Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2002, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002
Útlönd
DV
REUTERSMYND
Látnum vottuö viröing
íbúar Nanterre viö París voru slegnir
miklum óhug viö moröin í ráðhúsinu.
Lögregla telur að
morðin hafi verið
framin í brjálæði
Franska lögreglan, sem rannsak-
ar morðin í ráðhúsinu í Nanterre,
þar sem vopnaður maður skaut átta
bæjarfulltrúa tO bana í fyrrinótt,
telur líklegt að þau hafi verið fram-
in i brjálæðiskasti. Morðinginn,
hinn 33 ára gamli Robert Dum,
sagði þó ekkert um ástæður voða-
verksins við yfirheyrslur i gær.
Talsmaöur Græningja í Frakk-
landi vísaði á bug fréttum um að
morðinginn tengdist þeim.
Dum, sem var í skotfélagi, var
vopnaður þremur öflugum byssum
þegar hann hóf skothrið í lok bæjar-
stjómarfundarins laust eftir mið-
nætti í fyrrinótt og skaut á allt sem
fyrir var áður en hann var yfírbug-
aður af nærstöddum í ráðhúsinu.
Útflutningsfyrir-
tæki verður selt
Stærsta útflutningsfyrirtæki Fær-
eyja, Faroe Seafood Prime, verður
nú einkavætt, að því er fram kemur
í skeyti frá dönsku fréttastofunni
Ritzau.
Sérstakur sjóður sem var stofnað-
ur í efnahagsþrengingunum 1995
var meðal annars notaður til að
bjarga fyrirtækinu frá gjaldþroti.
Formaður sjóðsins, Wilhelm Pet-
ersen, segir að ákvörðunin mn að
selja Faroe Seafood Prime sé í sam-
ræmi við samþykktir um að fyrir-
tæki í eigu sjóðsins séu einkavædd.
Velta Faroe Seafood Prime er um
átta og hálfur milljarður íslenskra
króna á ári. Útflutningur fyrirtæk-
isins er um 35 prósent af fiskútflutn-
ingi Færeyja.
, REUTER-MYND
Ahyggjur af irak
Romano Prodi, forseti framkvæmda-
stjórnar ESB, hefur þungar áhyggjur
af hugsanlegum hernaöi Bandaríkja-
manna gegn írak.
Romano Prodi
áhyggjufullur
Romano Prodi, forseti fram-
kvæmdastjómar Evrópusambands-
ins, hefur þungar áhyggjur af hugs-
anlegum hemaðaraðgerðum gegn
írak og segir að ESB-ríkin séu klof-
in í afstöðu sinni, auk þess sem þau
viti ekkert um fyrirætlanir Banda-
ríkjamanna.
Þetta kemur fram í viðtali sem
birtist við Prodi í breska tímaritinu
New Statesman í gær. Þar segir
Prodi enn fremur að stuðningur við
hemað Bandarikjanna gegn hryðju-
verkum sé farinn að dala vegna sí-
vaxandi ofbeldis í samskiptum
Palestínumanna og ísraela.
Bush ber lof á friðartillögur Sádi-Araba:
Arafat lýsti yfir
stuðningi sínum
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti bar lof á tillögur Abdullahs
krónprins í Sádi-Arabíu til lausnar
deilum ísraela og Palestínumanna
og hvatti leiðtoga arabaríkja á fundi
í Beirút í gær til að byggja á hug-
myndum hans.
Sádi-Arabar hvöttu leiðtoga
arabaríkjanna til að styöja friðartil-
lögur krónprinsins en fulltrúar
Palestínumanna komu fundinum í
uppnám þegar þeir gengu út til að
mótmæla því að libönsk stjórnvöld
komu í veg fyrir að Yasser Arafat,
forseti Palestínumanna, gæti flutt
ávarp sitt til fundarins um gervi-
hnött.
„Þetta er leiðtogafundur araba en
ekki líbanskur leiðtogafundur,“
sagði Farouq al-Kaddoumi, formað-
ur stjórnmáladeildar FYelsissam-
taka Palestínu.
Fulltrúar á fundinum sögðu að
Sameinuðu arabísku furstadæmin
hefðu fækkað í sendinefnd sinni til
REUTER-MYND
Krónprins á fundi
Abdullah krónprins og Saud al-Faisal
utanríkisráöherra eru í forsæti sádi-
arabísku sendinefndarinnar á leiö-
togafundi arabaríkjanna í Beirút í Lí-
banon. Þar eru friðartiliögur
Abdullahs helsta umræöuefniö.
að sýna samstöðu með Palestínu-
mönnum.
Deilan um ræðu Arafats, sem
hann flutti svo á sjónvarpsstöðinni
al-Jazeera, skyggði á umræður
manna um friðartillögur Abdullahs
krónprins þar sem gert er ráð fyrir
því að ísraelar skili aftur hertekn-
um svæðum i skiptum fyrir frið viö
arabaríkin.
Prinsinn bað fundarmenn um að
styðja tillögur sínar um eðlileg
tengsl við ísrael í skiptum fyrir
brotthvarf ísraela frá öllu palest-
ínsku landi og stofhun ríkis Palest-
inumanna.
Arafat fagnaði friðartillögum
Sáda í ræðu sinni og lýsti yfir
stuðningi sínum við þær.
Bush Bandarikjaforseti sagði
einnig í gær að sendimanni hans,
Anthony Zinni, hefði orðið vel
ágengt í tilraunum sínum til að
koma á vopnahléi í átökum Palest-
ínumanna og ísraela.
