og að-
stöðu miðað við þá sem búa í
og við höfuðborgina hlýtur að
draga lífsþróttinn úr þeim sem
talin er trú um að þeir eigi af-
skaplega bágt.
Frelsararnir koma svo úr
röðum kjörinna fulltrúa sem
skaffa liðónýta Byggðastofnun
og félagslegar íbúðir sem gera
ekki annað en vekja falskar
vonir um betri tið og sökkva
sveitarfélögum enn dýpra í
skuldafenið.
Landsbyggðarfólk sem trúir
á sín byggðarlög getur tekið
undir með keisaranum sem