REUTERTMYND
Jóhannes Páll páfi í þungum þönkum
Jóhannes Páll páfi sést hér í þungum þönkum i vikulegum áheyrnartíma sínum í Páfagaröi í gær. Miklar annir eru í
Páfagaröi þessa dagana, eins og nærri má geta, en óvíst er hvort páfi getur tekiö fullan þátt í hátíðarhöldunum, sem
ná hámarki á páskadag, þar sem hann hefur fundiö til krankleika undanfarna daga.
Áframhaldandi eftirskjálftar í Afganistan:
Grafið með berum höndunum í
rústir húsa á skjálftasvæðinu
Afganir grófu með berum hönd-
um í rústum húsa í bænum Nahrin
i þeirri von að finna fólk á lífi. Bær-
inn jafnaðist nánast við jörðu í
nokkrum hörðum jarðskjálftum
sem urðu aðfaranótt þriðjudags og á
þriðjudagsmorgun. Afgönsk yfir-
völd segja að hátt í þrjú þúsund
manns hafi látið lífið.
Jörðin skalf enn þegar Hamid
Karzai, forsætisráðherra bráða-
birgðastjómarinnar í Kabúl, heim-
sótti skjálftasvæðin. Hann sagði
þeim sem komust lífs af úr hamför-
unum að bæði innlendar og erlend-
ar hjálparstofnanir gerðu allt sem
þær gætu til að aðstoða.
Þrír myndarlegir skjálftar riðu
yfir á meðan Karzai hafði viðdvöl í
Nahrin en minni háttar skjálftar
voru á tíu til fimmtán mínútna
fresti. Fylgdarlið forsætisráðherr-
REUTERWND
Eftirskjálftinn hræölr
Afgönsk stúika rekur upp óp, þótt
hún sé í traustum örmum fööur
síns, þegar eftirskjálfti ríöuryfirí
noröanveröu Afganistan í gær.
ans hópaðist í kring um hann, óró-
legt á svip.
Talsmaður Karzais sagöi að hann
hefði viljað sjá eyðilegginguna í
markaðsbænum Nahrin, þar sem
áður bjuggu tíu þúsund manns, með
eigin augum og ræða við íbúana. Og
það sem hann sá, að sögn talsmanns
Sameinuðu þjóðanna, var „algjör
eyðilegging".
Karzai hefur lýst yfir þjóðarsorg í
Afganistan í dag, skírdag.
Enginn íbúi Nahrin hefur upplif-
að annað eins.
„Það hefur aldrei komið svona
jarðskjálfti eftir því sem bæði faðir
minn og systir hans segja,“ sagði 62
ára gamall maður sem fæddist í Na-
hrin og hefur aldrei farið lengra en
steinsnar frá bænum.
Nahrin er frægur bær fyrir
glímukappana sem koma þaöan.
Tommy neitar allri sök
Tommy Suharto,
yngsti sonur fyrr-
um forseta
Indónesíu, neitaði
fyrir rétti í gær aö
hafa lagt á ráðin
um að drepa dóm-
ara sem hafði dæmt
hann til fangavist-
ar. Tommy sagði að byssum, sem
sagðar voru i eigu hans, hlyti að
hafa verið komið fyrir í íbúð hans
og að lögreglan hefði gert það.
Flugfélög spá í samruna
Finnskt dagblaö greindi frá því i
gær að viðræður færu nú fram um
samruna norrænu flugfélaganna
SAS og Finnair. Að sögn blaðsins
hafa Svíar staðfest þreifingamar en
Finnar bera á móti.
Smith fær ekki passa
Ian Smith, fyrrum forsætisráð-
herra Ródesíu, hefur verið greint
frá því að hann fái ekki
simbabveskt vegabréf fyrr en hann
hefur gefið upp breskt ríkisfang sitt.
Smith lýsti yfir sjálfstjóm Ródesíu,
sem síðar varð Simbabve, frá Bret-
landi árið 1965.
Ætla að bæta sambúð
Rússar og Víetnamar hétu því í
gær að efla hemaöarsamvinnu sína,
enda þótt stutt sé í að Rússar yfir-
gefi mikilvæga herstöð í Suður-Ví-
etnam.
Naomi hafði betur
Breska ofurfyrir-
sætan Naomi
Campbell hafði bet-
ur í málaferlum
sinum gegn æsi-
blaðinu Mirror í
gær þegar dómari
dæmdi henni rúm-
lega hálfa milljón
króna í bætur. Naomi taldi blaðið
hafa brotið á sér með því að birta
fréttir um að hún sækti fundi fikni-
efnaneytenda.
Aðstoð við Palestínu
Danska utanríkisráðuneytið hef-
ur veitt sem svarar um áttatíu millj-
ónum íslenskra króna til aðstoðar
við palestínska flóttamenn.
Kónarnir ekki hér
Pakistönsk
stjómvöld sögðust í
gær vera þess full-
viss að hvorki
Osama bin Laden
né klerkurinn Om-
ar, leiðtogi tali-
bana, væru í land-
inu. Þau ætla ekki
að leyfa bandarískum hermönnum
að leita þeirra í Pakistan.
Borun frestað
Útlit er fyrir að fyrstu borun olíu-
félaganna Agip og Foroya Kolvetni
eftir olíu við Færeyjar verði frestað
fram á næsta ár, að því er heimild-
ir færeyska blaðsins Sosialurinn
herma. Eyðun Eltor oliumálaráð-
herra vill þó ekki staðfesta það í
samtali við blaðið.
Flæddi inn í þurrkví
Yfirvöld í Dubai við Persaflóa
sögðu í gær að fimm menn aö
minnsta kosti hefðu farist og 31 er
saknað eftir að vatn flæddi inn í
þurrkví í gærmorgun. Litlar líkur
þykja á því að þeir sem saknaö er
finnist á lífi.